Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 53
BRÚIN yfir Vesturlandsveg–Víkur-
veg verður steypt í dag, laugardag-
inn 24. nóvember.
Vegna þess verður Vesturlands-
vegur lokaður frá klukkan 4.30 um
morguninn og til 14.
Á þeim tíma verður allri umferð
beint um Þúsöld við Reynisvatnsveg.
Í dag, laugardaginn 24. nóvem-
ber, verður brúin yfir Vestur-
landsveg–Víkurveg steypt.
Vesturlandsvegur
lokaður frá
kl. 4.30–14
HIN árlega fatahönnunarkeppni
grunnskólanema verður haldin í
Laugardalshöll sunnudaginn 9. des-
ember. Allir 8., 9. og 10. bekkingar
hvaðanæva af landinu hafa rétt til
þátttöku. Skilafrestur teikninga er
til 27. nóvember nk. og skulu teikn-
ingar sendast til Íslenskra fyr-
irsæta, Bergstaðastræti 48, 101
Reykjavík. Að keppninni standa
Tóbaksvarnarnefnd, íþrótta- og
tómstundaráð, menntamálaráðu-
neytið og Síminn, frelsi.
Fjöldi skemmtiatriða verður og
unglingar sem hafa tilbúin
skemmtiatriði mega tilkynna þátt-
töku. Tískusýningar verða og aðrar
uppákomur. Keppnin er reyklaus.
Dómnefnd dæmir bestu hönnun
fyrir 8., 9. og 10. bekk, 1., 2. og 3.
sæti og velur síðan sigurvegara sig-
urvegaranna. Keppnin hefur verið
vel sótt. „Allir velkomnir að sjá list-
sköpun íslenskra unglinga í fata-
hönnun og/eða fatabreytingum.
ekki síst afar, ömmur, pabbar og
mömmur,“ segir í fréttatilkynningu.
Fatahönnunar-
keppni grunn-
skólanema
KVENRÉTTINDAFÉLAG Íslands
heldur málþing laugardaginn 24.
nóvember kl. 13-17.30 í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur um konur og
sveitarstjórnarkosningar undir yfir-
skriftinni „Konur til áhrifa“. Um-
fjöllunarefni málþingsins er þátttaka
kvenna í framboðum í sveitarstjórn-
arkosningum og er markmið mál-
þingsins að hvetja konur til að gefa
kost á sér til framboðs.
Erindi flytja Þorgerður K. Gunn-
arsdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir,
Margrét Sverrisdóttir, Kristín Sig-
fúsdóttir og Steinunn V. Óskarsdótt-
ir. Sigríður Lillý Baldursdóttir stýr-
ir málþinginu.
Málþinginu lýkur með pallborðs-
umræðum og hefur forystumönnum
stjórnmálaflokkanna verið boðið að
taka þátt í pallborðsumræðum, en
málþingið er haldið í samvinnu við
nefnd um aukinn hlut kvenna í
stjórnmálum. Aðgangseyrir er kr.
1.200.
Í tilefni af komandi sveitarstjórn-
arkosningum og málþingi félagsins
hefur KRFÍ sent öllum sveitar-
stjórnarkonum á landinu bókina
Gegnum glerþakið, valdahandbók
fyrir konur, segir í fréttatilkynningu.
Málþing Kven-
réttindafélagsins
Í FRÉTT í Morgunblaðinu í fyrra-
dag um kjörnefnd Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir borgarstjórnarkosningar
2002 var rangt farið með nafn Stef-
aníu Óskarsdóttur. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Rangt farið með
nafn þinggests
Í frásögn af málþingi um framtíð
Íslensku óperunnar í gær var rangt
farið með nafn Hauks F. Hannesson-
ar, sem tók þátt í umræðum að dag-
skrá lokinni. Beðist er velvirðingar á
misnefninu.
LEIÐRÉTT
Í dag verða jólaljósin tendruð í miðbænum og af
því tilefni verður mikið um að vera í bænum.
Jólaganga fer niður Laugaveginn að Ingólfstorgi
í fylgd listamanna, kyndlar verða tendraðir og
jólalög sungin. Komdu í miðbæinn og upplifðu
alvöru jólastemmningu.
Jólaganga:
Kl. 16.30 Safnast saman við Hlemm þar sem margir listamenn
koma fram ásamt fjölskyldunni Grýlu, Leppalúða og
jólasveinunum. Lalli Laugavegur stjórnar dagskránni.
Kl. 17.00 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, tendrar
jólaljósin. Gengið verður niður Laugaveginn frá
Hlemmi að Ingólfstorgi með kyndlum og jólalög sungin.
Verslanir við Laugaveg komnar í jólaskap
og í dag er opið til kl. 18
Jólavörurnar eru komnar og allir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi í yfir 130 verslunum við Laugaveg og notið góðrar þjón-
ustu. Ekki má gleyma kaffi- og veitingahúsunum við Laugaveginn.
Hvað er betra en að setjast niður og njóta góðra veitinga og komast
í jólaskap.
Uppákomur í miðbænum í dag:
Kl. 11.00 Mál og menning - Sögustund fyrir börnin.
Kl. 14.00 Skífan - Á móti sól spila og árita.
Kl. 15.00 Skífan - XXX Rottweilerhundar spila og árita.
Kl. 15.00 Listasafn Reykjavíkur - Lífríkið í borgarlandinu.
Ný mynd Páls Steingrímssonar sýnd í Listasafni
Reykjavíkur.
Kl. 16.00 Skífan - Tvíhöfði áritar.
Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is
fiú gætir unni› vöruúttekt
fyrir 10.000 krónur!
fiú safnar hjá okkur...
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
ferðar að Kleifarvatni á Reykjanesi
sunnudaginn 25. nóvember.
Gengið verður með austanverðu
vatninu og er leiðin 6–7 km og áætl-
aður göngutími er um 2–3 klst. Allir
fá afhentan leiðarvísi í upphafi ferð-
ar. Fararstjóri Haukur Jóhannesson
jarðfræðingur. Verð 1.800/1.500 kr.
Lagt verður af stað frá BSÍ kl. 10.30
með viðkomu í Mörkinni 6 og austan
við kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Gengið með
Kleifarvatni
MARÍA Marteinsdóttir, löggiltur
fótaaðgerða- og snyrtifræðingur,
hefur opnað fótaaðgerðastofu í fé-
lagsmiðstöðinni í Bólstaðarhlíð 43,
Reykjavík. Opið er alla virka daga
frá kl. 9–17.
Allir aldurshópar eru velkomnir,
segir í fréttatilkynningu.
Ný fóta-
aðgerðastofa
Hrei
nsum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.