Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 42

Morgunblaðið - 02.02.2002, Page 42
MINNINGAR 42 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist á Teygingalæk í V- Skaftafellssýslu 1. apríl 1929. Hún lést á Selfossi á heimili son- ardóttur sinnar, Evu Hrannar, 24. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar Sigríðar voru Jón Jónsson, bóndi á Teygingalæk, f. 25. júní 1884, d. 21. októ- ber 1961, og Guðríð- ur Auðunsdóttir hús- frú, f. 31. ágúst 1887, d. 31. janúar 1975. Systkini Sigríðar eru: Elín, hálf- systir, samfeðra, f. 28. mars 1926, gift Ragnari Lárussyni, f. 5. júlí 1924; Ólafur Jón, f. 2. nóvember 1927, kvæntur Sveinbjörgu Gróu Ingimundardóttur, f. 2. janúar 1931; Ólöf, f. 24. september 1930, gift Guðmundi Pálmasyni, f. 11. júní 1928. Sigríður giftist 9. júlí 1950 Jóni Þórarni Pálssyni, f. 18. september 1917, d. 7. ágúst 1993. Foreldrar Eyvindsson, f. 28. mars 1976; Þor- björg Ása, f. 22. nóvember 1983, unnusti hennar er Atli Þór Gunn- arsson, f. 3. júní 1982; Berglind, f. 15. september 1993. 3) Guðríður Steinunn, f. 6. janúar 1956, gift Ólafi Oddssyni, f. 25. júní 1943, börn þeirra eru: Þórunn Ásta, f. 13. apríl 1978; Sigurjón Ægir, f. 25. mars 1982; Rannveig, f. 24. janúar 1984. 4) Rúnar Páll, f. 25. júlí 1961, kvæntur Rannveigu Emilíu Bjarna- dóttur, f. 4. júlí 1958, synir þeirra eru: Brynjar Páll, f. 2. júní 1982; Ragnar Smári, f. 30. maí 1985; Steinar Ingi, f. 9. nóvember 1993. Sigríður ólst upp á Teygingalæk hjá foreldrum sínum. Hún stundaði nám við húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði 1948–49. Þau Sigríður og Jón hófu búskap á Keldunúpi 1950, en fluttu 1953 að Prestsbakka á Síðu þar sem þau bjuggu síðan. Frá 1972 bjuggu þau í sambýli við son sinn Jón og ásamt Rúnari 1979–81. Síðan með Jóni og Sigrúnu frá 1980. Eftir andlát manns síns bjó Sigríður áfram til 1996. Hún var kirkjuvörður Prests- bakkakirkju frá 1960 og starfaði í kvenfélaginu Hvöt og kirkjukórn- um. Útför Sigríðar fer fram frá Prestsbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hans voru hjónin Páll Jónsson, f. 27. júlí 1891, d. 29. desember 1973, og Guðrún Jóns- dóttir, f. 18. maí 1893, d. 6. desember 1980. Börn Sigríðar og Jóns eru: 1) Gunnar Bragi, f. 6. júní 1952, kvænt- ur Sigríði Dórotheu Árnadóttur, f. 11. júlí 1952, börn þeirra eru: Árni, f. 14. apríl 1973, sambýliskona hans er Guðlaug Þorvaldsdótt- ir, f. 25. september 1972, þeirra börn eru Ásta Alda, Jóna Þórey og Elín; Jón Þór, f. 22. apríl 1974, sambýliskona Hanna Arnardóttir, f. 12. febrúar 1973, dóttir hans og Kristjönu Hennyar Axelsdóttur, f. 24. októ- ber 1975, er Anita Sól; Solveig Sig- ríður, f. 5. ágúst 1986. 2) Jón, f. 11. janúar 1954, kona hans er Sigrún Böðvarsdóttir, f. 23. desember 1961, dætur þeirra eru: Eva Hrönn, f. 17. nóvember 1980, sambýlis- maður hennar er Þorsteinn Þór Elsku amma. Rosalega finnst mér skrítið að geta ekki hugsað til þess að fara í sveitina í heimsókn, því núna ertu komin til afa. Afi hefur örugglega tekið vel á móti þér. Mér finnst svo skrítið að þú skulir vera dáin, því þú varst alltaf svo hress og kát, þegar ég kom til þín. Vikurnar sem ég var hjá þér á sumrin voru skemmtilegar. Við fórum oft út að labba, inní heiði. Í hvert skipti sem við löbbuðum þangað innúr sagðirðu mér alltaf eitthvað nýtt sem ég vissi ekki. Þú sagðir mér aldrei að þér liði illa. Þér féll aldrei verk úr hendi, hvort sem það var í garðinum eða innan- dyra. Þú varst alltaf að þegar ég fór að sofa og þegar ég vaknaði á morgnana varstu byrjuð aftur. Þú varst sjaldnast ein og oft komu gestir í heimsókn. Mér fannst skrítið þegar þú hafðir verið flutt á sjúkrahús á Selfossi, en mér fannst samt enn verra að vakna við það að Jonni frændi hringdi í pabba klukkan hálfátta á fimmtu- dagsmorgun og sagði að þú værir dáin. Í fyrstu vildi ég ekki trúa því. En svo var nú samt. Núna finnst mér afskaplega lítið vera eftir af mér. Núna verð ég bara að reyna að lifa lífinu með þig bara í minningunni. Ég vil tileinka þér þessar tvær bænir: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pétursson.) Hvíldu nú í nafni friðar, elsku amma. Þitt barnabarn, Solveig Sigríður. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pétursson.) Guð gefi þér góða nótt og Guð geymi þig, elsku amma okkar. Brynjar Páll, Ragnar Smári og Steinar Ingi. Skyndilegt fráfall Sigríðar mág- konu minnar kom öllum á óvart. Ekki síst okkur hjónunum sem höfðum heimsótt hana sunnudeg- inum áður á sjúkrahúsinu á Sel- fossi þar sem hún hafði verið í tvo daga. Hún spjallaði við okkur glöð og hress eins og hún átti vanda til og gerði ráð fyrir að fara heim aft- ur eftir nokkra daga. Þótt við viss- um að hún hefði átt við veikindi að stríða í vetur grunaði okkur ekki að svo skammt væri eftir. Á þessari stundu kaldra og dimmra vetrardaga hrannast upp minningarnar frá hinum fjölmörgu samverustundum okkar með Siggu og Jóni á Prestsbakka. Mér varð það strax ljóst þegar ég fór fyrst austur í Skaftafellssýslu fyrir tæp- um 50 árum til að heimsækja ætt- ingja og æskustöðvar konu minnar að einkar kært var með þeim systrum og kom það betur og bet- ur í ljós er á ævina leið. Þau Sigga og Jón gáfu okkur leyfi til að reisa lítið hús í túninu hjá sér. Þar átti kona mín sinn unaðsreit og öll nut- um við þess að dveljast þar nokk- urn tíma á hverju sumri. Synir okkar fengu þarna gott tækifæri til að kynnast frændfólki sínu og sveitalífinu eins og það gerist best innan um kýr, kindur og hesta. Frá hinum síðari árum, þegar við vorum oftar en ekki tvö á ferð, eru mér einkum minnisstæðar kvöld- stundirnar þegar við hjónin skruppum yfir veginn til að horfa á sjónvarp, rabba og þiggja veit- ingar hjá Siggu. Þar var alltaf notalegt að vera. Sigríður var einstök manneskja. Frá henni streymdi hlýja og um- hyggja eins og allir þeir vita sem þekktu hana og nutu gestrisni hennar og gistivináttu gegnum ár- in. Hún var sífellt á þönum kring- um gesti sína með veitingar og hvaðeina sem verða mátti þeim til góða. Börnin sem áttu þess kost að vera á Prestsbakka í lengri eða skemmri tíma hændust að henni og héldu áfram að venja komur sínar til hennar langt fram eftir fullorðinsárum. Barnabörn okkar sem höfðu átt þess kost að koma til hennar táruðust þegar þeim var sagt frá því að hún væri dáin þótt þau hefðu sum varla aldur til að skilja að hún væri horfin þeim að fullu. Sigríður var mikið fyrir garð- rækt, og allt frá því að hún kom að Prestsbakka hefur hún notað tóm- stundirnar til að rækta og stækka trjágarð sinn heima við húsið. Oft gaf hún okkur plöntur og ráðlagði um umönnun þeirra. Lengi hefur mig grunað að hún hafi oftar en við vissum litið til gróðursins hjá okkur og lagfært þar ýmislegt sem annars hefði verr farið. En þetta var hennar háttur, hún vildi allt fyrir aðra gera og helst án þess að eftir því væri tekið. Það tekur langan tíma að venj- ast því tómarúmi sem myndast við fráfall Siggu. Hún fagnar okkur ekki lengur þegar við eigum leið austur. Kona mín hefur misst kæra systur og sína bestu vinkonu. Söknuðurinn er mikill en þó mest- ur hjá börnum og barnabörnum Sigríðar og fjölskyldum þeirra. Við Ólöf og synir okkar og fjölskyldur sendum þeim öllum innilegar sam- úðarkveðjur. Guðmundur Pálmason. Andlátsfregn Sigríðar Jónsdótt- ur á Prestbakka kom fjölskyldunni minni mjög á óvart, enda bar hún ekki veikindi sín á torg. Henni var alla tíð meira umhugað um að fólk- inu í kringum hana liði sem best og þá sérstaklega þeim sem sóttu hana heim. Fyrstu minningar mín- ar um Siggu eins og hún var kölluð tengjast bernsku minni þegar ég var sendur á heimili hennar til að sækja þangað dráttarvél sem for- eldrar mínir og fjölskyldan á Prestsbakka áttu saman. Hlýtt viðmótið og manngæska voru hennar aðalsmerki. Eftir að fjölskylda mín flutti í Kópavog voru samskiptin ekki eins tíð, en þó var alltaf minnst ein ferð á ári. Fjölskylda mín minnist allra þeirra góðu stunda sem við áttum á Prestbakkaheimilinu sem Sigga stýrði af miklum myndarskap. Við kveðjum þig kæra frænka í þeirri vissu að sá sem öllu ræður taki vel á móti þér á þeirri leið sem þú hef- ur lagt út á. Kirkjan þín á Prest- bakka og söfnuður Síðumanna hef- ur misst góðan liðsmann. Megi góður Guð veita þínum nánustu styrk í harmi. Lárus Ragnarsson. SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Sig- ríði Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Lára SigþrúðurSigurðardóttir fæddist í Saurbæ í Skeggjastaðahreppi í Norður-Múlasýslu 14. september 1918. Hún lést á Öldrunar- deild Heilbrigðis- stofnunar Þingey- inga 20. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Sig- urður Árnason bóndi í Saurbæ, f. 10.8. 1892, d. 31.5. 1975, og kona hans Guð- björg Stefanía Þor- grímsdóttir, f. 13.9. 1888 á Leifs- stöðum í Selárdal í Vopnafirði, d. 1.3. 1971. Eignuðust þau sex stúlk- ur og var Lára næstelst þeirra, en hinar systurnar eru Þórhalla Kristbjörg, f. 25.2. 1916, d. 4.2. 1999, Hilma Hólmfríður, f. 20.3. 1920, Árný, f. 16.9. 1923, Anna Benedikta, f. 18.12. 1927, d. 9.7. 2000, og Inga Filippía, f. 6.5. 1930. 16.12. 1950, maki Sigrún Margrét Jónasdóttir, f. 14.7. 1951. 7) Stúlka, fædd andvana, 25.4. 1953. 8) Jónína Sigþrúður, f. 11.12. 1954, maki Hans Markús Hafsteinsson, f. 1.9. 1951. Lára ólst upp á venjulegu sveita- heimili þess tíma þar sem lífsbar- áttan snerist um að hafa ofan í sig og á. Menntun á þessum árum var takmörkuð, það var kennt í tvo mánuði á hverjum vetri, en Lára dvaldist tvo vetur á Akureyri, hjá Ingólfi Árnasyni föðurbróður sín- um og var þar í Barnaskóla Ak- ureyrar, þegar hún var tólf og þrettán ára. Lára og Sigurður hófu búskap í Höfnum í Skeggjastaðahreppi og síðan á Þórshöfn. Til Húsavíkur flytja þau 17.10. 1944 og búa þar á ýmsum stöðum, þar til þau kaupa sér íbúð á Reykjaheiðarvegi 5 og eru þar til ársins 1959 að þau flytja í nýtt hús sem þau byggðu við Skólagarð og nefndu Akrakot. Lára vann mikið utan heimilisins, var lengi í þvottahúsi sjúkrahúss- ins og hjá Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur var hún í mörg ár. Útför Láru fer fram frá Húsa- víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Hinn 4. maí 1940 giftist Lára Sigurði Sigurðssyni verka- manni og síðar skó- smið og bókbindara, f. 17.10. 1914 í Akrakoti á Akranesi, en hann fór þaðan níu ára gamall í fóstur til föð- ursystur sinnar Helgu Sigurðardóttur hús- freyju á Felli í Skeggjastaðahreppi í Norður-Múlasýslu, d. 24.8. 1983. Börn Láru og Sigurðar eru: 1) Helga Veronika, f. 22.8. 1940, d. 25.8. 1994. 2) Sigríð- ur Guðbjörg Stefanía, f. 21.9. 1941, maki Þröstur Brynjólfsson, f. 27.5. 1942. 3) Sigurður, f. 3.3. 1943, maki Hjördís Bjarnadóttir, f. 25.7. 1945. 4) Árni, f. 6.9. 1946, maki Margrét Anna Helgadóttir Schiöth, f. 7.4. 1945. 5) Bragi, f. 6.6. 1948, maki Alda Þórarinsdótt- ir, f. 30.12. 1947. 6) Sigurjón, f. Hún Lára á Skólagarði er látin. Þessi fregn hefur borist milli manna á Húsavík undanfarna daga og án efa haft í för með sér þá tilfinningu meðal fólks, að nú sé sannarlega skarð fyrir skildi er þessi heiðurskona hefur kvatt þennan heim og haldið á vit skapara síns og endurlausnara. Þessi orð koma mér fyrst í huga nú þegar ég sest niður og hugleiði lífsgöngu elskulegrar tengdamóður minnar, Láru Sigþrúðar Sigurðardóttur frá Saurbæ í Skeggjastaðahreppi í Norð- urmúlasýslu. Jafnframt koma í hug- ann hin góðu kynni við heiðursmann- inn Sigurð Sigurðsson, eiginmann hennar og tengdaföður minn, sem lést árið 1983. Kynni mín af Láru hóf- ust fyrir um tuttugu árum er þau hjónin, Lára og Sigurður, buðu mér til Húsavíkur, að Skólagarði 8, í fyrsta sinn. Hafði ég þá hafið sambúð með yngstu dóttur þeirra, Jónínu. Lára var næstelst sex systra og ólst upp hjá foreldrum sínum þeim Sigurði Árnasyni og konu hans, Guð- björgu Stefaníu Þorgrímsdóttur. Það sem vakti athygli mína við fyrstu kynni mín af Láru var hversu atorku- söm hún var og vildi hafa hlutina í góðu lagi. Heimili þeirra að Skóla- garði, sem þau reyndar nefndu Akra- kot eftir æskuheimili Sigurðar á Akranesi, bar þess merki að þar færi umhyggjusöm húsmóðir höndum um hlutina og húsið bar handlagni heim- ilisföðurins fagurt vitni. Ég dvaldi þarna í þetta fyrsta sinn í um það bil viku og mun ég ævinlega minnast með þakklæti þessara daga í samvist- um við þessi góðu hjón og þeim góðu kynnum sem komust á við börnin þeirra, systkini eiginkonu minnar. Lára var afar vel gefin eins og mun reyndar hafa verið með þær systur allar og var hún óspör að tjá sig um menn og málefni og gerði það á sinn hispurslausa hátt, þannig að enginn þurfti að velkjast í vafa um skoðanir hennar. Fylgdist hún vel með í bæj- armálunum á Húsavík og lagði þar gott til oft og tíðum. Hún naut ekki langrar skólagöngu, svona eins og hefðin bauð á þessum tíma, en þegar ég minnist m.a. langra samskipta hennar við stjórnendur útvarpsþátt- arins ,,Daglegs máls“, þar sem Lára var að tjá sig um ýmislegt varðandi okkar ylhýra tungumál er ég þess fullviss að sannarlega hefði verið ávinningur að því fyrir land og þjóð ef hún hefði fengið að ganga lengur menntaveginn. Einnig voru ljóð hinna ýmsu skálda þjóðarinnar henni hugleikin og kunni hún mikið af þeim utanbókar. Þau Lára og Sigurður eignuðust átta börn og af þeim kom- ust sjö til vits og ára eins og sagt er, en ein stúlka var andvana fædd. Voru þau hjónin samhent í að ala önn fyrir barnahópnum stóra og sáu vel um hann. Skiptu þau hjónin haganlega með sér verkum við heimilisverkin sem nýttist afar vel. Lára vann mikið utan heimilis, m.a. í þvottahúsi Sjúkrahúss Húsavíkur og hjá Fisk- iðjusamlagi Húsavíkur. Komu þá til góða hinir góðu skipulagshæfileikar hennar og hversu vel var búið í hag- inn til að allt mætti ganga upp. Sam- skipti þeirra hjóna við okkur hjónin og drengina okkar voru með þeim hætti að seint verður fullþakkað. En eftir missi Sigurðar kom Lára suður og dvaldi oft um tíma á heimili okkar hjóna er hún leitaði sér lækninga eða bara tilbreytingar. Áttum við margar góðar stundir saman og sjaldan heyrði ég Láru hlæja eins dátt eins og þegar við vorum að spila Hornafjarð- ar-manna, þó að ég minnist um leið herfilegra mistaka minna við spila- borðið sem urðu ekki ósjaldan tilefni kátínu hennar. Þegar sest er niður og leitað á vit minninganna þegar ástvinur kveður er svo margt sem kemur í hugann og oft úr vöndu að velja. En ég vil gera að lokaorðum mínum orð skáldsins góða er hann segir: Þitt er menntað afl og önd eigirðu fram að bjóða: hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna góða. (Stephan G. Step.) Með þessum orðum kveð ég og fjöl- skylda mín heiðurskonu sem var æv- inlega sönn í því sem hún tók sér fyrir hendur. Ég kveð tengdamóður mína með virðingu og þökk. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hans Markús Hafsteinsson. Við viljum með þessu ljóði eftir Stein Steinar minnast ömmu okkar: Í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Þú ferðast gegnum dimman kynjaskóg af blekkingum, sem brjóst þitt hefur alið á bak við veruleikans köldu ró. Þinn draumur býr þeim mikla mætti yfir að mynda sjálfstætt líf, sem ógnar þér. Hann vex á milli þín og þess, sem lifir, og þó er engum ljóst hvað milli ber. Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. Og sjá, þú fellur fyrir draumi þínum í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans. Hvíl í friði, elsku amma. Lára Sigþrúður Sigurðardóttir, Elísabet Sigurðardóttir, Guðríður Sigurðardóttir, Sóley Sigurðardóttir. LÁRA SIGÞRÚÐUR SIGURÐARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.