Morgunblaðið - 02.02.2002, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 19
EMMANUEL Jacq-
ues var nýverið end-
urkjörinn formaður
Fransk-íslenska
verslunarráðsins en
hann hefur gegnt því
starfi frá árinu 1998.
„Ég kom fyrst til
Íslands árið 1988,
ferðaðist þá víða um
landið og heillaðist
af bæði landi og þjóð.
Ég hef síðan reynt að
koma hingað árlega
og mun oftar nú á
seinni árum. Árið
1994 var ég beðinn
um að veita íslensku
fyrirtæki lög-
fræðiaðstoð í Frakklandi og varð í
kjölfarið lögmaður þess í Frakk-
landi. Ári seinna stofnaði ég fé-
lagsskap um viðskipti milli Íslands
og Frakklands. Hugmyndin var
upphaflega að kynna Ísland fyrir
Frökkum og hvernig best væri að
haga viðskiptum við Íslendinga.
Alls hafa um 50 fyrirtæki og ein-
staklingar átt aðild að þessu félagi
en starfsemi þess er engu að síður
mjög óformleg. Árið 1998 fór
Brynjólfur Helgason, þáverandi
formaður Fransk-íslenska versl-
unarráðsins, þess á leit við mig að
ég tæki við formennsku í ráðinu.
Það varð úr og þá var hinn óform-
legi félagsskapur í Frakklandi
sameinaður Fransk-íslenska versl-
unarráðinu. Þannig varð til mun
sterkari eining með tiltölulega um-
fangsmikla starfsemi í báðum lönd-
unum. Fyrir tveimur árum gerði
Fransk-íslenska verslunarráðið
síðan samning við frönsk stjórn-
völd um að veita frönskum fyr-
irtækjum sem vilja flytja út vörur
til Íslands, ýmiskonar tæknilega
aðstoð. Hins vegar fá íslensk fyr-
irtæki sambærilega aðstoð hjá
sendiráði Íslands í París.“
Viðskiptatengslin stöðugt að eflast
Um 100 fyrirtæki eiga nú aðild
að Fransk-íslenska verslunar-
ráðinu og segir Jacques að við-
skipti á milli landanna færist stöð-
ugt í vöxt. „Viðskiptatengsl
Frakklands og Íslands verða sífellt
öflugri og mikilvægari. Áður fyrr
byggðust viðskipti þjóðanna eink-
um á fisksölu frá Íslandi til Frakk-
lands. Þó sjávarafurðir séu enn þá
mikilvægar í viðskiptum þjóðanna
hefur þróunin verið mjög hröð á
undanförnum árum. Nú kaupa Ís-
lendingar vörur frá Frakklandi í
miklu magni, svo sem bíla, fatnað,
vín og ýmsa tækni- og iðnaðarvöru.
Ég er þeirrar skoðunar að Ís-
lendingar og Frakkar geti tekið
höndum saman til eflingar ferða-
mannaiðnaðar á Íslandi en að mínu
mati koma of fáir franskir ferða-
menn til Íslands. Til að kynna Ís-
land fyrir Frökkum bauð ég meðal
annars franska kvikmyndagerð-
armanninum Rachid Bouchareb að
kom hingað til lands og hann hefur
nú ákveðið að taka upp hluta af
næstu mynd sinni á Íslandi í vor.
Bouchareb er vel kunnur bæði
heima í Frakklandi sem og í
Bandaríkjunum og þykir einn af
athyglisverðustu leikstjórum
Frakka í dag en myndir hans hafa
verið tilnefndar til bæði Golden
Globe- og Óskarsverðlauna. Hann
hefur sótt um styrk til Kvikmynda-
sjóðs Íslands en myndin verður
framleidd í samvinnu við íslenska
kvikmyndagerðarmenn. Eins von-
um við að næsti forseti Frakklands
sjái sér fært að heimsækja Ísland.
Við höfum boðið núverandi forseta,
Jacques Chirac, að koma til Íslands
en hann hefur sagt okkur að hann
verði mjög upptekinn næstu þrjá
mánuði, enda forsetakosningar í
uppsiglingu í Frakklandi. Mér hef-
ur hins vegar verið sagt að nái
Chirac endurkjöri hafi hann áhuga
á að heimsækja Ísland.“
Á næstu mánuðum mun Fransk-
íslenska verslunarráðið standa fyr-
ir ýmiskonar uppákomum til að
efla viðskiptatengsl landanna. „Við
horfum einkum til þriggja sviða í
þessu sambandi; fjármála, hátækni
og ferðamanniðnaðar. Við höfum
skipað nefndir sem fara yfir sam-
skipti Frakka og Íslendinga á þess-
um sviðum og benda á tækifæri
sem þar kunna að skapast. Enn-
fremur munum við kynna við-
skiptatengsl Íslendinga og Frakka
á tveimur viðburðum sem haldnar
verða í Frakklandi í mars, annars
vegar á ráðstefnu um alþjóða-
viðskipti en hins vegar á tæknisýn-
ingu. Í vor munum við einnig
skipuleggja málstofu um ferða-
mannaiðnað á Íslandi og bjóða
hingað til lands aðilum sem sér-
hæfa sig í uppbyggingu ferða-
mannaiðnaðar og hvernig er ár-
angursríkast að kynna það sem
Ísland hefur upp á að bjóða.“
Ótal viðskiptatækifæri
„Ísland er sem draumur í huga
flestra Frakka,“ segir Jacques,
„þetta dularfulla land langt í
norðri sem fáir vita mikið um en
alla langar að heimsækja. Ég reyni
hins vegar að koma þeim skilboð-
um á framfæri við landa mína að
hér á Íslandi eru ótal viðskipta-
tækifæri. Ég hef líka orðið var við
mjög sterk tengsl við Frakkland
hér á Íslandi. Fjölmargir Íslend-
ingar eru altalandi á franska tungu
og unna landinu og menningu þess
mjög. Mörgum hættir þó til að sjá
Frakkland í of rómantísku ljósi, sjá
fyrir sér góð vín, fagrar konur og
stórkostleg söfn. Það vill oft
gleymast að Frakkland stendur
mjög framarlega á sviði þekkingar
og iðnaðar og það ættu Íslendingar
að geta nýtt sér í mun ríkari mæli,“
segir Emmanuel Jacques.
„Ísland er
sem draumur“
Morgunblaðið/Kristinn
Emmanuel Jacques: „Efla má viðskiptatengsl
Íslands og Frakklands á ýmsan hátt.“
Formaður Fransk-íslenska verslunarráðsins