Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 21
TAP Íslenska hugbúnaðarsjóðsins
hf. á fjórða ársfjórðungi ársins 2001
nam 211 milljónum króna. Munar
þar mestu um aukningu á óbeinni
niðurfærslu á óskráðum hlutabréf-
um í eigu félagsins um 125 milljónir
króna en áður hafði félagið fært nið-
ur óskráða hlutabréfaeign um 1.050
milljónir króna. Gengislækkun
skráðra hlutabréfa nemur 20 millj-
ónum króna á ársfjórðungnum og
innleyst tap af sölu hlutabréfa á
tímabilinu nemur 74 milljónum
króna, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Íslenska hugbúnað-
arsjóðnum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á laugardag nam tap ársins
1.589 milljónum króna á síðasta ári
samanborið við 21 milljón króna tap
árið 2000. Innleyst tap Íslenska hug-
búnaðarsjóðsins hf. á árinu 2001 eft-
ir skatta nemur 125 milljónum króna
samanborið við 7 milljóna króna tap
á árinu 2000. Óinnleyst gengislækk-
un á skráðum hlutabréfum í eigu fé-
lagsins nemur 289 milljónum. Til við-
bótar þessu er gerð óbein niður-
færsla á hlutabréfasafninu að upp-
hæð 1.175 milljónir króna. Tap árs-
ins til lækkunar á eigin fé nemur því
1.589 milljónum króna. Heildareign-
ir félagsins nema 1.537 milljónum
króna í árslok 2001 sem er lækkun
um 948 milljónir frá upphafi ársins
og nemur eigið fé nú 1.209 milljónum
króna samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall er 79% og innra
virði hlutafjár 2,24. Félagið eignfær-
ir ekki skattalegt tap en það nemur
257 milljónum króna í árslok. Tap
ársins væri 1.332 milljónir króna
m.v. 18% tekjuskattshlutfall væri
slíkri eignfærslu beitt.
Eigið fé minnkar
um 50% milli ára
0,1
!,
0,1, &
2!
, &
3 !'
* 1
4 !'
!, 5!+
6
7 +8
&
(&$
+8 +1 !
7 +,1
+
/
0
10
213
21454
1/
67
274
07809
!"" # !"" # !"" #
611 611
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
Alþýðubankinn hf. keypti í gær
hlut í Þróunarfélaginu hf. af
Fjárfestingafélaginu Straumi
að nafnvirði ríflega 183 milljóna
króna. EFA hf. átti ekkert í fé-
laginu fyrir en eignarhlutur
þess er nú 16,65%. Samninga-
viðræðum á vettvangi stjórna
Þróunarfélags Íslands og Eign-
arhaldsfélagsins Alþýðubank-
inn um mögulegan samruna fé-
laganna var nýlega hætt þar
sem ekki náðist samkomulag
um skiptahlutföll í sameinuðu
félagi.
Ásmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri EFA, þvertekur
fyrir að EFA sé með þessum
kaupum að taka yfir stjórn Þró-
unarfélagsins, enda dugi ríf-
lega 16% hlutur ekki til þess.
Hann segir að Straumur hafi
nánast einvörðungu fjárfest í
skráðum bréfum og því sé varla
óeðlilegt að Straumur selji sín
bréf til EFA með þessum
hætti, sérstaklega ef til greina
kemur að félögin sameinist.
Eignasafn EFA samanstandi
fyrst og fremst af óskráðum
bréfum. Aðspurður hvort hugs-
anlegt sé að sameiningarvið-
ræður við Þróunarfélagið hefj-
ist að ný segir Ásmundur að
það verði að meta þegar ýmsar
aðrar forsendur skýrist en
þessi hlutabréfaviðskipti ættu
að greiða fyrir því að svo geti
orðið.
EFA kaup-
ir 16,65% í
Þróunar-
félaginuÞÓRÐUR Friðjónsson mun takavið starfi forstjóra Verðbréfaþings
Íslands frá byrjun apríl næstkom-
andi. Þórður hef-
ur verið forstjóri
Þjóðhagsstofn-
unar undanfarin
15 ár.
Þórður segir í
samtali við
Morgunblaðið að
breyting á
starfsvettvangi
leggist vel í sig
en ráðningin hafi
átt sér stuttan aðdraganda. „Nú er
ágætur tími fyrir mig að breyta til
og takast á við ný verkefni. Verð-
bréfaþingið er grundvallarþáttur í
fjármálakerfinu og ég hlakka til að
helga mig því verkefni að efla
þingið eins og hægt er.“
Helena Hilmarsdóttir hefur
gegnt starfi forstjóra VÞÍ frá því
Finnur Sveinbjörnsson lét af störf-
um forstjóra í síðasta mánuði.
Stjórn Verðbréfaþings Íslands til-
kynnti um ráðningu Þórðar Frið-
jónssonar í gær.
Í tilkynningu frá Verðbréfaþingi
Íslands kemur m.a. fram að Þórð-
ur gegndi stöðu ráðuneytisstjóra í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
frá apríl 1998 til september 1999, í
leyfi frá Þjóðhagsstofnun. Þar áð-
ur var hann efnahagsráðgjafi for-
sætisráðherra og á sama tíma
kennari við Viðskiptadeild Háskóla
Íslands. Þórður hefur fyrir Íslands
hönd verið m.a. í hagstjórnarnefnd
OECD og í bankaráði Evrópu-
bankans. Jafnframt er Þórður for-
maður samstarfsnefndar íslenskra
stjórnvalda, Landsvirkjunar,
Norsk Hydro og íslenskra fjár-
festa um byggingu álvers við
Reyðarfjörð. Þórður hefur M.A.-
gráðu í hagfræði frá Queen’s há-
skóla í Kanada og cand.oecon-
gráðu frá Viðskiptadeild Háskóla
Íslands.
Þórður Friðjónsson verður
forstjóri Verðbréfaþings
Þórður
Friðjónsson
HLUTABRÉF í Arcadia hækkuðu
enn í verði fyrri part dags í gær og
fór verðið í 292 pens en lækkaði þeg-
ar leið á daginn. Lokaverð bréfanna
var 286 og er það 1,37% lækkun frá
sl. föstudegi. Þá var lokaverðið 290
pens og hafði verð bréfanna þá
hækkað um 12,8% á vikutíma, frá því
að tilkynnt var um slit á yfirtöku-
viðræðum fyrirtækisins við Baug.
Verð hlutabréfanna hefur hækkað
jafnt og þétt frá því að upp úr við-
ræðunum slitnaði en breskir verð-
bréfamiðlarar hófu þá að mæla með
kaupum á hlutabréfum í Arcadia eft-
ir langa biðstöðu.
Arcadia
Hlutabréf
lækkuðu
um 1,37% REKSTRARÁÆTLUN Búnaðar-bankans fyrir árið 2002 gerir ráð fyr-
ir 2.500 milljóna króna hagnaði eftir
skatta. Þetta kom fram á kynning-
arfundi í bankanum í gær.
Á fundinum var farið yfir stefnu og
framtíðarsýn bankans, m.a. með tilliti
til fyrirhugaðs samruna við Gildingu
fjárfestingarfélag. Árni Tómasson,
bankastjóri Búnaðarbankans, sagði
að með samrunanum myndi eigið fé
bankans hækka um rúma 3 milljarða
króna og heildareignir aukast um
rúma 6 milljarða króna. Eins opnaði
samruninn fyrir möguleika til auk-
inna umsvifa. Þannig verði hægt að
auka útlán bankans um allt að 40% án
þess að eiginfjárhlutfall fari niður
fyrir 10%. Samrunanum fylgdi auk
þess aukinn stærðarhagkvæmni og
bankinn yrði betur í stakk búinn til að
sinna stórum viðskiptavinum, enda
myndi með samrunanum draga sam-
an með Búnaðarbankanum og hinum
tveimur stóru viðskiptabönkunum.
Eignarhlutur ríkisins í sameinuðu fé-
lagi verður 55%.
Í rekstraráætlun Búnaðarbankans
fyrir árið 2002 er gert ráð fyrir 2.500
milljóna króna hagnaði fyrir skatta af
starfsemi bankans. Gert er ráð fyrir
14% útlánaaukningu og að efnahagur
bankans verði um 240 milljarðar í
árslok og eigið fé um 16-17 milljarðar.
Árni sagði að afkoma bankans á síð-
asta ári hafi verið í takt við áætlanir
en afkoman verður kynnt hinn 18.
febrúar.
BÍ gerir ráð fyrir 2,5
milljarða króna hagnaði