Morgunblaðið - 12.02.2002, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 49
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar
auglýsir eftir umsóknum um fjárframlög
til lista- og menningarstarfsemi 2002
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsa eftir aðilum
sem óska eftir fjárframlögum frá menningarmálanefnd
vegna listviðburða og menningarmála árið 2002. Hér
undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar
menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra.
Reglur um úthlutun.
1. Rétt til að sækja um framlög til nefndarinnar hafa
listamenn, samtök listamanna og félagasamtök, sem
vinna að listum og menningarmálum í Mosfellsbæ.
2. Fjárframlög til lista og menningarmála eru af
tvennum toga:
a) Verkefnastyrkir til einstakra verkefna.
b) Starfstyrkir til félagasamtaka á sviði lista og
menningarmála í Mosfellsbæ.
3 Nauðsynlegt er að umsækjendur tilgreini
nákvæmlega til hvaða verka ætlað er að verja
framlögunum.
4. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars
2002 á skrifstofu fræðslu- og menningarsviðs
Mosfellsbæjar. Þeim ber að skila á sérstökum
umsóknareyðublöðum, sem hægt er að fá á
skrifstofu Mosfellsbæjar eða á heimasíðu bæjarins.
5. Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn
umsækjanda að hluta eða alfarið.
6. Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar
munu liggja fyrir eigi síðar en 20. mars 2001 og eru
háðar samþykki bæjarstjórnar.
Fræðslu- og menningarsvið Mosfellsbæjar,
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ.
Æfingabekkir Hreyfingar
Ármúla 24, sími 568 0677
Er vöðvabólga að hrjá
þig í baki, öxlum eða
handleggjum?
Stirðleiki í mjöðmum
og þreyta í fótum?
Vantar þig aukið
blóðstreymi og þol?
Þá hentar æfingakerfið
okkar þér vel.
Reynslan hefur sýnt að
þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum
aldri, sem ekki hefur
stundað einhverja líkams-
þjálfun í langan tíma. Sjö
bekkja æfingakerfið liðkar
styrkir og eykur blóð-
streymi til vöðvanna. Hver
tími endar á góðri slökun.
Við erum einnig
með göngubraut,
þrekstiga og tvo
auka nuddbekki.
Getur eldra fólk notið góðs af þessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er þægileg, liðkar og gefur góða slökun.
Og er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk. Frír kynningartími
Mynd sem ekki var
Í grein Guðbjargar Snótar Jóns-
dóttur, Um Önnu frá Hvammi, var
vísað til myndar af blaði sem ljóð var
ritað á en fylgdi ekki greininni. Ljóðið
var hins vegar birt prentað á síðunni.
Rétt er að árétta þetta um leið og beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Rangt nafn
Höfundur ljóðsins Í nótt ... sem birt
var í Lesbók sl. laugardag var rang-
feðraður. Hann heitir Geir Thor-
steinsson. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Nafnaruglingur
Í formála minningargreinar um
Ósk Ásgrímsdóttur í Morgunblaðinu
síðastliðinn sunnudag 10. febrúar,
varð ruglingur á nöfnum. Rétt er
málsgreinin sem fyrir raskinu varð
svona: „Hinn 17. júní 1950 giftist Ósk
Ásmundi Böðvarssyni, f. 11. maí 1920
í Hafnarfirði, d. 27. desember 1999.
Foreldrar hans voru Steinþóra Ás-
mundsdóttir og Böðvar Grímsson.
Sonur þeirra er Steinþór flugvirki,
kvæntur Maríu Sigurðardóttur. Börn
Steinþórs og Maríu eru Sigurður, Ás-
mundur, Ingvar og Linda María.“
Hlutaðeigendur eru beðnir afsökunar
á þessum ruglingi.
LEIÐRÉTT
NÁMSKEIÐIÐ „Öflugt sjálfstraust“
verður haldið í Breiðholtsskóla mið-
vikudagana 13. og 20. febrúar.
Þetta námskeið er fyrir alla for-
eldra barna í Breiðholtsskóla sem
vilja styrkja sig í að verða sterkar
fyrirmyndir fyrir börnin sín.
Fjallað verður um áhrif hugarfars,
viðhorfa og hugsunar á hegðun og líð-
an. Einnig verður fjallað um leiðir til
að byggja sig upp og taka ábyrgð á
eigin lífi og heilsu.
Höfundar námskeiðsins eru Jó-
hann Ingi Gunnarsson og Sæmundur
Hafsteinsson sálfræðingar. Þeir
flytja námsefnið á myndbandi og hafa
þjálfað starfsfólk Foreldrahússins til
að hafa umsjón með námskeiðunum.
Forvarnar-
námskeið
haldið í Breið-
holtsskóla
INGIBJÖRG Hafstað, forstjóri
Fjölmenningar ehf., heldur kynn-
ingu á vegum Rannsóknarstofnunar
KHÍ næstkomandi miðvikudag, 13.
febrúar, kl. 16.15 í sal Sjómanna-
skóla Íslands við Háteigsveg og er
hún öllum opin. Lýst verður þróun
íslenskukennslu fyrir erlent starfs-
fólk á vinnustöðum.
Námsefnið er lagað að hverjum
vinnustað og starfsfólki hans og mið-
ast við raunveruleika nemenda á
vinnustað. Reynsla síðasta árs hefur
verið mjög jákvæð og er það mat að-
standenda að hér séu að þróast ný-
stárlegar aðferðir í tungumála- og
menningarfærnikennslu. Sýnishorn
af námsefni verður kynnt, segir í
fréttatilkynningu.
Kynnir
kennslu fyrir
erlent starfsfólk
NÁMSKEIÐ um svokallaðar film
noir- og neo noir-kvikmyndir verð-
ur hjá Endurmenntun HÍ 28. febr-
úar kl. 20–22.15 í húsakynnum
Endurmenntunar á Dunhaga 7.
Sögusvið þessara kvikmynda, sem
fyrst voru gerðar á fimmta ára-
tugnum, er yfirleitt stórborgin og
tálkvendið er í aðalhlutverki.
Á námskeiðinu verður fjallað um
sögu glæpakvikmynda, greint hvað
einkennir þær og kannað hvaða
tengsl þær hafa við glæpasögur
bókmenntanna. Sýnd verða dæmi
úr kvikmyndum og íslenskir glæpa-
söguhöfundar segja frá tilurð verka
sinna.
Umsjón með námskeiðinu hefur
Sigríður Pétursdóttir dagskrár-
gerðarkona. Gestir námskeiðsins
eru Arnaldur Indriðason, Árni Þór-
arinsson og Bergljót Kristjánsdótt-
ir.
Frekari upplýsingar um nám-
skeiðið er á vefsíðunni www.end-
urmenntun.is og þar er jafnframt
hægt að skrá sig, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeið um
glæpakvikmyndir
MIÐVIKUDAGINN 13. febrúar
heldur IMG ráðstefnu sem ber yf-
irskriftina: Frammistöðutengd laun:
Ávinningur eða sundrung?
Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða:
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, Ægir Már Þórisson, ráð-
gjafi hjá IMG, Gunnar Páll Pálsson,
verðandi formaður V.R., Árni Sig-
fússon, stjórnsýslufræðingur og
Gunnar Haugen, ráðgjafi hjá IMG.
Ráðstefnustjóri er Ketill B. Magn-
ússon, frá Landssíma Íslands. Ráð-
stefnan er haldin í Gullteig á Grand
Hótel og hefst klukkan 9:00 og
stendur til kl. rúmlega 12. Skráning
fer fram á netfanginu radstefna-
@img.is eða í síma,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Ráðstefna
um frammi-
stöðutengd laun
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir
borgarfulltrúi hefur opnað heima-
síðu www.steinunn valdis.is vegna
prófkjörs Samfylkingarinnar um
sæti á Reykjavíkurlistanum. Þar
kemur fram að hún gefur kost á sér
til forystu fyrir Samfylkinguna í
Reykjavík.
Borgarfulltrúi
opnar heimasíðu
BORGARFULLTRÚINN Hrannar
Björn Arnarsson hefur opnað kosn-
ingamiðstöð vegna prófkjörs Sam-
fylkingarinnar um sæti hennar á
Reykjavíkurlistanum.
Kosningamiðstöðin er í Hafnar-
stræti 20, (strætóhúsið við Lækjar-
torg) á annarri hæð og verður hún
opin alla virka daga frá kl. 17–22 og
frá kl. 10–22 um helgina.
Opnar
kosningamiðstöð
MÁLSTOFA verður haldin í
tengslum við kennslu í stjórnskipun-
arrétti í lagadeild Hákóla Íslands,
miðvikudaginn 13. febrúar í stofu
L-101 í Lögbergi, kl. 12.15–13.30.
Málstofan er öllum opin.
Umræðuefnið verður: Staða Al-
þingis gagnvart ríkisstjórn og öðrum
handhöfum framkvæmdavalds.
Málshefjendur verða þær Bryndís
Hlöðversdóttir og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir.
Málstofa
í lagadeild
FÓLK Í FRÉTTUM