Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 22
MEIRA en aldargamall siður með
Mývetningum er að efna til slægju-
fundar í lok haustverka og helst
fyrsta vetrardag. Fyrr á árum voru
þessir fundir daglöng samkoma þar
sem margar ræður voru fluttar,
skáldin lásu ljóð og tekist var á í
bændaglímu auk annars. Hin síðari
ár hefur samkoman verið tvískipt
þannig að um miðjan dag er kaffi-
samsæti með slægjuræðu og öðrum
skemmtiatriðum, en síðan dans-
leikur um kvöldið. Sveitarsjóður
kostar samkomuhald þetta, en kos-
in er nefnd frá nokkrum bæjum til
að sjá um framkvæmdir hverju
sinni.
Að þessu sinni fór samkoman
fram í Reykjahlíðarskóla en dans-
leikurinn í Skjólbrekku. Slægju-
ræðuna flutti Anna V. Skarphéð-
insdóttir frú í Vogum. Svo sem
venja er á slægjufundi fór hún yfir
tíðarfar liðins sumars, heyskapinn
og afurðir búanna, en ræddi einnig
hnignun dreifbýlisins og hefur
áhyggjur af, svo sem er um fleiri.
Þá fór hún með tvær gamlar vísur
mývetnskar, alkunna vísu Illuga
Einarssonar, f. 1768:
Sumri hallar hausta fer
heyri snjallir ítar
hafa fjalla hnjúkarner
húfur mjalla hvítar.
Og aðra sem færri þekkja og er
eftir Kristínu Andrésdóttur, en hún
var samtímamaður Illuga:
Fýkur mjöllin feikna stinn
fegurð völlinn rænir.
Hylja fjöllin sóma sinn
silungshöllin skænir.
Báðar vísurnar munu hafa verið
ortar við sama tækifæri á kvæða-
vöku mývetnskra hagyrðinga í Ytri
Neslöndum fyrir um 200 árum.
Mörg fleiri skemmtiatriði voru á
slægjufundinum sem var ágætlega
sóttur bæði af ungum og öldnum.
Sama má segja um dansleikinn þar
var fjölmenni og gólfið troðið af
mikilli lipurð við undirleik dans-
hljómsveitarinnar „Sweety“ frá
Dalvík. Vogakonur fengu það verk-
efni að undirbúa samkomuhaldið
og stjórna að þessu sinni og fórst
þeim það myndarlega að vonum.
Vel sóttur slægjufundur
Morgunblaðið/BFH
Allir leggja með sér brauð á hlaðborðið sem þannig verður forvitnilegt. Heita mátti að „silungshöllin skænir“ ætti við þegar frostið var um 10°C og Mývatn var lagt þunnum ís.
Mývatnssveit
LANDIÐ
22 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEMENDUR Grunnskólans á
Djúpavogi stóðu nýverið fyrir söfn-
un fyrir fátækt fólk í Namibíu. Hug-
myndin kviknaði þegar Hrönn
Bergþórsdóttir kom í heimsókn í
skólann en hún er búsett í Namibíu.
Þar er hún í sjálboðavinnu og kenn-
ir við skóla í bænum Lüderitz sem
Þróunarsjóður Íslands hafði for-
göngu um að byggja.
Á þessu svæði er mikil fátækt og
ákváðu nemendur að leggja sitt af
mörkum til að létta þessu fólki lífið.
Nemendur söfnuðu öllu mögulegu,
fatnaði, skóm, skóladóti o.fl. Hólma-
tindur frá Eskifirði mun flytja dótið
út en Landflutningar og Kassagerð-
in styrktu einnig söfnunina. Vel
þótti takast til og það var stór hópur
nemenda sem stillti sér upp fyrir ut-
an grunnskólann á Djúpavogi eftir
að hafa flokkað, pakkað og merkt
gjafirnar sem sendar verða til
Namibíu.
Ljósmynd/Sólný Pálsdóttir
Ragnar, Rafn, Birgir og Ýmir tóku þátt söfnuninni.
Grunnskólanemar
standa fyrir söfnun
Djúpavogur
FYRIR skemmstu var haldinn hátíð-
legur dagur velunnara dvalarheimil-
isins Kirkjuhvols á Hvolsvelli. Til
samsætisins var fulltrúum ýmissa
gefenda muna og peninga til dvalar-
heimilisins boðið og með því móti
reynt að sýna þakklæti í orði og verki.
Erfingjar Boga Péturs Guðjónssonar
frá Brekkum í Fljótshlíð, sem þar var
til heimilis í mörg ár, gáfu Kirkjuhvoli
bækur hans í vönduðum bókaskáp og
veglega peningagjöf sem var nýtt til
kaupa á húsgögnum og öðrum mun-
um í sameiginlegt rými heimilisins.
Rauðakrossdeild Rangárvallasýslu
hefur stutt Kirkjuhvol frá upphafi og
gefið mörg góð og gagnleg tæki. Fyr-
ir nokkru færðu Rauðakrossmenn
heimilinu baðstól og í farvatninu er
sjúkrarúm með borði. Einnig bauð
deildin heimilisfólki Kirkjuhvols í ferð
um Árnessýslu sl. sumar og hyggst
deildin jafnvel gera ámóta ferð að ár-
legum viðburði.
Kvenfélögin í austanverðri Rang-
árvallasýslu hafa sýnt heimilinu hlý-
hug með gjöfum og aðstoð af ýmsum
toga. Nú síðast færðu félögin heim-
ilinu hársnyrtitæki þannig að nú
þurfa hártæknar ekki lengur að hafa
með sér öll tæki.
Frá tveimur fyrrverandi heimilis-
mönnum, þeim Reyni Ólafssyni frá
Múlakoti í Fljótshlíð og Helga Jóns-
syni frá Bollakoti í sömu sveit, fékk
Kirkjuhvoll húsgögn og ýmsa aðra
muni. Reynir og Helgi eru báðir látn-
ir.
Ýmsar aðrar góðar gjafir hafa
heimilinu borist t.a.m. jólatré frá
Fljótshlíðarhreppi, blómavasar frá
Guðrúnu Ormsdóttur og basarmunir
frá Prjónaveri. Einnig hafa góðir
gestir lífgað upp á tilveruna með söng
og hljóðfæraleik og Pálmi Eyjólfsson
hefur ekki legið á liði sínu við að
gleðja heimilisfólkið með ljóðalestri.
Sóknarprestur og kór Stórólfs-
hvolskirkju halda reglubundnar
helgistundir á Kirkjuhvoli, ferming-
arbörnin hafa heimsótt heimilisfólk
reglulega og Kirkjuskólinn fer í heim-
sókn mánaðarlega.
Þær breytingar hafa orðið á stjórn
Kirkjuhvols að Helga Þorsteinsdótt-
ir, sem verið hefur formaður stjórnar
heimilisins um árabil, hefur sagt af
sér. Við formennsku tók Guðjón Ein-
arsson, fyrrverandi lögreglumaður á
Hvolsvelli.
Glöddu heimilisfólk
með góðum gjöfum
Morgunblaðið/Önundur S. Björnsson
Á myndinni eru gefendur og fulltrúar félagasamtaka sem styrkt hafa
starfsemi Kirkjuhvols ásamt fráfarandi formanni, hjúkrunarforstjóra
og fleira starfsfólki. Helga Þorsteinsdóttir (t.v.), fráfarandi formaður
stjórnar Kirkjuhvols, og Sólveig Þórhallsdóttir hjúkrunarforstjóri af-
henda gefendum viðurkenningarskjöl.
Breiðabólstaður í Fljótshlíð
Velunnaradagur dvalarheimilisins
NÚ Í haust urðu hótelstjóraskipti á Hótel
Flúðum. Svanhildur Davíðsdóttir og Karl
Rafnsson sem stjórnað hafa rekstrinum síð-
astlið ár tóku við hótelstjórn á Hótel Selfoss
Icelander hotels en það eru sömu rekstrarað-
ilar og reka Hótel Flúðir. Hótel Selfoss er nú
lokað en mun verða opnað 1. júní á næsta ári
eftir miklar breytingar og viðbyggingu, alls
verða þar 100 herbergi og m.a. ráðstefnusalur
og kvikmyndasalur.
Þau Margrét Runólfsdóttir og Guðmundur
Sigurhansson eru nú hótelstjórar á Flúðum.
Áður stjórnuðu þau Hótel Höfn og hótelinu á
Skógum síðastliðið sumar en þau hafa langa
reynslu af hótelrekstri. Á hótelinu á Flúðum
eru 32 tveggja manna herbergi með baði, síma
og sjónvarpi og um 80 manns geta matast þar
samtímis utan stærri veisluaðstöðu í félags-
heimilinu. Þau hjón segja góða aðsókn að hót-
elinu sem sé alltaf að aukast, skammt er að aka
að náttúruperlum og sögustöðum í uppsveitum
Árnessýslu og það kunni fólk að meta. Mikið er
um fundi, smærri ráðstefnur og litlar árshá-
tíðir og t.d. var húsfyllir á villibráðarkvöldi ný-
lega. Þá verða jólahlaðborð fjórum sinnum í
desember svo eitthvað sé nefnt.
Nýir hótelstjórar
taka við á Flúðum
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hótelstjórar á Hótel Flúðum, Margrét Runólfsdóttir og Guðmundur Sigurhansson.