Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VIÐ vorum með opið á öll-um söluskrifstofum okkar, í Reykjavík,Keflavík, á Akureyri, Selfossi og í Vestmannaeyjum, auk þess sem við kynntum ferðirnar í Kringlunni og Smáralind. Við höf- um líklega dreift um 15 þúsund bæklingum og fólk hikaði ekki við að bóka ferðir strax. Hagstæðustu tilboðin ruku út,“ segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar. Hörður segist mjög ánægður með viðtökurnar. „Núna var fólk að nýta sér ódýrustu ferðirnar til sól- arlanda, sem hafa alltaf selst upp á fyrstu dögunum. Portúgal, Mall- orka, Benidorm og Krít njóta mik- illa vinsælda.“ Hörður segir að Úrval-Útsýn bjóði nú vikulegt leiguflug til Benidorm, sem áður var eitt höf- uðvígi Samvinnuferða-Landsýnar sem varð gjaldþrota á liðnu ári. „Skarðið sem Samvinnuferðir- Landsýn skildu eftir sig hefur verið fyllt og einnig skarðið sem Ferða- skrifstofa Reykjavíkur skildi eftir sig, því við bætum við þrjú þúsund sætum á Alicante.“ Sólarlönd og Norræna Anton Antonsson, framkvæmda- stjóri Terra Nova-Sól, segir að allan sunnudaginn hafi verið fullt út úr dyrum á ferðaskrifstofun dreifðum tíu þúsund bækl viðskiptavina, sem hafa lan áhuga á sólarlandaferðum, sem ferðir með Norrænu n andi vinsælda. Við bjóðum Portúgals, til Salou á Spán og Suður-Frakklands, sem til sólarlanda. Svo bjóðum arhús í Þýskalandi og í Da Sala í þau er hins vegar mikil og til sólarlanda. Þar Portúgal upp úr. Bæði er dvelja þar og svo bjóðum mjög gott íbúðahótel í Albu auki hefur verðið á ferðum Portúgals lækkað frá í fyrr til Frakklands eru á sama Ferðaskrifstofur hófu að kynna sumarl Þúsundir bæklinga og fjöldi bókana Á ströndinni í Sitges Ferðaskrifstofur voru flestar með opið hús um helgina og kynntu framboð á sumar- leyfisferðum. Forsvarsmenn þeirra segja að Íslendingar séu spenntastir fyrir sólar- landaferðum að vanda. SAMKVÆMT upplýsingumfrá Félagi heyrnalausrahefur hin nýja samskipta-tækni stóraukið atvinnu- tækifæri þeirra u.þ.b. 250 Íslend- inga sem eru heyrnarlausir. Heyrnarlausir og heyrnarskertir taka nú margir að sér verkefni sem þeir geta unnið í gegnum tölvupóst og t.d. fá heyrnalausir iðnað- armenn SMS-skila- boð um verkefni sem bíða þeirra. „Þetta er algjör bylting í heimi okkar heyrnalausra. Bara fyrir nokkrum árum mættum við mjög miklum hindrunum í samskiptum al- mennt, svo ekki sé talað um samskipti til útlanda. En tilkoma tölvupóstsins, SMS-skila- boða og [spjallrásarinnar] MSN hefur gjörbreytt okkar lífi,“ segir Berglind Stefánsdóttir, skólastjóri Vesturhlíðarskóla í Reykjavík. Í skólanum eru 18 heyrnalausir eða mjög heyrnaskertir nemendur á aldrinum 6–15 ára sem allir hafa táknmál að sínu móðurmáli. Ekki háð hljóðum „Áður fyrr voru svo gríðarlegar hindranir. Við gátum varla haft samskipti við heyrandi fólk og þau voru alls ekki almenn og aðgengi- leg. Ef okkur vantaði einföldustu upplýsingar til dæmis frá bankan- um okkar þá vorum við alltaf háð því að einhver heyrandi sæi um samskiptin fyrir okkur,“ segir Berglind. Í dag geti heyrnarlausir séð um þessi samskipti sjálfir með því að nota tölvupóst, SMS-skila- boð eða spjallrásir á Netinu og hentar spjallrásin MSN sér- staklega vel. Á MSN geti heyrnarlausir átt óhindruð og milliliða- laus samskipti við heyr- andi fólk sem hafi verið miklum erfiðleikum bundið áður. „Allt eru þetta tæki sem ekki eru háð hljóðum,“ segir Berglind og nýtast því heyrnarlausum sem heyrandi. Berglind segir að tækniþróunin sé svo gríðarlega hröð að heyrnarlausir verði að hafa sig alla við til að fylgj- ast með helstu nýjungum. „Áður fyrr kunnum við ekkert á tæknina enda hentaði hún okkur ekki. Í dag erum við mörg algjörir tækjafíkl- ar,“ segir Berglind og á það ekki síst við hana sjálfa. GSM-síminn hennar er af gerðinni Nokia 9210 sem er búinn lyklaborði og litaskjá. Með honum getur hún sent og tekið á móti tölvupósti sem hún notar jafnt vegna vinnu sinnar og ábyrgð- arstarfa og til samskipta við vini og kunningja. Myndsímar hafa tekið miklum framförum en notkun þeirra er því Tölvupóstur, SMS-skilaboð og spjallrási „Algjör bylting okkar heyrnarl Tölvupóstur, spjallrásir og ekki síst SMS-skilaboð hafa stóraukið möguleika heyrnarlausra til samskipta bæði sín á milli og við heyrandi fólk. Sindri Jóhannesson, Sun neme Berglind Stefánsdóttir LÍKT og margir aðrir ís unglingar nota þau Gunn Björn Jónsson, Sindri Jó esson og Sunna Dögg Sc nemendur í Vesturhlíðar SMS-skilaboð mikið í sam skiptum sín á milli. Skila ganga ótt og títt á milli félaga, vina og kunningj ekki síður við foreldra. H sama má segja um tölvup spjallrásina MSN. „Ég nota tölvupóstinn segir Sunna Dögg Schev nota MSN líka ef ég er a Skilab ganga JAFN LÍFEYRISRÉTTUR HÆTTULEGAR FREISTINGAR Það er vandasamt að vera ung-lingur í dag, og enn vanda-samra að vera foreldri, að minnsta kosti ef miðað er við upplýs- ingar sem komu fram í úttekt Morg- unblaðsins um unglinga um helgina. Þar kemur fram að unglingar séu orðnir að sérstökum neysluhópi sem hægt er að selja bæði margvísleg lífs- gæði og afþreyingu, en einnig ákveðna ímynd sem fyrirmynd að hegðun þeirra. Lengi hefur verið reynt að vernda börn fyrir því að verða að sérstökum neysluhópi en nú virðist sem sú vernd nái ekki til unglinga. Netið hefur haft mikil áhrif á aðgengi unglinga að ým- iss konar óæskilegu efni. Í fyrsta lagi er aðgangur að ýmiss konar klámi og ofbeldi á Netinu almennur, og eins hefur reynslan sýnt að spjallrásir geti reynst hættulegar unglingum, og eru þess dæmi að kynni unglings við aðra einstaklinga á spjallrásum hafi endað sem kynferðisbrotamál. Fleira hefur þó áhrif á unglinga og eiga fjölmiðlar stóran þátt í að móta sjálfsmynd þeirra. Sérfræðingar benda á að framleiðendur kvikmynda og myndbanda, höfundar tískuljós- mynda og útgefendur tónlistartexta og tímarita geri markvisst út á kynlíf og eigi þátt í að breyta sjálfsmynd unglinga í þá átt að hlutgera ungar stúlkur sem kynverur í auknum mæli. Þessar breytingar hafa meðal ann- ars haft þær afleiðingar að kynhegð- un unglinga hefur breyst eins og fram kom í Morgunblaðinu í fyrradag og eru þau til dæmis yngri þegar þau byrja að stunda kynlíf. Tíðni kyn- sjúkdóma eins og klamydíu hefur aukist meðal yngsta aldurshópsins og svo virðist sem ungar stúlkur verði fyrir þrýstingi um að vera þátttak- endur í hópkynlífi. Þar eigi eldri drengir oftast hlut að máli, sem og misnotkun áfengis og fíkniefna. Aðgengi unglinga að fíkniefnum hefur einnig stóraukist. Í umfjöllun Morgunblaðsins kom m.a. fram að menntaskólanemar væru meðal þeirra sem seldu fíkniefni og þeirra væri meðal annars neytt á skólatíma. Tölur frá SÁÁ sýna ennfremur að fjöldi unglinga sem leitar sér með- ferðar vegna ofneyslu fíkniefna og áfengis eykst ár frá ári. Það er vissulega ýmislegt jákvætt sem á sér stað í lífi unglinga á hverj- um degi, en það sem hér er upptalið eru nýjar ógnir í umhverfi unglings- ins sem foreldrar vita oft og tíðum ekki af. Það er grafalvarlegt þegar unglingar á grunnskólaaldri eru farn- ir að neyta fíkniefna og stunda kynlíf vegna þrýstings frá umhverfinu. En hvað skal til bragðs taka? Hvernig á að snúa við áralangri þróun, þar sem bilið milli unglinga og foreldra breikkar stöðugt? Sérfræðingar telja að vandamál sem þessi stafi meðal annars af því hve litlum tíma unglingar eyða með foreldrum sínum. Á síðustu áratugum hefur atvinnuþátttaka kvenna aukist verulega og í dag stunda báðir for- eldrar fulla vinnu á flestum heimilum. Sérfræðingarnir telja nauðsynlegt að vinnumarkaðurinn taki mið af fjöl- skyldum með börn og geri starfsum- hverfi sveigjanlegra svo foreldrar geti eytt meiri tíma með börnum sín- um og unglingum. Umræða um unglinga snýr oft og tíðum að því sem er neikvætt. Líkleg- ast eru þó flestir sér meðvitandi um að unglingar eru hæfileikaríkir ein- staklingar sem flestir eiga framtíðina fyrir sér. Umræða sem þessi, þótt klisjukennd sé, getur þó ekki á nokk- urn hátt skaðað unglingana sjálfa, heldur þvert á móti stuðlað að því að þessi dýrmæti hópur sé ekki látinn afskiptur. Eftirlitslaus ungmenni sem lítil tengsl hafa við foreldra sína eru líklegast stærsti áhættuhópurinn og því ætti að vera markmið allra for- eldra að styrkja tengslin við ung- lingana sína. Þeir fyrrnefndu voru víst allir einhvern tíma unglingar sjálfir. Sú var tíðin, að opinberir starfsmennnutu betri lífeyrisréttinda en al- mennir launþegar. Sá munur var rétt- lættur með því, að launakjör opinberra starfsmanna væru verri en launakjör á almennum vinnumarkaði. Það er liðin tíð og nú hefur launamun- ur á milli almenna vinnumarkaðarins og hins opinbera verið leiðréttur svo að varla heldur nokkur maður því fram, að almennt séu betri launakjör á almenn- um vinnumarkaði. Hið sama virðist hins vegar ekki eiga við um lífeyrisréttindin. Í samtali við Morgunblaðið sl. laug- ardag sagði Birgir Björn Sigurjónsson, sem sæti á í launanefnd sveitarfélaga, m.a.: „Sú stefna var mörkuð og ég hélt að það hefði verið sameiginleg stefnu- mörkun ríkisins og sveitarfélaganna að jafna lífeyriskjörin milli allra launa- manna. Þess vegna ákváðu sveitarfélög- in vorið 2000 að bæta kerfisbundið líf- eyrisréttindi ASÍ-félaganna en vera ekki að breikka muninn aftur með því að gera samninga um viðbótarlífeyris- sparnað við opinbera starfsmenn. Ríkið breytti svo um stefnu á miðri leið og hélt áfram þessum mun á lífeyrisréttindum milli ASÍ-manna og opinberra starfs- manna. Það kom okkur reyndar alveg í opna skjöldu vegna þess að milli okkar hafði verið rætt um hið gagnstæða.“ Af þessu tilefni sagði Gunnar Björns- son, formaður samninganefndar ríkis- ins, í samtali við Morgunblaðið sl. laug- ardag: „Ríkisstjórnin hafði verið að mælast til þess, að innlendur sparnaður yrði aukinn. Samtök atvinnulífsins og fleiri töldu að þessi aðferð væri mjög góð til að auka innlendan sparnað. Menn mátu það svo, að ríkið gæti ekki skorast undan út frá þessu sjónarhorni. Menn gerðu sér hins vegar grein fyrir því, að þetta viðhéldi þessum réttinda- mun, sem hefur verið í lífeyrismálum.“ Það er auðvitað alveg ljóst, að laun- þegar á hinum almenna vinnumarkaði munu ekki sætta sig við þessa niður- stöðu. Þeir sem skattgreiðendur hafa sætt sig við að launakjör á almennum vinnumarkaði og hjá hinum opinbera yrði jafnaður og það hefur verið gert í stórum dráttum. En að sjálfsögðu munu þeir ekki sætta sig við að sá réttinda- munur í lífeyrismálum, sem á sínum tíma var rökstuddur með vísan til launamunar, standi óbreyttur þegar sá launamunur hefur verið jafnaður. Ummæli Gunnars Björnssonar kalla á skýringar frá ríkinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.