Morgunblaðið - 02.02.2002, Side 26
LISTIR
26 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Suðurlandsbraut 12 • 108 Reykjavík
Sími: 522 2000 • Vefsetur: vaka.is
Nú eru þrír mánuðir til stefnu fyrir höfunda
að skila inn handritum í samkeppni um Bók-
menntaverðlaun Halldórs Laxness. Skilafrestur
er til 1. maí 2002. Verðlaunin verða veitt í sjötta
sinn á hausti komandi og kemur verðlauna-
bókin út sama dag hjá Vöku-Helgafelli.
Megintilgangur Bókmenntaverðlauna
Halldórs Laxness er að efla íslenskan sagna-
skáldskap og stuðla þannig að endurnýjun
íslenskrar frásagnarlistar. Bókaforlagið
Vaka-Helgafell stendur að verðlaununum.
VERÐLAUNIN
Vaka-Helgafell leggur fram verðlaunaféð sem
nemur 500 þúsund krónum en við verðlauna-
upphæðina bætast venjuleg höfundarlaun sam-
kvæmt rammasamningi Rithöfundasambands
Íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda.
Verðlaunin eru veitt fyrir nýja og áður óbirta
íslenska skáldsögu, eða safn smásagna, að undan-
genginni samkeppni sem er öllum opin. Árið
2001 hlaut Bjarni Bjarnason verðlaunin fyrir
skáldsöguna Mannætukonan og maður hennar.
Aðrir höfundar sem fengið hafa verðlaunin eru
Skúli Björn Gunnarsson fyrir Lífsklukkan tifar,
Eyvindur P. Eiríksson fyrir Landið handan fjarskans
en sú bók var einnig tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna, Sindri Freysson fyrir
Augun í bænum og Gyrðir Elíasson fyrir Gula
húsið sem einnig hlaut Íslensku bókmennta-
verðlaunin.
Handritum skal skilað til Vöku-Helgafells,
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík, merkt „Bók-
menntaverðlaun Halldórs Laxness“. Handritin
eiga að vera merkt dulnefni en rétt nafn fylgi með
í lokuðu umslagi.
SAMKEPPNIN ÖLLUM OPIN
Samkeppnin um Bókmenntaverðlaun Halldórs
Laxness er öllum opin og eru ungir jafnt sem
aldnir höfundar hvattir til þess að senda handrit
sín í keppnina.
Að samkeppni lokinni geta þátttakendur vitjað
handritanna hjá Vöku-Helgafelli.
Upplýsingar um samkeppnina veitir
Pétur Már Ólafsson hjá Vöku-Helgafelli
(petur.olafsson@edda.is).
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
500.000 KRÓNA
VERÐLAUNAFÉ!
Skilafrestur til 1. maí
verður haldið í Háskóla Íslands sex miðvikudaga
frá 6. febrúar til 13. mars 2002 kl. 20:00-22:00.
Kennarar: Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir lektor, Bjarni Randver Sigurvinsson
guðfræðingur, dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor og Þorkell Ágúst Óttarsson
BA í guðfræði. Verð kr. 4.900.
Upplýsingar á Biskupsstofu í síma 535 1500
http://www.kirkjan.is/leikmannaskoli/
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Námskeið - Trúarstef í kvikmyndum
kostur að grípa til þessara að-
gerða. „Við verðum að vinna innan
þess fjárhagsramma sem okkur er
skapaður og minnka fastakostnað
við rekstur leikhússins eftir því
sem kostur er. Þetta neyðumst við
til að gera þrátt fyrir að heild-
arrekstrartekjur hafi aukist um
55% á seinni hluta síðasta árs og
aðsókn í leikhúsið verið um 35 þús-
und manns á sama tíma. Nýtingin
á húsinu hefur einnig verið betri
en mörg undanfarin ár. Kostnaðar-
hækkanir á sama tíma hafa hins
vegar orðið 22% og þar vega
launahækkanir þyngst enda er
launakostnaður 76% af öllum út-
gjöldum. Meginástæðan fyrir því
er hið almenna launaskrið sem
hefur átt sér stað í samfélaginu. Á
sama tíma hefur verðbólga verið í
lágmarki, en styrkur Reykjavík-
urborgar til LR tekur breytingum
miðað við neysluvöruvísitölu.
Styrkur Reykjavíkurborgar dugir
nú fyrir 53% launakostnaðar sem
er mun lægra hlutfall en áður.
Vísitala launa endurspeglar þessa
staðreynd, en launavísitala opin-
bera starfsmanna hefur hækkað
um tæp 53% á milli ára frá 1996 til
ársins 2001, en á sama tíma hefur
styrkur borgarsjóðs hækkað um
28,6%.“
ÞREMUR fastráðnum leikurum
við Borgarleikhúsið hefur verið
sagt upp störfum frá 1. febrúar og
tveimur fastráðnum leikurum til
viðbótar hefur verið boðið minnkað
starfshlutfall.
Leikararnir þrír sem sagt hefur
verið upp eru Katla Margrét Þor-
geirsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson
og Valgerður Dan. Tveimur leik-
urum, Sigurði Karlssyni og Jóni
Hjartarsyni hefur verið boðið
minnkað starfshlutfall.
„Ég hef neyðst til að grípa til
þessara aðgerða vegna fjárhags-
stöðu leikhússins en ég vil taka
það skýrt fram að þetta eru mjög
þungbærar aðgerðir og þær eru
mér mjög á móti skapi,“ segir
Guðjón Pedersen, leikhússtjóri
Borgarleikhússins.
„Ég hef jafnframt tilkynnt
þessu ágæta fólki að ég sé tilbúinn
að ráða það aftur ef réttist úr fjár-
hag leikhússins.“ Þá hefur þremur
starfsmönnum leikmuna- og
tæknideildar einnig verið sagt upp
störfum.
Verðum að vinna
innan fjárhagsrammans
Magnús Árni Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Borgarleikhússins,
segir að þeim sé nauðugur einn
Magnús Árni bendir á að fjár-
hagsvandi Leikfélagsins sé ekki
nýtilkominn.
„Það hefur verið samfellt tap á
rekstri Leikfélagsins frá 1993 að
undanskildu afmælisárinu 1997
þegar ríkistjórnin færði félaginu
25 milljónir að gjöf. Það ár slapp
reksturinn fyrir horn,“ segir
Magnús Árni. „Þetta er menning-
arpólitísk spurning sem snýst á
endanum um hvers konar leikhús
eigi að reka hér í Borgarleikhús-
inu.“
Guðjón Pedersen segir að þeir
hafi átt í viðræðum við stjórnend-
ur Reykjavíkurborgar og þing-
menn Reykjavíkurkjördæmis.
„Það vantar ekki nema 40 milljónir
til að reka Borgarleikhúsið með
þeim hætti sem talað var um í
upphafi að þyrfti til. Við höfum
fengið þau svör frá ráðamönnum
borgarinnar og þingmönnum kjör-
dæmisins að ekki séu til meiri pen-
ingar. Þar sem þetta er sjálfseign-
arstofnun getum við ekki beðið
lengur í óvissu, því ég ásamt fram-
kvæmdastjóra og leikhússtjórninni
erum persónulega ábyrgir fyrir
rekstrinum,“ segir Guðjón.
Verðum að sníða okkur
stakk eftir vexti
Aðspurður hvort leikhúsrekstur
í Borgarleikhúsinu sé raunhæfur
miðað við þá fjármuni sem til reiðu
eru, segir Guðjón vissulega svo
vera. „En við verðum að sníða
okkur stakk eftir vexti og hætta að
bera okkur saman við Þjóðleik-
húsið sem hefur úr meira en 60%
meiri fjármunum að spila. Spurn-
ingin er hinsvegar hvort það sé
rétt þróun að reka leikhús sífellt
meira á framlagi leikara og öðru
starfsfólki í lausamennsku. Við er-
um að henda mikilli og dýrmætri
reynslu útum gluggann með því
móti.“
Þremur fastráðnum leikurum sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu
„Þetta eru
mjög þungbær-
ar aðgerðir“
$%
&'("##
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
4%, , Næsta gallerí, Ingólfsstræti 1
Daníel Þ. Magnússon opnar sýningu
á verkum sínum kl. 17. Daníel hefur
haldið fjölda einkasýninga og tekið
þátt í enn fleiri samsýningum hér á
landi og erlendis. Daníel er umsjón-
armaður málm- og trésmíðaverk-
stæðis LHÍ.
Sýningin stendur til 2.mars.
Iðnó Fjórði „brönsfundur“ Reykja-
víkurakademíunnar hefst kl. 11. Dr.
Stefán Snævarr heimspekingur
heldur fyrirlestur undir yfirskrift-
inni Gagnrýni og þjóðerni – Til
varnar þjóðernisstefnu og mun hann
kynna gagnrýna þjóðernisstefnu.
Stefán tekur mið af kenningum
Karls Poppers um gagnrýna skyn-
semishyggju og heimfærir þær upp
á þjóðernisstefnu – en Popper var
mikill andstæðingur þeirrar stefnu.
Fundarstjóri er Gunnar Hersveinn
heimspekingur og blaðamaður og
mun hann stýra umræðum. Stefán
gegnir starfi dósents í heimspeki við
háskólann í Lillehammer.
Verslunin Te og kaffi, Laugavegi
Gréta Berg teiknar andlitsmyndir af
gestum frá kl. 13-17.
Gallerí Geysir Björn Þór Björnsson
opnar ljósmyndasýningu á 12 lit-
myndum í dag. Þetta er önnur sýn-
ing Björns sem stundar nám á lista-
braut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Myndirnar eru teknar
bæði innan og utan borgarmúranna.
Sýningin stendur til 17. febrúar.
Pathfinder Skólavörðustíg 6b Í
tilefni af alþjóðlegu bókastefnunni í
Havana verður opið hús kl. 16, og
ávörp kl. 16.30 undir yfirskriftinni:
Uppákomurnar í heiminum í dag
gera bækur þýðingarmeiri.
Gestir sem heimsóttu Guantánamo
við bandarísku herstöðina austast á
Kúbu árið 1997, svara spurningum
og leiða umræður.
Fjáröflunarkvöldverður vegna þátt-
töku á bókastefnunni kl.19.
ArtStudio - landslagsgallerí,
Vesturgötu 12 Lana Matusa og
Helgi Hálfdánarson opna leir- og
myndlistarvinnustofu og gallerí kl.
16. Lana hefur kennt leir- og mynd-
list við listaháskóla í Júgóslavíu.
Helgi hefur haldið margar einka-
sýningar undanfarin þrjú ár.
Í DAG
SÍÐASTA sýning á leikritinu Fjand-
maður fólksins, eftir Henrik Ibsen, í
Borgarleikhúsinu er á sunnudag.
Með aðalhlutverkið fer Ingvar
Sigurðsson. Önnur helstu hlutverkin
eru í höndum Björns Inga Hilmars-
sonar, Halldóru Geirharðsdóttur og
Eggerts Þorleifssonar.
Fjandmaður
á förum
FJÁRSJÓÐIR í jörðu nefnist
sýning á grafíkverkum Ás-
rúnar Tryggvadóttur sem opn-
uð verður í sýningarsal fé-
lagsins Íslensk grafík, Hafn-
arhúsinu (hafnarmegin)
Tryggvagötu 17 í dag, laugar-
dag, kl. 16. Á sýningunni eru
ætingar og handþrykkt verk
unnin í „collograph“ tækni.
Efniviðurinn er meðal annars
manngerðir nytjahlutir og nátt-
úruleg efni sem reka á fjörur
fólks eða koma í ljós við upp-
gröft.
Sýningin stendur til 16. febr-
úar og er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14-17.
Verk eftir Ásrúnu
Tryggvadóttur.
Ætingar
og hand-
þrykk
Ævintýri Sebast-
íans Kassmanns
er eftir Gyðu S.
Björnsdóttur, gef-
in út í tilefni af 10
ára afmæli
SORPU. Gyða er
kynningar- og
fræðslufulltrúi fyrirtækisins.
Sagan fjallar um Sebastían Kass-
mann, lítinn pappaumbúðamann sem
lendir í margvíslegum og jafnvel
háskalegum ævintýrum á lífsleið
sinni. Nemendur leikskóla og grunn-
skóla sem koma í vettvangsferð til
SORPU fá afhenta fræðslubók í formi
litabókar, viðurkenningarskjal sem
jafnframt er krossgáta.
Börn
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦