Morgunblaðið - 24.11.2001, Qupperneq 41
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 41
OD
DI
H
F
H
74
73
Í STARFI mínu sem
samgönguráðherra hef
ég lagt ríka áherslu á
öryggismál á öllum
sviðum samgangna. Vil
ég sérstaklega nefna
langtímaáætlun um ör-
yggismál sjómanna og
nýja löggjöf um rann-
sóknir sjóslysa. Í fyrsta
sinn er nú unnið að úr-
bótum í öryggismálum
sjómanna eftir sér-
stakri áætlun, sem Al-
þingi samþykkti sem
þingsályktun á síðast-
liðnu vori. Samkvæmt
þeirri áætlun er ráðgert
að verja úr ríkissjóði til þessa verk-
efnis 15 m.kr. á ári, auk þess sem
ýmsir hagsmunaaðilar leggja til bæði
vinnu og fjármagn. Siglingastofnun
Íslands hefur verið falin framkvæmd
áætlunarinnar. Það eru hins vegar úr-
bætur í flugöryggismálum sem ég vil
gera grein fyrir að þessu sinni.
Að undanförnu hafa verið miklar
umræður um flugöryggismál. Sumt í
þeirri umræðu hefur verið málefnaleg
og eðlileg gagnrýni. Annað flokkast
því miður sem sleggjudómar, sem
ekki eru svara verðir, líkt og tíðkast
hjá sumum pistlahöfundum fjöl-
miðlanna. Ég hef látið fara vandlega
yfir þá gagnrýni sem fram hefur kom-
ið á framkvæmd flugöryggismála og
rannsókn flugslysa hér á landi, í þeim
tilgangi að draga lærdóm af og standa
fyrir aðgerðum sem leitt geta til auk-
ins öryggis, fækkun slysa og aukins
trausts almennings á flugi. Af þessu
tilefni er nauðsynlegt að upplýsa les-
endur Morgunblaðsins um þær fjöl-
þættu aðgerðir sem ég hef sem sam-
gönguráðherra beitt mér fyrir og
væntanlegar eru til að treysta sem
mest og best framkvæmd flugörygg-
ismála á Íslandi.
Stjórn og eftirlit með flugrekstri
Flugmálastjórn fer, í umboði sam-
gönguráðherra, með framkvæmd
flugöryggismála. Jafnframt er flug-
rekstraraðilum lagðar á herðar skyld-
ur sem varðar öryggi í fluginu undir
eftirliti Flugmálastjórnar. Til að und-
irstrika þær miklu kröfur, sem ráðu-
neytið gerir til flugrekstraraðila, var
leitað samkomulags við
Leiguflug Ísleifs Otte-
sen um að binda enda á
flutninga félagsins fyrir
ríkið vegna þeirrar
hörðu gagnrýni sem fé-
lagið varð fyrir í kjölfar
flugslyssins í Skerja-
firði.
Til að tryggja sem
best öryggi í flugi gilda
flóknar reglur um heim-
ildir til handa einstak-
lingum og fyrirtækjum
til að reka flugstarf-
semi. Hinn 1. október sl.
tóku gildi hér á landi
samevrópskar reglur,
svokallaðar JAR-OPS reglur, fyrir
minni flugrekendur. Er Ísland þar
með eitt fyrsta ríkið í Evrópu til að
lögfesta þessar reglur fyrir svo litlar
vélar.
Ísland er aðili að Alþjóðaflugmála-
stofnuninni, ICAO, sem gerir form-
lega úttekt á stjórnun flugöryggis-
mála hér á landi og hvernig Ísland
uppfyllir ákvæði stofnsáttmála ICAO
um flugmál. Með eftirliti frá ICAO
njótum við reynslu og þekkingar sér-
fræðinga sem starfa á vettvangi
ICAO, sem er ein af stofnunum Sam-
einuðu þjóðanna. Meðal athugasemda
stofnunarinnar í nýjustu úttekt henn-
ar á Flugmálastjórn Íslands má nefna
að eftirlitsmenn Flugmálastjórnar
eru of fáir, að nokkuð skortir á örugg-
an aðgang Flugmálastjórnar að allri
starfsemi sem varðar flugöryggi og
að skoðun flugvéla á að vera meira
áberandi þáttur í útgáfu lofthæfis-
skírteina. Á þessu hefur nú verið ráð-
in nokkur bót með 10 m.kr. viðbótar
fjárveitingu á þessu ári og 30 m.kr. á
því næsta til flugöryggismála. Ákvæði
um aðgang Flugmálastjórnar og að-
stöðu til eftirlits eru í frumvarpi til
breytinga á loftferðalögum sem ég
mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku.
Frumvarpið hefur það að markmiði
að efla flugöryggi og flugvernd á Ís-
landi. Helstu nýmæli eru:
1. Stóraukið eftirlitsvald og úrræði
Flugmálastjórnar.
2. Hert eftirlit með starfsemi flug-
valla og flugstöðva.
3. Aukin áhersla á flugverndarmál,
t.d. með gerð flugverndaráætlunar.
4. Aukin áhersla á forvarnir með
innra gæðastarfi flugrekenda.
5. Aukin úrræði vegna „óláta“ um
borð í flugvélum.
Rannsókn flugslysa
Rannsóknarnefnd flugslysa, sem
er sjálfstæð rannsóknarnefnd, sinnir
rannsóknum vegna flugslysa, kannar
orsakir þeirra og gerir tillögur til úr-
bóta. Á síðastliðnu vori vann lagapró-
fessor fyrir ráðuneytið greinargerð
um heimildir ráðherra til afskipta af
störfum nefndarinnar. Niðurstaðan
var sú að samkvæmt gildandi lögum
hef ég, sem samgönguráðherra, enga
heimild að gefa nefndinni fyrirmæli,
til dæmis um endurupptöku mála. Ég
tel hins vegar, meðal annars í ljósi
ábendingu ICAO, bæði rétt og skylt
að samgönguráðherra hafi rýmri
heimildir gagnvart rannsóknarnefnd
flugslysa og hef skipað nefnd til að
gera tillögur þar að lútandi eins og
fram kemur síðar.
Aðgerðir í kjölfar
Skerjafjarðarslyss
Vegna hins hörmulega flugslyss
sem varð í Skerjafirði 7. ágúst í fyrra
var, eins og vænta mátti, hert mjög á
eftirliti með fluginu. Til fróðleiks er
hér gerð grein fyrir helstu aðgerðum
ráðuneytisins eftir að skýrsla rann-
sóknarnefndar flugslysa kom fram:
23.03.2001: Skýrsla Rannsóknar-
nefndar flugslysa um flugslysið í
Skerjafirði berst ráðuneytinu. Þegar í
stað hófst vinna í ráðuneytinu á
grundvelli athugasemda, ábendinga
og tillagna nefndarinnar.
28.03.2001: Skipaður er starfshóp-
ur til að endurskoða ákvæði loftferða-
laga.
28.03.2001: Auglýsing um að JAR
OPS 1 reglur gagnvart flugrekendum
minni flugvéla taki gildi 1. október
2001. Gildistöku þessara reglna hafði
verið frestað.
05.04.2001: Ráðherra felur Flug-
málastjórn að efla eftirlit með flug-
rekendum minni flugvéla og láta þá
sæta sérstöku eftirliti.
Flugmálastjórn er einnig fyrirskip-
að að tryggja að tímamörk, sem flug-
rekendum eru sett með gildistöku
auglýsingar um JAR-OPS 1, verði
virt. Óskað er eftir áætlun Flugmála-
stjórnar um það hvernig brugðist
verði við tillögum RNF í öryggisátt.
18.04.2001: Óskað eftir úttekt Al-
þjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO)
á frammistöðu Flugmálastjórnar
samanborið við önnur lönd og svæði
miðað við úttekt í september 2000.
Óskað eftir úttekt ICAO á starfs-
aðferðum Rannsóknarnefndar flug-
slysa.
15.-19.05.2001: Tveir sérfræðingar
ICAO koma til Íslands til að fram-
kvæma úttekt á Rannsóknarnefnd
flugslysa. Sérstaklega er farið fram á
að skýrsla nefndarinnar vegna flug-
slyssins í Skerjafirði verði skoðuð.
31.05.2001: Flugmálastjórn gerir
grein fyrir áætlun stofnunarinnar um
ráðstafanir í kjölfar flugslyssins í
Skerjafirði samkvæmt beiðni ráðu-
neytisins 5. apríl.
Gerð er tillaga um að fleiri starfs-
menn verði ráðnir til eftirlitsstarfa og
að auknu fé verði varið til flugörygg-
ismála.
12.06.2001: Ráðherra fær sam-
þykkt í ríkisstjórn að fjölga starfs-
mönnum á flugöryggissviði Flug-
málastjórnar og veita auknu fé af
flugmálaáætlun til flugöryggismála.
Ákveðið er að veita 10 milljónum af
flugmálaáætlun árið 2001 og 30 millj-
ónum árið 2002 til verkefnisins.
20.06.2001: Ráðuneytinu berst
áætlun Flugmálastjórnar um viðbún-
að og skipulag á starfsemi Flugmáls-
tjórnar á Vestmannaeyjaflugvelli á
Þjóðhátíð 2001 eins og ráðuneytið
hafði óskað eftir.
25.06.2001: Ráðuneytinu berst
skýrsla ICAO. Þar er staðfest að
Flugmálastjórn stenst fyllilega sam-
anburð við önnur lönd, en gerðar til-
lögur til úrbóta eins og áður er komið
fram.
Niðurstaða ICAO vegna Rann-
sóknarnefndar flugslysa er sú að ekki
sé talin ástæða til frekari rannsóknar
á slysinu í Skerjafirði 7. ágúst 2000 og
skýrsla RNF hafi tekið á öllum þeim
atriðum, sem nauðsynleg eru við flug-
slysarannsóknir, auk þess sem viðeig-
andi tillögur í öryggisátt hafi verið
gerðar.
18.08.2001: Ráðherra beinir því áliti
sínu til Rannsóknarnefndar flugslysa
að rétt hljóti að vera að nefndin afli
sér nýrra gagna og upplýsinga sem
komið hafi í ljós um tilhögun björg-
unar vegna Skerjafjarðarslyssins og
meti hvort ástæða geti verið til endur-
upptöku málsins hvað það varðar.
Nefndin varð við þeirri ábendingu
ráðherra.
20.08.2001: Skipaður er starfshóp-
ur til að undirbúa tillögur um öryggi á
flugvöllum landsins og semja drög að
reglugerð um starfsemi flugvalla.
24.08.2001: Skipaður er starfshóp-
ur til að endurskoða lög um rannsókn-
ir flugslysa.
17.10.2001: Ráðherra óskar tafar-
lausra skýringa Rannsóknarnefnar
flugslysa á sérstökum vitnisburði kaf-
ara.
19.10.2001: Ráðherra mælir fyrir
frumvarpi til laga um breytingu á loft-
ferðalögum.
30.10.2001: Rannsóknarnefnd flug-
slysa hafnar vitnisburði kafara í
greinargerð til ráðherra.
30.10.2001: Ráðuneytið sendir Lög-
reglustjóranum í Reykjavík greinar-
gerð Rannsóknarnefndar flugslysa
með ósk um að hún verði tekin til
meðferðar við rannsókn málsins hjá
lögreglu.
01.- 06.11.2001: Ráðuneytið óskar
eftir og móttekur skýringar Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins á fram-
burði kafaranna.
Flugþing og „flugöryggi
í dögun nýrrar aldar“
Með vísan til þess sem að framan er
rakið má sjá að ráðuneytið hefur lagt
áherslu á að styrkja alla þætti flug-
öryggismála. Það er von mín að les-
endur þessarar greinar átti sig á að
allt er gert af hálfu ráðuneytisins til
að skapa öryggismálum í flugi trú-
verðugt umhverfi. Eftir sem áður
verður að gæta þess að sofna ekki á
verðinum. Við eigum að gera strangar
kröfur til ráðuneytis, Flugmála-
stjórnar, Rannsóknarnefndar flug-
slysa og ekki síður til flugmanna og
flugrekenda. Í byrjun þessa mánaðar
var efnt til flugþings undir yfirskrift-
inni „Flugöryggi í dögun nýrrar ald-
ar“. Þar fjölluðu sérfæðingar, inn-
lendir og erlendir, um þróun og
framkvæmd flugöryggismála. Það er
von mín að með vandaðri og gagn-
rýnni umræðu, líkt og þeirri sem fram
fór á Flugþingi, hafi okkur auðnast að
koma umfjöllun um flugöryggismál á
það stig, sem gera verður kröfu til um
svo mikilsverðan málaflokk.
FLUGÖRYGGI Í DÖGUN
NÝRRAR ALDAR
Sturla Böðvarsson
Ráðuneytið hefur lagt
áherslu á það, segir
Sturla Böðvarsson, að
styrkja alla þætti flug-
öryggismála.
Höfundur er samgönguráðherra.