Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 13 Láttu ljós þitt skína! - Vertu sýnilegur í umferðinni og sjáðu aðra 25% afsláttur af HELLA ljósavörum Tilboð: 7.990 kr. Þessi vinsæli HELLA ljóskastari með bláu gleri er kominn aftur. Mán. til fös. kl. 8 - 18. Einnig opið í Borgartúni á laugardögum kl. 10 - 14. Bílanaust er opið: út febrúar Sími 535 9000 Borgartúni, Reykjavík. Bíldshöfða, Reykjavík. Bæjarhrauni, Hafnarfirði. Hrísmýri, Selfossi. Dalbraut, Akureyri. Grófinni, Keflavík. Lyngási, Egilsstöðum. Álaugarvegi, Hornafirði. www.bilanaust.is ÞÓRÐUR S. Gunnarsson hæsta- réttarlögmaður og dósent við Há- skólann í Reykjavík hefur verið ráðinn forseti lagadeildar Háskól- ans í Reykjavík. Nám við deildina hefst næsta haust en ráðgert er að þá muni allt að 75 nemendur hefja laganám við Háskólann í Reykja- vík. Þórður S. Gunnarsson lauk emb- ættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands 1975. Hann stundaði framhaldsnám á sviði löggjafar um óréttmæta við- skiptahætti og samkeppnishömlur við lagadeild Óslóarháskóla 1981. Þórður varð stundakennari í viðskiptalög- fræði og síðar al- þjóðaviðskipta- rétti við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík í janúar 1999. Hann varð lektor við skólann 1. apríl 1999 og dósent frá 1. október 2000. Þórður S. Gunnarsson varð hér- aðsdómslögmaður 1977, hæstarétt- arlögmaður 1982 og löggiltur verð- bréfamiðlari 1993. Hann sat í stjórn Lögmannafélags Íslands 1982–1984 og í laganefnd félagsins 1984–1988 Þórður er kvæntur Helgu Sig- þórsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau eina dóttur, Þórunni Helgu, nema við MR. Ráðinn forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík LÖGREGLAN í Reykjavík skráði mun fleiri umferðarlagabrot í janúar heldur en síðustu sex mánuði þar á undan. Mest er fjölgunin í kærum fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu. Sé miðað við meðaltal frá júlí til des- ember 2001 voru í janúar tvöfalt fleiri kærðir fyrir akstur á móti rauðu ljósi eða 211. 1.331 voru kærðir fyrir hrað- akstur sem er 90% aukning. Þá var 151 ökumaður kærður fyrir að færa ekki ökutæki til skoðunar sem er aukning um 140%. Mest fjölgaði kær- um fyrir að virða ekki stöðvunar- skyldu. Í janúar voru 567 ökumenn kærðir fyrir slík brot en frá október til desember 2001 voru að meðaltali 74 ökumenn kærðir og enginn síð- ustu þrjá mánuði þar á undan. Aukn- ing nemur því 1440%. Lögreglan ger- ir ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af sektum hafi aukist um 22,5 milljónir af þessum sökum. Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn í Reykjavík segir að fjölgun umferðarlagabrota helgist einkum af því að eftirlit lögreglunnar var með öflugasta móti í janúar. Sérstök áhersla var lögð á hættuleg umferð- arlagabrot s.s. brot gegn stöðvunar- skyldu. Hann undrast hve algeng slík brot eru. Jafnvel þó lögreglubíl sé lagt við gatnamót brjóti ökumenn þar gegn stöðvunarskyldu. „Menn virð- ast vera gjörsamlega sofandi fyrir því hvað stöðvunarskylda þýðir,“ segir Geir Jón. Hann minnir á að ökutæki verða að nema staðar við stöðvunar- skyldu, ekki dugi að hægja ferðina áður en farið er yfir. Á vef lögreglunnar kemur fram að löggæsla var mun sýnilegri en mán- uðina á undan. m.a. vegna þess að lögreglumönnum í Reykjavík fjölgaði nokkuð um síðustu áramót. Aðspurð- ur hvort umferðarlagabrotum hefði ekki frekar átt að fækka en fjölga með sýnilegri löggæslu sagði Geir Jón að hann hefði ætlað það. „Fólki er kannski bara sama þó það sjái lög- regluna, það brýtur samt af sér. Lög- reglumenn segja að það sé sama hvert þeir líta, það er alltaf af nógu að taka,“ segir hann. „Það kannski virk- ar ekki þó fólk sjái lögregluna, aga- leysið er kannski orðið svona al- gjört.“ Margir á myndum Umferðareftirlitsmyndavélar í Hvalfjarðargöngum og á gatnamót- um í Reykjavík hafa verið mjög mikið í gangi í janúar en alls var kært fyrir 899 brot sem voru mynduð á slíkar vélar. Myndavélarnar taka ýmist mynd þegar ekið er yfir gatnamót á rauðu ljósi eða of hratt. Í janúar var kært fyrir samtals 1.542 slík brot þannig að myndavélarnar stóðu tæp- lega 60% hinna brotlegu að verki. Geir Jón segir ekki ákveðið um fjölgun slíkra véla og í raun verði að gæta að því að kæra ekki of marga ökumenn því talsverðan tíma getur tekið að ljúka innheimtu sekta. Þá minnir hann á að einungis þeir sem brjóta af sér lendi á mynd. Kærur vegna umferðarlagabrota óvenju margar í janúar 567 ökumenn virtu ekki stöðvunarskyldu ÁKVEÐIÐ hefur veriðað gefa þeim, sem minnast vilja Mar- grétar Bretaprinsessu, er lést um liðna helgi, tækifæri til að koma á framfæri samúðar- kveðjum. Minningarbók hefur verið komið fyrir í bú- stað sendiherra Bret- lands við Laufásveg 33 í Reykjavík og geta menn ritað nöfn sína í hana á milli kl. 14 og 16 í dag, þriðjudag. Þeir, sem þess æskja geta og sent bresku konungsfjölskyldunni samúðarkveðjur í tölvupósti. Slóðin á Netinu er www.roy- al.gov.uk og verður þeim kveðjum komið til ættmenna prinsess- unnar. Minningarbók um Margréti prinsessu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.