Morgunblaðið - 02.02.2002, Side 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 45
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuhúsnæði til leigu
Til leigu mjög gott 114 fm skrifstofuhúsnæði
í Húsi verslunarinnar. Húsnæðinu er skipt niður
í 3—4 herbergi auk afgreiðslu og sérherbergis.
Mjög góð skrifstofuhúsgögn geta fylgt á sann-
gjörnu verði. Áhugasamir hafi samband við
Ástu í síma 892 2799.
FÉLAGSSTARF
Gunnar Birgisson,
bæjarfulltrúi og
formaður bæjarráðs
Kópavogs, verður til
viðtals frá kl. 11.00—
12.00 í dag, laugar-
daginn 2. febrúar, í
Félagsmiðstöð HK í Íþróttahúsinu
Digranesi við Skálaheiði.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Hins íslenska biblíufélags verður á morgun
kl. 15.30 í safnaðarheimili Lauganeskirkju.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Barcelóna
Ertu að fara til Barcelóna?
Leigi íbúð viku í senn.
Uppl. gefur Helen í síma 899 5863.
KENNSLA
Námskeið í ung-
barnanuddi
hjá fagmenntuðum leið-
beinanda, Heilsusetri
Þórgunnu, Skipholti 50
Næsta námskeið fimmtud. 7. febrúar kl. 12.00
og fimmtud. 14. febrúar kl. 13.00.
Símar 552 1850 — 896 9653 — 562 4745.
Námskeið í andlitsnuddi
punktanudd og ilmolíunudd
Nýttu þér þessa einföldu og árangursríku
sjálfshjálparmeðferð til að fyrirbyggja og laga
bauga, hrukkur og slappa vöðva í andliti.
Frábær árangur á stuttum tíma.
Dags. 9. febrúar frá kl. 12—16.
Sími 896 9653 og 562 4745.
Skipholti 50.
TIL SÖLU
Lagerútsala/barnavara
Dagana 1.—3. febrúar höldum við lagerútsölu
í Smiðsbúð 8. Í boði verður mikið úrval af barna-
vöru og barnafatnaði, s.s. vagnar, kerrur, bílstól-
ar, matarstólar, rúm og einnig mikið úrval af
vönduðum barnafatnaði, m.a. frá Nike, Oshkosh
og Confetti. Einnig mikið úrval leikfanga.
Ath.: Allt að 40% afsláttur frá heildsöluverði.
Opnunartími frá kl. 11.00—17.00 föstudag,
laugardag og sunnudag.
Lagerútsala, Smiðsbúð 8, Garðabæ.
Veiðimenn
Óskað er eftir tilboðum í stangveiði í Hópinu
í Húnavatnssýslum sem er á vatnasvæði Víði-
dalsár. Áskilinn er réttur til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum skal skila fyrir 1. mars 2002 til undir-
ritaðs, sem veitir allar nánari upplýsingar.
F.h. Veiðifélags Víðidalsár:
Ragnar Gunnlaugsson, Bakka,
531 Hvammstanga, sími/fax 451 2560.
VEIÐI
móður með sterka siðgæðisvitund og
réttlætiskennd. Er til meira lán? Hvíl
þú í friði, Eggert minn, við munum
ávallt hugsa til þín með hlýju og þakk-
læti. Bogga mín: Minningin um góðan
og tryggan eiginmann verður styrkur
þinn við missi hans nú.
Trú Eggerts á líf eftir dauðann
leiðir hugann að því, að hann hefur
hafið nýtt ferðalag og mun eflaust
undirbúa komu þína vel þegar að því
kemur.
Guð blessi minningu Eggerts
Haraldssonar.
Ólafur Kristjánsson.
Elskulegur afi minn, Eggert Har-
aldsson, er látinn á 98. aldursári. Afi
er eflaust hvíldinni feginn og að baki
löng og farsæl ævi, gott hjónaband,
fimm börn og fjöldi afkomenda sem
jafnframt þótti mjög vænt um þennan
góða og fallega mann.
Afi var alla tíð við góða heilsu ef
undan eru skilin þau 2 ár þegar hann
var berklaveikur. En sjúkdómslegan
var ekki alslæm því þá kynntist hann
ömmu og enga konu aðra hefði hann
viljað eiga. Örfá síðustu árin dvaldi afi
í Sjúkraskýlinu í Bolungarvík enda
var heilsan þá farin að gefa sig vegna
aldurs eins og eðlilegt er.
Minningin um afa getur ekki verið
bjartari. Hann var einstakt ljúfmenni
og við barnabörnin og síðar barna-
barnabörnin sóttumst í félagsskap
hans og nærveru.
Í nokkur ár bjuggu foreldrar mínir
í Reykjavík á veturna en í Bolung-
arvík á sumrin. Þá var alltaf búið hjá
afa og ömmu á sumrin þótt húsakost-
ur væri þröngur, margir í heimili og
gamla húsið lítt stærra en góður sum-
arbústaður nútímans. Við bræðurnir
vorum þá búnir að pakka niður mörg-
um vikum áður en keyrt var vestur,
svo mikil var spennan að komast vest-
ur til afa og ömmu í Bolungarvík.
Eftir að við vorum alkomin til Bol-
ungarvíkur voru þær ófáar ferðirnar
sem farnar voru til afa og ömmu til
þess að spila. Fyrst var það lúdó,
ólsen-ólsen og rakki en síðar vist og
kani. Fyrir tíð sjónvarpsins fórum við
krakkarnir oft til þeirra á fimmtu-
dagskvöldum til að hlusta á útvarps-
leikritin sem í þá daga voru svo
spennandi að maður gat varla fest
svefn og var í raun hræddur í marga
daga á eftir.
Mikil spenna var í Bolungarvík
sumarið 1968 þegar von var á útsend-
ingum sjónvarps. Foreldrar mínir
festu kaup á sjónvarpi skömmu áður
en útsendingar hófust. Eins og fleiri
beið afi spenntur eftir þessum stór-
viðburði og þegar farið var að senda
út stillimyndina kom afi sérstaklega í
heimsókn til þess að kíkja á þetta
undur. Gæti það gerst í dag að fá afa í
heimsókn til þess að horfa á stilli-
myndina með barnabörnunum? Afa
var margt til lista lagt. Hann var
handlaginn maður og honum fórust
öll verk vel úr hendi. Hann var þó
heimakær og rólegur og fannst ágætt
að láta ömmu stýra heimilishaldinu
eins og raunar er títt um marga sjó-
menn. Aldrei eignaðist afi bíl þótt fátt
þætti honum skemmtilegra en góður
og langur bíltúr. Afi var reglumaður á
áfengi en lét eftir sér að taka í nefið.
Velta má fyrir sér hversu viðburða-
rík ævi það var fyrir afa að fæðast í
upphafi 20. aldar í fámennu sjávar-
þorpi í tíð árabátanna, án allra nútíma
lífsþæginda, og deyja síðan í upphafi
21. aldar við það tæknistig sem við
þekkjum. Hefur nokkur önnur kyn-
slóð mannkynssögunnar upplifað aðr-
ar eins breytingar? Þá má hafa í huga
að einungis þarf 12 karla eins og afa
til þess að spanna alla Íslandssöguna
frá 874 til 2002.
Með þessum orðum kveð ég elsku-
legan afa minn. Hans lán var að lifa
hamingjusömu lífi í tæpa öld, sáttur
við sjálfan sig og aðra. Við ættingjar
söknum hans en vitum að kallið var
komið. Hjá afa tekur við nýr kafli og
vel verður tekið á móti honum á nýj-
um stað.
Elsku amma. Þú kveður nú lífs-
förunaut þinn til langs tíma, til 67 ára.
En þú varst heppin að fá að giftast
þessum góða manni og minningin um
hann verður þér mikill styrkur.
Kristján B. Ólafsson.
Elsku afi minn.
Mig langaði til að kveðja þig með
nokkrum orðum. Þegar ég hugsa til
baka til þín þá flæða ljúfa minningar
um sumrin vestur í Bolungarvík. Við
frændsystkinin á þönum inn og út á
Völusteinsstrætinu. Þú lést það ekki
mikið á þig fá heldur spilaðir þú við
okkur vist þegar okkur leiddist og tal-
aðir við okkur um daginn og veginn.
Þú sýndir okkur alltaf mikla þolin-
mæði og vináttu. Ég minnist þín í
stofunni heima í hægindastólnum þín-
um með tóbakshornið eða í sólbaði í
öllum fötunum með derhúfuna. Mað-
ur getur nú ekki annað gert en að
brosa út í annað. Elsku afi minn, mig
langar að þakka þér fyrir þær sam-
verustundir sem við áttum saman og
fyrir þá vináttu og hlýhug sem að þú
sýndir mér alltaf. Hvíl í friði og megi
Guð geyma þig þangað til að við hitt-
umst aftur, vertu sæll.
Elsku amma Bogga mín, ég votta
þér samúð mína og megi Guð gefa þér
styrk í sorg þinni og megi hann
vernda þig og blessa.
Fyrir hönd okkar systkinanna.
Hulda Margrét Eggertsdóttir.
:,
*
3
3 )
(C
6 4/<< D , ==
)!"# .
D $ $ "#
9) !# %!
4!, $ "# ! ! %!
B% , $ "# )>& %!
0! $ "# B% ! %!
, !, !%, !, !, !.
1:646:4+
() ')) E
0)'
-
$
2
)
&'!
'1 "#
:! 1 1) %! $ !9 "#
B% , (9 1)"#
/)0'!*)" 1)"# 60 1 $ %!
-)* ) 1) %! 1!! 0 ! "#
1)B# :! %!
, !, !%, !, !, !.
:-64F
G =H
2 $
)
;
9! $
! %9!''!
> )!? "#
#!-)" %! !!
#! "#
? -)" %!
#*!!A) "#
1 ' -)" %! )69$' "#
1)-)" %! $ $ ! "#
, !, !%, !, !, !.
<
*
*
3
3 )
B
<:4:.
/
0) # .
2
*
,
$$
6
4.
)
-
$
!
!! >)
& $)
/)0 $
! 9!
1))
%$ '! .