Morgunblaðið - 02.02.2002, Blaðsíða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 17
NEMENDUR 4. bekkjar Grunnskóla
Bolungarvíkur náðu hæstu einkunn
í stærðfræði yfir landið í samræmd-
um prófum sem fram fóru sl. haust.
Í upphafi árs lágu fyrir meðal-
einkunnir einstakra skóla á landinu
en einungis eru birtar meðal-
einkunnir skóla sem hafa ellefu eða
fleiri nemendur í árgöngum. Ein-
kunnir sem birtar eru eru norm-
aldreifðar þannig að ekki er hægt
að finna út hver á hvaða einkunn.
Í 4. bekk voru birtar niðurstöður
101 skóla á landinu öllu og var ein-
kunn nemenda Grunnskóla Bolung-
arvíkur í stærðfræði sú hæsta eða
6,9 og í íslensku var meðaleinkunn
nemendanna 5,6 og voru 15 skólar
með hærri einkunn en það.
Í 4. bekk þreyttu 16 nemendur
bæði prófin.
Í 7. bekk náðist einnig góður ár-
angur en birtar voru niðurstöður 97
skóla á öllu landinu. Normaldreifð
einkunn nemenda í Grunnskóla Bol-
ungarvíkur í stærðfræði var 5,5,
sem var 16. besti árangurinn, og í ís-
lensku varð bekkurinn í 45. sæti
með einkunnina 5,0. Ellefu nem-
endur þreyttu prófin í 7. bekk.
Anna G. Edvardsdóttir, skóla-
stjóri Grunnskóla Bolungarvíkur,
segir margar ástæður fyrir því að
nemendur skólans í þessum bekkj-
um ná eins góðum árangri og raun
ber vitni. Í fyrsta lagi séu það nem-
endurnir sjálfir, bekkirnir eru mis-
jafnir og þessir bekkir, þá sér-
staklega 4. bekkur, eru nokkuð
sterkir. Í öðru lagi hafa báðir bekk-
irnir verið með sama umsjón-
arkennarann í mörg ár, þannig að
stöðugleikinn í kennslunni hefur
verið mikill. Í þriðja lagi hefur stöð-
ugleikinn í öllu kennaraliðinu og
skólastarfinu aukist, réttindakenn-
urum hefur fjölgað og sami kenn-
arahópurinn verið undanfarin ár.
Og í fjórða lagi er mikill og góður
stuðningur og jákvætt viðhorf til
skólans frá bæjaryfirvöldum og bæj-
arbúum til skólans.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Bolungarvíkur ásamt kennara sínum, Steinunni Guðmundsdóttur.
Með hæstu einkunn yfir
landið í stærðfræði
Bolungarvík
KAUPFÉLAG Stöðfirðinga hefur
verið tekið til gjaldþrotaskipta með
úrskurði Héraðsdóms Austurlands
19. desember sl., en það var Lífeyr-
issjóður verslunarmanna sem fór
fram á að félagið yrði tekið til gjald-
þrotaskipta. Kaupfélagið hefur rekið
einu verslunina á Stöðvarfirði og er
nú verslunarreksturinn í lágmarki,
þannig að íbúar Stöðvarfjarðar þurfa
að sækja flestar nauðsynjavörur til
Breiðdalsvíkur eða Fáskrúðsfjarðar.
Að sögn Sigríður Kristinsdóttir
hdl., skiptastjóra þrotabúsins, er
ekki enn þá ljóst hversu miklar
skuldir félagsins eru en Kaupfélagið
hafði verið í greiðslustöðvun sem
rann út í desember. Eignir félagsins
eru nánast eingöngu verslunarhús-
næði Kaupfélagsins við Fjarðar-
braut á Stöðvarfirði, en verslunin
þar er það eina sem eftir er af rekstri
félagsins. Þar starfa nú 3 starfsmenn
í tveimur og hálfu stöðugildi. Sigríð-
ur segir að þrotabúið reki verslunina
áfram en húsnæðið er til sölu. Hún
segir nokkra hafa sýnt áhuga á að
kaupa verslunina.
Ekkert keypt inn nema
mjólk og brauð
Jósef Auðunn Friðriksson, sveit-
arstjóri Stöðvarhrepps, segir íbúa
binda vonir við að verslunin verði
áfram á Stöðvarfirði. „En við verð-
um auðvitað búðarlausir ef rekstur-
inn kemst ekki aftur í gang. Þrotabú-
ið rekur þetta áfram en reyndar er
ekkert annað keypt inn en mjólk og
brauð í verslunina.“
Þreifingar í gangi –
minna vöruúrval
Að sögn Jósefs eru einhverjar
þreifingar í gangi hjá aðilum sem
hyggja á að reka verslunina en enn
þá sé ekki ljóst hvernig það muni
þróast. „Þetta er svolítið flókið mál.
Það blasir við að stærstu kröfuhaf-
arnir munu leysa til sín húsið og það
er eiginlega ekkert hægt að gera
fyrr en það er gengið í gegn. Menn
geta ekki samið við þrotabúið um
leigu á húsnæðinu, af því þetta blasir
við. En þetta kemur til með að skýr-
ast á næstu dögum.“
Jósef segir að vöruúrvalið hafi far-
ið minnkandi frá áramótum í versl-
uninni og því þurfi Stöðfirðingar að
sækja verslun til Fáskrúðsfjarðar,
sem er í 28 km fjarlægð, eða Breið-
dalsvíkur, sem er í 19 km fjarlægð
frá Stöðvarfirði. „Auðvitað þarf mað-
ur nú að fara þangað til að ná sér í
eitthvað annað en brauð og mjólk, en
það segir sig sjálft að ekki hafa allir
tækifæri til þess. Þannig að þetta er
mjög slæmt mál.“
Kaupfélag Stöðfirðinga
tekið til gjaldþrotaskipta
Þurfa að sækja
verslun til næstu
sveitarfélaga
Stöðvarfjörður