Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 9
Að gefnu tilefni þætti mér vænt um að fá að árétta að
Filippo Berio ólífuolían, sem fagnar sterkri markaðs-
hlutdeild um víða veröld, er framleidd eftir ströngustu
gæðakröfum. Afdráttarlaus hreinleiki hennar er
staðfestur af hundruðum rannsókna sem gerðar hafa
verið af ólíkum aðilum um allan heim.
Á meðal þeirra sem kynnt hafa sér þessar niðurstöður
er Hollustuvernd ríkisins á Íslandi sem um langt árabil
hefur fylgst grannt með gæðum þeirrar matvöru sem
flutt er til landsins.
Þegar fréttir bárust af því síðastliðið haust að ein tiltekin
athugun sem gerð var af norsku rannsóknafyrirtæki,
gæfi til kynna að gæði nokkurra tegunda af ólífuolíu
væru ekki ótvíræð, kannaði Hollustuvernd ríkisins málið
sérstaklega og gaf síðan út yfirlýsingu þann 3. október
sl. um að engar athugasemdir væru gerðar við
innflutning til landsins.
Opinbert gæðaeftirlit með matvöru er víðast um heim
afar öflugt – og ekki síst á Íslandi. Gæðakröfur og
daglegar rannsóknir Salov SpA, framleiðanda Filippo
Berio eru ekki síður afar strangar. Svo er einnig um
rannsóknir á fjölda annarra vörutegunda sem njóta
trausts og vinsælda á alþjóðlegum markaði.
Enda þótt mismunandi mikil mengun sé því miður
í andrúmslofti og um leið jarðvegi flestra gróðursælustu
landbúnaðarhéraða veraldar fylgjast allir vandaðir
bændur og aðrir matvælaframleiðendur, opinberar
eftirlitsstofnanir og ýmsir hagsmunaaðilar með því að
óæskileg efni séu innan strangra viðmiðunarmarka.
Á því sviði leitast Salov SpA við að vera fremst meðal
jafningja alla daga ársins!
Að gefnu tilefni ...
Afdráttarlaus gæði
- staðfest af Hollustuvernd ríkisins
Með kveðju og þökk fyrir mikil og ánægjuleg
viðskipti við íslenska neytendur um langt árabil,
Alberto Fontana
framkvæmdastjóri Salov SpA,
framleiðanda Filippo Berio