Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í GREIN í dagblaði seint í nóvember
1979 gat að líta þessa fyrirsögn: „Tón-
listarsnillingar framtíðarinnar?“
Árið 1979 var tileinkað börnum, Ár
barnsins var það kallað. Það var með-
al annars haldið hátíðlegt með því að
22. nóvember sáu börn um alla dag-
skrá Ríkisútvarpsins í heilan dag með
eftirminnilegum hætti. Dagskráin var
fjölbreytt og metnaðarfull og spann-
aði alla þá þætti sem útvarp fullorð-
inna bauð upp á, þar með talinn tón-
listarflutningur af ýmsum toga.
Það voru 8 stolt börn sem skund-
uðu í Útvarpshúsið við Skúlagötu til
að taka upp frumsamið tónverk sem
flytja átti á degi barnsins í útvarpinu.
Þessi hópur var tónfræðibekkur í
Tónmenntaskóla Reykjavíkur sem
varð þeirrar gæfu aðnjótandi að
stunda nám í framsæknum tónlistar-
skóla þar sem fagmennska og kröfur
voru í hávegum hafðar. Áhugasamir
og metnaðarfullir kennarar lögðu sig í
líma við að miðla, hvetja og kenna
mishæfum einstaklingum og lögðu
þannig lóð á vogarskálar velferðar
þeirra. Jafnframt því að stunda hljóð-
færanám af kappi voru þau kynnt fyr-
ir nýjungum í straumum og stefnum,
hvött til sköpunar og sjálfstæðis auk
þess sem þau frumfluttu oft verk eftir
okkar dáðustu tónskáld sem skólinn
hafði þá pantað frá tónskáldunum
sjálfum. Mörg þessara verka lifa góðu
lífi enn í dag.
Það voru velviljaðir blaðamenn
sem mættu í hljóðverið og fengu að
hlusta á afrakstur sköpunar þessa
tónfræðibekkjar. Það er í framhaldi
af heimsókn þeirra sem fyrirsögnin
hér að ofan er til komin; „tónlistar-
snillingar framtíðiarinnar?“ og birtist
í dagblaðinu með umfjöllun um tón-
verk hópsins. Ekki er það ætlun mín
að dæma um það hvort blaðamenn-
irnir reyndust sannspáir eður ei, en til
gamans getur að líta nöfn barnanna
átta hér að neðan og er öllum frjálst
að draga sínar ályktanir.
Tónfræðibekkurinn: Björk Guð-
mundsdóttir, söngkona með meiru.
Bryndís Bragadóttir lágfiðluleikari.
Dagrún Hjartardóttir, söngkennari,
kórstjóri og stjórnandi hinnar árlegu
sönghátíðar „Blómlegt sönglíf í Borg-
arfirði“. Guðrún Hólmgeirsdóttir,
stærðfræðingur og formaður Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju til margra
ára. Hrafnhildur G. Hagalín, rithöf-
undur, gítarleikari og tónlistargagn-
rýnandi DV. Margrét Þorsteinsdótt-
ir, tónlistarkennari og hljóðfæra-
leikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Tryggvi M. Baldvinsson, tónskáld og
kennari við tónlistardeild Listahá-
skóla Íslands. Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir alþingismaður.
Tónlistariðkun barna sem nú eru
að alast upp er í bráðri hættu, tónlist-
arkennarar eru í verkfalli og ekkert
virðist geta hreyft við yfirvöldum til
að koma til móts við annars sann-
gjarnar og sjálfsagðar kröfur um að
njóta sömu réttinda og kjara og aðrar
kennarastéttir. Svo virðist sem tón-
listarkennarar hafi það eitt á sam-
viskunni að hafa gaman af vinnu sinni
og því ekkert nauðsynlegt að greiða
fyrir vinnuframlag þeirra, þetta er nú
einu sinni hobbí! Samt sem áður er
gildi listamenntunar barna að koma
æ betur í ljós og sannreynt að tónlist-
in er beitt vopn í baráttunni við les-
blindu, skerta námsgetu, misþroska
og ofvirkni. Og ekkert gleður móð-
urhjartað meira en að sjá barn sitt
fullt af stolti og sjálfstrausti stíga á
svið og spila af öllum lífs og sálar
kröftum og af hjartans einlægni. Ég
skora á yfirvöld að taka höndum sam-
an og leysa þessa deilu sem þegar
hefur staðið allt of lengi. Aðventan
nálgast og fyrir okkur flest leikur tón-
listin stórt hlutverk í aðdraganda
jólanna og skiptir sköpum um hátíð-
leika þeirra. Getum við hugsað okkur
jólin án hennar þá?
DAGRÚN HJARTARDÓTTIR,
tónlistarkennari og móðir
barns í tónlistarnámi.
„Tónlistarsnilling-
ar framtíðarinnar?“
Frá Dagrúnu Hjartardóttur:
ÉG VIL hér með senda kokkinum í
Seljahlíð alúðarkveðjur og þakkir fyr-
ir þær ágætu heitu máltíðir sem ég fæ
þaðan á hverjum degi alla daga vik-
unnar. Allir sem eru 67 ára og eldri
geta fengið þessa matarbakka senda
heim til sín. Við greiðum 400 kr. fyrir
hráefnið en skammturinn er það ríf-
lega útilátinn að hann nægir fyrir tvo.
Í sambýlishúsi fyrir eldra fólk þar
sem eldhús og aðstaða til sameigin-
legs borðhalds er fyrir er hendi er
maturinn sendur þangað í stórum
ílátum og bætist þá við smávegis
kostnaður ef skammtað er á matar-
bakkana, eða lagt á borð. Ástæðan
fyrir því að þessar línur eru settar á
blað eru þó aðrar og meiri en þakkir
til kokksins í Seljahlíð.
Á undanförnum árum hefi ég þurft
á því að halda að taka þennan mat en
gafst þó alltaf öðru hvoru upp á því
vegna þess hve hann var lélegur. Að
sjálfsögðu er ekki hægt að ætlast til
þess að fá lúxusmat á þessu verði, en
þegar saltfiskurinn var t.d. svo saltur
að hann var óætur, eða hrísgrjóna-
grauturinn ókræsilegt ofsoðið mauk
hringdi ég í eldhúsið í Seljahlíð og
kvartaði.
Svörin sem ég fékk voru þau að yf-
irleitt væri fólk ánægt með matinn en
þegar sendar væru út um 600 máltíðir
á dag væri ekki alltaf auðvelt að gera
öllum til hæfis. Síðast þegar ég
hringdi og gerði boð fyrir yfirkokkinn
tilkynnti ég honum að ég ætlaði ekki
að gera mér að góðu að fá óætan mat
tvo daga í röð. Mig furðaði á því að ég
fékk jákvætt og kurteislegt svar en
þá mun þessi ágæti kokkur hafa verið
tekinn við eldamennskunni.
Þeir sem eru svo heppnir að fá mat-
inn frá Seljahlíð hlakka nú til í hvert
skipti sem maturinn kemur til þeirra.
GYÐA JÓHANNSDÓTTIR,
Miðleiti 7, Reykjavík.
Matur fyrir
eldri borgara
Frá Gyðu Jóhannsdóttur: