Morgunblaðið - 24.11.2001, Page 28
HEILSA
28 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
H E I L B R I G Ð S K Y N S E M I
LÝSI&LIÐAMÍN
Allra liða
bót
án A og D vítamína
Hvað er
Liðamín?
Liðamín inniheldur
amínósýruna
glúkósamín, sem er
hráefni til viðgerðar á
brjóski, og kondróítín
sem er eitt algengasta
byggingarefnið í
liðbrjóski.
Hvers vegna
lýsi?
Lýsið í Lýsi & Liðamíni
inniheldur a.m.k. 30% af
omega-3 fitusýrum.
Rannsóknir sem gerðar
hafa verið á liðagigt
benda til þess að við
reglubundna neyslu á
omega-3 fitusýrum dragi
úr einkennum eins og
stirðleika á morgnana,
verkjum og þreytu.
www.lysi.is
Y
D
D
A
/
S
ÍA
fiú safnar hjá okkur...
Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is
Utanlandsfer› fyrir
a› safna punktum.
Eitthva› fyrir mig.
Vandamál mitt er að konan mín eyðir ótrúlega mikl-
um tíma á Netinu. Hún er fyrir framan tölvuna
marga tíma á dag og oft situr hún langt fram á nótt.
Hún er farin að vanrækja ýmislegt sem hún áður
sinnti mjög vel. Til dæmis hefur hún gleymt að sækja
lítið barn okkar til dagmömmu, og kemur með alls-
konar afsakanir til að losna við að gera hluti á heim-
ilinu. Ég veit lítið sem ekkert um hvað hún er að gera
á Netinu, nema að allur tíminn fer í svokallaðar
spjallrásir. Hún talar sífellt um „netvini“ sína, sem
hún virðist setja í forgang framyfir fjölskyldu og vini.
Ég veit ekki hversu náin tengsl hennar eru við „net-
vinina“, en hef áhyggjur af því að hún sé að stunda
einhverskonar „cybersex“ á bak við mig. Þetta er alls
ekki líkt henni og ég tel mig vita að hún elski mig og
barnið okkar. Er þetta einhvers konar netfíkn, og get
ég gert þá kröfu til hennar að hún minnki netnotk-
unina og geri eitthvað í þessu eða er ég að gera úlf-
alda úr mýflugu?
Netekkill
SVAR Fyrst vil ég nefna við þig að þú ertalls ekki að gera mikið úr þessu og
það er greinilegt að hér er um raunverulegt vanda-
mál að ræða. Fræðimenn eru hinsvegar enn að
koma sér saman um hvað eigi að kalla þessa gerð
vandamála – Net-fíkn, Net-áráttu eða eitthvað
annað. Einnig eru menn ekki sammála um hvort
um einangrað vandamál sé að ræða, þá einungis
tengt netnotkuninni, eða hvort um er að ræða
vandamál sem tengist öðrum erfiðleikum eins og
t.d. þunglyndi, lélegu sjálfstrausti, kvíða og per-
sónuleikavandamálum. Reynslan í dag virðist vera
sú að algengt er að önnur vandamál liggi að baki
„Net-fíkninni“, frekar en að um einangrað vanda-
mál sé að ræða. Hver sem orsökin er, er greinilegt
að töluvert mikið af fólki virðist eiga í erfiðleikum
með að stjórna netnotkun sinni og stofnar þar með
oft framtíð fjölskyldu sinnar, vinnu og námi í mikla
hættu. Fólk á í erfiðleikum með að stýra nettíma
sínum, lýgur til um netnotkunina og er oft mjög
pirrað þegar það getur ekki verið á Netinu. Rann-
sókn í grunnskólum í Danmörku sýndi að um 10%
unglinga ættu við vandamál að stríða sem tengd-
ust of mikilli netnotkun. Oftast tengist ofnotkun
Netsins einhverju einu ákveðnu „áhugasviði“ eða
„svæði“ og þar eru spjallrásir, kynferðislegt efni,
og þátttaka í nettölvuleikjum mjög ofarlega á
blaði, en hinsvegar virðist ekki vera að þeir, sem
leita sér upplýsinga á Netinu, eigi við nein sérstök
vandamál, tengd mikilli ofnotkun, að stríða.
Fólk sem sækir mikið í að eiga í samböndum á
Netinu, á kostnað „alvöru“ sambanda, er oft á tíð-
um fólk sem finnur fyrir óöryggi eða skorti í raun-
verulegum samböndum og sækir þar af leiðandi í
þessi „gervisambönd“, þar sem það gerir sér jafn-
vel upp nýjan „persónuleika“.
Í sambandi við spurningu þína um hvort þú getir
gert kröfu til konu þinnar, er engin spurning um
að þú eigir rétt á að gera kröfu til maka þíns um að
hún og þið finnið lausn á þessum vanda, þar sem
samband ykkar mun líklega eiga í erfiðleikum með
að þróast á jákvæðan hátt með óbreyttu ástandi.
Það er líka mikilvægt að þú ræðir þetta við hana
alvarlega fyrr en seinna, sérstaklega ef kynni
hennar á Netinu hafa enn ekki þróast frá því að
vera einungis í tölvunni yfir í nánari samskipti. Það
er nefnilega töluvert algengt að (ástar)sambönd í
gegnum tölvu þróist með tímanum, það er úr tölv-
unni yfir í símasamskipti og að lokum hittast ein-
staklingarnir jafnvel.
Ég tel að í vandamáli sem þessu séu nokkrir
þættir sem sérstaklega þarf að vinna með. Það
fyrsta er samband ykkar, þá meina ég bæði þau
vandamál sem gætu verið í sambandi ykkar og þá
mögulega þá vöntun sem kona þín gæti fundið fyr-
ir í sambandinu, og einnig þau undirliggjandi
vandamál sem mögulega gætu verið fyrir hendi
hjá henni. Einnig þurfið þið að vinna úr því sem
hefur gerst í samskiptum hennar við „netvinina“,
hvort sem þar er einungis um (saklaust) spjall að
ræða, nánara samband, „cybersex“, eða eitthvað
ennþá alvarlegra. Auk þess þarf hún að nýta sér
leiðir til að læra að stýra netnotkuninni, bæði þar
sem þið komið ykkur saman um hversu mikil net-
notkunin má vera og hverskonar netnotkun verður
stunduð.
eftir Björn Harðarson Lesendur Morg-
unblaðsins geta
komið spurningum
varðandi sálfræði-,
félagsleg og vinnu-
tengd málefni til
sérfræðinga á vegum persona.is.
Senda skal tölvupóst á persona-
@persona.is og verður svarið
jafnframt birt á persona.is.
Fólk á í erfiðleikum með að
stýra nettíma sínum, lýgur til
um netnotkunina og er oft
mjög pirrað þegar það getur
ekki verið á Netinu. Rannsókn
í grunnskólum í Danmörku
sýndi að um 10% unglinga
ættu við vandamál að stríða
sem tengdust of mikilli net-
notkun.
Höfundur er sálfræðingur.
Er þetta einhvers konar netfíkn?
ÞAÐ er mat bandarískra sérfræð-
inga að árás hryðjuverkamanna á
Bandaríkin 15. september sl. hafi
haft þau áhrif á bandarísku þjóð-
ina að hún leitar í auknum mæli í
skyndimat. Neytendur hafa meira
að segja nýtt orð yfir mat af þessu
tagi. Núna kallast hann huggunar-
biti (e. comfort food). Um öll
Bandaríkin hefur neysla aukist á
slíkum mat, sem margir hafa alist
upp við að borða. Dæmi um rétti
sem þykja nú eftirsóknarverðari
en áður er kartöflustappa, steikur,
kjöthleifar, steiktur kjúklingur og
pönnukökur á sunnudagsmorgn-
um.
Nýleg könnun á sölu matvöru í
bandarískum matvöruverslunum
sýnir að sala á skyndibitafæði
jókst um 12,4% í september miðað
við sama mánuð í fyrra. Sala á for-
elduðum kartöflum jókst um 13%.
Alan Hack, klínískur sálfræðing-
ur í New York, segir að það sé
ekki óþekkt að neysla á skyndi-
bitafæði aukist á viðsjárverðum
tímum. „Hryðjuverkaárásin hefur
haft mikil áhrif á okkur. Það sem
við setjum upp í okkur er ígildi
þess að ná stjórn á hlutunum.“
Því miður vilja langtímaáhrif
neyslu fituríks fæðis gleymast.
„Hættan á krónískum sjúkdómum,
hjartasjúkdómum og krabbameini,
minnkar því miður ekki,“ segir
Chris Rosenbloom, yfirmaður mat-
vælafræðideildar ríkisháskólans í
Georgíu. Hún gefur þau ráð til
þeirra sem eiga erfitt með að
standast huggunarbitann að elda
frekar heima. Menn geti vissulega
látið eftir sér að borða kartöflu-
stöppu en í hana má nota mjólk í
stað rjóma. Hún segir líka að mik-
ilvægi líkamsræktar megi ekki
gleymast. „Mér finnst best að æfa
til þess að takast á við streitu og
byggja sjálfa mig upp. Ég er ekki
maraþonhlaupari eða þríþrautar-
maður. En það jafnast ekkert á við
gönguferð í góðu veðri, viðra
hundinn eða fara með börnin í
garðinn þegar hauststillurnar
ríkja. Rannsóknir sýna að æfingar
og útivera eru fyrirtaks lausnir
gagnvart streitu.“
Skyndibitinn vinsælli í
kjölfar hryðjuverkanna
AP
Beðið eftir pítsusneið. Þegar á
bjátar vaknar tilhneiging til að
fá sér skyndibitafæði.