Morgunblaðið - 24.11.2001, Side 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 51
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri miðvikudaginn 28. nóvember 2001 kl. 9.00:
Aðalstræti 51, neðri hæð t.h., 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl.
eig. Ólafur Örn Ólafsson, gerðarbeiðendur lífeyrissjóðurinn Lífiðn
og sýslumaðurinn á Patreksfirði.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
23. nóvember 2001.
Björn Lárusson, ftr.
TIL SÖLU
Jólagjöf eiginkonunnar
Taska full af verkfærum,
sem nauðsynlegar eru í viðhaldið.
Metró, Skeifan 7,
s 525 0800.
Opið alla daga til kl. 19.00
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 27. nóvember 2001 kl. 13—16 í porti bak við
skrifstofu vora í Borgartúni 7 og víðar:
Sjá nánar á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is .
1 stk. Gallopper 4x4 dísel 1999
1 stk. Nissan Patrol 2 stk. Nissan Terrano ll SGX
1 stk. Iveco 40,10 (9 farþ.) 4x4 dísel 1991
1 stk. Subaru Baleno station 4x4 bensín 1997
1 stk. Subaru Legacy Outback
1 stk. Nissan Sunny Wagon
1 stk. Suzuki Vitara 4x4
2 stk. Ford Econoline E-350 1 stk. Ford Econoline
sendiferðabifreið
1 stk. Toyoya Hi Lux 1 stk. Toyota Hi Lux
1 stk. Mitsubishi Space Wagon 1 stk. Chevrolet 500 (ógangfær)
1 stk. snjóblásari
m/dráttarvélatengi 1991
2 stk. Ski-Doo Skandic vélsleðar
1 stk. rafstöð 40kw (3ja fasa)
lítið notuð dísel
Til sýnis í birgðastöð Vegagerðarinnar við Stórhöfða:
1 stk. snjótönn á hjólaskóflu Gjerstad 13 fet 1985
1 stk. snjótönn á vörubíl Schmidt MF 5,3 1993
1 stk. snjótönn á jeppa Meyer ST-90 1991
1 stk. fjölplógur á jeppa Jongerius J-210 1984
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Ríkiskaupa sama dag
kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn
til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
(ATH. Inngangur í port frá Steintúni).
Elsku karlinn, málaðu fyrir jól
40% afsláttur af 4ra lítra innimálningu.
Allir litir
Metró, Skeifunni 7,
sími 525 0800.
Opið alla daga til kl. 19.00
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Sunnudagur 25. nóvember
Gönguferð út í buskann.
Fararstjóri: Gunnar Hólm Hjálm-
arsson. Brottför: BSÍ kl. 13:00.
Þriðjudagur 27. nóvember
Deildarfundur hjá Jeppadeild.
Fundarstaður Útilíf, Glæsibæ,
kl. 20.00. Páll Ásgeir Ásgeirs-
son kynnir bók sína, Hálendis-
handbókina, og áritar.
Fagleg kynnig á fatnaði, afsláttur
og kaffi í boði Útilífs.
Helgin 30.nóv.—2.des.
Aðventuferð í Bása.
Fararstjórar Anna Soffía
Óskarsdóttir og Lovísa Christ-
iansen
Áramót 30.des.—1.jan
Fögnum nýju ári í Básum.
Fararstjóri: Vignir Jónsson.
www.utivist.is
Sunnud. 25. nóv. Undrin við
Kleifarvatn — jarðhiti og
sprungur. Skoðaðar nýjar jarð-
skjálftasprungur og jarðhita-
svæði. 2—3 klst. ganga. Farar-
stjóri Haukur Jóhannesson
jarðfræðingur. Verð kr. 1.500/
1.800. Brottför frá BSÍ kl 10.30
með viðkomu í Mörkinni 6 og
við kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Miðvikud. 28. nóv. Kvöldvaka
í sal F.Í. „13 dagar á fjöllum“
hetjuleg för yfir hálendið 1944.
Umsjón Grétar Eiríksson og
Tómas Einarsson.
Myndagetraun, umsjón Hauk-
ur Jóhannesson. Góð verðlaun í
boði. Aðgangseyrir 500 kr.
Kaffi og kökur í hléi.
www.fi.is, textavarp RUV bls. 619.
Samkoma kl. 11.00.
Sunnudaginn 25. nóv. í Suður-
hlíðaskóla, Suðurhlíð 36.
Teo van der Weele predikar og
þjónar til fólks. Sameiginlegur
hádegismatur eftir samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Uppl. s. 554 1272.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
KRAFTUR hf., sem hefur umboð
fyrir bíla frá MAN og tæki frá Fiat-
Hitachi, fagnar 35 ára afmæli sínu
um þessar mundir. Var bíla- og
tækjasýning í aðalstöðvum fyrirtæk-
isins í Reykjavík um síðustu helgi og
í dag, laugardaginn 24. nóvember,
verður slík sýning hjá Kraftbílum
við Draupnisgötu á Akureyri.
Meðal sýningartækja má nefna
tveggja öxla dráttarbíl með 510
hestafla vél og 12 gíra tölvuskiptum
gírkassa, og þriggja öxla lúxusrútu,
sem nefnd er Lions Top Coach, en
hún er fyrir 57 farþega auk bílstjóra
og leiðsögumanns. Þá verður sýnd
fjórhjóladrifin traktorsgrafa frá
Fiat-Hitachi og Opal-festivagn sem
byggður er fyrir 37 tonna hlass-
þyngd.
Morgunblaðið/Ásdís
Kraftbílar á Akureyri sýna í dag vörubíla, rútur og tæki í tilefni af 35
ára afmæli MAN-umboðsins, Krafts í Reykjavík, um þessar mundir.
Kraftur sýnir MAN á Akureyri
SUNNUHLÍÐARSAMTÖKIN í
Kópavogi hafa gefið út jólamerki til
styrktar nýbbyggingu við Sunnu-
hlíð, hjúkr-
unarheimili aldr-
aðra í Kópavogi.
Merkin eru til
sölu í Bókabúð-
inni, Hamraborg
og Snyrtistof-
unni Rós í Engja-
hjalla. Einnig geta sölubörn fengið
merkin afhent hjá Hildi Hálfdán-
ardóttur og Dolly Nielsen.
Að Sunnuhlíðarsamtökunum
standa Lions, Rotary, Kiwanis,
Soroptimstar, Kvenfélagið og
Rauða krossdeildin í Kópavogi.
Sunnuhlíðar-
samtökin gefa út
jólamerki
NÝ ÁLMA við hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð verður formlega tekin í
notkun í dag, laugardaginn 24. nóv-
ember, kl. 14.
Sá hluti nýbyggingar sem nú verð-
ur tekinn í notkun er um 850 m2 og
eru þar 20 hjúkrunarrými, allt ein-
staklingsherbergi, auk nauðsynlegra
stoðrýma. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum á neðri hæð verði lokið í
mars-apríl á næsta ári, en þar verða
7 hjúkrunarrými til viðbótar auk
sjúkraþjálfunar, aðstöðu fyrir starfs-
fólk og fleira.
Framkvæmdir hófust í nóvember
á síðasta ári við stækkun Sunnuhlíð-
ar og hafa þær gengið samkvæmt
áætlun, bæði hvað varðar tíma og
kostnað. Áætlaður byggingarkostn-
aður við nýbygginguna í heild er
265–270 milljónir króna. Sunnuhlíð-
arsamtökin hafa notið stuðnings fjöl-
margra við fjármögnun þessa verk-
efnis, ekki síst Kópavogsbæjar, sem
stutt hefur framtakið af myndar-
skap.
Af þessu tilefni er boðið til fagn-
aðar í nýju álmunni laugardaginn 24.
nóvember kl. 14, þar sem m.a. Jón
Kristjánsson, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, og Bragi Mik-
aelsson, 1. varaforseti bæjarstjórn-
ar, munu flytja ávarp ásamt fleirum
og þá mun sr. Ægir Sigurgeirsson,
sóknarprestur í Kársnessókn, blessa
heimilið. Listamenn sem jafnframt
starfa í heilbrigðisþjónustu munu
sýna listaverk sem þeir hafa unnið
og þá mun Guðrún Lóa Jónsdóttir,
sópransöngkona, syngja við undir-
leik Guðlaugar Þórsdóttur. Þær
starfa báðar í Sunnuhlíð, Guðrún
Lóa er sjúkraliði og Guðlaug læknir.
Að lokinni þessari athöfn, um kl.
15, og einnig á sunnudeginum milli
kl. 14 og 18 er Kópavogsbúum og
öðrum velunnurum Sunnuhlíðar
boðið að skoða nýju álmuna, segir í
frétt frá Sunnuhlíð.
Ný álma við
hjúkrunar-
heimilið
Sunnuhlíð vígð
UNGUR Íslendingur, Jóhann Sig-
urðsson, liggur nú þungt haldinn
vegna veikinda á sjúkrahúsinu
General Hospital
í Jóhannesar-
borg í Suður-Afr-
íku. Þar er
sjúkrahúskostn-
aður mjög hár og
Jóhann ótryggð-
ur. Hafa ættingj-
ar og vinir hafið
söfnun honum til
hjálpar og vilja flytja hann heim til
Íslands á sjúkrahús.
Stofnaður hefur verið reikningur
í Búnaðarbanka Íslands í Kringl-
unni sem hægt er að leggja inn á.
Reikningurinn er nr.: 323-13-
200060.
Söfnun fyrir
veikan mann
VERSLUNIN Tiger verður opnuð í
Smáralind í dag, laugardaginn 24.
nóvember en það er þriðja Tiger-
verslunin á Íslandi. Tiger býður fjöl-
breytt úrval vara á kr. 200. Þar fást
m.a. leikföng, gjafavörur, jólaskraut
og -pappír, glervara, leirtau, verk-
færi, tölvuleikir, kerti og servíettur.
„Lágt verð næst með lítilli yfir-
byggingu og beinum innkaupum á
vörum sem eru hannaðar og fram-
leiddar sérstaklega fyrir Tiger. Tig-
er er með verslanir í Danmörku, Sví-
þjóð og á Íslandi.
Ekki er nauðsynlegt að verð-
merkja vörur í verslunum Tiger þar
sem þær eru allar á sama verði. Tig-
er leggur áherslu á einfaldleika og
gæði, skilaréttur er á öllum vörum,“
segir í fréttatilkynningu.
Tiger opnuð í Smáralind