Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 2
Úrvinnsla á áli FULLTRÚAR frá japönsku fyrir- tæki í úrvinnslu á áli heimsóttu Ak- ureyri nýlega til að kanna möguleika á að setja upp verksmiðju í bænum. Valur Knútsson, formaður atvinnu- málanefndar, sagði að hugmyndin snerist um flytja ál til landsins, vinna það hér og flytja það svo út aftur sem hráefni í rafeindaíhluti. Valur sagði að þarna væri verið að tala um verksmiðju með allt að 150 starfsmenn, sem keyrð yrði allan sól- arhringinn árið um kring. Hann sagði að að málið væri á algjöru frumstigi, en það tengdist samvinnu Akureyrarbæjar, Atvinnuþróunar- félags Eyjafjarðar og orkusviðs Fjárfestingastofunnar. Verksmiðja á Akureyri í athugun FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hagnaður KSÍ var um tuttugu milljónir / B1 Handboltalandsliðið ætlar að gera sitt besta / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r2. f e b r ú a r ˜ 2 0 0 2 Sérblöð í dag www.mb l . i s ÁKVEÐIÐ hefur verið að segja öll- um 52 starfsmönnum Múlalundar, vinnustofu SÍBS, upp frá og með 1. mars nk. með þriggja mánaða upp- sagnafresti, en unnið er að því í sam- vinnu við félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg að leysa vandann og vonast er til að fólkið missi ekki vinnuna. Frá 1959 hefur Múlalundur verið vinnustaður öryrkja af Reykjavíkur- svæðinu og hafa að jafnaði unnið þar 40 til 50 manns. Ástæður uppsagn- arinnar eru erfiður rekstur, en að sögn Péturs Bjarnasonar, fram- kvæmdastjóra SÍBS, hefur rekstur- inn alla tíð verið mjög erfiður og tap flest árin. Undanfarin þrjú ár hafi tapið farið vaxandi og séu horfur á að það verði um 30 milljónir króna á liðnu ári, en það hafi verið 13,6 millj- ónir árið áður og rúmar átta millj- ónir þar á undan. Þetta sé miklu meira en SÍBS geti staðið undir án aðstoðar félagsmálayfirvalda. Við- ræður hafi farið fram við félagsmála- ráðuneytið og Reykjavíkurborg en niðurstaða liggi ekki fyrir. Hins veg- ar verði haldið áfram að reyna að leysa vandann án þess að öryrkjar á Múlalundi missi vinnuna og engum dyrum hafi verið lokað. Pétur Bjarnason segir að þetta sé mjög alvarlegt mál, en á Múlalundi starfa 40 fatlaðir einstaklingar í 27 stöðugildum og 12 ófatlaðir einstak- lingar. Fjórir mánuðir séu til stefnu til að vinna úr málinu, en ástæður rekstrarvandans séu einkum taldar stafa af harðnandi samkeppni á markaði fyrir skrifstofuvörur. Starf- semi Múlalundar byggist á störfum öryrkja með tilheyrandi starfsþjálf- un og því kunni að vera að hann geti ekki lagað sig eins og þurfi að vax- andi sjálfvirkni og vélvæðingu ann- arra. Nú standi yfir úttekt á rekstri og starfsháttum á Múlalundi, þar sem farið verði yfir alla þætti starf- seminnar og lagt mat á hvort unnt sé að aðlagast markaðnum eða hvort breyta þurfi starfseminni. Finnist ekki rekstargrundvöllur fyrir starf- semina sé ekki útilokað að vinnustof- unni verði lokað. Mikilvæg úttekt Páll Pétursson, félagsmálaráð- herra, segir að fyrir um viku hafi fulltrúar SÍBS greint sér frá stöð- unni og áformum um uppsagnir. Honum hafi ekki geðjast að upp- sögnunum og hafi farið fram á að hætt yrði við þær eða þeim að minnsta kosti frestað. Hann hafi jafnframt lagt til að gerð yrði úttekt sem ráðuneytið, SÍBS og Vinnu- málastofnun kostuðu að jöfnu. Út- tektin sé hafin en SÍBS hafi engu að síður ákveðið uppsagnirnar. „Vonandi verður búið að finna lausn á málinu áður en til þess kem- ur að fólkið þurfi að hætta,“ segir fé- lagsmálaráðherra og bætir við að það sé deginum ljósara að ekki sé hægt að heimta það að SÍBS haldi taprekstri áfram í það óendanlega, en vonandi verði hægt að taka vit- rænar ákvarðanir á grundvelli út- tektarinnar. Páll Pétursson segir að vandinn sé sá, að öðrum þræði sé um félagslegt úrræði að ræða, þ.e. að fólk fái lífs- fyllingu af vinnu og því séu skapaðir möguleikar til þess að geta stundað vinnu. Hins vegar séu takmörk fyrir því hvað samfélagið sé tilbúið að borga mikið til þess að þetta geti gengið upp. Hann hafi enga lausn en með úttektinni sé gerð mjög alvarleg tilraun til að finna rekstrargrundvöll fyrir þessari starfsemi. „Ég myndi harma það mjög ef starfsemi Múla- lundar félli niður,“ segir hann. Mikið rekstrartap hjá Múlalundi Ákveðið að segja öllum starfs- mönnum upp frá og með 1. mars HRESSILEGT rok var í borginni í gær og var Reykjavíkurhöfn ekkert undanþegin vindinum sem skvetti sjónum duglega yfir hafnarmann- virkin. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru stöku útköll í gær- kvöld vegna foks en ekki var um tjón að ræða af völdum veðursins. Vegna spár um aukinn vindhraða ætluðu björgunarsveitarmenn þó að vera í viðbragðsstöðu í nótt, sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu. Morgunblaðið/RAX Rok og gusugangur á hafnarbakkanum SNJÓFLÓÐ féll á Ólafsfjarðarveg, utan við Sauðanes norðan Dalvíkur, um kl. 18 í gær. Sævar Ingason, lög- reglumaður á Dalvík, fór á staðinn skömmu eftir að flóðið féll og taldi hann það vera um 10 metra breitt og tveggja metra hátt. Vegurinn lokað- ist og þar sem veðrið var slæmt á þessum slóðum og fór versnandi með kvöldinu var ákveðið að bíða með að reyna að opna veginn þar til nú í morgunsárið. Sævar sagði flóðið hafa fallið á þekktu snjóflóðasvæði en þó hefði ekki fallið þarna flóð nema þegar mikill snjór væri í fjöllum. Því væri hins vegar ekki að heilsa nú og því væri hætta á frekari flóðum á þess- um slóðum. Engum varð meint af þegar flóðið féll en Ólafsfjarðarmeg- in var bíl ekið inn í flóðið þar sem hann sat fastur. Að sögn Sævars gekk vel að losa bílinn úr flóðinu. Grannt fylgst með snjóflóðahættu Magnús Már Magnússon, hjá Veð- urstofu Íslands, sagði í gærkvöld að vegna veðursins væri mjög grannt fylgst með snjóflóðahættu um aust- an-, norðan- og vestanvert landið. „Við erum með kerfi af snjóathug- unarmönnum og erum í sambandi við þá alla núna,“ sagði Magnús. Hann sagði að snjóathugunar- menn myndu fylgjast með gangi mála í nótt. Hvasst var víða um norðvestan- vert landið í gær og samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofunni mældist vindhraðinn víða 20–25 metrar á sek- úndu á láglendi. Einna hvassast varð á Bláfeldi á sunnanverðu Snæfells- nesi en þar mældist vindhraðinn 35 metrar á sekúndu. Að sögn lögreglunnar á Siglufirði voru björgunarsveitir í viðbragðs- stöðu vegna veðursins en um miðjan dag lægði og björgunarsveitarmenn tóku að tygja sig heim. Lögregla átti allt eins von á því að það tæki að hvessa aftur í nótt og því gæti verið að hún yrði með viðbúnað vegna þess. Lögregla og björgunarsveitarfólk þurfti að aðstoða fólk úr þremur bíl- um sem komust ekki leiðar sinnar á Steingrímsfjarðarheiði vegna veður- hamsins. Um var að ræða 10–12 manns að sögn lögreglu sem var ferj- að niður í bæ, meðal annars með flutningabíl sem átti leið hjá. Lögreglan á Blönduósi var kölluð til tvisvar vegna bíla sem fóru út af í Langadal vegna blindu sem að sögn lögreglu myndaðist í hryðjum sem gengu yfir. Fjórir sluppu ómeiddir þegar jeppabifreið þeirra fór út af veginum ofan við Varmahlíð. Snjóflóð féll á Ólafsfjarðarveg HÚSAVÍK harðviður hefur sagt upp öllum sex starfsmönn- um fyrirtækisins og taka þær gildi 1. mars. Reinhard Reynisson, bæjar- stjóri á Húsavík og stjórnarfor- maður fyrirtækisins, segir að þegar bærinn hafi tekið við fyr- irtækinu í fyrra hafi verið litið á það sem sérstakt verkefni til að sannreyna rekstrarforsend- urnar. Nú sé komið að þeim tímapunkti að uppstokkun verði í verkefninu. Innkaupa- forminu hafi verið breytt og ákvörðunin um uppsagnirnar sé fyrst og fremst öryggisráð- stöfun en ekki hafi staðið til að rekin yrði bæjarútgerð í harð- viðarvinnslu til lengri tíma. Hins vegar komi væntanlega í ljós nú í febrúar hvort rekst- urinn haldi áfram á vegum ann- arra. Að sögn Reinhards Reynis- sonar var aðferð við innkaup á hráefni breytt í lok nýliðins árs og það keypt tilsniðið, þannig að það fer beint inn í þurrkun. Hann segir að breytt nálgun í hráefnisöflun sé lykillinn að mögulegu framhaldi. Fyrir nokkrum árum stóð Kaupfélag Þingeyinga að fyrir- tækinu Aldin en það varð gjald- þrota vorið 1999. Þá varð til fyrirtækið Íslenskur harðviður en það fór í gjaldþrot fyrir um ári. Í framhaldi af því tók Skipaafgreiðsla Húsavíkur fyr- irtækið á leigu fram á vor þegar Húsavíkurbær hafði forgöngu um að búa til nýtt félag, sem heitir Húsavík harðviður, en bærinn á 90% í fyrirtækinu. Starfs- fólki sagt upp Húsavík harðviður JARÐSKJÁLFTI að stærðinni 3,2 á Richterskvarða varð í Henglinum um klukkan 20:40 í gærkvöld. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarðeðl- isfræðings fylgdu í kjölfarið nokkrir smærri skjálftar á sömu slóðum. Hann segir ekkert benda til annars en að um væri að ræða minni skjálftahrinu sem tæki yfir á nokkr- um klukkustundum. Skjálftar í Henglinum ♦ ♦ ♦ Morgunblaðinu í dag fylgir aug- lýsingablað frá Heimsferðum, „Ítalía“. Blaðinu verður dreift um allt land.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.