Morgunblaðið - 24.11.2001, Page 20
LANDIÐ
20 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSKURÐARNEFND skipu-
lags- og byggingarmála hefur
hafnað kröfu tíu húseigenda við
Austurgötu í Keflavík um ógild-
ingu byggingarleyfis fyrir ný-
byggingu á lóðunum nr. 51 til 55
við Hafnargötu. Byggingar-
fulltrúi gaf umrætt leyfi út í júní
árið 2000 og er húsið risið og fyr-
ir löngu tekið í notkun.
Húsanes ehf. byggði tveggja
hæða verslunar- og skrifstofuhús
á umræddum lóðum við Hafn-
argötu en gömul og lágreist hús
sem þar stóðu voru flutt í burtu
eða rifin. Verslun 10-11 er nú á
jarðhæð þessa nýja húss.
Húseigendur við Austurgötu
17, 20, 22, 24 og 26 kærðu útgáfu
byggingarleyfisins. Gerðu þeir
meðal annars þá kröfu að skipu-
lags- og byggingryfirvöldum í
Reykjanesbæ yrði gert að vinna
deiliskipulag fyrir lóðina og
kynna hana með lögformlegum
hætti. Bæjaryfirvöld héldu því
fram að byggingarleyfið væri í
fullu samræmi við gildandi að-
alskipulag og að fullnægjandi
grenndarkynning hefði farið
fram.
Framkvæmdir
ekki stöðvaðar
Úrskurðarnefndin hafnaði síð-
astliðið sumar þeirri kröfu kær-
enda að stöðva framkvæmdir á
meðan fjallað væri um málið. Í
niðurstöðu nefndarinnar sem nú
liggur loksins fyrir, löngu eftir
að húsið var byggt og tekið í
notkun, kemur meðal annars
fram að ekki sé hægt að fallast á
það með kærendum að nauðsyn-
legt hafi verið að vinna deili-
skipulag fyrir umræddan bygg-
ingarreit áður en þar yrðu
leyfðar byggingaframkvæmdir
og byggingaryfirvöldum í
Reykjanesbæ því heimilt að veita
leyfi fyrir byggingunni. Niður-
staða nefndarinnar varð sú að
hin kærða ákvörðun samræmist
ákvæðum laga og sé ekki haldin
neinum þeim annmörkum sem til
ógildingar leiði. Kröfu um ógild-
ingu byggingarleyfisins sé því
hafnað.
Hafna kröfu um ógild-
ingu byggingarleyfis
Keflavík
BJÖRGUNARSVEITIN Sigurvon í
Sandgerði var kölluð út í fyrrakvöld
þegar hlutar af garðhýsi voru farnir
að fjúka á hús við Norðurtún.
Með snarræði tókst að koma í veg
fyrir frekara tjón á garðhýsinu og
nálægum mannvirkjum. Trollbútur
var fenginn að láni hjá útgerð og
settur yfir hýsið.
Garðhýsi á ferð
og flugi
Sandgerði
IFBB-bikarmeistarakeppnin í
hreysti verður haldin í Íþróttahúsinu
við Sunnubraut í Keflavík í dag. Lífs-
stíll stendur fyrir mótinu.
34 karlar og níu konur eru skráð
til leiks þar á meðal báðir bikar-
meistararnir frá því í fyrra, Freyja
Sigurðardóttir úr Keflavík og Arnar
Grant frá Akureyri. Úrslitakeppnin
hefst kl. 17.
Ýmis skemmtiatriði verða á milli
keppnisgreina.
Bikarmeist-
arakeppnin í
hreysti í dag
Keflavík
UNGLINGARNIR í félagsmiðstöð
Reykjanesbæjar, Fjörheimum í
Njarðvík, hafa ásamt starfs-
mönnum undirbúið útsendingar
Fjörstöðvarinnar 99,4 sem hófust
í fyrradag. Þau hafa meðal ann-
ars farið á námskeið í dag-
skrárgerð.
Er þetta í fimmta skiptið sem
Fjörstöðin er starfrækt en hún er
að þessu sinni á nýrri senditíðni,
99,4. Útvarpað er daglega frá
klukkan 16 til 22, í heila viku.
Starfsmenn Fjörheima héldu
námskeið í þáttagerð síðastliðinn
mánudag þar sem farið var yfir
það hvernig setja á upp handrit
og fleira. 42 unglingar eru með
þætti í útvarpinu, en auk þeirra
mun fjöldi unglinga koma og lesa
auglýsingar.
Að sögn Nilsinu Larsen Ein-
arsdóttur, starfsmanns Fjör-
heima, hefur verið stanslaus
vinna frá 12. nóvember við söfn-
un auglýsinga og annan und-
irbúning. „Við endum síðan alltaf
á stærsta balli ársins, para- og
vinaballinu. Þar veitum við verð-
laun, meðal annars fyrir besta
handritið, frumlegasta efnið og
neyðarlegasta atvikið í beinni,“
segir Nilsina og bætir því við að
einnig sé valið par ársins og vinir
ársins á ballinu.
Garnagaul
Ásta Harðardóttir og Arnar
Steinn Elísson voru með fyrstu
útsendinguna þetta árið, ásamt
Helga Reynissyni, en þátturinn
þeirra heitir Garnasmellir. „Við
erum með spjall um skólalífið,
gátur þar sem fólk hringir með
svör og við fjöllum einnig um
tónlistarmenn og fleira,“ segir
Ásta.
Xxx.sex
Eyrún Erla Sigurgeirsdóttir,
Sigurbjörg Halldórsdóttir og
Lillý Guðlaug Sigurðardóttir sjá
um þáttinn xxx.sex ásamt vin-
konu sinni Bergrósu Gísladóttur:
„Við verðum með spurningar,
viðtal, spjall og slúður. Svo tölum
við líka smá um jólin,“ segja
stúlkurnar. „Við erum ekkert
stressaðar yfir að tala í útvarpið,
það er ekkert mál,“ bæta þær
við. Aðspurðar hvaðan hugmynd-
irnar að efninu koma segjast þær
eiga flestar hugmyndirnar sjálf-
ar, en herma samt smá eftir út-
varpsstöðinni FM.
Samdráttur
Samdráttur heitir þáttur Jóns
Aðalgeirs Ólafssonar og Ágústs
Þórs Ágústssonar. „Við fjöllum
um rokk, rapp og bíómyndina
Double take. Svo erum við með
spurningar sem fólk getur hringt
og svarað,“ segja þeir félagar um
þáttinn sinn. „Við fórum á nám-
skeiðið á mánudaginn og lærðum
hvernig við ættum að setja upp
útvarpsþátt og um muninn á
góðu og lélegu handriti.“
Yfir fjörutíu unglingar
með þætti á Fjörstöðinni
Reykjanesbær
Ásta Harðardóttir og Arnar Steinn Elísson við lokaundirbúning.
Jón Aðalgeir Ólafsson og Ágúst Þór Ágústsson riðu á vaðið.
Eyrún Erla Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörg Halldórsdóttir og Lillý Guð-
laug Sigurðardóttir eru með þáttinn xxx.sex.
Morgunblaðið/Sigríður Hjálmarsdóttir
SUÐURNES
LOFTFÉLAGIÐ, áhugafólk um
öndun, er samstarfsverkefni vinnu-
hóps á vegum Landlæknisembættis-
ins, Tóbaksvarnarnefndar, Glaxo-
SmithKline og fleiri aðila. Eitt af
markmiðum félagsins er að efla
lungnamælingar og hefur fyrirtækið
GlaxoSmithKline ákveðið að gefa 26
lungnamælitæki til heilsugæslu-
stöðva víðs vegar um landið. Þetta
tæki sem fyrirtækið gefur er valið
með þarfir heilsugæslunnar í huga
og kostar hvert tæki um 170 þús. kr.
Heilsugæslustöðin í Hveragerði var
ein þeirra stöðva sem fá tækið að
gjöf og var elsti Hvergerðingurinn,
Stefán Sigurðsson, sem varð 100 ára
14. mars sl., fenginn til að prófa tæk-
ið fyrstur. Það var fulltrúi Glaxo-
SmithKline, Pétur Magnússon, sem
afhenti tækið, sem heitir Spiro2000.
Fulltrúum heilsugæslustöðvanna er
jafnframt boðið upp á námskeið í
notkun tækisins.
Heilsugæslan fær
lungnamælitæki
Hveragerði
Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir
Pétur Magnússon, fulltrúi
GlaxoSmithKline, afhendir yfir-
lækni heilsugæslustöðvarinnar,
Marianne Brandsson Nielsen,
lungnamælingartækið.
BASAR var haldinn fyrir skemmstu
á Dvalarheimili aldraðra í Borg-
arnesi þar sem voru til sölu ýmsir
handunnir munir af eldra fólkinu.
Byrjað var á sýningu kl. 15.30 en
salan hófst kl. 17. Margir munirnir
voru einstakir og urðu menn að
vera snarir í snúningum til að
krækja í það sem þá langaði í.
Á sama tíma var einnig selt
veislukaffi á Dvalarheimilinu og
rann allur ágóði í ferðasjóð fyrir
eldra fólkið. Fjölmennt var og
greinilegt á mörgum að þetta væri
viðburður sem ekki mætti láta
framhjá sér fara.
Kaffisala og basar á
dvalarheimili aldraðra
Borgarnes
♦ ♦ ♦
FYRIRTÆKIÐ Vest Mennt á Pat-
reksfirði opnaði nýlega tölvu- og
þjónustuverslun fyrir símann, þar
sem verða til sölu algengustu GSM-
og heimilissímar. Einnig hefur Vest
Mennt gert samning við bræðurna
Ormsson um sölu á skrifstofuvélum
og tölvum frá þeim. Þar verður jafn-
framt útibú frá fasteignasölunni Hóli.
Lögmannsstofa Jóhanns Halldórs-
sonar kemur til með að verða þar með
þjónustu sína einu sinni í mánuði.
Vest Mennt er með umboð fyrir Vá-
tryggingarfélag Íslands og er þjón-
ustuaðili Símans í Vestur-Barða-
strandarsýslu. Enn fremur mun
fyrirtækið sinna þjónustu fyrir
Snerpu á sunnanverðum Vestfjörð-
um, í tengslum við loftnet og netteng-
ingar. Jafnframt verður Vest Mennt
með bókhaldsþjónustu í samstarfi við
bókhaldsþjónustu Gunnars og umboð
fyrir bókhaldssölukerfið D.K retis.
Vest Mennt er í eigu hjónanna
Hauks Más Sigurðssonar og Gunn-
hildar Þórisdóttur.
Vest Mennt opnar tölvu-
og þjónustuverslun
Patreksfjörður
ÞÓ langt sé liðið á
nóvember hefur tíð
verið óvenjugóð
töluvert um rign-
ingar en nánast
aldrei frost þangað
til núna um miðja
viku þegar kólnaði
allverulega eins og
sést á þessari mynd
sem tekin var í blíð-
skaparveðri og töluverðu frosti í
Mýrdalnum enda létu grýlukertin
ekki á sér standa. Myndin er tekin í
gömlu sauðfjárbóli austan í Litlhöfða
í Hafursárgili með Búrfell í baksýn
og sólin orðin lágt á lofti enda stytt-
ist dagurinn óðum núna.
Kuldinn minnir á sig
Fagridalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson