Morgunblaðið - 02.02.2002, Side 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR
og fjölmiðlasamtök víða um
heim hafa fordæmt ný lög í
Zimbabwe, sem setja starfsemi
fjölmiðla í landinu verulegar
skorður.
Gagnrýnendur segja upplýs-
inga- og persónuverndarlögin,
sem samþykkt voru á fimmtu-
dag, til þess ætluð að múlbinda
fjölmiðla og tryggja endurkjör
Roberts Mugabes í forseta-
kosningunum í mars.
Lögin gera fjölmiðlafólki
skylt að sækja árlega um
starfsleyfi til sérstakrar nefnd-
ar, sem skipuð er af stjórnvöld-
um, og fjölmiðlum er meðal
annars meinað að flytja fréttir
af fundum ríkisstjórnarinnar.
Brot á lögunum varða háum
fjársektum og allt að tveggja
ára fangelsi.
Gjaldmiðill-
inn í Litháen
tengdur evru
RÍKISSTJÓRN Litháens sam-
þykkti í gær að tengja gjald-
miðil landsins, litasinn, við evr-
una. Seðlabankinn í Litháen
hafði farið fram á að litasinn
yrði tengdur við evru á genginu
3,4528, en gjaldmiðilstengingin
stendur í tengslum við umsókn
Litháa um aðild að Evrópusam-
bandinu.
Litasinn var tekinn upp árið
1993 en hann hefur verið tengd-
ur dollaranum frá 1994. Skiptin
frá dollar í evru eiga að taka
gildi í dag og ekki stendur til að
fella gengið.
Minna at-
vinnuleysi
ATVINNULEYSI í Banda-
ríkjunum minnkaði um 0,2% í
janúar, í 5,6%, samkvæmt til-
kynningu frá bandaríska vinnu-
málaráðuneytinu í gær. Í des-
ember hafði atvinnuleysið
aukist um sama prósentustig.
Embættismenn ráðuneytisins
vöruðu menn þó við því að
draga of víðtækar ályktanir af
þessari breytingu.
STUTT
Fjöl-
miðlalög
fordæmd
MARMARASTYTTA af Margréti
Thatcher, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, er nú loks að
koma fyrir augu almennings eftir
nokkra bið. Höfundur styttunnar er
breski myndhöggvarinn Neil Simm-
ons, en Tony Banks, þingmaður
Verkamannaflokksins og formaður
listaverkanefndar neðri deildar
þingsins, afhjúpaði styttuna í gær.
Henni verður komið fyrir í anddyri
neðri deildarinnar.
Járnfrúin í marmara
Reuters
NORSKA dagblaðið Aftenposten
hefur eftir þarlendum lagaspeking-
um í gær að hugsanlegt sé að
ákæra megi eiganda nokkurra
hunda, sem á fimmtudag réðust á
sjö ára gamlan dreng með þeim af-
leiðingum að hann lést, fyrir mann-
dráp af gáleysi. Atburðurinn átti
sér stað í bænum Dokka sem er um
180 kílómetra norður af höfuðborg-
inni Ósló.
Hans Felde aðstoðarlögreglu-
stjóri sagði að a.m.k. tveir hundar
hefðu ráðist á drenginn en lík hans
fannst í skurði. Sennilega hefðu
þeir þó verið fjórir. Sagði hann
einnig að drengurinn hefði verið ná-
granni eiganda hundanna en þá
hefur lögreglan nú tekið í sína
vörslu og munu þeir verða aflífaðir.
Hundarnir eru af blönduðu kyni,
Schafer-hundar og sleðahundar.
Felde sagði að hundarnir hefðu
einhvern veginn sloppið lausir en að
spurningin væri hversu tryggilega
þeirra hefði verið gætt til að byrja
með.
„Það bendir allt til að drengurinn
hafi verið bitinn til dauða,“ sagði
Oystein Huseboe hjá lögreglunni í
Dokka en vitni mun hafa séð tvo
hundanna þar sem þeir stóðu yfir
líki drengsins. Stóðu þá hinir tveir í
nokkurri fjarlægð.
Hundaeigandi
hugsanlega
ákærður
Ósló. AP.
OSAMA bin Laden, leiðtogi al-
Qaeda-hryðjuverkasamtakanna, seg-
ir á myndbandi, sem CNN-sjón-
varpsstöðin sýndi í fyrrakvöld, að
hernaður Bandaríkjamanna gegn
hryðjuverkum muni leiða „ólýsanleg-
ar hörmungar yfir þá“. Réttlætti
hann jafnframt morð á saklausu fólki.
CNN birti hluta af myndbandinu,
sem fréttamenn Al-Jazeera-sjón-
varpsstöðvarinnar í Qatar tóku upp
en það er jafnframt eina viðtalið, sem
tekið hefur verið við bin Laden eftir
hryðjuverkin 11. september. Hin
myndböndin með honum voru send
til Al-Jazeera og voru ekki viðtöl,
heldur yfirlýsingar hryðjuverkaleið-
togans. Sagði talsmaður stöðvarinn-
ar, að CNN hefði komist yfir það með
„ólögmætum hætti“ og sýnt það án
heimildar. Ætlar Al-Jazeera að fara í
mál gegn CNN.
Ekki fréttnæmt?
Af einhverjum ástæðum sýndi Al-
Jazeera ekki viðtalið við bin Laden
en talsmaður CNN segir, að for-
svarsmenn arabísku stöðvarinnar
hafi ekki talið það fréttnæmt.
Talið er, að viðtalið hafi verið tekið
seint í október eða um hálfum mánuði
áður en Kabúl féll í hendur Norður-
bandalaginu og andstæðingum talib-
ana. Var bin Laden klæddur að her-
mannasið og sýndi engin svipbrigði
er hann sagði við viðmælanda sinn,
að það væri „leyfilegt samkvæmt ísl-
ömskum lögum að drepa saklaust
fólk“.
„Ég get sagt þér það, að frelsi og
mannréttindi í Bandaríkjunum munu
brátt heyra sögunni til. Bandaríkja-
stjórn á eftir að leiða óbærilegar
hörmungar yfir þegna sína og fólk á
Vesturlöndum almennt,“ segir bin
Laden og bætir því við, að „ef það er
hryðjuverk að drepa þá, sem drepa
syni okkar, þá erum við hryðjuverka-
menn“.
Al-Qaeda skoðaði
önnur skotmörk
Í bandarískri leyniþjónustu-
skýrslu eða útdrætti úr henni, sem
birtur var í fyrradag, kemur fram, að
liðsmenn al-Qaeda höfðu mikinn
áhuga á ýmsum mikilvægum stofn-
unum og mannvirkjum í Bandaríkj-
unum og á veikleikum öryggisgæsl-
unnar við þau. Fundust upplýsingar
um þetta í tölvu, sem Bandaríkja-
menn komust yfir í Afganistan, en
þar var meðal annars að finna úttekt
bandarískrar þingnefndar á öryggis-
málunum.
Bandaríska alríkislögreglan, FBI,
vill ekki ræða þessar upplýsingar
nánar en öryggisgæsla við kjarn-
orkuver, önnur orkuver, vatnsból og
önnur mikilvæg eða áberandi mann-
virki hefur verið hert mjög á síðustu
vikum og mánuðum.
Meira en þriggja mánaða gamalt viðtal við bin Laden sýnt á CNN
Sagði íslömsk lög leyfa
morð á saklausum
New York. AP, Los Angeles Times.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Sýr-
lands, Faruq al-Shara, hafnaði í gær
boði Ísraela um að taka upp friðar-
viðræður á ný, en þær hafa legið
niðri í tvö ár.
Al-Shara sagði afstöðu Sýrlend-
inga óbreytta og áréttaði að þeir
krefðust þess að Ísraelar létu af
hendi þau svæði sem þeir hefðu her-
numið frá 1967, „þar á meðal Gólan-
hæðir, Jerúsalem, Vesturbakkann,
Gaza-svæðið og Shebaa-svæðið í
suðurhluta Líbanons“. Varnarmála-
ráðherra Ísraels, Binyamin Ben
Eliezer, hafði látið þau ummæli falla
eftir fund með Hosni Mubarak, for-
seta Egyptalands, á miðvikudag að
Ísraelar væru reiðubúnir að taka aft-
ur upp viðræður við Sýrlendinga.
Hafna boði
Ísraela