Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 39

Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 39 Stóri bróðir minn og vinur er dáinn. Minningarnar um hann Krumma minn eru margar og ég er heppin því þær eru flestar góðar og fallegar. Sem yngri systir leit ég mikið upp til Krumma, hvað hann var flinkur að gera skutl- ur, tala við kisur, klár í fótbolta, góð- ur að spila á gítar, hvað hann gat drukkið mörg mjólkurglös í einu og svo ótalmargt fleira sem hann gerði. Krummi var líka einstaklega hlýr og góður og útskýrði fyrir mér SIGURÐUR HRAFN JENSEN ✝ Sigurður HrafnJensen fæddist í Reykjavík 18. sept- ember 1975. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 14. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Þingmúla- kirkju 26. janúar. margt í lífinu. Þegar Krummi flutt- ist að heiman þróaðist samband okkar í dýr- mæta vináttu. Þær voru margar næturnar sem við töluðum saman þar til sólin fór aftur að rísa. Það var svo skemmtilegt að tala við Krumma, hann vissi svo margt og hann kunni líka vel listina að hlusta. Nú er Krummi far- inn á betri stað og eftir skilur hann minninguna um yndis- legan bróður og góðan vin. Hrafninn flýgur um aftaninn, haninn galar um miðjar nætur. Súptu á aftur, sjera minn! Hæ, hæ! hrafn flaug að bæ. (Hannes Hafstein.) Karí. ✝ Gísli Guðjónssonfæddist í Roðgúl á Stokkseyri 18. júní 1921. Hann lést 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðjón Hróbjarts- son, f. 1874, og Katr- ín Gísladóttir, f. 1878. Þau eignuðust 9 börn og tóku auk þess að sér eina fóst- urdóttur. Þau eru: Elín, f. 1906, látin; Viggó, f. 1907, látinn, Hróbjartur, f. 1909, látinn, Gísli, f. 1911, dó ungur, Hermann, f. 1912, látinn, Jóna Karen, f. 1914, látin, Lúðvík, f. 1915, býr á Dvalarheimilinu Kumbaravogi; Ágústa Rannveig, f. 1918, látin; Jóna Aðalheiður Haraldsdóttir, f. 1928, látin. Gísli ólst upp á Stokkseyri og fór ungur að vinna. Var hann til sjós nánast alla ævi. Fyrst á fiskibátum á Stokkseyri, svo á togara og þá á milli- landaskipum hjá Eimskipi, þar sem hann vann þar til hann komst á aldur. Gísli fluttist ungur maður til Reykjavík- ur og bjó fyrst um sinn hjá Hermanni bróður sínum þar til hann festi kaup á íbúð við Rauðarár- stíg. Árið 1980 flutt- ist hann svo að Lindarbraut 16 á Seltjarnarnesi þar sem hann bjó fram á síðasta dag. Hans annað heimili var hjá hjónunum Níelsi Gíslasyni og Guðlaugu Guðlaugs- dóttur og börnum þeirra. Útför Gísla fer fram frá Stokkseyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Það var fyrir um 50 árum að við hjónin kynntumst Gísla, og tókst mik- ill vinskapur með okkur. Hann varð vinur allra í fjölskyld- unni. Þegar börnin fæddust og kom- ust til vits og ára hændust þau strax að honum og þegar Gísli var í fríi af sjónum fóru þeir Níels oft saman að veiða austur í Ölfusá, og óteljandi ferðir fór hann með krakkana austur á Stokkseyri, en þaðan var hann ætt- aður. Honum þótti afar vænt um þann stað og hélt tryggð við hann alla tíð. Eftir að maðurinn minn veiktist og þurfti að liggja langdvölum á sjúkra- húsi lét hann sig ekki muna um það að fara í heimsókn til hans hvern einasta dag ef hann var í landi. Eftir að bóndi minn lést var Gísli mér sú besta stoð og styrkur sem nokkur getur óskað sér. Þegar hann hætti til sjós vegna ald- urs fór hann með mig í fjölmörg ferðalög hér innanlands að ógleymdri ferðinni þegar við sigldum til útlanda með Eimskip, það var stórkostleg upplifun. Gísli var mjög duglegur að fara á skemmtanir og í ferðalög með félagi eldri borgara á Seltjarnarnesi og æv- inlega bauð hann mér með sér, og þó heilsuleysið hrjáði hann oft undir það síðasta lét hann það ekki aftra sér. Gísli var félagslyndur maður og hafði gaman hvers konar uppákomum, hann barst ekki mikið á en fylgdist með öllu og ekki var það sjaldan sem það ískraði í honum hláturinn þegar hann sá spaugilegu hliðarnar á mál- unum. Hann var viðkvæmur maður og féll afar illa að horfa upp á þá sem minna máttu sín, og átti það gjarnan til að rétta hjálparhönd, en um það ræddi hann aldrei. Ef þeir væru fleiri sem búnir væru öllu því góða sem í Gísla bjó, væri þessi heimur mun ríkari en ella. Megi hann hafa mínar innilegustu þakkir fyrir allar ógleymanlegar gleðistund- ir og ótakmarkaða aðstoð í öll þessi ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Guðlaug (Gógó). Nú til hvíldar halla’ eg mér, höfgi’ á augu síga fer, alskyggn Drottinn, augun þín yfir vaki hvílu mín. (Þýð. Steingrímur Thorsteinsson.) Í dag kveðjum við Gísla, góðan vin sem við ólumst upp með rétt eins og hann væri einn af fjölskyldunni. Það er ótal margs að minnast þegar litið er til baka. Gísli var okkur systkinunum eins og hann ætti okkur öll sjálfur. Það voru ófá skiptin sem hann tók okkur með sér til að ferðast um og skoða landið. Hann vann á skipum Eimskipa- félagsins og honum fannst það ekki mikið mál að taka okkur með í eina og eina siglingu á milli hafna innanlands og til útlanda. Þetta var okkur krökk- unum heilt ævintýri, og í dag sjáum við að slíkt er alveg einstakt og erum viss um að þetta hefði enginn gert nema Gísli. Oft tók hann okkur með austur á Stokkseyri til að hitta ætt- ingja og vini. Í þeim ferðum kenndi Gísli okkur að umgangast dýrin og náttúruna. Við gleymum því ekki þegar hann byrjaði að kenna okkur á bíl heima hjá Jónu systur sinni. Trúað gætum við að hann hafi henst til og frá þegar við tókum af stað eða stoppuðum, en hann brosti bara að öllu saman. Ekki má gleyma öllum veiðiferðunum sem hann fór með okkur austur, og þá sér- staklega með Hörð sem reyndist áhugasamastur um slíkt, sennilega hafa veiðiferðirnar með Gísla átt stór- an þátt í því að aðaltómstundagaman Harðar er veiðimennska. Á haustin reyndi hann alltaf að fara í réttir fyrir austan, og það var alveg víst að með í ferðinni var vasapelinn, þó smakkaði hann aldrei vín sjálfur. Hann vildi ein- ungs gefa vinum og kunningjum einn lítinn og þetta lýsir reyndar Gísla vel því hann vildi geta glatt þá sem hon- um þótti vænt um. Hann hætti á sjón- um þegar hann var rúmlega sjötugur og þá ætlaði hann að njóta lífsins, meðal annars með því að ferðast. Við þetta stóð hann og fór m.a. eina ferð sem farþegi með Laxfossi, en það var síðasta skipið sem hann starfaði á. Í þá ferð bauð hann móður okkar með sér, og urðu þau eftir í Hamborg þar sem þau dvöldu í nokkra daga uns þau sigldu heim með Brúarfossi. Eftir að að við eignuðumst börn sjálf tók hann þeim rétt eins og okkur þegar við vorum lítil. Já, Gísli var einstakur, það var ekki hávaði í honum og ekkert óðagot, en hann var klettur. Klettur sem við vissum hvar við höfðum og gátum treyst. Við systkinin þökkum af alhug allar þær fjölmörgu ánægjustundir sem við áttum saman. Megi Gísli hvíla í friði umvafinn ljósi og kærleika. Hörður, Gísli og Kristborg. Þá hefur Gísli frændi kvatt þennan heim. Við eigum ótal fallegar minn- ingar um Gísla. Hann var ekki hár í loftinu en hann var stór í okkar aug- um, hann var eiginlega einn uppá- halds frændinn. Okkur fannst Gísli nokkuð merkilegur maður, hann hafði siglt um allan heiminn og yfirleitt hafði hann eitthvað stórmerkilegt í farteskinu þegar hann kom austur, að okkur fannst. Ýmist var það einhvert útlenskt sælgæti, sem bragðaðist misvel, eða önnur matvara sem var illfáanleg hérlendis í þá daga. Þegar kom að afmælum, jólum eða öðrum merkisatburðum í lífi okkar kom Gísli aldeilis ekki tómhentur. Hann var stórsniðugur að finna gjafir handa litlum stelpuskottum eins og okkur. Barbídúkkur, stórar dúkkur, litlar dúkkur, dúkkur sem töluðu, grétu og jafnvel gengu. Ýmiss konar dót og fatnaður sem fáir áttu og var jafnvel ekki á markaði hérlendis eignuðumst við og vorum oft litnar öfundaraug- um. Þegar við eltumst fann hann svo þessa dýrindis skrautmuni sem eru í miklu uppáhaldi hjá okkur í dag. Gjaf- irnar frá Gísla féllu alltaf mjög vel í kramið og á jólunum var það orðinn siður að taka pakkann frá Gísla upp síðast, hann var mest spennandi því að í honum leyndist alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt. Þegar Gísli hætti á sjónum fór hann að koma oftar austur. Tók hann þá oftar en ekki bræður sína Viggó og Lúðvík með sér. Þeir komu við á æskuslóðunum á Stokkseyri, rúntuðu niður á höfn og komu við á ,,Tindi“ og svo á Selfossi. Það var oft hamagang- ur þegar þeir bræður komu í heim- sókn, mikið skrafað um pólitík, hrossakjöt og kartöflurækt. Þessar heimsóknir fannst okkur skemmtileg- ar og oftar en ekki sátum við hjá og fylgdumst með körlunum. Þetta eru allt saman yndislegar minningar sem við eigum eftir að geyma í huga okkar alla tíð. Elsku Gísli okkar, við þökkum þér samfylgdina. Nú hefur þú fengið hvíldina góðu og ert kominn þangað sem þér líður vel meðal ástvina. Hvíl í friði, elsku frændi. Kveðja, Karen, Hrönn, Ingigerður og Bryndís Erlingsdætur. „Þegar ég leystur verð þrautunum frá.“ Þessi orð komu upp í hugann þegar við fréttum um andlát þitt eftir erfið veikindi. Okkur fundust þessi veikindi mikil en þú varst lítillátur og sterkur fram til hins síðasta. Það er sorg og söknuður í hjarta okkar systkininna frá Sandfelli er við minn- umst þín og þökkum fyrir allar stund- irnar með þér. Gísli stundaði sjómennsku frá unga aldri, fyrst á mótorbátum frá Stokks- eyri. Einnig vann hann ýmsa verka- mannavinnu milli vertíða. Hann flutt- ist síðan til Reykjavíkur og hóf sjómennsku á síldveiðiskipum og tog- urum þar til hann fór að vinna hjá Eimskipafélaginu á millilandaskipum og vann þar til hann komst á aldur. Þegar Gísli kom í heimsókn á æsku- heimili okkar á Stokkseyri úr sigling- um erlendis frá kom hann aldrei tóm- hentur, það var gott í poka eða leikföng handa okkur krökkunum. Það var ekki nóg að gefa okkur heldur hélt hann áfram að gefa okkar börn- um gjafir eftir að þau fæddust. Þá má ekki gleyma öllum veiðiferðunum með þér í ár og vötn sem við nutum með þér til fulls. Þér fannst gaman að fara í réttirnar og í þær fórstu alltaf ef þú varst í landi og fengum við stund- um að fara með. Þetta er lítið brot af ótal mörgum góðum stundum með þér sem einkenndust af ótakmarkaðri tryggð og vináttu sem aldrei bar skugga á. Við systkinin og fjölskyldur okkar þökkum fyrir allar góðu stund- irnar með þér. Hvíl þú í friði. Aðalbjörg Katrín Haraldsdóttir, Erlingur Georg Haraldsson, Jón Karl Haraldsson og fjölskyldur. Traustur vinur minn, í gegnum tíð- ina, verður jarðsettur frá Stokkseyr- arkirkju í dag. Við fráfall Gísla Guðjónssonar leit- ar upp í hugann ýmislegt frá liðinni tíð. Hann átti sín æsku- og bernsku- spor á Stokkseyri. Á unglingsárum Gísla var venjan sú, að fara að vinna strax um og eftir fermingu og þótti góður siður að létta undir með foreldrum sínum. Flest heimili voru barnmörg og lítið um peninga. Í þessu litla sjávarþorpi snerist lífið mikið um sjóinn og fisk- inn. Atvinnumöguleikar fábreyttari en nú til dags. Helst var að komast á fiskibát, mjög stopul verkamanna- vinna og þá helst vegavinna og svo að fara til sumarstarfa á sveitaheimilum. Að vísu voru þá nokkrir sem höfðu einhverjar grasnytjar og áttu eina eða tvær kýr, hest og nokkrar kindur. Þannig var það með æskuheimili Gísla. Það var á þessum tímum sem skáldið Örn Arnarson orti þessar hendingar: Í svip þeirra, seintekna bóndans, hins sagnfáa verkamanns og sjómannsins svarakalda býr saga og framtíð vors lands. Öllum þessum þáttum í lífi ís- lenskrar þjóðar kynntist Gísli. Sjó- mennskan varð svo hans lífsstarf. Það var einmitt á sjónum sem kynni okkar Gísla urðu mest. Þar bundust þau vináttubönd sem aldrei bar skugga á. Við vorum saman um árabil á fiskibátum við ýmsar veiðar og einnig á togurum. Um áraraðir var Gísli á skipum Eimskipafélagsins, sem starfsmaður í vélarrúmi. Heyrt hef ég eftir yfirmönnum hans og vinnufélögum, að þar hafi far- ið traustur og áreiðanlegur starfs- kraftur og kemur það okkur ekki á óvart sem með Gísla höfum unnið. Skyldurækni hans, dugnaður og reglusemi var til fyrirmyndar. Slíkar dyggðir hljóta alltaf að vera mikils virði. Ég held að Gísli hafi ekki verið allra og að sumu leyti dálítið sérstak- ur, en trölltryggur þeim sem hann batt vináttu við. Það reyndi ég og fleiri, en sumir þeirra eru nú farnir í þá ferð sem Gísli gengur nú. Tóbak og áfengi komu aldrei inn fyrir vari Gísla Guðjónssonar. Alltaf fór hann þó með okkur, sem hann taldi vini sína á ýmsar skemmtanir. Og þegar sumir, sem ekki höfðu stað- festu hans að þessu leyti, fengu sér eitthvað sem ekki var kannski það hollasta, fékk hann sér bara mjólk og mola. Gísli hafði sínar ákveðnu skoðanir á hlutunum. Dálítið stríðinn stundum og gat gefið hnyttin tilsvör sem hittu í mark og sem hann sagði á sinn hátt. Eitt minningabrot leitar upp í hug- ann frá löngu liðnum tíma. Frá ár- unum 1937 til 1945, kannski fyrr, kannski seinna, það skiptir ekki máli. Þá voru nokkrar vélbátar á Stokks- eyri. Ég man eftir átta bátum, en eitt- hvað hefur það verið misjafnt milli ára. Þá var Gísli, sem við kveðjum í dag, í skipsrúmi hjá Ingimundi Jónssyni á Strönd, þeim merka og aflasæla for- manni. Þá voru engar aflatakmarkanir, enginn „kvóti“. Raunar var brimgarð- urinn heima meira en nóg hindrun. En þótt hann væri erfiður og stund- um bölvaldur úthlutaði hann Stokks- eyringum stundum dálitlum „kvóta“. Bátarnir komust út á miðin fengsælu, sem ekki voru langt undan og ef vel gekk komu þeir drekkhlaðnir heim að kveldi. Þá var kátt í þorpinu okkar, ys og þys á bryggjunni, nóg að gera og glæný Stokkseyrarýsa á hverjum diski. Þetta er örlítil svipmynd af því sem einu sinni var í þorpinu sem Gísli fæddist og ólst upp í. Gísli var einn af þeim stóra hópi sem fer hljóðlega í gegnum tilveruna, sem trúir eru í störfum sínum og gegna sínu hlutverki með sæmd. Sá þöguli fjöldi er þjóðin. Þótt Gísli væri dulur og lítið fyrir að tjá sig, nema helst á gamansaman hátt, vissi ég að hann átti góða æskudaga. Einu sinni lét hann orð falla sem lýstu miklum kærleika hans til móður sinnar. Nú er hann kominn aftur heim og lagður í kirkjugarðinn þar sem for- eldrar hans, frændur, vinir og aðrir sveitungar hvíla. Lúðvík, bróðir Gísla sem nú er einn á lífi systkinanna frá Roðgúl og sem dvelur nú á Kumbaravogi, sendi ég innilegar samúðarkveðjur, einnig öll- um frændum hans og vinum og öðr- um aðstandendum. Svo þakka ég Gísla Guðjónssyni órofa tryggð og bið honum Guðs blessunar. Einar Jósteinsson. GÍSLI GUÐJÓNSSON Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.  Erfisdrykkjur Fóstbræðraheimilið Langholtsvegi Ný uppgerður veitingasalur Upplýsingar í síma 861 4243 og 568 5206 MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning- @mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Frágangur minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.