Morgunblaðið - 02.02.2002, Side 20
YORIKO Kawaguchi var í
gær skipuð utanríkisráð-
herra Japans í stað Makiko
Tanaka sem vikið var úr
embætti fyrr í vikunni.
Kawaguchi hefur fram að
þessu sinnt umhverfismál-
um í ríkisstjórn Junichiro
Koizumi. Áður hafði Sad-
ako Ogata, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, hafnað utanrík-
isráðherrastólnum.
Þykir harður
samningamaður
„Við höfum ákveðið að
skipa umhverfisráðherr-
ann Kawaguchi sem utan-
ríkisráðherra,“ sagði
Yasuo Fukuda, helsti að-
stoðarmaður Koizumis.
„Hún er afar hæf til starf-
ans og í okkar huga er hún
harður samningamaður.“
Bætti Fukuda því við að
Kawaguchi, sem er 61 árs,
væri víðsýn og vitur um er-
lend málefni.
Kawaguchi, sem hefur
starfað í viðskiptaráðu-
neytinu, er ein fjögurra
kvenna sem eftir eru í
ráðuneyti Koizumis en
fyrrverandi utanríkisráð-
herra, Tanaka, var sú
fimmta.
„Við vildum gjarnan að frú
Ogata tæki að sér starfið,“ upp-
lýsti Fukuda, „en hún tjáði mér
beint nú í morgun að hún gæti
ekki sagt skilið við núverandi
starfa sinn til að taka að sér
Tanaka var vikið úr
embætti utanríkisráð-
herra á þriðjudag vegna
deilna hennar við emb-
ættismenn í utanríkis-
ráðuneytinu. Æðsti emb-
ættismaðurinn í ráðu-
neytinu, Yoshiji Nogami,
fékk einnig að fjúka en
samskiptaörðugleikar
Nogamis og Tanaka voru
farnir að valda veruleg-
um erfiðleikum á stjórn-
arheimilinu.
Tanaka naut
almennra vinsælda
Tanaka hefur notið
mikilla vinsælda meðal
almennings og frétta-
skýrendur telja að Koiz-
umi hafi tekið mikla
áhættu með því að reka
hana. Höfðu menn í gær
áhyggjur af því að dregið
gæti úr trausti manna á
ríkisstjórn Koizumis í
framhaldinu, sem þá gæti
orðið til að fjárfestar los-
uðu sig við hlutabréf í
japönskum fyrirtækjum.
Allar tilraunir Koizumis
til að bæta stöðu efna-
hagsmála í landinu væru
því í hættu.
Sú staðreynd, að ekki
tókst að telja Ogata, sem
nýtur mikillar virðingar
fyrir störf sín á alþjóðavettvangi, á
að taka sæti í stjórninni er einnig
talin veikja stöðu Koizumis en
fréttaskýrendur höfðu talið hana
hæfasta til að taka embættið að
sér.
embætti utanríkisráðherra“.
Ogata, sem er 74 ára, er sérlegur
sendifulltrúi Koizumis í málefnum
Afganistans, auk þess sem hún hef-
ur stöðu við Ford-rannsóknar-
stofnunina bandarísku í New York.
Kawaguchi skipuð
utanríkisráðherra
Yoriko Kawaguchi, nýskipaður utanríkisráðherra
Japans, hlýðir á umræður í þinginu í gær. Junichiro
Koizumi forsætisráðherra situr fyrir framan hana.
Tókýó. AFP.
Reuters
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SPORVAGNAR sem ganga með-
fram ströndinni í Blackpool á
vesturströnd Bretlands voru
dregnir í skjól í gær þegar mjög
var tekið að hvessa og spáð
versnandi veðri. Þetta var í annað
sinn í vikunni sem Bretland varð
fyrir barðinu á illviðri, en átta
manns létust af völdum veðurs í
Skotlandi og Norður-Englandi á
mánudag og þriðjudag. Þá létust
tveir á miðvikudaginn, er tré fauk
á bíl þeirra í Vestur-Yorkshire. Í
gær var búist við versta veðrinu í
Skotlandi og á vesturströnd Eng-
lands, og um þúsund heimili á
Norður-Írlandi voru rafmagnslaus
vegna veðursins.
AP
Óveður á Bretlandi
JEFFREY K. Skilling, sem lét
óvænt af störfum sem yfirfram-
kvæmdastjóri bandaríska orku-
sölufyrirtækisins Enr-
on í ágúst sl., hefur
samþykkt að bera
vitni fyrir þingnefnd
sem rannsakar gjald-
þrot fyrirtækisins í
lok síðasta árs. Mun
Skilling koma fyrir
nefndina í næstu viku.
Skilling hefur neit-
að því að hafa aðhafst
nokkuð rangt, er leitt
hafi til gjaldþrotsins,
sem er það stærsta í
bandarískri sögu.
Fjöldi starfsmanna
fyrirtækisins missti
vinnuna og glataði
ennfremur öllu sparifé
sínu, sem var að miklu
leyti bundið í hlutabréfum í fyr-
irtækinu, en þau eru nú verðlaus.
En annar starfsmaður Enron,
Sherron S. Watkins, skrifaði for-
stjóra fyrirtækisins, Kenneth L.
Lay, bréf í ágúst í fyrra og sagði
þar, að aðrir framkvæmdastjórar í
fyrirtækinu hefðu varað Skilling
við því að í óefni stefndi. Meðal
þessara framkvæmdastjóra hafi
verið J. Clifford Baxter, en að
sögn lögreglu framdi hann sjálfs-
morð í síðustu viku.
„Skilling skiptir höfuðmáli,“
sagði öldungardeildarþingmaður-
inn Byron L. Dorgan, sem er for-
maður neytendamálaundirnefndar
viðskiptanefndar öldungadeildar-
innar. Nefndin hefur einnig farið
fram á, að Andrew S. Fastow,
fyrrverandi yfirfjár-
málastjóri Enron,
beri vitni. Fastow er
talinn hafa verið mað-
urinn á bak við stofn-
un fjölda sameignar-
fyrirtækja sem notuð
voru til að fela raun-
verulega skuldastöðu
Enron. Dorgan sagði
að nefndinni hefði
ekki enn borist svar
frá Fastow.
Önnur rannsóknar-
nefnd á vegum þings-
ins, orku- og við-
skiptanefnd fulltrúa-
deildarinnar, sem
einnig er að rannsaka
gjaldþrot Enron,
greindi frá því á fimmtudagskvöld-
ið, að bæði Skilling og Fastow
myndu bera vitni fyrir þeirri nefnd
nk. fimmtudag, auk fleiri fyrrver-
andi yfirmanna Enron.
Lay mun koma fyrir neyt-
endamálaundirnefndina á mánu-
daginn, og hefur blaðið Houston
Chronicle eftir nefndarmönnum,
að þeir hyggist spyrja hann að því
hvers vegna yfirmenn fyrirtæk-
isins hafi getað selt hlutabréf sín,
á sama tíma og almennum starfs-
mönnum hafi verið meinað um
það, með þeim afleiðingum að
starfsmennirnir glötuðu sparifé
sínu.
Fyrrverandi
yfirmenn Enr-
on bera vitni
Washington. The Los Angeles Times.
Kenneth Lay
BANDARÍKJAMENN geta ekki
vænst þess að Atlantshafsbandalag-
ið styðji þá skilyrðislaust láti þeir til
skarar skríða gegn „öxulveldum hins
illa“, þ.e. Norður-Kóreu, Íran og
Írak en þetta viðurnefni gaf George
W. Bush Bandaríkjaforseti ríkjun-
um þremur í stefnuræðu sinni á
þriðjudag. George Robertson, fram-
kvæmdastjóri NATO, lét hafa þetta
eftir sér í New York í fyrrakvöld.
Aðildarríki NATO samþykktu í
september að líta skyldi á hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin 11.
september sl. sem árás á öll nítján
aðildarríki bandalagsins í samræmi
við 5. grein stofnsáttmála þess, en
þetta var í fyrsta skipti sem þessu
ákvæði sáttmálans er beitt.
Robertson lávarður sagði hins
vegar á fimmtudag að þessi ákvörð-
un tengdist einungis árásunum á
Washington og New York og að
NATO myndi þurfa að gera upp hug
sinn á ný bærist beiðni frá Banda-
ríkjamönnum þar að lútandi, í
tengslum við hugsanlegar hernaðar-
aðgerðir þeirra gegn Norður-Kóreu,
Íran og Írak. Samþykktin frá því í
haust yfirfærðist ekki sjálfkrafa á
þessi ríki.
„Ég held að ef Bandaríkjamenn
legðu fram sannfærandi sönnunar-
gögn um tengsl annarra landa [en
Afganistans] og árásanna sem gerð-
ar voru þá hefðu bandamenn þeirra
[hjá NATO] mikinn áhuga á slíkum
upplýsingum,“ sagði hann. „En slík
gögn hafa ekki verið borin á borð
fram að þessu.“
Hugmyndir um samráð NATO
og Rússa liggi fyrir í Reykjavík
Robertson ræddi við fréttamenn á
fundi Alþjóðaefnahagsráðstefnunn-
ar, WEF, og sagði hann m.a. að
NATO væri nú að verða einn helsti
vettvangur upplýsingasöfnunar um
alþjóðleg hryðjuverkasamtök og um
framleiðslu kjarnorku-, efna- og
sýklavopna. NATO hefði ekki tekið
beinan þátt í hernaðaraðgerðum
Bandaríkjanna í Afganistan en að
Bandaríkjamenn hefðu ekki getað
unnið þar sigur án stuðnings banda-
mannanna í NATO.
„Ekkert ríki, sama hversu mikið
stórveldi það er, getur gert hlutina
algerlega upp á eigin spýtur,“ sagði
hann og benti m.a. á að Bandaríkja-
her hefði notað herflugvelli Ítala
vegna árásanna á Afganistan. Grikk-
ir hefðu einnig heimilað notkun á sín-
um flugvöllum og Rússar hefðu síðan
leyft að Bandaríkjamenn flygju her-
þotum sínum um rússneska lofthelgi.
Robertson ræddi einnig mögu-
leikann á nánara samstarfi NATO
við Rússa. Sagði hann að menn von-
uðust til að búið yrði að fullmóta
hugmyndir um samráðsvettvang
NATO og Rússlands þegar utanrík-
isráðherrar NATO-ríkjanna hittast
á fundi í Reykjavík í maí.
Hugsanlegar aðgerðir Bandaríkja-
manna gegn „öxulveldum hins illa“
Geta ekki vænst
skilyrðislauss
stuðnings NATO
New York. AP.