Morgunblaðið - 24.11.2001, Síða 60
FÓLK Í FRÉTTUM
60 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
• Allar vörur með 25%
afslætti ásamt fjölmörgum
sértilboðum
• Gildir aðeins 22.-24. nóv.,
eða á meðan birgðir endast.
• Kynnum nýjan Ástundarhnakk
25% afmælisafsláttur.
ÁSTUND 25 ÁRA
Afmælisveisla í Ástund dagana 22.-24. nóv.
Háaleitisbraut 68,
sími 568 4240
Náttúrulegur lífsstíll 25% afsláttur af öllum vörum
auk fjölmargra sértilboða
• Einungis er 25% afsláttur af
nýja Ástundarhnakknum en
ekki af öðrum Ástundar-
hnökkum
• Kynnum dýrasta hnakk á
Íslandi
Afmælisútgáfa í örfáum
eintökum
Kaffiveitingar
Verið velkomin
RON ROSENBAUM er meðhelstu blaðamönnum vest-an hafs og hefur meðal
annars skrifað fyrir Esquire, Van-
ity Fair, New York Times Mag-
azine og New York Observer sem
hann skrifar víst fyrir í dag. Aðal
hans er rannsókn-
arblaðamennska
ýmiskonar og góð
dæmi eru um það í
greinasafninu The
Secret Parts of
Fortune en í því er
meðal annars að
finna greinar um
morðið á Kennedy,
falskar krabba-
meinslækningar,
blaðamennsku,
William Gates III.,
Kim Philby, leyni-
félagið Skull and
Bones við Yale-
háskóla, kjarn-
orkuvígbúnað
Bandaríkjanna,
Adolf Hitler og
svo má telja, en
þess má geta að
Rosenbaum er
einna þekktastur
fyrir bók sína
Explaining Hitler,
þar sem hann
veltir fyrir sér
hvaða mynd ólíkir
höfundar hafa
dregið upp af
Hitler.
Bókin skiptist í
kafla eftir áratug-
um, áttunda, ní-
unda og tíunda
áratugnum, og
valið í kaflana í
tímaröð. Rosen-
baum á ekkert við
textann en bætir inn neðanmáls-
greinum og/eða eftirmála við þær
greinar þar sem nýjar upplýsingar
hafa komið fram.
Lesist í smá-
skömmtum
Ekki er gott að lesa of stóran
hluta af bókinni í einu því sá stíll
sem Rosenbaum hefur tileinkað
sér, og er ráðandi í blaðamennsku
vestan hafs, en frekar leiðinlegur í
stórum skömmtum. Hann, líkt og
margir aðrir þekktir blaðamenn
vestan hafs, getur ekki sleppt frá
sér staðreynd án þess að reyna að
færa hana í skáldlegan búning og
virðist halda að besta leiðin til að
halda yfirvegaðri fjarlægð sé að
sýna viðfangsefni sín í skoplegu
ljósi. Víst getur verið skemmtilegt
að lesa slíkar greinar, sjá til að
mynda þegar William Gates III.,
aðaleigandi Microsoft, lendir í
hakkavélinni fyrir hryllingshús sitt
sem hann byggði á tíunda ára-
tugnum en Rosenbaum segir að af
lýsingunni að dæma hafi Gates
ekki verið að byggja sér heimili;
hann hafi verið að reisa há-
tæknifangelsi. Fleiri fá svo háðu-
lega meðferð en á stundum er
Rosenbaum einfaldlega að sparka í
liggjandi mann, eins og sjá má í
„viðtali“ hans við Troy Donahue,
sem hefði ekki átt að birta, enda
vissu allir sem það vildu að
Donahue var yfirborðskenndur
einfeldningur.
Kjarnorkuklám
Sumt af því sem Rosenbaum
tekur fyrir í bókinni er svo banda-
rískt að erfitt er fyrir Evrópubúa
að sýna því áhuga, eins og til að
mynda Skull & Bones-leynifélagið,
en flest annað hefur alþjóðlega
skírskotun, eins og til að mynda
frásögn Rosenbaums af því þegar
hann heimsækir neðanjarðarbyrgi
kjarnorkuskot-
stjóra sem höfðu
líf heimsbyggð-
arinnar í hendi
sér, geðheilustu
menn Bandaríkj-
anna, eins og Ros-
enbaum kallar þá,
enda fáir gengið í
gegn um eins
rækilega geðrann-
sókn sem vonlegt
er. Það er og sér-
deilis gaman þegar
hann tekur að
velta fyrir sér
gríðarlegum áhuga
manna á kjarn-
orkuvopnum á
þeim tíma sem
greinin er skrifuð,
á áttunda ára-
tugnum, en hann
kallar þann áhuga
kjarnorkuklám og
rökstyður vel í
grein sinni.
Fengur er einn-
ig að grein hans
um Dauðahafs-
skjölin, leifar
helgirita sem
fundust í hellum
við Dauðahafið
fyrir hálfri öld, og
þá togstreitu og
glímu fræðimanna
um að ráða yfir
skjölunum og
túlkunum þeirra,
baráttu sem varð
til þess að fleiri en einn fræðimað-
ur gekk af göflunum, eins og Ros-
enbaum rekur söguna.
Það er líka fróðlegt að lesa
grein Rosenbaums um Kim Philby,
þar sem hann kemst að mjög ný-
stárlegri niðurstöðu, um fjölda-
morðingjann Henry sem dró lög-
gæslumenn í Texas á asna-
eyrunum og ætti að vera skyldu-
lesning fyrir þá sem fylgjandi eru
dauðarefsingu, og krassandi er út-
tekt hans á kvikmyndum þeirra
Charles Chaplins og Roberto Ben-
ignis, Einræðisherrann mikli og
Lífið er dásamlegt. Rosenbaum er
sérstaklega í nöp við þá sem telja
að mynd Chaplins sé merkilegt
framlag til baráttunnar gegn nas-
isma því hún sé hið versta klám og
í stað þess að benda á hversu sví-
virðileg stjórn Hitlers var gefi hún
í skyn að í raun hafi allt verið
gyðingunum sjálfum að kenna.
Álíka útreið fær Benigni, sem
hefði að mati Rosenbaums átt að
láta kvikmynd sína heita „Ég er
dásamlegur“ í stað „Lífið er
dásamlegt“ og verst af öllu þykir
honum að Benigni skuli leyfa sér
að segjast innblásinn af Primo
Levi, sem er reyndar hárrétt at-
hugað; þeir sem gleypt hafa við
því bulli hafa hvorki lesið Primo
Levi né séð vemmilega kvikmynd
Benignis.
The Secret Parts of Fortune:
Three Decades of Intense
Investigations and Edgy Enth-
usiasms eftir Ron Rosenbaum.
Random House gefur út 2000. 576
síður innbundin með registri.
Kostaði um 2.000 kr. á Amazon.
Rannsóknar-
blaðamaður-
inn mikli
Með þekktustu blaðamönnum vestan hafs
er Ron Rosenbaum. Árni Matthíasson
rýndi í nýlegt greinasafn Rosenbaums.
Rosenbaum er líklega þekkt-
astur fyrir bók sína um Adolf
Hitler, Explaining Hitler.
MÖRGUM kann
að þykja það und-
arlegt en það er
hins vegar stað-
reynd að í Banda-
ríkjunum selur
enginn meira af
plötum en sveita-
söngvarinn Garth
Brooks.
Nýja platan
hans, sem er sú
fyrsta í um fjögur
ár, heitir Scare-
crow og kom út í
síðustu viku. Seld-
ist hún í um hálfri
milljón eintaka
þessa fyrstu viku
og ruddi sjálfri
Britney Spears af
toppi Billboard-
listans.
Brooks hefur
sagt að þetta verði
hans síðasta plata,
þar sem hann ætli
að einbeita sér að
fjölskyldustörfum í
framtíðinni.
Garth
Brooks
Ný plata frá Garth Brooks
SKIPTINEMASAMTÖKIN AFS
héldu á dögunum landkynning-
arkvöld í Gerðubergi í samvinnu
við erlenda skiptinema á höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurlandi.
Tíu skiptinemar frá ýmsum þjóð-
löndum héldu stutta landkynningu
á sínu heimalandi auk þess að bjóða
upp á einn rétt frá sínu landi.
Á kynninguna var fósturfjöl-
skyldum skiptinemanna boðið auk
trúnaðarmanna þeirra.
Alls dvelja nú 36 skiptinemar hér
á landi á vegum AFS og eru þau öll
á aldrinum 15–18 ára.
Morgunblaðið/Ásdís
Skiptinemarnir buðu upp á rétti frá þjóðlöndum sínum.
Brownyn frá Bandaríkjunum. Jarmila og Andrea frá Ekvador.
Landkynningarkvöld í Gerðubergi
Skiptinemar
kynna lönd sín