Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 23
VERÐMUNUR á mjólkurvörum
milli verslana er allt að 41% sam-
kvæmt verðkönnun sem ASÍ gerði
skömmu fyrir jól og aftur eftir ára-
mót. Í frétt frá ASÍ segir að verð-
lagsnefnd mjólkurvara, svokölluð
sexmannanefnd, hafi ákveðið að verð
á mjólkurvörum myndi hækka 1. jan-
úar síðastliðinn en þá hafði mjólkur-
verð verið óbreytt í eitt ár.
„Skýring hækkunarinnar er
hækkun á verði til mjólkurbænda og
hækkun á vinnslu- og dreifingar-
kostnaði mjólkur. Meðaltalshækk-
unin nam 6,5% en hún var á bilinu 3–
11%. Verðlagseftirlit ASÍ kannaði
mjólkurverð skömmu fyrir jól og síð-
an aftur eftir áramót. Kannað var
verð á 70 mjólkurafurðum í 11 versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu en með
þessu fæst góður samanburður á
verði milli verslana, en einnig hve-
nær og með hvaða hætti ákvörðun
um verðhækkanir kemur fram gagn-
vart neytendum,“ segir ASÍ.
13% verðmunur
á léttmjólk
Sem dæmi um verðmun milli
verslana má nefna 13% verðmun á
léttmjólk í Bónus annars vegar og
11–11, Nóatúni, Strax og Nýkaupum
hins vegar. „Ef reiknað er með ein-
um lítra af léttmjólk á dag í eitt ár
geta neytendur sparað 3.650 krónur
með því að kaupa mjólkina í Bónus.
Enn meiri sparnaður næst með því
að kaup kókómjólk í Bónus en Ný-
kaupum eða 11–11, eða 7.300 krónur
á ári ef keypt er 1 ferna á dag,“ segir
ASÍ.
Þá er bent á að vörur sem falla
undir sama flokk og kosta það sama
frá Mjólkursamsölunni óháð bragð-
tegund, svo sem óskajógúrt eða
engjaþykkni, séu á mismunandi
verði innan einnar og sömu verslun-
ar. Sama er uppi á teningnum varð-
andi léttmjólkurvörur og bendir ASÍ
á að léttsúrmjólk sem kostar það
sama og súrmjólk frá framleiðanda
sé yfirleitt dýrari í verslunum.
Fram kemur að verslanir hafi ekki
hækkað verð strax og því hafi þær
verið heimsóttar þrívegis, í síðasta
skipti föstudaginn 25. janúar síðast-
liðinn, þegar flestar hafi verið búnar
að hækka verð. Einnig kom í ljós að
einhverjar verslanir hefðu lækkað
verð aftur um nokkrar krónur og
segir ASÍ skýringuna á því vafalítið
vera mikla umræðu um verðhækk-
anir að undanförnu.
„Hækkanir verslana nema frá 0%
upp í rúmlega 20%, sem er meiri
hækkun en hjá Mjólkursamsölunni
og Osta- og smjörsölunni. Misjafnt
er milli verslana hvað verð á ein-
stökum vörum breytist mikið, til
dæmis breyttist verð á 500g af kota-
sælu frá því að lækka um 2% í einni
verslun upp í að hækka um 15% í
annarri,“ segir ASÍ.
Verð oftast lægst hjá
Bónus og oftast hæst hjá
11–11 og Nýkaupum
Fram kemur að Bónus skeri sig úr
hinum verslununum að því leyti að
vera oftast með lægsta verðið, eða 46
sinnum. „Fjórar verslanir skera sig
úr með það að vera oftast með hæsta
verðið. Þetta eru verslanirnar 11–11
sem er 37 sinnum með hæsta verðið,
Nýkaup sem einnig er 37 sinnum
með hæsta verðið, Nóatún sem er 24
sinnum með hæsta verðið og Strax
sem er 19 sinnum með hæsta verðið.“
Einnig segir að mikill verðmunur
geti verið á einstökum mjólkurvör-
um á milli verslana og er munurinn
allt að 41% eins og fyrr greinir.
Mestur verðmunur er á mjólkurvör-
um og osti sem ekki er verðmerktur
af framleiðanda. Verðmunur á föst-
um ostum (brauðostum) sem fram
kemur í könnuninni skýrist af því að
ekki hafi allar verslanir verið búnar
að hækka þegar síðasta verðmæling
var gerð. Um er að ræða osta sem
merktir eru af framleiðanda og því
ávallt á sama verði í verslunum,
nema hjá Bónus og Krónunni sem
gefa 5% afslátt af þessum ostum við
kassa.
Allt að 41% verðmun-
ur á mjólkurvörum
! "
# "
$%& ' (
)
*"+,& *- #,.*&,,(
/0%,.*& ( ",&1
2+ ,.*&
3*,
+ 3(*,
+ 4*5
LYFJAVERÐSNEFND hefur
ákveðið að lækka smásöluálagningu
lyfseðilsskyldra lyfja í dýrustu verð-
flokkunum frá og með 1. apríl nk.
Lækkunin nær eingöngu til lyfja
með heildsöluverð yfir 8 þúsund
krónur.
Að sögn Halldórs Árnasonar, for-
manns Lyfjaverðsnefndar, var verð-
flokkum álagningar breytt og þeim
fjölgað úr fimm í sex. Eftir 1. apríl
verður apótekum heimilt að leggja
10% álagningu á lyf sem kosta meira
en 8 þúsund kr. í heildsölu, að við-
bættum 1.300 krónum. Álagningin í
þessum flokki er nú 15% að viðbætt-
um 950 krónum. Miðað við heildsölu-
verð lyfs upp á 8 þúsund krónur ætti
smásöluverðið að lækka um 50 krón-
ur, úr 10.150 kr. í 10.100.
Í tilkynningu frá Lyfjaverðsnefnd
kemur m.a. fram að smásöluálagning
lyfja hafi verið óbreytt í tæp fimm ár.
Sala lyfja hafi u.þ.b. tvöfaldast og
mikið hafi verið um sameiningar í
greininni. Ætla megi að hagræðing í
rekstri hafi aukist til muna og skap-
að forsendur fyrir lægri álagningu.
Þróunin hafi einnig verið sú á síðustu
árum að sala ódýrari lyfja hafi auk-
ist, sem þýði hærri smásöluálagn-
ingu í krónum talið. Ennfremur hafi
smásöluálagning lyfja í nágranna-
löndunum lækkað.
Álagning
lækkuð á
dýrustu
lyfjunum
Útsala Útsala
Pipar & salt, Klapparstíg 44