Morgunblaðið - 12.02.2002, Page 52

Morgunblaðið - 12.02.2002, Page 52
DAGBÓK 52 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Wiesbaden kemur og fer í dag. Arnarfell, Vædderen, og Rich- mond Park koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kom í gær og fer í dag frá Straums- vík. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Hamraborg 20a. Fataúthlutun í dag kl. 17–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, leirkera- smíði, kl 10 boccia, kl 10 enska, kl 11 enska og dans Lance, kl 13 vinnu- stofa, postulínsmálning og bað. Árskógar 4. Kl. 9 bók- band og öskjugerð, kl. 13 opin smíðastofa. - Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–9.45 leik- fimi, kl. 9–12 tréskurð- ur, kl. 9–16 handavinna, kl. 10–17 fótaaðgerð, kl. 10 sund, kl. 13 leirlist, kl. 14. dans. Eldri borgarar Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Jóga á föstudög- um kl. 11. Kóræfingar hjá Vorboðum, kór eldri borgara í Mosfellsbæ á Hlaðhömrum á fimmtu- dögum kl. 17–19. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu kl. 11 á sunnudögum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8–16. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10 samverustund, kl.14 félagsvist. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 10 hársnyrting, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spilakvöld á Álftanesi 14. febr. kl. 19. 30 á vegum Lionsklúbbs Bessastaðahrepps. Akstur samkvæmt venju. Þrið. 12. feb. kl. 9 vinnuhópur gler, kl. 13 málun, kl. 13.30 tré- skurður kl. 13.30 spilað í Kirkjuhvoli, kl.16. Búta- saumur. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Saumur kl. 13:30, brids kl. 13:30. Á morgun línudans kl. 11, pílukast kl. 13:30, mynd- list kl. 13. Leikhúsferð verður farin fimmtud. 21. feb. í Borgarleik- húsið að sjá „Boðorðin níu“. Skráning í Hraun- seli. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Þriðjud: Skák kl. 13, Meistaramót deildarinnar hefst 5. mars.Telft í tveim flokk- um A og B. Þrenn verð- laun í hvorum flokki fyrir þrjú efstu sætin. Skráning á þriðjudögum í febrúar kl. 13–16.30 í Ásgarði Glæsibæ. Leik- félagið Snúður og Snælda sýnir í Ásgarði í Glæsibæ, söng og gam- anleikinn „Í lífsins ólgu- sjó“ miðvikud. kl. 14, föstudaga kl. 14 og sunnud. kl. 16. Miða- pantanir í s: 588-2111, 568-8092 og 551-2203. Ath. sýningin á morgun miðvikudag fellur niður vegna íþróttadags aldr- aða. Miðvikud: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10. Söngfélag FEB kóræf- ing kl. 17. Línudans- kennsla kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45. Að- alfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, verður í Ás- garði sunnud. 24. feb. kl. 13.30. Árshátíð FEB verður 1. mars í Versöl- um Hallveigarstíg 1 húsið opnað kl. 19. Miðapantanir á skrif- stofu FEB. Sími: 588- 2111. Farin verður ferð til Krítar með Úrval- Útsýn 29. apríl, 24ra daga ferð. Skráning fyr- ir 15. febrúar á skrif- stofu FEB. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10–16 s. 588 2111 Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, tréskurður, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 10 leikfimi, kl. 12.40 Bónusferð, kl. 13.15 bókabíll. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spila- mennska, kl. 13 boccia. Myndlistarsýning Braga Þórs Guðjónssonar stendur yfir. Veitingar í veitingabúð. Fimmtu- daginn 28. feb. Leik- húsferð í Borgarleik- húsið „Boðorðin níu“, skráning hafin. Uppl. um starfsemina á staðn- um og í s. 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik- fimi, kl. 9.30 gler- skurður, kl. 10 handa- vinna, kl. 13 enska, kl. 14 þriðjudagsganga, kl. 15.30 spænska, kl. 16.20 og kl. 17.15 kínversk leikfimi, kl. 19 brids. Enn eru nokkur pláss laus í rólegri leikfimi, sjúkraþjálfari sér um kennsluna. Uppl. í síma 554-3400. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 9.15 postulínsmálun, kl. 13–16 handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum, kl. 19 gömlu dansarnir. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, kl. 9 glerskurður og tré- málun, kl. 10 boccia, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13–17 hár- greiðsla, kl. 13 myndlist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun og leikfimi, kl. 9.45 bankaþjónusta, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 helgistund. Fótaaðgerð, handsnyrting. Háteigskirkja eldri borgara á morgun mið- vikudag, samvera fyrir bænastund í kirkjunni kl. 11, súpa í Setrinu kl. 12, spil kl. 13. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 tréskurður og op- in vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla. Vesturgata 7. Kl. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur, kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 11 leikfimi. kl. 13 spila- mennska. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 glerskurður og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13 hand- mennt og körfugerð. Kl. 14 félagsvist. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Brids í kvöld kl. 19. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, leik- fimi kl. 11 í Bláa saln- um. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svar- að í síma 552 6644 á fundartíma. Glímufélagið Ármann heldur aðalfund í Sól- túni 16, Reykjavík, fimmtudaginn 14. mars kl. 20. Dagskrá: Venju- leg aðalfundarstörf. Stjórnin. Seyðfirðingafélagið. Sólarkaffi Seyðfirðinga verður haldi að Fann- borg 8, Gjábakka. Sunnudaginn 17. febr- úar kl. 15. Mætið stund- víslega. Kvenfélag Breiðholts, aðalfundurinn er kl. 20. í safnaðarheimili Breið- holtskirkju. Vejuleg að- alfundarstörf. Þorra- matur. Félag áhugafólks um íþróttir aldraða. Íþróttadagur aldraðra, verður á öskudaginn, miðvikud. 13. feb. kl. 14–16 í íþróttahúsinu við Austurberg. Leikir, söngur, leikfimi, dans, veitingar. Allir vel- komnir. Húnvetningafélagið í Reykjavík. Húnvetnsk menning á miðjum vetri sunnud. 21. feb. kl. 14. Kór-, ein-, tví- og fjölda- söngur. Píanóleikur. Fimm hagyrðingar að norðan fara með flím undir stjórn Ágústar á Geitaskarði. Sinawik í Reykjavík. Félasmálafundur mæt- ing á Umferðarmiðstöð- ina, kl .17.30 farið verð- ur á Eyrarbakka. Þjóðdansafélag Reykja- vík, Opið hús í kvöld frá kl. 20.30–23, gömlu dansarnir. Í dag er þriðjudagur 12. febrúar, 43. dagur ársins 2002. Sprengidag- ur. Orð dagsins: Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér. (Sálm. 4, 9.) Víkverji skrifar... KNATTSPYRNA hefur lengi ver-ið í miklu uppáhaldi hjá Vík- verja, hann hefur gaman af því að fara á völlinn, er einnig prýðis sófa- áhorfandi og hefur meira að segja gaman af pólitíkinni sem tengist íþróttinni. Ársþing Knattspyrnusam- bands Íslands fór fram um helgina, og Víkverji fylgdist því grannt með. Á haustdögum, þegar síðasti leikur karlalandsliðsins var á dagskrá í Kaupmannahöfn býsnuðust ýmsir yf- ir því að KSÍ hefði bruðlað með fé í því skyni að gera vel við nokkra af helstu samstarfsaðilum sambands- ins. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali um helgina, að gistingin á Hotel D’Angleterre - þar sem gestir KSÍ úr hópi styrktaraðila gistu - hefði verið ódýrari en á hótelinu sem landsliðið sjálft gisti á. Þar hafa menn það! Sér- hvert hefur nú verið bruðlið. Í setningarræðu sinni á þinginu KSÍ nefndi formaðurinn þá uppá- komu sem varð eftir leik Íslands og Tékklands í undankeppni heims- meistaramótsins á Laugardalsvelli í haust. Ísland kom þar á óvart og sigr- aði glæsilega og eftirminnilega, 3:1. Í kjölfar leiksins fóru af stað sögu- sagnir þess efnis að einhverjir ís- lensku leikmannanna hefðu blótað Bakkus helsti hressilega að kvöldi leikdags, sem var laugardagur, og vakti það verðskuldaða athygli þar sem miðvikudaginn þar á eftir lék lið- ið í Norður-Írlandi. Eftir sigurinn á Tékkum hefði sigur í Belfast sett Ís- lendinga í ákjósanlega stöðu í riðl- inum, möguleikir á sæti í úrslita- keppni HM í Japan og Kóreu í sumar hefði verið býsna mikill. En liðið steinlá í Belfast. Það vakti athygli Víkverja, sem sá formann KSÍ tala í sjónvarpinu um helgina, að hann sagði að tekið hefði verið á málinu innanhúss hjá KSÍ og niðurstaðan væri fordæmisgefandi. Víkverji man ekki betur en formaðurinn hafi í haust neitað því að nokkur flugufótur væri fyrir meintri drykkju landsliðs- manna, en hann virðist hafa fengið einhverjar nýjar upplýsingar síðan. Þá sagði formaðurinn að málið ætti að sínu mati ekki erindi í fjölmiðla. Því er Víkverji algjörlega ósammála. Best væri auðvitað að ekki væri fjallað um það í fjölmiðlum, en þá vegna þess að ekkert hefði gerst. En séu leikmenn ölvaðir á almannafæri stuttu fyrir mikilvægan leik á þjóðin rétt á því að vita af því. x x x Rapphljómsveitin XXX Rottweil-erhundar átti sannarlega skilið að sjá og sigra þegar íslensku tónlist- arverðlaunin voru afhent í Borgar- leikhúsinu á sunnudagskvöldið. Vík- verji hefur lúmskt gaman af tónlist sveitarinnar, þótt vissulega megi deila um textana sem eru heldur svæsnir, sumir hverjir. En sveitin hefur komið með ferskt blóð inn í ís- lenskan tónlistarheim og tekur sig ekki of alvarlega. Meðlimir hennar sögðu t.d. á sunnudagskvöldið að þeir hefðu orðið rokkstjörnur án þess að kunna að syngja eða spila á eitt ein- asta hljóðfæri. Og síðan en ekki síst sagði Erpur Eyvindarson, söngvari sveitarinnar, að XXX Rottweiler- hundar væri eina rokkhljómsveitin á Íslandi sem reykti ekki sígarettur! Gott er ef satt, það er að segja, að þessir ungu menn skuli ekki reykja. Slæmt er hins vegar til þess að vita ef engin önnur íslensk hljómsveit er reyklaus. Löglegt en siðlaust ÉG er ein af þeim sem fæ oft slæman höfuðverk. Síð- astliðið sumar fór ég til læknis vegna þessa og lét hann mig fá lyfseðil á sterk- ar verkjatöflur, sem ég leysti út úr apóteki 3. júlí. Fékk ég 2 glös af töflunum. Ég hef sem betur fer lítið þurft að nota töflurnar en fékk slæmt kast nú í jan- úar. Þegar ég ætlaði að fá mér töflu rak ég augun í að töflurnar áttu að notast fyr- ir nóvember sl. Ég fór með töflurnar í apótekið og ætl- aði að fá töflunum skipt en það var ekki hægt. Er ég mjög óánægð með að hafa verið afgreidd með lyf sem áttu að fyrnast eftir stuttan tíma því þetta lyf var ætlað til lengri tíma. Fyrir stuttu ætlaði ég að koma bréfi í póst til Þýska- lands. Ég átti frímerki af- gangs frá jólum og ætlaði að nota þau á bréfið. En það var engin upphæð á frí- merkjunum svo ég hringdi í Íslandspóst til að fá upp- gefið hvers virði þau væru. Var mér þá sagt að ég gæti ekki notað þessi frímerki á utanlandspóst, þau væru eingöngu ætluð til innan- landsnotkunar. Nú sit ég uppi með frímerki sem ég get ekki notað, a.m.k. ekki í bráð. Guðrún Jónsdóttir. Verðbólgan ÞAÐ er með ólíkindum hvernig umræðunni um verðbólguna hefur verið snúið að þeim sem hafa lægstu launin. Forystu- menn VSÍ tala meira að segja þannig að allt fari til fjandans í þjóðfélaginu ef kjarasamningum verði sagt upp. Þarna er beinlínis gef- ið í skyn að þeir sem sömdu um lægstu prósentutöluna séu sá hópur sem mest þurfi að varast ef svo ólík- lega vildi til að forysta ASÍ næði að semja um eitthvað smáræði eftir 1. maí sem allt virðist miðað við í þess- ari fáránlegu umræðu. Það þarf varla að taka fram að það voru aðrir hópar laun- þega sem hækkuðu um marga tugi prósenta ásamt mikilli hækkun á gengi krónunnar sem ollu 9,4% verðbólgu á síðasta ári en ekki 4% hækkun launa al- menns verkafólks. Að lokum vil ég minna á að forysta ASÍ kaus að sækja ekki um umboð fé- lagsmanna verkalýðsfélag- anna um þá ákvörðun að fresta uppsögn kjarasamn- inganna. Þá ákvörðun tóku þeir sjálfir. Lalli. Tólf sona kvæði og Hrafnahrekk GETUR einhver bent mér á hvar ég finn á prenti Tólf sona kvæði og Hrafna- hrekk? Vinsamlega hafið samband við: Guðnýju á netfanginu: gudnyp- @mmedia.is Farsótt? ÉG er að velta því fyrir mér hvort upp sé komin alvar- leg farsótt í landinu sem leggist aðallega á eina stétt manna. Ótrúlegt sé að menn séu veikir í þykjust- unni eins og krakkarnir mundu segja. Gott væri að fá svör frá landlæknisemb- ættinu um þessa dyntóttu veiki. Eldri borgari. Tapað/fundið Kápa og jakki tekin í misgripum ULLARKÁPA og leður- jakki týndust á Gullöldinni föstudagskvöldið 1. febr- úar. Skilvís finnandi hafi samband við Kristínu hjá Gullöldinni. Gullarmband týndist GULLARMBAND týndist sl. miðvikudag, líklega í Að- alstræti eða Hafnarstræti. Skilvís finnandi hafi sam- band við Ólöfu í síma 895- 6365. Pels tekinn í misgripum SVARTUR pels með hettu var tekinn í misgripum á Players, laugardagskvöldið 9. febrúar sl. Sá sem hefur hann undir höndum vin- samlega hafi samband í síma 862-0672, hans er sárt saknað. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 skjálfa, 4 varkár, 7 hænur, 8 fljótur að læra, 9 illdeila, 11 magurt, 13 Ísland, 14 urg, 15 ómjúk, 17 heimshluti, 20 reykja, 22 stritið, 23 geigur, 24 öldu, 25 undin. LÓÐRÉTT: 1 bitur, 2 veslingur, 3 nytjalanda, 4 þröng leið, 5 losar allt úr, 6 líffærin, 10 matvands manns, 12 gerist oft, 13 burt, 15 hörfar, 16 væskillinn, 18 brennur, 19 ákveð, 20 kvæði, 21 forar. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bakþankar, 8 bugar, 9 notar, 10 iðn, 11 innar, 13 asnar, 15 stökk, 18 úfinn, 21 ætt, 22 undin, 23 annar, 24 grundinni. Lóðrétt: 2 augun, 3 þorir, 4 nenna, 5 aftan, 6 obbi, 7 frár, 12 auk, 14 sef, 15 saum, 16 öldur, 17 kænan, 18 útati, 19 innan, 20 nart. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a ÉG er sammála konunni sem skrifar í Velvakanda sl. fimmtudag um að neytendur eigi að vera á varðbergi og athuga vel að sama vöruverð sé í búðinni og á kassa þegar borgað er. Sérstaklega finnst mér þetta áber- andi á útsöluvörum. Það er mjög algengt að það muni 10–100 krónum á því verði sem er uppgefið og því verði sem er á kassa. Hef ég rekið mig mjög oft á þetta og finnst mér þetta hafa verið sérstaklega slæmt hér í Hagkaup á Akureyri og hef þess vegna að mestu hætt að versla þar. Í Bandaríkjunum þar sem ég bjó þarf fólk ekki að borga fyrir vöruna ef verð á kassa og í búð er ekki það sama. Ute Stelly, 260942-6709. Enn um vöruverð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.