Morgunblaðið - 12.02.2002, Page 38

Morgunblaðið - 12.02.2002, Page 38
KIRKJUSTARF 38 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga um Laugardalinn eða upplestur kl. 10.30. Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12 í kirkjunni. Umsjón Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur hádegisverður að stundinni lokinni. Samvera foreldra unga barna kl.14–16 í neðri safnaðarsal. 12 spora starf kl. 19 í kirkjunni. Bústaðakirkja. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningalestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Háteigskirkja. Ævintýraklúbburinn kl. 17. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn úr 1.–3. bekk í umsjón Guðrúnar Helgu, Sig- rúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn velkomin og alltaf hægt að bætast í hópinn. Ung- lingaklúbburinn MeMe kl. 19.30. Kröftugt starf fyrir unglinga í umsjón Gunnfríðar og Jóhönnu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05 alla virka daga nema mánudaga. TTT- fundur kl. 16 fyrir krakka í 5.–7. bekk. Full- orðinsfræðsla kl. 20. Yfirskrift námskeiðs- ins er Líf og dauði, sorg og gleði. Kennari sr. Bjarni Karlsson. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Gengið inn um merktar dyr á aust- urgafli kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunn- ars Gunnarssonar en sóknarprestur flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá bænahóps kirkjunnar undir stjórn Margrétar Scheving og hennar sam- starfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi). Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir fé- lagar velkomnir. Foreldramorgunn miðviku- dag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Umsjón El- ínborg Lárusdóttir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Starf fyrir 7–9 ára kl. 16 og fyrir 10– 12 ára kl. 17.30. Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna- stund í dag þriðjudag kl. 12 í kapellu safn- aðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkj- unnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til þátttöku. Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Hittumst, kynnumst, fræðumst. TTT-klúbb- urinn í Ártúnsskóla kl. 14.20–15.20. Barnakóraæfing kl. 17-18. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30.Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra. Leik- fimi ÍAK kl. 11.15. Sprengidagsmatur. Helgistund, samvera og kaffi í safnaðarsal. Messuæfing fermingarbarna kl. 14.30. Allir mæti. Æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára á veg- um KFUM&K og Digraneskirkju kl. 16.30– 18.15. Kl. 20 samfélagskvöld með foreldr- um fermingarbarna. Sýnd verður kvikmynd- in Matrix og gerð guðfræðileg grein fyrir henni. Fella- og Hólakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 12. Elín Elísabet Jóhannsdóttir les úr passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Bænarefnum má koma til djákna í síma 557-3280 og í sama síma er hægt að panta keyrslu til og frá kirkju. Léttur hádeg- isverður í safnaðarheimilinu eftir stundina og húsið opið áfram til kl. 15. Starf fyrir 11– 12 ára drengi kl. 17. Grafarvogskirkja. Opið hús – þorragleði – fyrir eldri borgara kl.12. TTT (10–12 ára) í Engjaskóla kl. 18.30–19.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla fyrir börn 7–9 ára kl. 17.30– 18.30. Æskulýðsfélag í Grafarvogskirkju, eldri deild, kl. 20–22. Alfa-námskeð kl. 19. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstundir kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10–12. Kaffi og spjall. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30–16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjall- að. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9–12 ára stúlkur í Kirkju- hvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK. Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æskulýðs- starf fyrir 10–12 ára í Álftanesskóla, stofu 104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17– 18.30 fyrir 7–9 ára. Kl. 20–22 æskulýðs- félag yngri félaga. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl 17:00. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18:00. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn- arprests eða kirkjuvarðar. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Lága- fellsskóla frá kl. 13.15–14.30. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 16.30 kirkjuprakkarar fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 17.30 TTT-kirkjustarf 10–12 ára krakka. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Fyrirbænasamvera fimmtudag kl. 19. Fyrirbænaefnum er hægt að koma áleiðis að morgni fimmtudagsins milli kl. 10 og 12 í síma 421-5013. Spila- kvöld aldraðra fimmtudag kl. 20. Biblíu- lestrar þriðjudag kl. 19.30 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur guðfræðings. Farið verður í Jóhannesarguðspjall. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík). Foreldra- morgunn í safnaðarheimilinu miðvikudag kl. 10.30. Sóknarprestur. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Foreldramorgnar þriðju- dagsmorgna kl. 10–11.30. Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla þriðjudagakl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15- 19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í Hrakhólum í kvöld kl. 20. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir velkomn- ir. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15.15. 8.A Brekku- skóla og 8.E Lundarskóla. Glerárkirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 18.10. Leitum innri friðar í faðmi guðs. Safnaðarstarf Í DAG kl. 12 verður haldin þorra- gleði eldri borgara í Grafarvogs- kirkju. Margt skemmtilegt verður á dag- skrá: Þorvaldur Halldórsson syngur með okkur og fyrir okkur. Sigvaldi danskennari mætir á staðinn og fær alla til að dansa. Heiðursgestur verður Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra. Safnaðarstarf í Keflavíkurkirkju UMRÆÐUHÓPUR um málefni fjöl- skyldunnar verður kl. 20.30 öll þriðjudagskvöld í febrúar kl. 20.30 í Kirkjulundi, (lýkur þriðjudaginn 5. mars.) Þriðjudaginn 26. febrúar koma hjónin Halla Jónsdóttir, kennari, og Gunnar Finnbogason, lektor, í heim- sókn og fjalla um fjölskyldumálefni. Þessi umræðuhópur er hugsaður sem framhald af námskeiði sr. Þór- halls Heimissonar í Kirkjulundi um Jákvæð viðhorf til hjónabands og sambúðar og stuðst verður við nýút- komna bók hans: Hamingjuleitin. En þar segir í gátlista hamingj- unnar (bls. 168-169): Ég get gefið mér tíma til þess að ræða við fjöl- skyldu mína og eða nána vini um hluti sem í raun og veru skipta okk- ur máli. Ég get tekið á vandamálum í sambandi okkar (og samskiptum) í stað þess að forðast að ræða um þau þegar þau koma upp, með því að tala um þau og finna sameiginlega lausn hvenær sem hægt er Ég get lært að taka þátt í samfélagi og hóp- um sem styðja mig og næra mig. Við vekjum einnig athygli á tón- leikum Gospelkórsins, sem syngur í Kirkjulundi fimmtudaginn 14. febr- úar kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Sunnudaginn 17. febrúar kemur Kór Bústaðakirkju í heimsókn og syngur ásamt Kór Keflavíkurkirkju við guðsþjónustu kl. 14. Organistar og kórstjórnar: Sigrún Steingríms- dóttir og Hákon Leifsson. Sr. Pálmi Matthíasson, prédikar og sr. Ólafur Oddur Jónsson þjónar fyrir altari. Meðhjálpari: Hrafnhildur Atladótt- ir. Kaffiveitingar í Kirkjulundi að lokinni messu í boði sóknarnefndar. Skólatónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar kl. 08:40 að morgni mánudagsins 18. feb. Í Kirkjulundi. Skólahljómsveitin leikur ásamt sex manna gestahljómsveit. Allir vel- komnir. Þorragleði eldri borgara í Grafar- vogskirkju Grafarvogskirkja BJÖRN Þorfinnsson sigraði á firnasterku hraðskákmóti sem haldið var á veitingastaðnum Players sunnudaginn 10. febrúar. Björn hlaut 9 vinninga, en tefldar voru 11 umferðir eftir svissnesku kerfi með 5 mínútna umhugsun- artíma. Jafnir í 2.–3.sæti voru stór- meistararnir Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson með 8 vinn- inga. Jóhann H. Ragnarsson og Gunnar Freyr Rúnarsson skiptu með sér verðlaunum fyrir bestan árangur skákmanna undir 2000 skákstigum, en þeir fengu 6½ vinning. Keppendur voru 32 og þar af voru 16 með yfir 2.200 skákstig. Aðeins einn keppandi var stigalaus. Í fyrstu umferð dró strax til tíðinda þegar Gunnar Björnsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í viðureign sinni við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Jó- hann H. Ragnarsson lagði alþjóð- lega meistarann Jón Viktor Gunnarsson. Í annarri umferð náði Gunnar svo að landa öðrum stórlaxi – Sigurbirni Björnssyni. Áður en yfir lauk hafði Gunnar einnig sigrað þá Arnar Gunnars- son og Pál Agnar Þórarinsson, auk þess að gera jafntefli við Sig- urð Daða Sigfússon. Ekki amaleg frammistaða hjá ritstjóra Skák- ar.is. Bragi Þorfinnsson stóð sig vel að venju, en hann endaði með 7 vinninga í 5.–6. sæti. Hann vann m.a. bróður sinn Björn, Helga Áss Grétarsson og gerði jafntefli við Helga Ólafsson. Í þeim tveim- ur hraðskákmótum sem haldin hafa verið á Players hefur Bragi fengið 4½ vinning í 5 viðureign- um sínum við stórmeistara. Maður mótsins var án efa sig- urvegari þess, Björn Þorfinns- son. Auk þess að sigra báða stór- meistarana lagði hann Jón Viktor Gunnarsson, Stefán Kristjáns- son, Sigurð Daða Sigfússon, Tómas Björnsson, Pál Agnar Þórarinsson, Gunnar Björnsson og Jónas Jónasson. Hann tapaði einungis tveimur skákum, gegn þeim Arnari Gunnarssyni og Braga bróður sínum. Styrktaraðili mótsins var Play- ers sportcafe, en mótshaldari og skákstjóri var Kristján Örn El- íasson. Röð efstu manna: 1. Björn Þorfinnsson 9 v. 2.–3. Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson 8 v. 4. Arnar Gunnarsson 7½ v. 5.–6. Bragi Þorfinnsson, Ingv- ar Þór Jóhannesson 7 v. 7.–10. Stefán Kristjánsson, Benedikt Jónasson, Jóhann Hjörtur Ragnarsson, Gunnar Freyr Rúnarsson 6½v. 11.–14. Jón Viktor Gunnarsson, Sigurbjörn Björnsson, Áskell Örn Kárason, Ólafur Kjartansson 6 v. 15.–22. Gunnar Björnsson, Sig- urður Páll Steindórsson, Sigurð- ur Daði Sigfússon, Róbert Harð- arson, Tómas Björnsson, Arnar Ingólfsson, Jónas Jónasson, Kjartan Guðmundsson 5½ v. 23.–24. Páll Agnar Þórarins- son, Ögmundur Kristinsson 5 v. 25. Ólafur Ísberg Hannesson 4½ v. 26.–27. Einar Bjarki Valdi- marsson, Birgir Berndsen, 4 v. o.s.frv. Meistaramót Hellis hafið Meistaramót Taflfélagsins Hellis hófst í gærkvöldi þegar fyrsta umferð mótsins var tefld. Stigahæstu þátttakendurnir, sem skráðir voru til leiks fyrir mótið, voru þeir Sigurður Daði Sigfús- son (2.355) og Björn Þorfinnsson (2.310), en hann hefur þrívegis orðið skákmeistari Hellis. Frest- aðar skákir úr fyrstu umferð verða tefldar í kvöld klukkan 19:30 og enn er mögulegt að skrá sig í mótið með því að mæta þá í Hellisheimilið, en mótið er öllum opið. Hannes og Jón Viktor sigruðu á skemmtikvöldi Hannes Hlífar Stefánsson og Jón Viktor Gunnarsson sigruðu á fyrsta sameiginlega skemmti- kvöldi TR og Hellis sem haldið var föstudaginn 8. febrúar í hús- næði TR í Faxfeni 12. Yfir þrjátíu skákáhugamenn mættu á skemmtikvöldið, sem hófst á áhugaverðum fyrirlestri Helga Ólafssonar stórmeistara um Bobby Fischer. Helgi rakti feril Fischer og baráttu hans innan og utan skákborðsins við aðra skák- menn og skákhreyfinguna. Einn- ig fjallaði Helgi um skákstíl Fischer, styrkleika hans og veik- leika. Að lokum fór hann yfir tvær af skákum meistarans. Sú fyrri var gegn Spassky á Ólymp- íumótinu 1966 í Havana og sú síð- ari gegn Najdorf á Ólympíu- mótinu 1970 í Siegen. Eftir fyrirlesturinn var slegið upp sjö umferða hraðskákmóti. Það var þó ekki með hefðbundnu sniði, heldur sveif andi Fischers enn yfir vötnunum. Notuð var að- ferð hans til að raða mönnunum upp í byrjun tafls. Í nýlegu viðtali í Silfri Egils kom fram að Fischer er einungis tilbúinn til að tefla á þennan hátt núorðið. Aðferðina hefur hann kallað „Fischer- Random“, en þá eru peðin sett á borðið á hefðbundinn hátt, en mönnunum raðað á handahófs- kenndan hátt að öðru leyti, þó með nokkrum takmörkunum. Eftir það er teflt samkvæmt venjulegum reglum. Tilgangur Fischers með þessu er að minnka vægi byrjanaundirbúnings, sem honum finnst vega allt of þungt í hefðbundnum skákum. Umhugsunartíminn á hrað- skákmótinu var 5 mínútur. Efstir og jafnir að vinningum urðu Hannes Hlífar Stefánsson og Jón Viktor Gunnarsson með 6 vinn- inga af 7 mögulegum. Hannes var úrskurðaður sigurvegari eftir stigaútreikning. Þrátt fyrir að teflt hafi verið eftir þessum óvenjulegu reglum var röð efstu manna ekki fjarri því sem búast hefði mátt við í venjulegu hrað- skákmóti. Helsta undantekningin frá því var prýðileg frammistaða Rafns Jónssonar, sem hafnaði í 3.–6. sæti fyrir ofan ýmsa sterka meistara. 1. Hannes H. Stefánsson 6 v. (25 stig) 2. Jón V. Gunnarsson 6 v. (24,5 stig) 3.–6. Stefán Kristjánsson, Rafn Jónsson, Arnar Gunnarsson, Ingvar Ásmundsson 5 v. 7.–8. Sigurður Páll Steindórs- son, Erlingur Þorsteinsson 4½ v. 9.–12. Ólafur Ísberg Hannes- son, Ingvar Þór Jóhannesson, Sigurður Áss Grétarsson, Bragi Þorfinnsson 4 v. 13.–18. Anna Björg Þorgríms- dóttir, Gunnar Freyr Rúnarsson, Harpa Ingólfsdóttir, Magnús Sig- urjónsson, Vigfús Ó. Vigfússon, Halldór Pálsson 3 v. o.s.frv. Skákstjórar voru Benedikt Jónasson, Ingvar Þór Jóhannes- son og Vigfús Ó. Vigfússon. Bragi Þorfinnsson sigraði á atkvöldi Bragi Þorfinnsson sigraði með fullu húsi á atkvöldi Hellis sem fram fór mánudaginn 4. febrúar. Alls tóku 17 skákmenn þátt í mótinu. Lokastaðan varð þessi: 1. Bragi Þorfinnsson 6 v. 2. Magnús Sigurjónsson 5 v. 3.–6. Rafn Jónsson, Sæbjörn Guðfinnsson, Hjörtur Ingvi Jó- hannsson og Vigfús Ó. Vigfússon 4 v. 7.–12. Halldór Gíslason, Svein- björn Jónsson, Björgvin Krist- bergsson, Sigurður Ingason, Ben Liese og Finnur Kr. Finnsson 3 v. o.s.frv. Skákstjóri var Vigfús Ó. Vig- fússon. Linares 2002 Næsti alþjóðlegi stórviðburð- urinn í skákheiminum verður hið sögufræga Linares-skákmót. Það hefst 22. febrúar og stendur til 10. mars. Sjö af sterkustu skák- mönnum heims tefla á mótinu, en tefld verður tvöföld umferð. Þátt- takendur verða: Garry Kasparov, Viswanathan Anand, Michael Adams, Vassily Ivanchuk, Alexei Shirov, Francisco Vallejo Pons og FIDE-heimsmeistarinn Rusl- an Ponomariov. Aðdragandi mótsins hefur ver- ið sögulegur vegna baráttu Pon- omariov við mótshaldarana eftir að hann hreppti heimsmeistara- titilinn. Hann taldi að sér væri sýnd óvirðing sem heimsmeistara þegar Kasparov og Anand, sem nú geta hvorugur státað af slík- um titli, voru boðin mun betri kjör en honum. Á tímabili leit út fyrir að Ponomariov myndi hætta við þátttöku af þessum sökum og fréttir bárust af lögsókn á hendur honum í kjölfarið. Nú virðist hins vegar loksins sjást fyrir endann á þessum deilum eftir að borgar- stjóri Linares, Juan Fernandez, og fulltrúar Ponomariov náðu tveggja ára samkomulagi um þátttöku Ponomariov í Linares- skákmótinu. Hann mun því ekki einungis verða með að þessu sinni, heldur einnig næsta ár. Miðað við framgöngu hins unga Ponomariov í þessu máli, og reyndar fleiri málum, þá er greinilegt að hér er mikill bar- áttumaður á ferðinni. Björn Þorfinnsson sigraði á Players-mótinu Að skákmótinu loknu, f.v.: Helgi Áss Grétarsson, Björn Þorfinnsson, Árni Björnsson, eigandi Players, og Helgi Ólafsson. Daði Örn Jónsson SKÁK Kópavogur PLAYERS-MÓTIÐ 10.2. 2002

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.