Morgunblaðið - 12.01.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 12.01.2002, Síða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2002 39 er allt svo óraunverulegt, ég bíð allt- af eftir því að vinkona mín komi hlaupandi inn og segi ,,ding dong“ eða ,,bank bank“. Við eyddum öllum okkar stundum saman alveg frá því ég sagði við þig í partíi inni á klósetti 19. okt. 2000: ,,Mig langar svo að vera vinkona þín“ og svo höfðum við fataskipti, komum svo fram og skipt- um um ,,kærasta“ (eða þannig). Þú settist í fangið á Steina og ég hjá Hreiðari og svo endaði þetta partí heima hjá okkur Steina, sem þið og við áttum nánast saman (þið fóruð nú heim til að sofa). Við eigum svo margar góðar minningar um ykkur, allt sem við gerðum, það gerðum við með ykkur, fórum í útilegu, í bíltúra, til Reykjavíkur og í sund og margt fleira. Ég gat ekki hugsað mér að fara í sund án ykkar, það er allt svo tómlegt. En minningarnar um ykkur lifa svo sannarlega. Þú, elsku vin- kona, svo lífsglöð, alltaf brosandi og hláturinn þinn svo smitandi og skemmtilegur. Elsku Hreiðar minn, þú varst besti vinur minn. Við áttum margar yndislegar stundir saman, þú varst dansfélagi minn á böllum, svo fórum við saman í partí eða tók- um langan göngutúr og spjölluðum mikið saman. Það var svo gott að tala við þig, þú varst svo rólegur og yf- irvegaður. Svo fórum við saman í fót- bolta á kvöldin í íþróttahúsinu tvisv- ar í viku ég, þú og Steini og þá passaði Ingibjörg fyrir okkur Steina. Það var líka yndislegt að heyra þig svæfa litlu gullmolana ykkar, þú spilaðir á gítarinn og söngst. Svo gleymum við ekki stóra deginum ykkar – brúðkaupsdeginum – við átt- um svo mikið í honum líka. Við fórum vinkonurnar galvaskar til Reykja- víkur til að máta kjóla og kaupa svona það sem þurfti (og kannski að- eins meira en það). Og við saman í bænum sveitapíurnar, það var fynd- ið. Við rötuðum akkúrat ekki neitt. En fengum nú góða hjálp frá tví- burasystur minni sem býr í bænum og endaði svo sem ,,veislustjóri“ í brúðkaupinu ykkar. Það var yndis- leg upplifun fyrir okkur að fá að taka svona mikinn þátt í undirbúningn- um. Og svo vorum við veðurtepptar í bænum og þá gerðir þú allt til að redda málunum því þannig varst þú. Ári eftir að við kynntumst eignumst við okkar annað barn 19. okt. 2001. Mér finnst vinskapur okkar hafa varað svo miklu lengur. Við vorum svo samrýnd í öllu sem við tókum okkur fyrir hendur. Áramótaheitið okkar var að fara í spinning og hjóla af okkur ,,skinkuna“. Við vorum að- eins búnar að fara í einn tíma og það var daginn áður en þetta hörmulega slys átti sér stað. Við vorum eins og ein stór fjölskylda tvær mömmur, tveir pabbar, tvær systur og tveir bræður. Eins og þau sögðu Jóhanna Jörgensen og Anton Líni. Jóhanna sagði: Anton Líni og brósi og Anton Líni sagði: Jóhanna og litla systir. Elsku vinir, minningarnar um ykkur eru okkar dýrustu perlur sem aldrei verða frá okkur teknar. Elsku Anton Líni, þú ert gullmolinn okkar allra. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Elsku Anton Líni, Kristrún, Torfi og fjölskylda, Gunnhildur, Líni og fjölskylda, Guðmundur, Rósa og fjöl- skylda. Guð styrki okkur öll í sorg- inni. Ykkar vinir Guðrún Snæbjörg, Steinn, Jóhanna Jörgensen og Lísbet Óla. Mig langar í örfáum orðum að minnast bestu vina tvíburasystur minnar. Það var í maí 2001 að þær Guðrún og Ingibjörg komu í bæinn, tilefnið var að máta brúðarkjóla fyrir stóru stundina í lífi Ingibjargar og Hreiðars. Gerðist ég bílstjóri fyrir þær þessa helgi því lítið rötuðu þær um borgina þessar sveitastelpur. Sjálf er ég nú sveitastelpa en er að- eins kunnugri borginni en þær. Þetta var yndisleg helgi er ég lít til baka, ég fékk að vera með í valinu á kjólnum. Við töluðum mikið saman allar þrjár, Ingibjörg sagði mér með- al annars að hún hefði ekki vitað hvað væri að eiga vinkonu fyrr en hún kynntist Guðrúnu systur. Litu þær svo hvor á aðra, táruðust og féll- ust í faðma. Þá varð mér ljóst hversu einlæg vinátta þeirra var. Það var gaman að koma til Þing- eyrar og sjá þessa yndislegu fjöl- skyldu í sundi, Anton Líni er aðeins þriggja ára og orðinn flugsyndur, stekkur út í djúpu laugina og kafar niður á botn. Elsku Guðrún systir og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk vegna fráfalls bestu vina ykkar. Elsku Anton Líni, þinn missir er mestur, megi allar góðu minningarnar um foreldra þína og bróður gefa þér styrk og vera þér leiðarljós í gegnum lífið. Öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Gunnhildur Þorbjörg Sigþórsdóttir. Þau Inga, Hreiðar og Leon Örn voru lífsglöð og brosmild fjölskylda og það er erfitt að trúa því að þau þrjú séu farin frá okkur. Inga kom oft til mín til að fá dótt- ur mína með sér í sund eða út á bryggju til að veiða og jafnvel á rúnt- inn með sér. Ég man best eftir Leon Erni, hvað hann var með falleg og stór augu og hvað hann var fallegt barn. Við Inga sátum oft úti og töl- uðum saman, gerðum grín og fífluð- umst. Anton lék oft við Ástu Margréti dóttur mína og voru prakkarastrik þeirra mörg. Inga og Hreiðar voru mjög dugleg að fara með drengina í sund og út í náttúruna, og ég dáðist að lífsvilja þeirra, og því er enn erfiðara að sætta sig við að þau séu farin. Inga var alltaf brosandi og sá ég hana aldrei í vondu skapi. Ég þekkti Hreiðar ekki eins vel og Ingu en ég veit það að hann var frábær faðir og kom vel fram við fólk, ég tók strax eftir því hversu barngóður hann var, það fór ekki framhjá neinum. Þetta var eitt skemmtilegasta sumar sem ég hef upplifað. Takk æð- islega fyrir frábær kynni, ég mun sakna ykkar mjög mikið. Ég sendi fjölskyldum þeirra, og öllum á Þingeyri, samúðarkveðjur Veiga Eyfjörð Hreggviðsdóttir. Elsku hjartans Hreiðar, Ingibjörg og litli Leon Örn. Það er okkur þung- bærara en orð fá lýst að kveðja ykk- ur, þegar sú sorgarfrétt barst okkur að þið væruð dáin, þá gátum við ekki og vildum ekki trúa því. Það er svo stutt síðan sum af okkur áttum með ykkur gleðistund vestur á Þingeyri, þar sem þið geisluðuð af lífsgleði. En svo á örskammri stundu eru þið hrif- in á brott, frá öllum sem þykir svo vænt um ykkur og frá litla Antoni Lína, missir hans er svo stór og þungbær, það er ekki hægt að taka meira af litlu saklausu barni. Nei þetta gat ekki verið satt og við vildum fá að vakna og vita að þessi frétt væri bara ljótur vondur draum- ur. En þetta er kaldur, grimmur raunveruleiki. Þið eruð dáin og í hugum okkar allra er svo mikil sorg, við spyrjum og spyrjum en fáum engin svör. Okkur langar að gera svo margt, en getum ekki neitt, okkur langar að segja svo margt, en það eru bara orð. Við fáum engu breytt. Þetta er svo sárt, þú elsku Hreiðar, þú vannst þá miklu hetjudáð að bjarga eldri drengnum þínum og eyddir svo þín- um síðustu kröftum og þreki í að reyna að bjarga þinni ástkæru konu og yngri drengnum. Þetta sannar okkur og sýnir best hve góður drengur þú varst. Við trúum því í hjörtum okkar að hann afi þinn hafi verið til staðar og tekið ykkur opn- um örmum og að hann fái að veita ykkur þá umhyggju sem þið áður fenguð hjá foreldrum ykkar. Og Ingibjörg þú verður áfram með Hreiðari þínum sem þú elskaðir svo heitt, og saman passið þið litla Leon Örn. Anton Líni er og verður alltaf ljós- geislinn í myrkrinu, hann mun hjálpa okkur að trúa því að sólin komi upp aftur. Hreiðar okkar, þú ert hetjan. Með mikilli sorg kveðjum við ykkur nú í síðasta sinn. Þið verð- ið samt alltaf með okkur því minn- inguna um ykkur getur enginn frá okkur tekið. Það er minning um ynd- islegt fólk sem við erum þakklát fyr- ir að hafa fengið að kynnast. Guð geymi ykkur og varðveiti um alla eilífð. Takk fyrir þann tíma sem við fengum með ykkur. Elsku Anton Líni, Gunnhildur, Líni, Gunnar, Elísa, Elli og fjöl- skylda, Svanfríð og fjölskylda og Kristrún og fjölskylda. Sorgin er þungbær og missirinn stór. Orð eru svo lítils virði en Guð gefi ykkur all- an þann styrk og kraft sem til er, til að létta ykkur sorgina. Okkar hugur er allur hjá ykkur. Samúðarkveðjur Þorgerður, Jón, Tamar og Ari, Særún, Heiðar, Þorgerður og Elmar. Hjartanlegur hlýleiki, ást, vonir og væntingar í brjósti ungra hjóna er eins og hlýr vindblær að vori. Vekur vonir, tákn um tækifæri, sókn til sigurs. Er fyrirboði framtíðar- drauma. Löngun til lífs, með fjöl- skylduna í fararbroddi. Fögur sýn með fyrirheit um fagra framtíð. Líkt og gras vorsins á Vestfjörð- um sprettur vaxa ungu hjónin og börn þeirra upp í skjóli vestfirskra fjalla. Örugg, umlukt og örmum vaf- in. Ást og hlýju. Vonum og vænt- umþykju. En skjótt skipast, á stundum, veð- ur í lofti í vestfirsku fjallaumhverfi. Þar geta válynd óveðursský hrann- ast upp, leiftursnöggt, á svipstundu, einni nóttu, og allt er orðið breytt að morgni dags. Það sem var í gær er kannski ekki í dag. Sviðsmyndin breytt. Leikarar lífsins hverfa á braut. Sjónarsvið lífsins er nú þremur leikurum fátækara og fátækara fyrir það, að þrír fágætir leikarar lífsins eru horfnir af sviðinu. Hafa lokið leik sínum í leikriti lífsins, horfnir á önn- ur svið, svið æðra lífs, og halda þar áfram leik sínum. Í æðri hlutverkum. Handan lífsins sjóndeildarhrings. Hvert hlutverk sem þau léku sýnir sporin sem þau mörkuðu. Hvert spor sem þau mörkuðu sýn- ir vegferð þeirra. Hver áfangi í vegferð þeirra vekur myndir í huga okkar. Hver mynd í huga okkar af þeim vekur hugljúfar minningar. Hver hugljúf minning um þau mun halda nafni þeirra á lofti. Þau voru og þau verða. Ástvinum þeirra vottum við okkar dýpstu samúð. Berglind Bjarnadóttir, Sigurður Blöndal, Sandra Sigurðardóttir. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. )!           &     % 0 23 / 8;0%  $+  #B: $;  42  ## $'  $0% %# #<$ %+'  "0% %# &#'  0% 0% %# "$#'  4#-0% %# &'')% #'  -8'"-)  8'  4  #%# %7#7# "            2& 1 -&=3 & = &     !       8! & 2   &   7 !      -1 !      -8.. #! >;%# ### #!'   # &#%# ) #!%# - '"2 +'  &"7 #!'  !0$( 8%# , ##>;#!%# 6 "$ !''  0 C-#'#'# 6 , ;#'  7#7#%7#7#7#     $ DB -8#8$       !   9!     4E  F #'  :    + &             &              >6/ )   <+"$+  +; #? ,8!" /      # &     / ! /!  ;  & )           !-' #'  &  >;'  ##4#%# $7  #>;'  $-+##38%# #G#>;%# &"7 ,  #'  4#*>;%# #$# #'  ) $>;%# <%#'>;%# , ##>;%# %7#7# <                  &  &     &/3   4 = 221  $ -;<% B ,8!" -8$0"+##%# 7"# #'  +#!%# - ##! 4E -8$'  E , #%# 6#'"$#F/#'=8#%- 4  --8$'  0$( 8)% #%# - #%-8$ %7#7#7# Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.