Morgunblaðið - 12.02.2002, Síða 42
MINNINGAR
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þá er komið að
hinstu kveðju síðustu
systurinnar frá „Ból-
inu“, Sæbóli í Aðalvík,
Önnu Bergþóru
Magnúsdóttur móðursystur minn-
ar, sem var fimmta í röð sjö dætra
Magnúsar afa og Guðnýjar ömmu.
Þar sem ég get ekki fylgt henni
langar mig að minnast hennar ör-
fáum orðum.
Þegar hún var 10 ára misstu
þær föður sinn, mamma var elst
þá 20 ára en sú yngsta á öðru ári.
Ég heyrði sagt að beðið hefði verið
um Beggu í fóstur en þær systur
aftekið það og hjálpast að með
heimilið. Begga segir í minning-
argrein um systur sínar að engin
vinna hafi verið svo erfið að þær
hafi guggnað fyrir henni og enginn
vinnudagur svo langur að hann
væri ekki staðinn til enda og hún
lagði sitt til löngu áður en hún
hafði getu til. Hún sagðist verða
ævilangt þakklát fyrir að þær
hefðu ekki látið sig í fóstur.
Ég átti því láni að fagna að alast
upp í Bólhúsinu þar sem foreldrar
mínir hófu sinn búskap fyrstu 11
árin og kom það þá af sjálfu sér að
systurnar hinar gátu komið áfram
í sínum fríum „heim“. Guðný
amma hætti þá að búa og fór síðar
til Ísafjarðar þar sem hún vann á
Sjúkrahúsi Ísafjarðar sem sauma-
kona og vökukona yfir aðgerðar-
og uppskurðarsjúklingum þar til
hún varð 80 ára og hefði haldið
lengur áfram nema af því að hún
veiktist. Það var alltaf gaman hjá
okkur og fjölskyldunni á Borg (en
þar bjó ein systirin og átti þrjú
börn). Þær færðu okkur fallegar
gjafir úr Reykjavík eða frá Ísafirði
þar sem þær yngstu þrjár unnu
sitt á hvað og á ég enn leikföng og
bækur frá Beggu frænku. Það var
ekki aldeilis þagað þegar þær hitt-
ust og mátti ég alltaf vera með,
bæði sem barn og fullorðin og
margt fróðlegt lærðum við systk-
inabörnin af því að hlusta og vor-
um við Bíi þau af yngri kynslóð-
inni sem mest töluðum um gömlu
dagana á Sæbóli og það er ekki
svo vitlaust sem makar segja sem
kalla móðurfólkið mitt „Sögufólk-
ið“, en oft hefur nú þurft að
hringja í okkur og spyrja um hitt
og þetta og síðast í dag þegar ég
var að skrifa þetta.
Þegar sú yngsta fermdist var
hún hjá mömmu og þá kom amma
og dætur að vestan og fórum við
og Borgarfólkið niður í fjöru að
taka á móti þeim. Amma gaf strák-
unum hjólhestapumpur og strax
þurfti að prufa þær til að sprauta
úr sjó. Þá datt ég í sjóinn í fjöru-
borðinu og sogaðist fram, þá
bjargaði Begga mér frá drukknun.
Hún varð að vaða uppfyrir mitti til
að ná mér, var ég þá búin að
drekka sjó og orðin rænulaus, ég á
henni síðan líf mitt að launa og
vona að ég hafi getað greitt upp í
það.
Frá þessari fermingu og þar til
á 80 ára afmæli Guðnýjar ömmu
hittust þær aldrei allar, voru aldr-
ei fleiri en sex. Þær voru svo sam-
heldnar fram á síðustu stundir og
ekki bara þær heldur ólumst við
systrabörnin 11 upp við það sama,
fjölskylduböndin voru mjög sterk.
Þegar ég var 14 ára fór ég til
Reykjavíkur og var í vist hjá Góu
að passa Gunnar á fyrsta ári, þá
var Begga gift Torfa og búin að
eignast eldri son sinn Magnús
Trausta, þá þurfti að heimsækja
Beggu og fórum við þrjár og
Gunnar austur en Begga var þá
ANNA BERGÞÓRA
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Anna BergþóraMagnúsdóttir
fæddist á Sæbóli í
Aðalvík 7. júní 1914.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja
31. janúar síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Keflavíkurkirkju 8.
febrúar.
veik, þarna var ég í
viku en þau lengur.
Amma og Góa sáu um
matseldina en við
Björk dóttir Siggu (11
ára) sáum um sendi-
ferðir og bleiuþvott-
inn, já, bleiuþvott því
mér finnst síðan að
við höfum verið alla
daga að þvo, sjóða og
skola bleiur milli mál-
tíða, það drapst alltaf
á kolaeldavélinni svo
ekki hélst suðan á svo
var nú vatnið, já, ekki
rennandi vatn eins ég
var vön úr læk eða krana heldur
varð að dæla því með pumpu, en
þetta var samt gaman. Þau Torfi
flytja svo til Keflavíkur og þar
fæddist þeim hinn sonurinn Gísli.
Þangað kom ég til þeirra 18 ára
því Torfi hafði útvegað mér vinnu
við síldarsöltun í Stóru-Milljón og
auðvitað fékk ég að vera hjá þeim,
í endaðan nóvember var vinnan
búin og ég ætlaði bara vestur, en
Torfi, þessi elska, var nú ekki á
því, hann réð mig í frystihúsið
H.F. Keflavík og fékk ég vinnu þar
allan veturinn.
Á Hafnargötunni var alltaf pláss
fyrir alla, bæði Beggu- og Torfa-
fólk, oft var þröngt í litla eldhús-
inu og borðað í hollum, karlmenn
fyrst svo konur og börn, eftir ára-
mótin var Hreinn kominn í fæði,
systir Torfa með barn til húsa svo
þá svaf ég hjá Svövu frænku en
var að öðru leyti hjá Beggu. Það
var yndislegt að vera hjá þeim
hjónum.
Begga vandaði sitt makaval vel,
Torfi var góður eiginmaður og fað-
ir „þéttur á velli og þéttur í lund“
með sitt rauða hár og afar trygg-
lyndur. Heimilið þeirra var eins og
vin í eyðimörk fyrir okkur frænd-
fólkið, ég hef oft hugsað þvílíkt
heimilislíf var hjá þessari fjögurra
manna fjölskyldu. Alltaf með fólk
aukalega bæði í fæði og húsnæði,
já stundum var jafnvel hjónarúmið
ekki friðhelgt, þvílík manngæska.
Veturinn sem ég var hjá þeim
var kaffiskömmtun, það var nú
ekki mjög gott, Svava var þá kom-
in í Keflavík og stundum ef okkur
þrem hafði orðið skrafdrjúgt fram
eftir kvöldi laumaðist Begga til að
hella aukalega uppá „sparisopa“,
líka var ég oft fengin til að setja í
þær spennur, rúllur voru ekki
komnar, og var þá notaður „Pilsn-
er“ sem hárlagningarvökvi. Guðný
amma átti heima á Hafnargötunni
frá því hún hætti að vinna og þar
til hún var komin hátt á tíræð-
isaldur, einnig Margrét móðir
Torfa og hennar maður Þorlákur.
Ekki minnkaði gestagangurinn
eftir að amma kom þangað og oft-
ar en ekki þurfti að elda sunnu-
dagsmatinn á laugardag fyrir
gesti, þá voru ekki komnar frysti-
kistur að hlaupa í.
Síðast þegar ég gisti hjá Beggu,
sváfum við í eina klukkustund, það
var mikið að segja! Þær systur
voru miklir háðfuglar ekki síst á
eigin kostnað og ekki var Begga
barnanna best, en fór vel með það.
Það var víst skemmtilegt þegar
þær voru fjórar síðast á Hafn-
argötunni að ganga frá vissum
málum, allar í hvítum sloppum
hálfhvíslandi en ekki alltaf sam-
mála hvernig hlutirnir hefðu verið
og þá voru notuð orðin „Alvís,
Fjölvís, Fávís og Nasvís“. Bíi og
Gunnar upplifðu það sem áheyr-
endur, við vitum hver átti hvaða
nafn! Ég læt oft hugann reika til
æskustöðvanna í litla húsið á Ból-
inu, þá sé ég fyrir mér afa og
ömmu og dæturnar þeirra sjö í
pínulitla eldhúsinu, heyri snarkið í
eldavélinni og finn mólyktina og
horfi á lampaljósið. Það er satt
sem Hreinn frændi sagði við mig
eftir að Begga frænka dó „þar er
farin perla“.
Hún var sú af móðursystrum
okkar sem manni fannst aldrei
haggast, þyldi allt, alltaf jafnvirðu-
leg og rósemin uppmálum og geisl-
aði frá henni birtu og manngæsku,
en hennar líf var ekki alltaf dans á
rósum en hún kunni það lag að
sigla milli „skers og báru“ á öllum
sviðum.
Þetta áttu að vera örfá orð en
svona er „Sögufólkið“.
Elsku Magnús, Kristín, Gísli,
Rósa og börn, um leið og við vott-
um ykkur innilega samúð biðjum
við algóðan guð að vera með ykkur
öllum og munið, nú eru þær loks
allar saman með foreldrunum. Ég
þakka guði fyrir að hafa fengið að
vera samvistum við Beggu frænku
og læra af henni.
Guðný (Dúddý) og Helgi.
Hinn 15. desember árið 1924 er
talið að vélbáturinn Leifur frá Ísa-
firði hafi farist út af Aðalvík. Veð-
ur var slæmt og álitið að báturinn
hefði farist þess vegna. Síðar kom
í ljós að breskur togari hafði siglt
Leif niður og áhöfnin öll farist.
Ekki létu bresku skipverjarnir
vita um þetta slys en einn úr áhöfn
togarans sagði þó frá því síðar.
Brak úr Leifi kom svo upp í trolli
togara mörgum árum síðar og sást
af því að breski togarinn hafði
nánast klippt bátinn í tvennt. Einn
úr áhöfn Leifs var Magnús
Dósóþeusson frá Sæbóli í Aðalvík.
Við dauða hans urðu sjö ungar
telpur föðurlausar, sú yngsta ekki
orðin tveggja ára. Það voru sorg-
leg jól í litla húsinu á Sæbóli og
framtíðin óviss. Móðirin og dæt-
urnar, sem komnar voru til vits og
ára, sáu fram á erfiða tíma. Því er
þetta rakið hér að í dag er kvödd
hinstu kveðju síðasta systirin sem
lifði, Anna Bergþóra Magnúsdótt-
ir, móðursystir mín. Begga, eins
og hún var ætíð kölluð af frænd-
fólkinu, var einstaklega vel gerð
kona sem bar samferðafólk sitt á
höndum sér, ekki síst frændgarð-
inn, sem ætlaðist oft til allt of mik-
ils af þessari mikilhæfu frænku
sinni. Eftir á að hyggja, er ekki
ólíklegt að áfallið, sem telpurnar
sjö urðu fyrir við fráfall föður sins,
hafi gert þær sjálfstæðari og dug-
meiri en ella.
Þrátt fyrir sjálfstæðið voru syst-
urnar alla tíð tengdar órjúfanleg-
um böndum og voru sælustu
stundirnar í lífi þeirra, að því er ég
held, þegar þær komu sem flestar
saman.
Þá var glatt á hjalla og mikið
skrafað. Þær virtust hafa mikla
þörf fyrir að blanda geði.
Æðruleysi var eitt af aðals-
merkjum Beggu frænku minnar.
Hún tók því sem að höndum bar,
hvort sem var í gleði eða sorg. Þau
Begga og maður hennar, Torfi
Gíslason, bjuggu á Hafnargötu 74 í
Keflavík lengst af. Það er ekki
óeðlilegt að segja að oftar en ekki
hafi hús þeirra líkst meira veit-
ingastað og hóteli en einbýlishúsi
hjóna með tvo syni. Húsrúm var til
staðar, enda hjartarúm ekki af
skornum skammti hjá þeim hjón-
um. Á heimilinu dvaldi um árabil
mamma Beggu og amma okkar
krakkanna, Guðný Sveinsdóttir,
sem varð nærri hundrað ára, og
dró það ekki úr gestagangi, þar
sem amma var vinsæl og vina-
mörg. Hér eru færðar þakkir, þótt
seint sé, fyrir umönnun ömmu og
umburðarlyndi við frændgarðinn.
Begga frænka mín hélt ró sinni
og reisn allt til dauðans. Hún bað
fyrir kveðjur til allra vina sinna og
vandamanna, þegar við Guðrún
kona mín heimsóttum hana hel-
sjúka á sjúkrahúsið í Keflavík. Það
var í senn sorglegt og gleðilegt að
kveðja hana. Gleðilegt að hafa enn
og aftur fengið að sjá hana og
skiptast á kveðjum, en sorglegt að
síðasta systirin í þessum áður
glaðværa og sérstaka hópi skuli nú
öll. Ef trúin á líf eftir dauðann og
endurfundi reynist rétt, má þó
segja að sorgartárin frá jólunum
1924 hafi nú breyst í gleðitár.
Ég og fjölskylda mín sendum
Magnúsi og Gísla og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Beggu frænku
minnar.
Magnús Reynir
Guðmundsson.
! "! # $% &
' # ( "!
) * ( "! +
,--,-.
/0 1
2 / &33
4& #
!
"
#$
%$
& '
(
'
4!5 (# ""!
4* 1" 6!& &
4*&4#) * 6!& "!
& && & &
# & & ( ) +7/ " "!
2 (& # "! +
#
)
-869
:,;$-
;&&) <
2!=
*
'
+
!,
!--.
$ &4+#5&" &
#5&" $ & & 6%(&$ &"!
>0 4 *&&$ &"! 6!& &
(# $ &"! 2&& /8+? 1
4 " $ & &
$ &$ & & #/#
4 "!
) &)* &+
/
$.>
(& 10/(#@A
1 #
$
*
0
1#
6!&41 8 * & &
4# 41 "! 4& +$ B &
&" 4 &
8 * &
41 &
4 *&&41 "!
8 1 9 &41 &
&/# 4"! "!
! 2 5&& "! $ &4 &
8* 1 & 8
2) %& "! 8 &/ "8 &
2 & & 2 (&2 & "!
#) * "! "7/ +
2
-,-->,
"&/
1 #
(
2
#5&&)( & ()! # "!
8 & )( & 6!&( "!
6! (# )( "!
!&)( & 2 (&4+$ ) * & "!
&& )( & # 41 "!
4 * "( 6+)( "!
) &)* &) &) &)* &+