Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 23
Les allar tegundir greiðslukorta
sem notuð eru á Íslandi.
Er með lesara fyrir snjallkort
og segulrandarkort.
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.
Tekur einnig Diners og VN kort.NÝTT
Helgarleiga / Langtímaleiga
KENNETH Lay, fyrr-
verandi forstjóri og yf-
irframkvæmdastjóri
bandaríska orskusölu-
fyrirtækisins Enron,
mun neita að bera vitni
í dag, þegar hann kem-
ur fyrir þingnefnd sem
rannsakar gjaldþrot
fyrirtækisins og meint
misferli yfirmanna
þess, að því er fulltrúi
Lays greindi frá. Lay
var stefnt fyrir tvær
rannsóknarnefndir eft-
ir að hann hætti við að
bera vitni sjálfviljugur í
síðustu viku.
„Að ráði lögfræðinga sinna mun
Lay nýta sér réttindi sín samkvæmt
fimmta viðaukanum,“ sagði fulltrúi
Lays, Kelly Kimberly. Fimmti við-
auki bandarísku stjórnarskrárinnar
kveður á um réttindi manna til að
bera ekki sakir á sjálfa sig.
Skilling sekur
um meinsæri?
Gjaldþrot Enron í desember sl. er
eitt það umfangsmesta í sögunni.
Þúsundir starfsmanna misstu vinn-
una, og mikill fjöldi starfsmanna og
fyrrverandi starfsmanna glataði öllu
sparifé sínu, sem var bundið í hluta-
bréfum í Enron, en þau eru nú verð-
laus. Í ljós hefur komið að nokkru áð-
ur en gert var uppskátt um slæma
fjárhagsstöðu fyrirtækisins höfðu
yfirmenn þess selt
hlutabréf sín og hagn-
ast um miklar fúlgur.
Jeffrey Skilling, sem
var yfirframkvæmda-
stjóri Enron á undan
Lay, bar vitni í síðustu
viku, en margir þing-
menn segja að þeir hafi
ekki trúað vitnisburði
hans. Skilling bar að
hann hefði talið að fjár-
hagsstaða Enron væri
traust þegar hann
hætti hjá fyrirtækinu í
ágúst sl., og hefði ekk-
ert vitað um vafasama
kaupsýslu er talin er
hafa leitt til gjaldþrotsins.
Þingmaðurinn Billy Tauzin sagði
að Skilling kynni að eiga á hættu að
verða lögsóttur fyrir meinsæri.
„Við fengum engar aðrar upplýs-
ingar en þær, að [Skilling] taldi sig
vera mun snjallari en alla í Wash-
ington, og að hann gæti bara komið
og sagt okkur hvað sem er og við
myndum trúa því,“ sagði Tauzin.
„Ég er hræddur um að með þessu
kunni hann að hafa komið sér í laga-
leg vandræði.“
Bruce Hiler, lögmaður Skillings,
sagði um ummæli Tauzins: „Okkur
er brugðið vegna þeirra ógrunduðu
ásakana er lagðar eru fram í garð
umbjóðanda okkar af hálfu manna
sem eru í þeirri stöðu að þeir mega
vita hversu fráleitar þær eru.“
Rannsóknin á gjaldþroti Enron
Lay mun neita
að svara
Washington. The Los Angeles Times.
Kenneth Lay
TUGIR þúsunda Írana mótmæltu í
gær stefnu Bandaríkjanna og
minntust þess um leið, að 23 ár eru
liðin frá íslömsku byltingunni í Ír-
an. Í ræðu, sem Mohammad Khat-
ami, forseti landsins, hélt, hvatti
hann „óþroskaða leiðtoga“ Banda-
ríkjanna til að „vakna“ og breyta
afstöðu sinni gagnvart Íran.
„Við skulum vona, að leiðtogar
Bandaríkjanna vakni og breyti
stefnu sinni gagnvart Íran. Besta
svarið við hótunum óþroskaðra
leiðtoga er þátttaka ykkar í þess-
um mótmælum, með öðrum orðum
efling lýðræðisins,“ sagði Khatami.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur kallað Íran, Írak og
Norður-Kóreu „möndul hins illa“
og sakað Írani um að róa undir í
Afganistan, að hafa skotið skjóls-
húsi yfir talibana og liðsmenn al-
Qaeda og stutt hryðjuverkamenn.
Khatami er leiðtogi hófsamra
afla í Íran og hefur átt í miklum
útistöðum við harðlínuklerkana. Í
ræðu sinni í gær sagði hann, að
vissulega væru skoðanir skiptar í
samfélaginu og óánægjan mikil en
allir landsmenn stæðu nú samein-
aðir um hið íslamska lýðveldi.
Tilbúnir að deyja
Mikill hatursáróður gegn Banda-
ríkjunum var hafður á lofti í mót-
mælagöngunni í Teheran en talið
er, að 300 til 400.000 manns hafi
tekið þátt í henni. Fundir voru
einnig í öðrum borgum og bæjum í
landinu. Kváðust þúsundir stuðn-
ingsmanna erkiklerksins Ali
Khameneis vera tilbúnar að deyja í
átökum við Bandaríkjamenn.
Mótmælin í gær voru á lokadegi
„Tíu-daga-dögunarinnar“ en sú há-
tíð er haldin á ári hverju til að
minnast íslömsku byltingarinnar
árið 1979.
Reuters
Mótmælin gegn Bandaríkjunum í Teheran í gær. Talið var, að 300 til 400.000 manns hefðu tekið þátt í þeim.
Mótmæli gegn Banda-
ríkjunum í Íran
Teheran. AFP, AP.
Khatami hvetur „óþroskaða leiðtoga“ til að „vakna“