Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 36
UMRÆÐAN
36 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Prófkjör
Prófkjör eru nú fyrirhuguð til undirbúnings sveitarstjórnarkosningum
sem fram fara hinn 25. maí næstkomandi. Af því tilefni birtir Morgun-
blaðið hér greinar frambjóðenda og stuðningsmanna.
Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is.
UNDANFARNA
daga hefur talsvert ver-
ið til umræðu, m.a. á síð-
um þessa blaðs, sú
ákvörðun forseta Al-
þingis að beita undirrit-
aðan svokölluðu þingvíti
samkvæmt þingskapar-
lögum. Frá þessu hefur
verið greint undir tals-
vert fyrirferðarmiklum
fyrirsögnum enda í
fyrsta skipti um áratugi
sem þessu lagaákvæði
er beitt. Forseti Alþing-
is hefur heimild til þess
að beita þingvíti sam-
kvæmt 89. grein þingskaparlaga.
Greinin er svohljóðandi: „Ef þing-
maður talar óvirðulega um forseta Ís-
lands eða ber þingið eða ráðherra eða
einhvern þingmann brigslyrðum eða
víkur með öllu frá umtalsefninu skal
forseti kalla til hans: „Þetta er víta-
vert“, og nefna þau ummæli sem
hann vítir. Nú er þingmaður víttur
tvisvar á sama fundi og má þá forseti,
með samþykki fundarins, svipta
þingmanninn málfresli á þeim fundi“
Þetta er lagagreinin sem Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, studdist við
síðastliðinn fimmtudag þegar hann
ákvað að beita henni gagnvart und-
irrituðum. Um er að ræða fornt
ákvæði og áður stóð kóngur þar sem
nú stendur forseti Íslands. Síðast
þegar gert var uppkast að endur-
skoðun þingskaparlaga var reiknað
með að þetta ákvæði félli brott.
Tildrögin voru þessi: Steingrímur
J. Sigfússon hafði kvatt sér hljóðs og
spurst fyrir um hverju það sætti að
umræðu um byggðamál, sem hafin
var á Alþingi í desember, hefði ekki
verið lokið. Þessi umræða er á ábyrgð
ríkisstjórnarinnar og lögbundið að
hún fari fram. Upphafsorð Stein-
gríms voru þessi að loknu ávarpi til
þingforseta: „Hinn 11. des. sl. hófst
hér á Alþingi umræða um byggða-
mál, um Byggðastofnun og framgang
byggðaáætlunar, og flutt var munn-
leg skýrsla hæstvirts iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, ráðherra byggða-
mála. Þessi umræða fór fram
samkvæmt ákvæðum 13. greinar laga
um Byggðastofnun. Þegar um-
ræðunni var frestað fyrir jól á síðasta
ári voru að minnsta kosti 10 manns á
mælendaskrá og þar á
meðal sá sem hér talar.
Ég leyfi mér því, herra
forseti, að inna hæst-
virtan forseta eða hæst-
virtan ráðherra byggða-
mála eftir því hvenær
menn hafi hugsað sér að
halda þessari umræðu
um byggðamál áfram og
ljúka henni. Ég leyfi
mér að segja herra for-
seti, að oft var þörf en
nú er nauðsyn eins og
ástandið er í byggða-
málum.“
Nú fór í hönd um-
ræða um þetta efni. Iðnaðarráðherra
kvað eðlilegt að þessi fyrirspurn
kæmi fram enda hafi sú byggðaáætl-
un sem unnið væri eftir ekki lengur
lagagildi. Forseti Alþingis vísaði hins
vegar ábyrgðinni yfir á þingflokks-
formenn, og gaf í skyn að þeir kæmu
sér jafnan saman um dagskrá þings-
ins. Þetta er einföldun og gefur ekki
rétta mynd. Nú er það vissulega svo
að oft er ágætt samkomulag um
hvaða mál eru tekin fyrir og þannig
ætti það alltaf að vera. Staðreyndin
er engu að síður sú að stjórnarfrum-
vörp og mál sem eru á forræði rík-
isstjórnar og stjórnarmeirihlutans
hafa forgang og eru jafnan sett á dag-
skrá þegar ríkisstjórninni hentar.
Um forgang stjórnarmála hefur
minnihlutinn fengið litlu sem engu
ráðið. Það er því vægast sagt misvís-
andi að kenna þingflokksformönnum
um að umrætt stjórnarmál hefði ekki
komið á dagskrá. Það gerði forseti
þingsins þó og hafði að engu skýr-
ingar mínar sem ég gaf úr ræðustól.
Þegar ég reyndi síðan að leiðrétta
þetta úr sæti var ég sakaður um að
sýna ekki háttvísi. Orðaskipti mín og
forseta Alþingis og framíköll annarra
þingmanna og ráðherra voru þessi:
Forseti (Halldór Blöndal): „Þar
sem fyrispurn var beint til mín um
það hvenær framhaldsumræða yrði
um byggðamál vil ég að það komi
fram sem er nauðsynlegt að á fundi
sem ég átti með formönnum allra
þingflokka um það hvaða mál yrðu
tekin fyrir í þessari viku var ákveðið
að taka stjórnarfrumvörp eftir því
sem ynnist en reyna jafnframt að
koma á dagskrá málum sem þing-
menn höfðu flutt. Var um þetta algert
samkomulag á fundinum en ekki kom
til álita þar sem enginn nefndi það að
ræða þær skýrslur sem ekki hefur
tekist að ljúka umræðum um, það er
skýrslu um byggðamál og skýrslu um
Ríkisendurskoðun. Sjálfsagt er að
taka þetta mál upp við formenn þing-
flokka þegar ég ræði við þá um þau
mál sem tekin skulu fyrir í næstu
viku.“
Ögmundur Jónasson: „Herra for-
seti. Það er rétt hjá hæstvirtum for-
seta að þingflokksformenn stjórnar-
andstöðuflokkanna hafa lagt á það
ríka áherslu að þingmannamál og
ekki síst úr stjórnarandstöðu verði
tekin hér til umfjöllunar á þingi. Hinu
hafa þeir ekki ráðið að ríkisstjórnin
og stjórn þingsins hefur jafnan sett í
forgang þau mál sem koma frá rík-
isstjórninni og að sjálfsögðu ber rík-
isstjórninni að svara fyrir stefnu sína
í byggðamálum og það er samkvæmt
lögum að fjallað er um Byggðastofn-
un og framvindu byggðaáætlunar. Og
það er ófært að þessari umræðu sem
fram fór í fyrri hluta desembermán-
aðar skuli hafa verið frestað fram á
þennan dag og ekki fyrirséð hvenær
hún verður tekin aftur á dagskrá…“
Forseti (Halldór Blöndal): „Ég sé
ástæðu til þess vegna ummæla hv. al-
þingismanns að ítreka það sem ég áð-
ur sagði að ég hef haft samráð við for-
menn þingflokka um dagskrána og
um leið og beiðni kemur fram um það
að... (ÖJ: Ekki um stjórnarmálin). Ég
hélt í sakleysi mínu og vegna þess að
ég er ekki þingreyndur maður að hv.
þingmenn væru svo háttvísir að þeir
gripu ekki fram í fyrir forseta þings-
ins þegar hann er að tala við þá. (ÖJ:
Það þekkir hann alla vega, háttvísina,
hæstvirtur forseti). (Magnús Stef-
ánsson kallar úr sæti sínu: ...víta
manninn) (Valgerður Sverrisdóttir
kallar úr sæti sínu: Þó fyrr hefði ver-
ið). Hv. Þm. Ögmundur Jónasson, 13.
þm. Reykjavíkur, sagði við forseta:
„Það þekkir…“(ÖJ: Hann þekkir
háttvísina, hæstvirtur forseti.) „Hann
þekkir háttvísina, hæstvirtur for-
seti.“ – Þetta er vítavert.
Ég hef svarað því sem ég sagði. Ég
hef haft samráð við formenn þing-
flokka um það hvaða mál skuli tekin á
dagskrá og ég hef þegar sagt hv. 3.
þingmanni Norðurlands.e. að sjálf-
sagt er að taka þetta mál fyrir,
skýrslu byggðaráðherra, halda áfram
umræðunni um hana, sjálfsagt al-
veg.“
Svona voru þessi orðaskipti sem
orðið hafa tilefni talsverðrar frétta-
umfjöllunar þar sem þingvíti var nú
beitt í fyrsta skipti í hálfa öld. Ég hef
orðið var við það að forseti Alþingis,
Halldór Blöndal vilji nú skýra þing-
vítið á þeirri forsendu að ég hafi kall-
að úr sæti mínu. Eins og hér má sjá
er ég hins vegar einvörðungu víttur
fyrir þau ummæli mín að forseti Al-
þingis kunni skil á háttvísi. Aðeins er
heimilt að beita þingvíti vegna um-
mæla alþingismanna. Fyrir öðru er
ekki lagastoð. Dæmi nú hver fyrir
sig.
Þingvíti vakin upp
Ögmundur Jónasson
Höfundur er þingflokks-
formaður VG.
Þingskaparlög
Aðeins er heimilt, segir
Ögmundur Jónasson,
að beita þingvíti vegna
ummæla alþingismanna.
Í Morgunblaðinu
föstudaginn 18. jan.
keppast prófkjörs-
kandídatar Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnar-
firði við að verja
framkvæmdaráform
meirihlutans á norður-
bakkanum í Hafnar-
firði.
Annar greinarhöf-
undur byrjar reyndar
á því skjóta hugmyndir
bæjarstjóra í kaf, lík-
anið var bara í plati og
alls ekkert til að
byggja skipulagsvinnu
á.
Þar segir m.a.:
„Skipulagstillaga sem gerir ráð
fyrir turnum á svæðinu mun að
mínu mati ekki fá hljómgrunn í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar, né heldur
hjá þeim stofnunum bæjarins sem
koma að málinu. Þá tel ég að Hafn-
firðingar muni seint styðja bygg-
ingu slíkra háhýsa á norðurbakk-
anum.“
Hafnfirðingar hafa þegar fengið
smjörþefinn af því hvernig mótmæl-
um þeirra er tekið af
núverandi meirihluta.
Þar er skemmst að
minnast undirskrifta
liðlega fimm þúsund
kosningabærra Hafn-
firðinga, er mótmæltu
byggingarframkvæmd-
um á Sólvangssvæðinu.
Þá skipti engu máli
hvort Hafnfirðingar
styddu þær fram-
kvæmdir eða ekki.
Hafa menn séð að sér?
Hinn greinarhöfund-
urinn tekur í sama
streng. Hún segir:
„Þegar samkomu-
lagið var kynnt sýndu forsvarsmenn
líkan nokkurt sem átti að gefa til
kynna hvað um yrði að ræða. Mis-
skilningurinn liggur í því að íbúar
telja að um raunhæft líkan sé að
ræða. Það er alrangt því eiginleg
skipulagsvinna vegna svæðisins er
ekki hafin.“
Líkanið af Manhattan
Þegar gengið var til samninga við
eigendur fasteigna á svæðinu hlýtur
eitthvað að hafa legið til grundvallar
sem gerði það að verkum að samn-
ingar tókust. Umrætt líkan er mjög
líklegt en nú berast þær fregnir úr
prófkjörsherbúðum sjálfstæðis-
manna að þetta sé allt í plati, mis-
skilningur og líkanið sjálfsagt af
Manhattan. Samningsaðilar lesa um
það
í umræddum greinum að skipu-
lagsvinna sé ekki hafin og það líkan
sem gengið var út frá sé ekki raun-
hæft. Hafa samningsaðilar þá nokk-
uð í hendi varðandi uppbyggingu á
svæðinu? Sjálfstæðismenn eru jú að
lofa að einungis verði farið út í fram-
kvæmdir sem Hafnfirðingar styðja.
Heldur meirihlutinn í Hafnarfirði og
prófkjörskandídatar að þeir aðilar
sem eiga hagsmuna að gæta á svæð-
inu ætli ekki að fá eitthvað fyrir sinn
snúð og að þeir hafi ekki gert sér
grein fyrir að fasteignir sem standa
í vegi fyrir skipulagi hækki alltaf í
verði. Halda þeir að þessir aðilar
séu e.t.v. aðeins að hugsa um það að
Hafnarfjarðarbær komi sem best út
úr þessum viðskiptum. Eina sann-
leikskornið í þessu framkvæmdar-
brölti er að fjársterku aðilarnir eins
og annar greinarhöfundur nefnir þá
J&K eignarhaldsfélag ehf. og Þyrp-
ing hf. sjái til þess að hönnunar-
kostnaður fari ekki úr böndunum,
verk verði ekki marghönnuð eins og
núverandi meirihluti leikur sér að,
meirihlutinn sem kann ekkert með
peninga að fara.
Varðveitum bæjarmyndina
Hafnfirðingar hafa á því kjörtíma-
bili, sem nú er brátt á enda, fengið
að kynnast því að harla lítið er að
marka gefin loforð núverandi meiri-
hluta. Varðveitum bæjarmyndina
var eitt af loforðum meirihlutans en
varla var blekið þornað á núverandi
meirihlutasamningi þegar bærinn
var tættur sundur og steinsteypu-
ferlíkjum troðið í sárin.
Er málið bar á góma við niður-
dregna og örfáa stuðningsmenn
meirihlutans var fátt um svör, allir
báru af sér verknaðinn.
Meirihlutinn rassskelltur
Það er orðið tímabært að þessi
meirihluti, sem tekist hefur að
skuldsetja bæjarfélagið fram úr hófi
án þess að vera að eignast nema lítið
af því sem byggt er í bænum, fái frí.
Nú hafa þeir fengið rassskell hjá
eftirlitsnefnd með fjármálum sveit-
arfélaga fyrir reikninga ársins 2000.
Það verður fróðlegt að sjá útkomu
ársins 2001 er nokkuð eða nokkur
sem stendur í vegi fyrir því að Hafn-
firðingar fái að berja þá reikninga
augum fyrir kosningar?
Að lokum: Hafnarfjarðardeild
Sjálfstæðisflokksins er flokkur sem
snýst um að lofa en ekki að efna og
Hafnarfjarðardeild Framsóknar-
flokksins flýtur með og veit ekki
einu sinni af því. Eini framsóknar-
maðurinn í bænum sem vogaði sér
að setja út á norðurbakkagjörning-
inn í Morgunblaðsgrein 4. jan. var
tekinn fyrir og talin trú um að hann
hefði skotið sig í fótinn og neyddur
til að skjóta sig í hinn nokkrum dög-
um seinna.
Af loforðum og efndum
Ellý Erlingsdóttir
Höfundur er kennari og skipar 3.
sæti framboðslista Samfylking-
arinnar.
Hafnarfjörður
Það er orðið tímabært,
segir Ellý Erlingsdóttir,
að þessi meirihluti fái frí.
Í VOR fylkir Sam-
fylkingarfólk liði með
samherjum sínum í
Framsóknarflokkn-
um og Vinstri hreyf-
ingunni – grænu
framboði undir
merkjum Reykjavík-
urlistans. Í þeim
málefnaáherslum
sem viðræðunefndir
flokkanna að baki
Reykjavíkurlistanum
hafa sameinast um
segir meðal annars:
„Markmið samstarfs-
ins er að tryggja að í
Reykjavík dafni
þróttmikið samfélag
þar sem jöfnuður og
velferð borgarbúa er í öndvegi og
virðing er borin fyrir náttúru og
umhverfi. Unnið verður enn frekar
að því að styrkja stöðu Reykjavík-
ur sem öflugrar og gróskumikillar
höfuðborgar allra landsmanna og
um leið sem alþjóðlegrar, vist-
vænnar borgar sem byggir á ís-
lenskum grunni.“ Hér er í hnot-
skurn inntak þess sem gera skal.
Við viljum gera góða borg betri.
„Mjúku málin“
Í fjölskyldustefnunni verður
lögð áhersla á að leggja rækt við
velferð og vellíðan fólksins í borg-
inni, ekki hvað síst yngstu og elstu
borgarbúanna. Við viljum öflugt
skólastarf og heilbrigt íþrótta- og
tómstundastarf, nægt framboð af
góðu íbúðarhúsnæði og fjölbreytt
lista- og menningarlíf. Borgin á að
verða vistvænasta höfuðborg norð-
ursins. Það á að auka umhverfis-
fræðslu og gefa borgarbúum aukin
tækifæri til þess að hafa áhrif á
gang mála.
„Hörðu málin“
Atvinnulíf borgarinnar á að vera
blómlegt og því á að huga að leið-
um til að auka fjölbreytni bæði
með nýsköpun á sviði tækni- og
þekkingariðnaðar og með því að
styðja við hefðbundnar atvinnu-
greinar.
Það skiptir tals-
verðu máli fyrir
framtíðarhagsmuni
íbúa hvers sveitarfé-
lags að fjármálum
þess sé stýrt af skyn-
semi. Þess vegna
hlýtur að vekja at-
hygli samantekt í rit-
inu Vísbendingu sem
kom út seint á síð-
asta ári. Þar kemur
fram að skuldir í
Reykjavík á hvern
íbúa eru með því
minnsta sem gerist
hér á landi. Jafn-
framt kemur fram að
skatttekjum hefur
verið stillt verulega í
hóf í Reykjavík miðað við önnur
sveitarfélög.
Reykjavíkurlistinn mun á kjör-
tímabilinu áfram stefna að því að
bæta þjónustu við íbúa og fjárfesta
í verkefnum sem eru til hagsbóta
fyrir borgarbúa. Velferðarþjón-
ustuna á að kosta af almennu
skattfé og áfram skal við það mið-
að að skatttekjur nægi fyrir
rekstri, framkvæmdum og afborg-
unum lána.
Ég hef tekið þátt í ýmsu starfi á
vegum Reykjavíkurlistans og Sam-
fylkingarinnar að undanförnu og
stefni á 3. sæti í prófkjöri flokks-
ins sem nú fer fram, því ég tel að
það sæti geti orðið raunhæft bar-
áttusæti í kosningunum í vor.
Aukin og bætt
þjónusta
Stefán Jóhann
Stefánsson
Höfundur er formaður Kjördæma-
félags Samfylkingarinnar í Reykja-
vík og stefnir á 3. sæti í prófkjöri.
Reykjavík
Velferðarþjónustuna,
segir Stefán
Jóhann Stefánsson,
á að kosta af
almennu skattfé.