Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 24. FEBRÚAR 2002 TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Rænd frelsinu Íslensk kona lagði í mikla hættuför síðastliðið haust til þess að freista þess að bjarga dóttur sinni frá Egypta- landi þar sem faðir hennar hafði svipt hana frelsinu og hugðist gifta hana. Saman flúðu mæðgurnar frá Egypta- landi eftir að hafa komist yfir margar hindranir sem urðu á vegi þeirra. Ragna Sara Jónsdóttir hlýddi á magnaða sögu þeirra Guðríðar Ingólfsdóttur og dóttur hennar, Hebu. 12 Morgunblaðið/Ásdís ferðalögSkíðaferðir bílarPeugot RC-sportbíll börnHorft til himins bíóNorskar kvikmyndir Sælkerar á sunnudegi Ríkulegur ofnréttur Samskipti Jóns Leifs og Páls Ísólfssonar Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 24. febrúar 2002 B Árásir gegn lífi og limum 16 Að maka krókinn 20 Baráttan um Landssímann 10 ÍSLAMSKUR pílagrími kastar litlu grjóti í steinsúluna, sem sést í for- grunni til vinstri, en með þessari at- höfn hafnar pílagríminn djöflinum á táknrænan hátt. Þetta er liður í pílagrímsför múslima til hinnar helgu borgar Mekka, en talið er að um tvær milljónir múslima hvaðan- æva úr heiminum hafa verið saman komnar í borginni undanfarna daga og fjöldi þeirra „grýtti djöf- ulinn“ á þennan táknræna hátt í gær. Pílagrímsferðin er ein af fimm skyldum múslima, sem lýst er í hin- um fimm undirstöðugreinum ísl- ams. Múhameð spámaður sagði, að sá sem fari pílagrímsför, eða hajj, á réttan hátt snúi til baka sem nýfætt barn, það er að segja, laus við allar syndir. AP Grýta djöfulinn NÁÐST hefur samkomulag um það innan Bandaríkjastjórnar að stefnt verði að því að koma Saddam Hussein Íraksforseta og Baath-flokki hans frá völd- um á þessu kjörtímabili. Sam- kvæmt fréttum dagblaðsins Washington Post hefur sam- komulag þó ekki náðst um það hvernig þetta verði gert. Blaðið segir fulltrúa Hvíta hússins hafa staðfest að óvenju- leg samstaða hafi náðst innan stjórnarinnar varðandi málefni Íraks eftir að Colin Powell ut- anríkisráðherra lét af andstöðu sinni við hugmyndir um að Hussein verði komið frá völd- um. Þá segir blaðið að George W. Bush Bandaríkjaforseti vilji ná sem mestum árangri í bar- áttunni gegn hryðjuverkum á kjörtímabilinu þar sem engar tryggingar séu fyrir því að hann verði endurkjörinn. Saddam Hussein sagði að Bandaríkin ættu fremur að freista þess að koma stjórn hans frá völdum en að ráðast gegn allri þjóðinni með loft- árásum. „Við styðjum þann kost að stjórninni verði velt, þar sem hann er betri en að ráðist sé á þjóðina, hún sköðuð og auðlegðir hennar eyðilagð- ar,“ sagði Hussein á fundi með herforingjum sínum í gær, samkvæmt upplýsingum AFP fréttastofunnar. Bandaríkjastjórn Saddam verði steypt RÍKISSTJÓRN Ísraels mun ræða á fundi sínum í dag hvort leysa skuli Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna, úr herkví sem honum hefur verið haldið í á Vesturbakkanum í hátt í þrjá mánuði. Einn ráðherrann í stjórninni hótaði í gær að segja af sér embætti ef samþykkt verði að Arafat skuli leyft að fara frjálsum ferða sinna. Hann hefur dvalið á skrif- stofum heimastjórnarinnar í Ramall- ah. Umræðurnar um hvort herkvínni skuli aflétt eru meðal þess sem til greina kemur til að létta á spennunni í samskiptum Ísraela og Palestínu- manna í kjölfar þess að á fimmtu- dagskvöldið hófust viðræður deilu- aðila um öryggismál. Þrátt fyrir þetta brutust út átök í gær og skutu ísr- aelskir hermenn Palestínumann til bana. Í tilkynningu frá Ísraelsher í gær sagði að hermenn í Halhul, skammt fyrir utan bæinn Hebron á Vestur- bakkanum, hafi skotið á mann sem kom hlaupandi í átt að varðstöð þeirra hrópandi „Allah Akbar“, eða „Guð er mikill“. Palestínskir sjálfs- morðsárásarmenn hafa stundum sagt þessi orð á því andartaki sem þeir sprengja sig í loft upp. Í tilkynningu hersins sagði að í ljós hafi komið að Palestínumaðurinn hafi verið óvopn- aður. Ísraelskir skriðdrekar hafa setið um skrifstofur Arafats í Ramallah síðan í desember og kröfðust Ísraelar þess að palestínsk yfirvöld létu hand- taka þrjá menn er bæru ábyrgð á morðinu á ísraelskum ráðherra í ágúst sl. Mennirnir þrír hafa nú verið handteknir, en Ísraelar krefjast þess ennfremur að þeir verði framseldir og komi fyrir ísraelska dómstóla. Binyamin Ben-Eliezer, varnar- málaráðherra Ísraels, og Shimon Peres utanríkisráðherra eru fylgj- andi því að Arafat verði leystur úr herkvínni, en harðlínumaðurinn Avigdor Lieberman, sem er innanrík- isráðherra, sagði í gær að hann myndi draga flokk sinn út úr stjórnarsam- starfinu ef Arafat yrði leyft að fara frá Ramallah. Brotthvarf flokks Liebermans yrði álitshnekkir fyrir ríkisstjórn Ariels Sharons, en myndi þó ekki duga til að fella hana. Ísraelskur ráðherra hótar að draga flokk sinn út úr ríkisstjórn Sharons Rætt um hvort leysa skuli Arafat úr herkví Jerúsalem. AP. LÍK angólska uppreisnarleiðtogans Jonas Savimbis var sýnt frétta- mönnum í gær, að því er opinber fréttastofa Angóla greindi frá á fréttavef sínum. Var það gert til að sanna þá fullyrðingu angólskra stjórnvalda að Savimbi, forsprakki UNITA-skæruliðanna í landinu, hefði fallið í átökum við stjórnarher- inn sl. föstudag. Síðdegis í gær hafði enn ekki verið staðfest af óháðum aðilum að Sav- imbi hefði verið veginn, og að sögn portúgalska utanríkisráðuneytisins hafa áður borist fregnir af falli hans, en þær hafi reynst rangar. Frétta- mönnum var sýnt líkið í bænum Luc- usse í austurhluta Angóla, skammt frá þeim stað þar sem hann mun hafa verið felldur. Fréttastofa Ang- óla sagði Savimbi hafa verið skotinn fimmtán sinnum, og væri líkið af þeim orsökum óþekkjanlegt. Tveir lífverðir hans hefðu einnig fallið. Savimbi hefur leitt baráttu UNITA gegn stjórnarhernum, sem staðið hefur nær látlaust síðan Ang- óla fékk sjálfstæði frá Portúgal 1975. Hreyfing marxista, Þjóðfrelsisfylk- ing Angóla, komst þá til valda, og UNITA hóf skæruhernað gegn henni með stuðningi Bandaríkja- manna og Suður-Afríkumanna. Talið er að átökin hafi kostað meira en hálfa milljón mannslífa, og hundruð þúsunda hafa flú- ið átakasvæðin. Embættis- menn sögðu í gær að ekki væri ljóst hvað yrði gert við lík Savimbis, sem væri geymt í stjórnarbyggingu í Lucusse. Haft var eftir angólsk- um leyniþjónustumanni að flogið yrði með það til höfuðborgarinnar, Luanda. Fregnirnar af dauða Savimbis vöktu vonir um að friður kunni að komast á í Angóla. Tugir manna særðust í höfuðborginni Luanda í fyrrinótt þegar hermenn fögnuðu dauða Savimbis með því að skjóta af byssum sínum út í loftið, að því er lögreglan í borginni greindi frá. Herinn sagði í yfirlýsingu að Sav- imbi hefði fallið í árás hersins á UNITA-liða í suðausturhluta Ang- óla um klukkan þrjú síðdegis á föstu- dag. Fréttamönn- um sýnt lík Savimbis Lissabon, Lúanda. AFP, AP.  Peð í valdatafli/6 Savimbi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.