Morgunblaðið - 24.11.2001, Qupperneq 56
DAGBÓK
56 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er kannski fullseint í rassinngripið að fara að tjá sig um
Edduverðlaunahátíðina sem kætti
landann með misjöfnum hætti fyrir
tæpum hálfum mánuði en Víkverji
má nú samt til með að nefna nokkur
atriði er komið hafa upp í huga hans
það varðandi. Þótt flestar útnefning-
arnar hafi verið fjarska fyrirsjáan-
legar og reyndar óhjákvæmilegar þá
orkuðu nokkrar þeirra tvímælis –
eins og gengur þegar önnur eins
uppákoma er annars vegar. Ekki
skal hér farið út í hverjir ekki áttu
skilið Eddu enda væri það heldur
ósmekklegt. Skulu nokkrir hins veg-
ar nefndir sem hana áttu skilið.
Fyrsta skal nefna aðstandendur
menningarþáttarins Mósaík. Þótt
þátturinn sé í alla staði fagmannlega
unninn og hafi vafalítið hlotið útnefn-
ingu að hluta fyrir það þá er lang-
stærsti kostur hans fjölbreytt efnis-
tök Jónatans og félaga. Þeim hefur
nefnilega fyrstum tekist, leyfir Vík-
verji sér að fullyrða, að brúa bilið
milli „há-“ og „lágmenningar“ svo-
kallaðrar – bil sem hingað til hefur
verið alltof breitt í íslensku menning-
arlífi. Það hlýtur að teljast stór kost-
ur í fari stjórnanda menningarþáttar
að hann þekki sín takmörk, fjalli
sjálfur um það sem hann treystir sér
til en kalli aðra sér færari til að gera
öðrum sviðum menningarinnar skil.
Kostur Jónatans er einmitt þessi. En
samt er hann fjölhæfur mjög og virð-
ist jafnfær um að gera leiklist, mynd-
list, byggingarlist, sígildri tónlist
sem og dægurtónlist skil. Kann að
vera að hann sé ekki allra líflegasti
sjónvarpsmaðurinn á skjánum en
það bætir hann upp með fágun og vel
upplýstri umfjöllun. Mesta athygli
Víkverja hefur þó vakið hversu
áreynslulítið honum hefur tekist að
innlima dægurtónlistina í almenna
menningarumfjöllun en alltof oft hef-
ur sá vinsæli hluti hennar farið hall-
oka, að sjálfsögðu vegna þess að
hann hefur ekki þótt nægilega fínn,
ekki nægilega merkilegur. Jónatan
virðist og meðvitaður um þetta og
gerir einmitt sérstaklega í því að
reyna að leiða saman dægurtónlist
þá sem er í náðinni og þá sem ut-
angarðs er, oft á tíðum með stór-
merkilegum árangri.
x x x
VÍKVERJI gladdist og yfir því aðaðstandendur Fóstbræðra-
þáttanna stórskemmtilegu skuli enn
og aftur hafa hlotið þá viðurkenningu
sem þeir eiga skilda. Einkum var þó
ánægjulegt að sjá Edduna falla í
skaut Jóni Gnarr fyrir besta leik í að-
alhlutverki því þrátt fyrir að hann sé
ólærður leikari þá stendur enginn
honum framar í dag, hvorki lærðir né
leikir, þegar kemur að gamanleikn-
um. Reyndar ber að hrósa þeim er
sáu til þess að hann yrði tilnefndur
yfir höfuð því leikarar í grínhlutverk-
um hafa alltof oft verið sniðgengnir
fyrir einhverra hluta sakir.
Til sönnunar um yfirburði Jóns
sem gamanleikara nægir að benda á
nýútkominn safndisk með völdu efni
þeirra Sigurjóns Kjartanssonar sem
upphaflega var flutt í útvarpsþætt-
inum Tvíhöfða. Þar rekur hvert
meinfyndna atriðið annað og spuna-
hæfileikar þeirra félaga njóta sín út í
ystu æsar. Húmorinn er vissulega
ekki allra, svolítið kvikindislegur og
djarfur en aldrei er hann meiðandi
og ósmekklegur, það mega þeir eiga.
x x x
NÆST fáum við víst að sjá Jón íaðalhlutverki í væntanlegri
gamanmynd Róberts Douglas Mað-
ur eins og ég, þar sem hann ku eiga
að fara með heldur dramatískara
hlutverk en maður á að venjast.
Spennandi verður að sjá hversu fjöl-
hæfur leikari Edduverðlaunahafinn
er.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Litlu
jólin verða fimmtudag-
inn 6. des. jólahlaðborð.
Sr. Kristín Pálsdóttir
flytur jólahugvekju,
Björk Jónsdóttir syng-
ur við undirleik Svönu
Víkingsdóttur. Tvær
ungar stúlkur leika á
þverflautu, Bjarki Már
Elísson 11 ára les jóla-
sögu. Fagnaðurinn
hefst kl. 18. Salurinn
opnaður kl. 17.30.
Skráning í síma 568-
5052 fyrir 5. des. Allir
velkomnir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstu-
dögum kl. 13.30. Kóræf-
ingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum,
fimmtudaga kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fimmtudag-
ur 29. nóv. Spilað í
Holtsbúð kl. 13.30.
Föstudagur 30. nóv.
Dansað í kjallaranum í
Kirkjuhvoli kl. 11.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Jólahlaðborð
verður í Kirkjuhvoli
föstudaginn 7. des. Hús-
ið opnað kl. 19. Tryggvi
Þorsteinsson leikur á
flygil, hugvekja sr.
Hans Markús Haf-
steinsson, Kór eldri
borgara Garðabæjar
syngur undir stjórn
Kristínar Pétursdóttur,
fjöldasöngur, Sighvatur
Sveinsson, skemmtir og
leikur fyrir dansi. Allir
velkomnir. Miðapant-
anai og upplýsingar í s.
565-7826 eða 895-7826,
Arndís, og skrifstofu fé-
lagsins, Kirkjuhvoli, s.
565-6627 fyrir þriðju-
daginn 27. nóv.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag verður púttað
í Bæjarútgerðinni kl. 10
og félagsvist kl. 13:30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga kl. 10–
13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Sunnu-
dagur. Félagsvist spiluð
kl. 13.30. Dansleikur kl.
20 – Capri Tríó leikur
fyrir dansi. Jólafagn-
aður í Ásgarði,
Glæsibæ, miðvikudag-
inn 5. desember. Fagn-
aðurinn hefst kl. 20.
Hugvekju flytur sr. Pét-
ur Þorsteinsson, söngur
undir stjórn Sigur-
bjargar Hólmgríms-
dóttur, ýmsir skemmti-
kraftar, kaffi og
meðlæti, dansað á eftir.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
f.h. Skrifstofa félagsins
er flutt að Faxafeni 12
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB. kl. 10–
16 í síma 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf,
sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á veg-
um ÍTR á mánu- og
fimmtudögum kl. 19.30,
umsjón Edda Bald-
ursdóttir íþróttakenn-
ari. Boccia á þriðjudög-
um kl. 13 og
föstudögum kl. 9.30,
umsjón Óla Kristín
Freysteinsdóttir.
Myndlistasýning Bryn-
dísar Björnsdóttur opin
í dag og á morgun frá kl.
14–16 listamaðurinn á
staðnum. Veitingar í
veitingabúð. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Vesturgata 7. Mánu-
daginn 26. nóvember
verður farið í Há-
skólabíó á íslenzku
myndina Mávahlátur,
lagt af stað frá Vest-
urgötu kl. 13:30 (Sýn-
ingin hefst kl. 14.) Upp-
lýsingar og skráning í
síma 562-7077. Jóla-
fagnaður verður
fimmtudaginn 6. des.
Húsið opnað kl. 17:30.
Ragnar Páll Einarsson
leikur á hljómborð.
Jólahlaðborð, kaffi og
eftirréttur. Kór leik-
skólans Núps syngur
jólalög undir stjórn
Kristínar Þórisdóttur.
Kvartett spilar kamm-
ertónlist. Gyða Valtýs-
dóttir, Ingrid Karls-
dóttir, Helga Þóra
Björgvinsdóttir og
Anna Hugadóttir. Dans-
sýning frá Dansskóla
Jóns Péturs og Köru.
Gospelsystur í Reykja-
vík syngja undir stjórn
Margrétar J. Pálma-
dóttur. Undirleikari
Agnar Már Magnússon.
Fjöldasöngur. Hug-
vekja, séra Hjálmar
Jónsson dóm-
kirkjuprestur Allir vel-
komnir, upplýsingar og
skráning í síma 562-
7077.
Vitatorg. Aðventu- og
jólafagnaður verður 6.
desember. Jólahlað-
borð, ýmislegt til
skemmtunar. Skráning
í síma 561-0300.
Hríseyingafélagið.
Jólabingó verður á
morgun, sunnudaginn
25. nóvember, kl. 14. í
Skipholti 70, 2. hæð. All-
ir velkomnir.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Jólafundurinn
verður þiðjudaginn 4.
des. kl. 20 í safn-
aðarheimilinu. Tilkynna
þarf þátttöku sem fyrst
í s. 553-6697, Guðný, eða
588-8036, Margrét.
Munum jólapakkana.
Hrafnista Reykjavík.
Basar verður laug-
ardaginn 24. nóvember
kl. 13–17 og mánud. 26.
nóv. kl. 10–16. Til sölu
og sýnis verður handa-
vinna heimilisfólksins.
Ættingjabandið, ætt-
ingja og vinasamband
heimilisfólks á Hrafn-
istu í Reykjavík, stend-
urfyrir sölu á súkkulaði
og vöfflum á laugardag í
samkomusalnum Helga-
felli. Allir velkomnir.
Kvenfélag Óháða safn-
aðarins. Jólafundur
verður haldinn í
Kirkjubæ fimmtudag-
inn 29. nóvember kl. 20.
Konur beðnar að muna
eftir höttum og pökk-
um. Þátttaka tilkynnist
fyrir 26. nóv., s. 557-
7409, Ester eða Ólöf, s.
897-7116.
MG-félag Íslands held-
ur fund í dag kl. 14 í
kaffisal ÖBÍ, Hátúni 10.
Guðrún K. Þórsdóttir
djákni mætir á fundinn.
Ólafur Stephensen og
Vigdís Sif Hrafnkels-
dóttir segja frá norræn-
um fundi NRMG. Kynnt
verður danska bókin
Det myasteniske pusle-
spil.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju, kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁA, Síðu-
múla 3–5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Hríseyingafélagið.
Jólabingó verður á
morgun sunndaginn 25.
nóvember kl. 14. í Skip-
holti 70, 2. hæð. Allir
velkomnir.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánud. kl. 20 á
Sólvallagötu 12. Stuðst
er við 12 spora kerfi
AA-samtakanna.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastdæma, býður
til fræðslu- og orlofs-
daga í Skálholti 3.–5.
desember með fjöl-
breyttri dagskrá. M.a.
fjallað um fjölmiðla og
áhrif þeirra á líf eldri
borgara. Skálholts-
staður skoðaður. Skipu-
lagðar verða kvöldgöng-
ur og gönguferðir.
Skráning fer fram á
skrifstofu Ellimálaráðs í
síma 557-1666 og í Skál-
holtsskóla í síma 486-
8870 netfang: rektor-
@skalholt.is.
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum alls
konar notuð frímerki,
innlend og útlend, ný og
gömul, klippt af með
spássíu í kring eða um-
slagið í heilu lagi (best
þannig). Útlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM&K, Holtavegi
28, Rvík og hjá Jóni
Oddgeiri Guðmunds-
syni, Glerárgötu 1, Ak-
ureyri.
Í dag er laugardagur 24. nóv-
ember, 328. dagur ársins 2001.
Orð dagsins: Sakir nafns þíns,
Drottinn, fyrirgef mér sekt mína,
því að hún er mikil.
(Sálm. 25, 11.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 frumkvöðull, 8 ganga, 9
lítils skips, 10 mánuður,
11 aflaga, 13 hroki, 15
manns, 18 borða, 21
greip, 22 spjald, 23 styrk-
ir, 24 ruslaralýðs.
LÓÐRÉTT:
2 angist, 3 ákæra, 4 læsir,
5 afkvæmum, 6 hestur, 7
fjall, 12 háttur, 14 bók-
stafur, 15 pest, 16 ham-
ingju, 17 vínglas, 18 áfall,
19 haldið, 20 arga.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 skarf, 4 fákum, 7 jurta, 8 ákúra, 9 ger, 11 túða,
13 hana, 14 kamar, 15 þaka, 17 áköf, 20 orm, 22 alger, 23
jakar, 24 tíðni, 25 reiði.
Lóðrétt: 1 skjót, 2 afræð, 3 flag, 4 fjár, 5 krúna, 6 móana,
10 eimur, 12 aka, 13 hrá, 15 þraut, 16 kúgað, 18 kekki, 19
forði, 20 orði, 21 mjór.
K r o s s g á t a
PERLAN er hluti af
Hitaveitu Reykjavíkur
og aðal djásn. Vert er
að minna á fyrir hvað
Perlan stendur. Hún
minnir á framsýni og
áræði þeirra manna
sem stóðu að stofnun
Hitaveitu Reykjavíkur
á sínum tíma. Hún
minnir á reyklausa
borg og alla nærliggj-
andi bæi þar sem öll hús
eru hituð upp með heitu
vatni úr iðrum jarðar
fyrir tilstuðlan Hita-
veitu Reykjavíkur. Það
er ótrúlegt metn-
aðarleysi ráðamanna
Reykjavíkur að ætla nú
að selja Perluna, þetta
djásn Reykjavíkur, á
þeirri forsendu að of
kostnaðarsamt sé fyrir
borgina að reka hana.
Aðrar hvatir hljóta að
liggja að baki. Ég hygg
að flest það fólk sem
kemur til Reykjavíkur
utan af landi, snúi ekki
aftur til síns heima án
þess að heimsækja Perl-
una. Tugþúsundir fólks
frá öðrum þjóðum sem
hingað kemur á hverju
ári heimsækir Perluna.
Það nýtur hins fagra út-
sýnis yfir borgina, fló-
ann og fjallahringinn.
Það kaupir póstkort
með mynd af Perlunni
sem það sendir vinum
og kunningjum út um
allan heim með lýsingu
á fyrir hvað Perlan
stendur. Reykjavík fær
varla betri kynningu.
Eins og það þurfti þrek
og áræði til að hefja
framkvæmdir við Hita-
veitu Reykjavíkur á sín-
um tíma, þurfti einnig
þrek og áræði til að
reisa Perluna. Vit-
anlega kostar svona
mannvirki mikla fjár-
muni.
Í raun er Perlan lista-
verk sem borið hefur
hróður Reykjavíkur vítt
um heiminn. Og nú vilja
ráðamenn selja hana,
fyrir eitthvað bara,
kannski til brottflutn-
ings?
Kristinn Sæmunds-
son, Safamýri 71, R.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Perlan
verður ekki
til sölu
„EKKI fara á taugum þótt
makker fari ekki beinu leið-
ina í vörninni – kannski er
hans leið jafn góð.“ Ein-
hvern veginn þannig hljóðar
heilræði Bobs Hammans. Í
ýktri mynd á ráðlegging
Hammans við eftirfarandi
stöðu: Þú kemur út með ein-
spil og makker tekur slaginn
með ás. Þér er létt og nú bíð-
ur þú bara eftir stungunni.
En hún dregst eitthvað á
langinn – makker er lagstur
undir feld! Þetta er tauga-
trekkjandi og þegar makker
kemur loks undan feldinum
með annan lit er hætt við að
vörnin fari til andskotans í
framhaldinu. Þegar öllu er
lokið kemur svo kannski í
ljós að vörn makkers var al-
veg jafn góð, ef ekki betri.
En í æsingnum yfir því að fá
ekki stunguna tókst þér að
klúðra framhaldinu.
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ 93
♥ 2
♦ KDG10
♣1098763
Vestur Austur
♠ DG102 ♠ K8
♥ DG853 ♥ K94
♦ 942 ♦ Á875
♣4 ♣ÁK52
Suður
♠ Á7654
♥ Á1076
♦ 63
♣DG
Vestur Norður Austur Suður
– – 1 tígull 1 spaði
Pass Pass 1 grand Pass
2 tíglar Pass Pass 2 hjörtu
Dobl 2 spaðar Pass Pass
Dobl Allir pass
Spilið að ofan kom upp í
undanúrslitum Íslandsmóts-
ins í tvímenningi. Vissulega
eru sagnir furðulegar, en
svona gengu þær fyrir sig.
Vestur vissi af spaðafyr-
irstöðu hjá makker og kom
út með spaðatvist. Austur
lét kónginn, en sagnhafi
drap á ásinn, tók hjartaás og
trompaði hjarta. Spilaði svo
tígulkóng úr borði. Austur
drap og vestur sýndi þrílit.
Austur lagði niður laufkóng
og íhugaði málið þegar suð-
ur kom með drottninguna.
Eftir nokkra athugun spilaði
austur svo smáu laufi!
Vestur tók bakföll og í
bræði sinni hætti hann að
einbeita sér að spilinu og
henti tígli. Sagnhafi spilaði
tígli og aftur tígli og kastaði
hjarta heima. Vestur tromp-
aði það og tók spaðadrottn-
ingu. Þannig fékk vörnin að-
eins sex slagi: þrjá á spaða,
einn á hjarta, einn á tígul og
einn á lauf. Einn niður í
staðinn fyrir þrjá.
Aftur að Hamman: Ef
austur tekur á laufásinn fer
samningurinn alltaf þrjá
niður.
En niðurstaðan hefði orð-
ið sú sama ef vestur hefði
haldið ró sinni þegar austur
spilaði óvænt litlu laufi.
Vestur á að trompa og spila
hjartadrottningu og aftur
hjarta á kóng austurs. Nú
kemur lauf, trompað og yf-
irtrompað. Síðan hjarta,
sem austur stingur með átt-
unni! Þar með er laufslag-
urinn kominn aftur og spilið
fer þrjá niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson