Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 19
þeir sem gerst til þessara mála þekkja ættu að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við löggjafann. Hjá embætti ríkissaksóknara skynjum við vel eitt meginmarkmið lögreglunnar, að koma í veg fyrir afbrot, ekki síður en að taka á frömdum brotum.“ Helgi Gunnlaugsson, dósent í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands, seg- ir skiljanlegt að óhugur grípi fólk þegar voðaverk eru unnin í íbúðar- hverfum. „Við erum fámenn þjóð og eigum auðvelt með að setja okk- ur í spor fórnarlambsins í svona tilviki. Auðvitað vildum við gjarnan að svona atburðir gerðust ekki hér, en það er hollt fyrir okkur að hafa í huga að við búum þrátt fyrir allt í mjög friðsömu og öruggu sam- félagi og getum verið stolt af mörgu. Við ættum því að gæta okkar á að skapa ekki of mikinn óróa í samfélaginu út af einstaka málum, sem þó hljóta ávallt að vekja skelfingu. Varðandi árangurinn í barátt- unni við fíkniefnin, þá er það nú svo að þessi efni hafa tekið sér ból- festu hér, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Meðferðartölur sýna að margt ungt fólk þarf að leita sér aðstoðar vegna misnotk- unar þessara efna, en meirihluti neytenda kemur þó hvergi nærri afbrotum og ofbeldi. Við þurfum að huga að eftirspurninni, hvað það er í samfélaginu sem gerir það að verkum að við viljum neyta allra þessara efna. Við verðum að leitast við að draga úr skaðanum sem efn- in valda. Það er hægt að gera á ýmsan hátt, til dæmis með fræðslu, með aðgengi að hreinum nálum fyrir langt leidda fíkla eða kennslu í hvernig hreinsa beri nálar og fleira í þeim dúr. Við berum öll ábyrgð á að draga úr skaðanum, án þess að horfa til öfganna, sem eru annars vegar hertar refsingar og hins vegar lögleiðing fíkniefna. Í Evrópu er mikil gerjun í þessum málum og þar er víða leitast við að finna lausnir í samvinnu við neyt- endur, enda er stríð gegn fíkniefn- um ekkert annað en stríð gegn fólki.“ Fræðsla og aðhald Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, segir að ekki verði enn séð fyrir endann á þeirri aukningu, sem orðið hefur í neyslu vímuefna hér á landi frá 1996. „Við megum ekki gleyma þeim árangri sem við náðum frá því að neyslan var mikil 1985–1987 og allt fram til 1996. Þá vorum við í ágætum málum, en þótt margt sé gert þurfum við enn að herða tökin. Löggæsla er auð- vitað forvarnarstarf og við höfum allt of lítið hugað að því að hefta aðgengi yngsta fólksins að vímu- efnum. Fræðsla dugar ekki á ung- linga undir 18 ára aldri, þar er það aðhaldið eitt sem dugar og full- orðna fólkið verður að axla þá ábyrgð. Við byrjuðum líka á vit- lausum enda í fræðslunni. Ungling- ar fá fræðslu, en ekki læknar, hjúkrunarfræðingar eða foreldrar. Er nú ekki tímabært að snúa þessu við? Þá vil ég ítreka, að það er gjör- samlega óviðunandi að við skulum ekki taka illa farna fíkniefnaneyt- endur, sem eru haldnir geðsjúk- dómum, og koma á skipulagðri meðferð fyrir þetta fólk, með við- unandi félagslegum úrræðum. Þetta eru ekki nema um 200 manns, sem þarf að sinna almenni- lega. Auðvitað er þetta dýrt, en það margborgar sig.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 19 Alltaf á þriðjudögum FRÉTTIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.