Morgunblaðið - 12.02.2002, Side 46
GREINARGERÐ
46 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VÍSAÐ er til erindis Verslunar-
ráðs Íslands, er barst viðskipta-
ráðuneytinu 1. febrúar sl., þar sem
þess er farið á leit að gerð verði á
vegum ráðuneytisins sérstök at-
hugun á aðgerðum Samkeppnis-
stofnunar gagnvart olíufélögunum
á grundvelli 40. gr. samkeppnis-
laga nr. 8/1993 hinn 18.
desember sl. Þá er þess farið á
leit að viðskiptaráðherra beiti sér
fyrir því að öllum þeim gögnum
sem Samkeppnisstofnun lagði hald
á, og afritum þeirra, verði skilað
til baka „en málið gegn olíufélög-
unum hafið á nýjan leik á lögleg-
um forsendum ef ástæða þykir til“.
Loks er þess óskað að gerðar verði
ráðstafanir til þess að framkvæmd
aðgerða af þessum toga verði með
eðlilegum hætti ef til þeirra kemur
í framtíðinni.
Heimildir Samkeppnisstofnunar
til húsleitar og haldlagningar af
því tagi sem um er fjallað í bréfi
Verslunarráðs er að finna í 40. gr.
samkeppnislaga. Í 2. mgr. þess
ákvæðis er tekið fram að við fram-
kvæmd slíkra aðgerða skuli fylgt
ákvæðum laga um meðferð opin-
berra mála um leit og hald á mun-
um.
Eins og ljóst má vera af tilvísun
ákvæðisins til ákvæða laga nr. 19/
1991 um meðferð opinberra mála
(oml.) eru bæði leit og haldlagning
lögregluaðgerðir. Af því leiðir í
fyrsta lagi, að stjórn húsleitar er á
forræði lögreglumanna, sbr. 1.
mgr. 94. gr. oml., en þar segir:
„Lögreglumenn stjórna leit sam-
kvæmt ákvæðum þessa kafla.“ Ef
ágallar eru á framkvæmd leitar
eru þeir almennt á ábyrgð lög-
reglu. Í öðru lagi gilda reglur oml.
um réttindi þeirra, er þurfa að
þola leit og haldlagningu, þ. á m.
um rétt þessara aðila til að skjóta
ákvörðun um haldlagningu til dóm-
ara, sbr. 79. gr. oml., og til að bera
ágreining um lögmæti rannsókn-
arathafna undir dómara, sbr. 75.
gr. oml. Skal hér einnig bent á
skaðabótaúrræði samkvæmt XXI.
kafla oml., ef lagaskilyrði hefur
brostið til leitar/haldlagningar eða
hún framkvæmd með ótilhlýðileg-
um hætti.
Þá varðar það opinberan starfs-
mann refsingu, eins og réttilega er
bent á í bréfi Verslunarráðs, ef
hann misbeitir heimildum sínum til
m.a. húsleitar og haldlagningar,
sbr. 131. og 132. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
Hafi þolandi leitar ástæðu til að
ætla að brotið hafi verið gegn
hegningarlögum að þessu leyti, er
viðkomandi rétt að leita til lög-
regluyfirvalda eins og ella þegar
grunur leikur á um refsilagabrot.
Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. sam-
keppnislaga annast Samkeppnis-
stofnun dagleg störf samkeppnis-
ráðs. Af ákvæðum III. kafla
laganna leiðir að samkeppnisráð
hefur stöðu sjálfstæðrar stjórn-
sýslunefndar, og getur viðskipta-
ráðherra því ekki gefið samkeppn-
isráði bindandi fyrirmæli um
úrlausn einstakra mála. Að þessu
virtu telur ráðuneytið sig ekki hafa
heimild til að hafa afskipti af máls-
meðferð í því máli, sem vísað er til
í erindi Verslunarráðs, þ.m.t. varð-
andi afhendingu haldlagðra gagna
eða nýja málsmeðferð. Aftur skal
hins vegar bent á ákvæði 79. gr.
oml. um rétt vörsluhafa haldlagðs
munar til að bera ágreining um
haldlagningu undir dómara.
Ákvarðanir samkeppnisráðs og
Samkeppnisstofnunar sæta hins
vegar kæru til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála á grundvelli 9. gr.
samkeppnislaga. Í samræmi við
meginreglur stjórnsýsluréttarins
er áfrýjunarnefnd bær til þess að
endurskoða alla þætti í málsmeð-
ferð Samkeppnisstofnunar og sam-
keppnisráðs við efnislega meðferð
máls fyrir nefndinni. Af því leiðir
að ef rannsókn Samkeppnisstofn-
unar leiðir til þess að tekin verður
íþyngjandi ákvörðun gagnvart ol-
íufélögunum, er unnt að hafa uppi
athugasemdir við málsmeðferð
stofnunarinnar í kæru til áfrýj-
unarnefndar í þeim tilgangi að fá
slíka ákvörðun fellda úr gildi eða
henni breytt. Þar sem aðgerðir
Samkeppnisstofnunar kunna að
sæta slíkri stjórnsýslulegri skoðun
af hálfu æðra stjórnvalds, telur
ráðuneytið ekki tilefni til sérstakr-
ar athugunar þess á framkvæmd
leitar hjá olíufélögunum hinn 18.
desember sl. Skal einnig á það
minnt í þessu sambandi, að úr-
lausnir áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála er unnt að bera undir
dómstóla.
Samkvæmt framansögðu eru
þolendum leitar og/eða haldlagn-
ingar tryggð réttarfarsleg úrræði í
ákvæðum laga um meðferð opin-
berra mála og almennra hegning-
arlaga. Ef um alvarleg brot sam-
keppnisyfirvalda á málsmeð-
ferðarreglum er að ræða, getur
það leitt til þess að ákvarðanir sem
kunna að vera teknar í framhaldi
af leit og/eða haldlagningu verði
ógiltar eða þeim breytt af áfrýj-
unarnefnd samkeppnismála við
efnismeðferð máls. Að mati við-
skiptaráðuneytisins mynda fram-
angreind úrræði fullnægjandi
ramma utan um framkvæmd að-
gerða samkvæmt 40. gr. sam-
keppnislaga og tryggja að fram-
kvæmd þeirra sé með eðlilegum
hætti með tilliti til réttaröryggis,
ef til þeirra kemur í framtíðinni.
Telur ráðuneytið því ekki efni til
ráðstafana af þess hálfu í þessu til-
liti.
Greinargerð
Greinargerð viðskiptaráðuneyt-
isins til Samtaka atvinnulífsins er
svohljóðandi:
Framkvæmdastjórn Samtaka at-
vinnulífsins (SA) samþykkti nýver-
ið ályktun þar sem því er beint til
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis að fram fari skoðun á
ákvæðum samkeppnislaga nr. 8/
1993. Í ályktuninni og greinargerð
sem henni fylgdi eru einkum gerð-
ar athugasemdir við ákvæði sam-
keppnislaga sem fjalla um leit og
haldlagningu, sektarheimildir lag-
anna og bannákvæði þeirra. Í til-
efni af þessari ályktun SA vill við-
skiptaráðuneytið taka eftirfarandi
fram: 1. Ákvæði 40. gr. samkeppn-
islaga um leit og haldlagningu
gagna samkvæmt 40. gr. sam-
keppnislaga er Samkeppnisstofnun
heimilt að gera nauðsynlegar at-
huganir á starfsstað fyrirtækja og
leggja hald á gögn þegar ríkar
ástæður eru til að ætla að brotið
hafi verið gegn lögunum. Jafn-
framt segir í ákvæðinu að við
framkvæmd þessara aðgerða skuli
fylgja reglum laga um meðferð op-
inberra mála. Leit samkvæmt
samkeppnislögum er ávallt fram-
kvæmd á grundvelli dómsúrskurð-
ar.
Í greinargerð sem fylgdi áður-
nefndri ályktun SA eru ýmsar at-
hugasemdir gerðar við þetta
ákvæði samkeppnislaga og fram-
kvæmd á því. Er í því sambandi
m.a. vísað til reglna sem gilda um
vettvangsrannsóknir fram-
kvæmdastjórnar EB og Eftirlits-
stofnunar EFTA (ESA) og til
reglna sem gilda í einstökum
EES-ríkjum. Í greinargerðinni er
það gagnrýnt að Samkeppnisstofn-
un hafi rýmri heimildir við húsleit
heldur en ESA, sem m.a. felst í því
að stofnunin getur lagt hald á
frumgögn en ESA hafi einungis
heimild til að taka afrit af skjölum
á starfsstað fyrirtækis. Heldur SA
því fram að sambærilegar reglur
og gilda hjá ESA gildi í öðrum
ríkjum eins og t.d. Danmörku og
Svíþjóð. Er gefið til kynna í grein-
argerðinni að taka eigi upp þessar
reglur hér á landi.
Ráðuneytið vill fyrst nefna að
heimild Samkeppnisstofnunar í 40.
gr. samkeppnislaga er á engan
hátt óvenjuleg í íslenskum rétti.
Þannig er að finna í 5. gr. laga nr.
110/1999 um Póst- og fjarskipta-
stofnun hliðstæða heimild til þeirr-
ar stofnunar og í 9. gr. laga nr. 87/
1998 um opinbert eftirlit með fjár-
málastarfsemi sambærilega
heimild til handa Fjármálaeftirlit-
inu. Jafnframt verður að líta til
þess að ákvæði EES-samningsins
leggja engar skuldbindingar á ís-
lensk stjórnvöld varðandi reglur
eða framkvæmd húsleitar í sam-
keppnismálum. Getur hvert EES-
ríki fyrir sig skipað þessum málum
með þeim hætti sem best er talið
henta í viðkomandi ríki.
Ráðuneytið vekur athygli á því
að samkvæmt könnun sem fram-
kvæmdastjórn EB lét gera hafa
samkeppnisyfirvöld í einstökum
aðildarríkjum yfirleitt ríkari heim-
ildir heldur en hún (og þar með
ESA) til að framkvæma rannsókn-
ir, þ.m.t. húsleitir, í samkeppnis-
málum. Ástæða þess er m.a. sú að
framkvæmdastjórn EB hefur ekki
lögregluvald. Athugun á sam-
keppnislöggjöf nokkurra EES-
ríkja leiðir þetta í ljós:
Í Austurríki þarf dómsúrskurð
til að framkvæma leit og sam-
keppnisyfirvöld mega ekki leggja
hald á gögn.
Í Belgíu er unnt að framkvæma
leit hjá fyrirtækjum og á heimilum
stjórnenda fyrirtækja. Dómsúr-
skurð þarf vegna leitar á heim-
ilum. Unnt er að innsigla skjöl og
afrita þau.
Á grundvelli dómsúrskurðar
geta bresk samkeppnisyfirvöld
framkvæmt húsleit í fyrirtækjum
og á heimilum, ef skjöl viðskipta-
legs eðlis eru geymd þar. Bresk
samkeppnisyfirvöld hafa heimild
til að leggja hald á frumgögn og
mega halda þeim í þrjá mánuði.
Í Danmörku hafa þarlend sam-
keppnisyfirvöld sams konar heim-
ildir og framkvæmdastjórn EB.
Þau geta framkvæmt vettvangs-
rannsókn hjá fyrirtækjum og tekið
afrit af gögnum. Þeim er hins veg-
ar ekki heimilt að leggja hald á
frumgögn. Hins vegar liggja nú
fyrir drög að frumvarpi til breyt-
inga á dönsku samkeppnislögunum
þar sem lagt er til að samkeppn-
isyfirvöld geti undir vissum kring-
umstæðum lagt hald á frumgögn.
Er við það miðað að þeim verði
skilað að afritun lokinni.
Finnsk samkeppnisyfirvöld hafa
áþekkar heimildir og fram-
kvæmdastjórn EB. Ekki þarf
dómsúrskurð til að framkvæma
leit.
Í Frakklandi geta þarlend sam-
keppnisyfirvöld leitað bæði á skrif-
stofum fyrirtækja og heimilum for-
svarsmanna fyrirtækja og lagt
hald á frumgögn.
Leitin fer fram með aðstoð lög-
reglu og á grundvelli dómsúr-
skurðar.
Í Grikklandi þarf dómsúrskurð
til húsleitar ef búist er við mót-
stöðu, annars ekki. Grísk sam-
keppnisyfirvöld hafa heimild til að
leggja hald á frumgögn. Einnig
hafa þau heimild til að leita á
heimilum.
Hollensk samkeppnisyfirvöld
geta framkvæmt húsleit og inn-
siglað starfsstöð fyrirtækis. Þau
geta einnig undir vissum kring-
umstæðum lagt hald á frumgögn.
Írsk samkeppnisyfirvöld þurfa
dómsúrskurð til að framkvæma
húsleit og mega taka afrit af gögn-
um. Búið er að leggja fram frum-
varp til breytinga á þarlendum
samkeppnislögum sem miðar að
því að veita heimild til að leita á
heimilum æðstu yfirmanna fyrir-
tækja.
Ítölsk samkeppnisyfirvöld hafa
áþekkar heimildir og fram-
kvæmdastjórn EB. Ekki þarf
dómsúrskurð til að framkvæma
leit.
Í Noregi geta samkeppnisyfir-
völd framkvæmt húsleit og lagt
hald á frumgögn. Frumgögnum
þarf ekki að skila á meðan máls-
meðferð fer fram.
Dómsúrskurð þarf til húsleitar.
Einnig geta þau leitað á heimilum
starfsmanna fyrirtækja og er
þeirri heimild talsvert beitt.
Spænsk samkeppnisyfirvöld
geta framkvæmt húsleit á grund-
velli dómsúrskurðar og lagt hald á
frumgögn og haldið þeim í 10
daga.
Sænsk samkeppnisyfirvöld hafa
áþekkar heimildir og fram-
kvæmdastjórn EB.
Í Þýskalandi geta samkeppnis-
yfirvöld á grundvelli dómsúrskurð-
ar framkvæmt leit í fyrirtækjum
og á heimilum. Ef mikið liggur við
er unnt að framkvæma leit án úr-
skurðar. Þau geta einnig lagt hald
á frumgögn.
Til samanburðar við framan-
greint veita lög nr. 8/1993 Sam-
keppnisstofnun heimild til leitar og
haldlagningar gagna á starfsstað
fyrirtækja að því tilskildu að ríkar
ástæður séu til að ætla að brotið
hafi verið gegn samkeppnislögum,
og þarf dómsúrskurð til að leit
verði framkvæmd. Lögin heimila
hins vegar ekki t.d. leit á heimilum
fyrirsvarsmanna fyrirtækja, eins
og víða er gert. Þróun reglna af
þessu tagi í öðrum Evrópuríkjum
hefur reyndar gengið í þá átt að
veita samkeppnisyfirvöldum rýmri
leitarheimildir, fremur en að draga
úr þeim.
Ráðuneytið telur að ekki sé jafn-
mikill munur á framkvæmd hús-
leitar af hálfu Samkeppnisstofn-
unar og ESA og gefið er í skyn af
hálfu SA. Þetta sést þegar reglur
ESA og dómafordæmi sem skýra
þær eru könnuð. Hér má fyrst líta
til þess að húsleit ESA er fram-
kvæmd á grundvelli eigin ákvörð-
unar stofnunarinnar en húsleit
Samkeppnisstofnunar er gerð á
grundvelli dómsúrskurðar. Verður
því ekki annað séð en að réttarör-
yggi íslenskra fyrirtækja sé meira
að þessu leyti þegar leit er fram-
kvæmd á grundvelli samkeppnis-
laga. Í dómsúrskurði á grundvelli
samkeppnislaga, jafnt og í ákvörð-
un ESA, er tekið fram hvaða fyr-
irtæki sé verið að rannsaka og
meint brot tilgreind eins nákvæm-
lega og unnt er. Hér verður þó
ávallt að hafa í huga að eðli máls-
ins samkvæmt er oft ekki fyllilega
ljóst í upphafi rannsóknar hversu
umfangsmikil brot eru. Hvorki er
ESA skylt að upplýsa fyrirtæki við
húsleit um þær upplýsingar sem
stofnunin býr yfir og tengjast
meintu broti, né er ESA skylt að
setja fram ítarlegan lagalegan rök-
stuðning um eðli hins meinta
brots. Það eru starfsmenn ESA,
líkt og starfsmenn Samkeppnis-
Aðgerðir Samkeppnisstofnunar gagnvart olíufélögunum þremur
Viðskiptaráðherra
svarar Verslunar-
ráði Íslands og Sam-
tökum atvinnulífsins
Viðskiptaráðherra svaraði í gær erindi Verslunarráðs Íslands, sem
barst ráðuneytinu 1. febrúar sl., varðandi aðgerðir Samkeppnis-
stofnunar gagnvart olíufélögunum. Þá hefur verið tekin saman
greinargerð í viðskiptaráðuneytinu í tilefni ályktunar Samtaka at-
vinnulífsins þar sem því var beint til efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis að fram færi skoðun á ákvæðum samkeppnislaga.
Bréf ráðherra og greinargerðin fara hér á eftir.
Forðafjör Líf og fjör
Nýtt fjölvítamín sem gefur þér
góðan forða af öllum vítamínum
og steinefnum í 12 klst.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
Járn + C vítamín
fyrirbyggir járnskort.
C-vítamínið
eykur nýtingu járns.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum