Morgunblaðið - 02.02.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Náum áttum“ ræða málin
Ungt fólk, sam-
félagsleg
gildi og siðferði
Í OKTÓBER árið 2000var haldin ráðstefn-an „Náum áttum“ og
var hún um fíkniefni, af-
leiðingar og aðgerðir.
Ráðstefnan var haldin að
frumkvæði áætlunarinn-
ar Ísland án eiturlyfja, í
samvinnu við ýmsa aðila.
Í framhaldi af samstarf-
inu varð til opinn sam-
starfshópur um fræðslu-
mál sem kallaði sig
„Náum áttum“ með þátt-
töku fjölmargra stofnana
og hópa. Fulltrúar þeirra
hópa hafa síðan komið
reglulega saman til fund-
ar og jafnframt staðið að
opnum fræðslufundum.
Sá næsti er einmitt nk.
þriðjudag og ber hann
yfirskriftina „Ungt fólk,
samfélagsleg gildi – sið-
ferði“. Bryndís S. Guð-
mundsdóttir deildarsérfræðing-
ur hjá Barnaverndarstofu sat
fyrir svörum Morgunblaðsins í
vikunni.
Segðu okkur frá hópnum
„Náum áttum“.
„Þetta er opinn samstarfshóp-
ur um fræðslumál með þátttöku
áætlunarinnar „Ísland án eitur-
lyfja“, Vímulausrar æsku, Götu-
smiðjunnar, Barnaverndarstofu,
Landlæknis, fulltrúa framhalds-
skólanna, Áfengis- og vímu-
varnaráðs, Lögreglunnar í
Reykjavík, Samstarfsnefndar
Reykjavíkur um afbrota- og
fíkniefnavarnir, Heimilis og
skóla, Bindindissamtakanna
IOGT og Ríkislögreglustjóra.
Fulltrúar allra þessara aðila
hafa komið saman reglulega til
fundar og jafnframt staðið að
opnum fræðslufundum. Oft hafa
þeir aðilar sem starfa að for-
vörnum og við meðferð vímu-
efnaneytenda verið gagnrýndir
fyrir að starfa hver í sínu horni
í stað þess að taka höndum sam-
an og efla með því starfið. Sam-
starf þetta er því meira en
góðra gjalda vert og þyrfti að
varðveita á meðan þar er
gróska. Það er ómetanlegt fyrir
þá sem vinna að þessum málum
að starfa saman og kynnast um
leið þeim vanda sem aðrir en
maður sjálfur stendur frammi
fyrir og þá ekki síst að kynnast
því góða starfi sem svo margir
eru að inna af hendi. Náum átt-
um-hópurinn hefur lagt áherslu
á að halda bæði umfangi og út-
gjöldum í lágmarki og reynt að
koma í veg fyrir að samstarfið
sem slíkt beri vinnuna sjálfa of-
urliði, sem er að efla baráttuna
gegn vímuefnaneyslu og auka
þekkingu þar að lútandi.“
Segðu okkur frá efni fund-
arins á þriðjudaginn.
„Þetta er níundi morgunverð-
arfundurinn sem Náum áttum-
hópurinn heldur og
stendur milli 8.30 og
10.30 á Grand hótel í
salnum Hvammi. Að
þessu sinni verður
fjallað um ungt fólk,
samfélagsleg gildi – siðferði.
Undir þessu þema verður komið
inn á uppeldismál og hlutverk
fjölskyldunnar, frelsishugtakið,
m.a. með tilliti til fíkniefna-
neyslu og stöðu ungs fólks í dag,
hlutverk kirkjunnar og stefnu
hennar í forvarnarmálum. Til að
fjalla um þessi mál hafa verið
fengnir valinkunnir fræðimenn,
en það eru þau dr. Vilhjálmur
Árnason, heimspekingur og pró-
fessor við Háskóla Íslands, dr.
Sigrún Júlíusdóttir, félags-
ráðgjafi og prófessor við Há-
skóla Íslands, og sr. Halldór
Reynisson, prestur í Nes-
kirkju.“
Hvernig verður síðan unnið
úr því sem fram kemur?
„Það verður ekkert sérstak-
lega unnið úr þessu, fundirnir
eru til að vekja til umhugsunar
og fræða fólk og fá ólíkar fag-
stéttir og áhugamenn saman.
En það er lögð áhersla á að
fundarmenn geti lagt fram
spurningar til fyrirlesara.“
Hvernig standa þessi vímu-
varnarmál í dag?
„Það er erfitt að svara þessu í
stuttu máli. En rétt að geta
þess að þann 1. mars nk. verður
haldin ráðstefna um forvarnar-
mál. Ráðstefnan er haldin í til-
efni af því að áætluninni Ísland
án eiturlyfja er að ljúka, en hér
var um að ræða fimm ára fram-
kvæmdaáætlun íslenskra stjórn-
valda í forvörnum. Á ráðstefn-
unni verður gerð grein fyrir
þróun og árangri fíkniefnafor-
varna og framtíðarsýn. Ráð-
stefnan er haldin í samstarfi
áætlunarinnar Íslands án eitur-
lyfja og fræðslu- og kynning-
arhópsins „Náum áttum“. Þetta
gæti orðið nokkuð
spennandi, því á ráð-
stefnunni mun Gallup
kynna niðurstöður
sínar á könnun á ár-
angri forvarnar-
starfsins undanfarin fimm ár.
Þessari spurningu verður lík-
lega betur svarað þá heldur en
núna.“
Hvernig sérðu fyrir þér bar-
áttuna næstu árin?
„Í stuttu máli þarf að vera
gríðarleg áhersla á samstarf
allra aðila undir skýrri og með-
vitaðri stefnu, bæði ríkisstjórn-
arinnar og sveitarfélaga.“
Bryndís V. Guðmundsdóttir
Bryndís V. Guðmundsdóttir er
fædd í Reykjavík 1955. Er með
próf frá Háskóla Íslands í upp-
eldis- og kennslufræðum og
námsráðgjöf. Er einnig með nám
og þjálfun í fjölskyldumeðferð.
Hefur unnið til fjölda ára við
meðferð og kennslu barna og
unglinga, bæði í Reykjavík og í
Skagafirði. Hefur verið deild-
arsérfræðingur á meðferðar-
deild Barnaverndarstofu síðan
1997. Bryndís á eina dóttur, Vé-
dísi Sigríði Ingvarsdóttur.
…slíkt beri
vinnuna sjálfa
ofurliði
Lok, lok og læs og allt í stáli.
NÝTT íslenskt flugfélag hefur ákveð-
ið að hefja í sumar áætlunarflug frá
Keflavík til London og Kaupmanna-
hafnar einu sinni á dag alla daga vik-
unnar og allt árið um kring. Fljúga á
til og frá Kaupmannahöfn að morgni,
til London um miðjan dag og til baka
til Íslands um kvöldið. Stefnt er að
fyrsta fluginu 1. maí næstkomandi og
ætlar félagið að leigja til þess nýlega
þotu af gerðinni Boeing 737-300
ásamt flugmönnum.
Bjóða á allt að 30% lægri fargjöld
en Flugleiðir eru með á þessum
leiðum og enn lægri í sumum til-
vikum, en með sambærilegri þjón-
ustu.
Farþegar njóti
lægri tilkostnaðar
Félagið þarf að ráða til sín um 70
manns í byrjun, þ. á m. sölufólk og
flugliða, að undanskildum flugmönn-
um. Auk söluskrifstofu hér á landi
verður viðlíka starfsemi í London og
Kaupmannahöfn. Nafn er ekki enn
komið á flugfélagið en það verður
ákveðið á næstu dögum og starfsemin
kynnt frekar.
Jóhannes Georgsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri SAS á Íslandi, hefur
unnið að stofnun félagsins undanfarin
tvö ár og mun veita því forstöðu.
Hann hefur ásamt nokkrum sam-
starfsmönnum verið í viðræðum við
fjárfesta að undanförnu, innlenda
sem erlenda og er fjármögnun félags-
ins langt komin. Þá eru viðræður í
gangi við nokkra flugrekstraraðila
um sjálfan flugreksturinn, þ.e. að
leigja vél og útvega flugmenn, sem
munu að auki sjá um viðhald vélarinn-
ar og leggja til tryggingar sem með
þarf.
Jóhannes sagði í samtali við Morg-
unblaðið að félagið skilgreindi sig
ekki strangt til tekið sem lágfar-
gjaldafélag, líkt og t.d. Go eða Ryan-
Air, þótt áhersla væri lögð á að bjóða
lág fargjöld. Ætlunin væri að fara í
samkeppni við Flugleiðir á þessa staði
en jafnframt að gefa farþegum kost á
tengiflugi, sem lágfargjaldafélög
byðu almennt ekki. Til stendur að
bjóða máltíðir á leiðunum og flesta
aðra þá þjónustu sem þekkist hjá t.d.
Flugleiðum. Þannig verða sérstök
viðskiptafargjöld í boði til samræmis
við Business-Class.
Í snertingu við
farþega
,,Við byggjum félagið þannig upp
að það sé í sem mestri snertingu við
farþegana varðandi sölu farmiða og
þjónustu um borð. Verktakar verða
svo ráðnir til að sjá um sjálfan flug-
vélareksturinn. Markmiðið er að
draga úr tilkostnaði á sem flestum
sviðum þannig að við getum látið við-
skiptavininn njóta þess í lægri far-
gjöldum, sagði Jóhannes.
Í upphafi voru áform um flug til
fleiri áfangastaða í Evrópu, s.s. París
og Barcelona, en eftir endurskoðun á
viðskiptaáætlunum var nýlega tekin
ákvörðun um að miða flugið við tvo
staði. Til stendur að hefja sölu far-
miða innan mánaðar. Ef vel gengur
að fljúga til þessara staða er ætlunin
að útvíkka starfsemina og fjölga áætl-
unarleiðum, að sögn Jóhannesar.
Nýtt íslenskt flugfélag ætlar að ráða til sín 70 manns
Flogið daglega til Kaup-
mannahafnar og London
Fargjöld allt að 30% lægri en hjá Flugleiðum