Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ umhugsunarfrest og ræða við fjöl- skyldu sína hvort þeir eigi að þiggja starfið. Það er stór ákvörð- un að starfa í þessum málaflokki. Við mættum kannski stundum fylgja þessum hótunum eftir, en oft er erfitt um vik því engin vitni eru að atburðum. Einhver þrífur í toll- vörð og hvíslar í eyra hans að hann viti í hvaða skóla börnin hans ganga. Fíkniefnasalar búa sér til rammgerð virki, jafnvel með myndavélum við útidyr og stál- hurðum. Þetta er ekki bara vegna þess að þeir halda að fylgst sé með þeim, heldur er ofsóknarbrjálæðið allsráðandi. Þá er styttra í ofbeldið á allan hátt. Þetta kemur í ljós á öllum snertiflötum þeirra við um- heiminn, hvort sem er við löggæslu eða í auknu ofbeldi í þjóðfélaginu.“ Helgi tekur undir að erfitt hljóti að vera að starfa í þessum heimi, enda ríki þar eins konar frumskóg- arlögmál, sem kalli fram ofbeld- isverk. „Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort mjög harðar lög- regluaðgerðir ýti undir ofbeldið og þær ranghugmyndir sem menn hafa í þessum heimi. Það er auð- vitað rétt, sem Þórarinn bendir á, að fíkniefni hafa mjög ólíka verkan. Amfetamínið er til dæmis örvandi á meðan kannabis er róandi. Amfetamínið kom í kjölfarið á kannabisefnum upp úr 1980. Þá hafði lögreglan lagt hald á svo mik- ið magn af kannabisefnum að talað var um kannabisþurrð. Ég velti því fyrir mér hvort þetta hafi beinlínis rutt brautina fyrir sterkari efni eins og amfetamín og önnur hvít efni, sem er auðveldara að smygla inn því miklu minna fer fyrir þeim og þau eru þar að auki lyktarlaus.“ Guðmundur vísar til þess að nú liggi fyrir upplýsingar frá ávana- og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík, þar sem fram komi að harðari viðurlög við innflutningi e- pillunnar hafi leitt til þess að menn veigri sér núna við slíkum innflutn- ingi. „Þetta gengur þvert á kenn- ingu þína, Helgi, því dómar vegna kannabismála eru miklu vægari en dómar vegna e-töflunnar og amf- etamíns. Stundum heyrast þær raddir að ekki eigi að banna kann- abisefni og að sums staðar erlendis sé neyslan leyfð. Þá er því til að svara að hér á landi er viðurlögum beitt fyrir meðhöndlun efnanna, kaup þeirra og sölu, en ekki fyrir það eitt sem fólk hefur látið ofan í sig. Í umræðunni hefur því borið á misskilningi. Ég held að við höfum ágæta löggjöf varðandi fíkniefna- málin.“ Guðmundur bætir við að mik- ilvægast sé að koma í veg fyrir að fólk leiðist út í fíkniefnaneyslu. „Það er grunnurinn, en við þurfum líka að skoða árangur meðferðar. Ég hef til dæmis ekki séð neinar kannanir hér á landi um hve marg- ir hætta neyslu eftir fyrstu, aðra eða þriðju meðferð.“ Þórarinn segir reynsluna hér heima og erlendis sýna að meðferð skili mjög góðum árangri. „Besta aðferðin til að fækka afbrotum er góð geðmeðferð og vímuefnameð- ferð. Fólk sem hættir að reykja þarf oft margar atrennur. Í með- ferð skiptir mestu að tryggja sam- starfsvilja sjúklinga. Staðreyndin er sú að um helmingur þess fólks sem kemur í fyrsta skipti í meðferð nær bata. Hinir koma aftur og þá næst einnig árangur. Flestir ná sér út úr þessu með tiltölulega fáum meðferðum, en þá situr eftir um 500 manna hópur, sem kemur aftur og aftur. Það er ódýrast fyrir heil- brigðiskerfið að hafa þetta fólk áfram í meðferð, því aðalkostnaður kerfisins vegna vímuefnaneytenda er á slysadeildum og almennum deildum sjúkrahúsanna.“ Ósanngjarnt að líta eingöngu til lögreglu og tollgæslu Jóhann er ánægður með þann mikla árangur sem hann segir að náðst hafi á síðustu tveimur árum. „Við vitum að verðið á fíkniefnum hefur farið hækkandi vegna þess að við höfum náð að greiða sölu- mönnum fíkniefna þung högg. Öll upplýst umræða er af hinu góða, en ég vara sterklega við hugmynd- um um lögleiðingu fíkniefna. Það er engin töfralausn, öðru nær. Margir líta til frjálsræðis í kann- abisneyslu í Hollandi, en gleyma því þá að Holland er mið- stöð fíkniefnadreifingar í Evrópu. Frjálsræðið hef- ur leitt til þess. Hins veg- ar er margt athyglisvert hjá þeim, til dæmis mjög mikið forvarnarstarf, markvissar og harðar að- gerðir tollgæslu og lög- reglu og svo nálgast þeir málið sem heilbrigðis- vandamál og ákveðnir sjúklingar fá meðhöndlun í samræmi við það. Við eigum að forðast að ein- falda þessa umræðu um of. Það er til dæmis mjög ósanngjörn og óraunhæf krafa að ætlast til að lög- regla og tollgæsla leysi þetta mál. Við verðum vissulega að berjast gegn þessum vágesti eins og við getum, en við verðum að ná sátt um hve mikl- um fjármunum á að eyða í þetta. Mér finnst líka vanta mikið á fræðslu og forvarnir bæði í skólum og meðal foreldra. Hversu margir þekkja til dæmis einkenni fíkniefnaneyslu? Lykta efnin eða sérðu það á augum ung- menna að þau hafi neytt fíkniefna? Hvernig breytist fólk í hegðun?“ Helgi segist vita að lögreglan standi sig vel í að framfylgja þeim lögum sem hún hafi til að styðjast við. „Það er hins vegar erfiðara að meta árangurinn, til dæmis virðist eftirspurn eftir fíkniefnum vera nokkuð stöðug og framboðið nægt, sem sést á því að verðlagið hefur lítið breyst. Það veldur þó áhyggj- um að framboð á sterkari efnum virðist jafnvel vera meira en fram- boð á veikari efnum í ljósi nýlegra frétta frá lögreglunni.“ Þórarinn segir að árangur með- ferða sjáist til dæmis á því að nú leiti hlutfallslega miklu færri yfir þrítugt sér meðferðar en áður, en fjölmennustu aldurshóparnir eru 18 og 19 ára. „Kannabisneyslan flyst greinilega ekki upp um ald- urshópa, svo aðgerðir í þjóðfélag- inu eru greinilega að skila sér. Það er alls ekki hægt að hugsa sér að sleppa löggæsluþættinum og lög- leiða kannabisefni.“ „Það er stöðug eftirspurn og fólk virðist alltaf geta náð sér í efni,“ segir Helgi. „Ég held í sjálfu sér að fáir ræði í fullri alvöru að við ættum að lögleiða fíkniefni og það má benda á að ekkert vestrænt ríki hefur lögleitt fíkniefni.“ Hæstiréttur mótar stefnuna Þegar voðaverk eru framin verða raddir um strangari refs- ingar oft háværar. Nú hafa dóm- stólar tekið hart á fíkniefnamálum, sérstaklega þó málum þar sem e- pillan kemur við sögu. Myndu harðari refsingar við of- beldisverknaði hafa sömu fæliáhrif? Sigríður tekur undir að dómar í fíkniefnamál- um sýni að dómstólar taka hart á slíkum brot- um. „Alvarlegustu lík- amsárásirnar geta varð- að allt að 16 ára fangelsi, en það viðmið er langt frá þeim dóm- um sem falla. Af hálfu ákæruvaldsins er tiltek- ið í hverju einstöku máli hvað eigi að hafa áhrif á refsinguna. Brot sem beinast gegn lífi og lík- ama fólks hljóta að vega þar einna þyngst, en einnig er litið á brota- vilja viðkomandi og fleira. Ef málinu er áfrýjað, sem nær oftast er af hálfu dómþolanna, þá krefst ákæruvaldið alltaf þyngingar á refs- ingu. Það er þá Hæsta- réttar að móta stefnuna. Við heyrum auðvitað þjóðfélagsumræðuna um að dómar í líkamsárásamálum og kynferðis- afbrotamálum ættu að vera þyngri, en embætti ríkissaksóknara getur ekki gert annað en að leggja mat á því í hendur dómstóla.“ Guðmundur bætir við að þótt strangir dómar í e-pillumálum hafi leitt til þess að Íslendingar veigri sér nú við að smygla efninu til landsins, þá sé ekki þar með sagt að þyngri dómar í ofbeldisbrota- málum hafi sömu áhrif. „Það gildir annað um smygl á fíkniefnum, sem er vandlega undirbúið brot, sem töluverðan tíma tekur að skipu- leggja og framkvæma, en skyndi- lega árás. Þar gefa menn sér ekki tíma til að hugleiða afleiðingar verknaðarins, bæði fyrir fórnar- lambið og árásarmanninn sjálfan. Ef svo væri myndi slíkum verkn- uðum fækka.“ Þarf að breyta umhverfinu sem ofbeldið sprettur úr Af umræðunni síðustu daga er ljóst að almenningi er mjög brugð- ið vegna atburðarins á Víðimel, þar sem saklaus vegfarandi lá í valn- um. Hvað er til ráða til að auka ör- yggi borgaranna? Guðmundur Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn hjá embætti ríkislög- reglustjóra, bendir á að embætti ríkislögreglustjóra hafi þegar haf- ist handa við að kortleggja vand- ann, til dæmis með samantekt um ofbeldisverk. „Slíka samantekt, þar sem fram kemur hvenær og hvar brot eru framin, auk margra ann- arra atriða, er hægt að nýta í bar- áttunni gegn ofbeldinu. Það koma hins vegar fleiri að þessum málum, s.s. félagsmála- og heilbrigðisyfir- völd. Mörg alvarlegustu ofbeldis- verkin gerast innan veggja heim- ilanna og í nýlegri könnun lög- reglunnar í Reykjavík, sem framkvæmd var af Margréti Lilju Guðmundsdóttur og Rannveigu Þórisdóttur, kemur fram að 41% aðspurðra höfðu mestar áhyggjur af ofbeldisverkum. Almenningur vill berjast gegn ofbeldi, en þessi sami almenningur fremur brotin, undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Við þurfum að reyna að breyta því umhverfi sem ofbeldið sprettur upp úr og almenningur verður að gera sér grein fyrir hvaða kringumstæður leiða til of- beldisverka, svo hann geti forðast þær. Ég vil því benda fólki á að það getur kynnt sér skýrslu rík- islögreglustjórans um brot gegn lífi og líkama á heimasíðu lögregl- unnar, logreglan.is.“ Jóhann R. Benediktsson, sýslu- maður á Keflavíkurflugvelli, segir að hjá lögreglu og tollgæslu sé já- kvæð þróun í gangi. „Nú nálgast menn vandann á vísindalegan hátt, með kortlagningu brota og orsaka vandans. Umræðan er upplýstari en áður og á eftir að skila okkur fram á veginn. En vissulega hafa menn miklar áhyggjur af fíkniefn- unum og það er erfitt að meta ár- angurinn. Ég vil þó benda á að fyr- ir 1999 gripum við varla nokkurn útlending við fíkniefnainnflutning, en þegar betur fór að ganga að koma böndum á íslenska sölumenn fíkniefna þá brást þeim kjarkur. Nú er á annan tug útlendinga á bak við lás og slá eða nýbúnir að afplána dóma fyrir fíkniefnasmygl. Þetta eru Hollendingar, Frakkar, Þjóðverjar, Bretar og Danir og það er alveg ljóst að þetta hlýtur að endurspegla árangurinn. Ég vil líka nefna að í september 1999 endurskipulögðum við fíkniefna- deild tollgæslunnar á Keflavíkur- flugvelli. Fyrstu níu mánuði þess árs fundum við ólögleg fíkniefni að götuverðmæti um 3 milljónir króna, en það sem eftir lifði ársins efni að verðmæti 15 milljónir króna. Árið 2000 var þessi tala komin upp í 100 milljónir og í fyrra 300 milljónir króna, en þá kom reyndar inn eitt mjög stórt mál. Þessi árangur byggist m.a. á aukn- um fjárveitingum, betri samvinnu og meiri menntun tollgæslu- og lögreglumanna.“ Jóhann og Guðmundur segja að þótt útlendingar séu í auknum mæli gripnir við fíkniefnasmygl þýði það ekki að erlend glæpa- samtök hafi náð að hasla sér völl hér á landi. Guðmundur vísar m.a. til þess, að frá 1999 hafi samstarfs- hópur lögreglu og tollgæslu unnið að því að afla upplýsinga um glæpasamtök á borð við hina dönsku Hell’s Angels, með það að markmiði að koma í veg fyrir að skipulögð glæpastarfsemi nái hér fótfestu. „Ég get bætt því við, að grunur leikur á að hluti af þeim fíkniefnum sem við höfum nýlega lagt hald á á Keflavíkurflugvelli tengist skipulagðri, erlendri glæpa- starfsemi. En þá sendingu stöðv- uðum við,“ segir Jóhann. Friðsamt þjóðfélag, þrátt fyrir allt Sigríður Jósefsdóttir saksóknari segir að forvarnir í sinni víðtæk- ustu mynd hljóti að vera mikilvæg- astar í baráttunni gegn fíkniefnum og ofbeldisglæpum. „Nýmæli í lög- gjöf eða breytingar á löggjöf eru auðvitað pólitískar ákvarðanir, en Morgunblaðið/Kristinn Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn: „Um 1990 var mikil umræða um aukið ofbeldi. Lögreglan hafði af þessu áhyggjur, þar sem henni fannst umræðan ómálefnaleg og geta hvatt fólk til að vopnast, sér til varnar, en beita svo vopninu í árásarskyni í hita leiksins. Ég man eftir ungum manni, sem var vel gerður í alla staði að því er menn best vissu og hafði gengið vel í lífinu. Hann var samt kominn með hníf sér í hönd og beitti honum á annað fólk. “ Jóhann R. Benediktsson sýslumaður: „Lögreglan þekkir það vel, rétt eins og tollverð- irnir hjá okkur á Keflavíkurflugvelli, að hótanir eru algengar. [...] Við mættum kannski stundum fylgja þessum hótunum eftir, en oft er erfitt um vik því engin vitni eru að atburðum. Einhver þríf- ur í tollvörð og hvíslar í eyra hans að hann viti í hvaða skóla börnin hans ganga. “ Helgi Gunnlaugsson félagsfræðingur: „Amfetamínið kom í kjölfarið á kannabisefnum upp úr 1980. Þá hafði lögreglan lagt hald á svo mikið magn af kannabisefnum að talað var um kannabisþurrð. Ég velti því fyrir mér hvort þetta hafi beinlínis rutt brautina fyrir sterkari efni eins og amfetamín og önnur hvít efni, sem er auðveld- ara að smygla inn því miklu minna fer fyrir þeim og þau eru þar að auki lyktarlaus.“ Sigríður Jósefsdóttir saksóknari: „Á síðasta ári voru gefnar út 18 ákærur vegna stórfelldra líkamsárása, þar af 11 vegna árása ár- ið 2000 og sjö frá 2001. Þessi mál eru mörg mjög alvarleg, menn beita hnífum, brotnum flöskum, hættulegum höggum í höfuð, taka fórn- arlömbin hálstaki svo þau missa meðvitund og eitt dæmi er um að bifreið var ekið viljandi á mann.“ Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir: „Það er fyrst nú á síðustu árum sem grundvöllur er til að tala um skipulögð ofbeldisverk. Breyt- inguna má rekja til amfetamínneyslunnar, það er aðalvímuefnið hér og það efni sem nær sterk- astri ánetjan. Það hefur lengi verið tengt ofbeldi og menn jafnvel tekið svo til orða að það geti valdið morðfýsn.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.