Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Erum við bræður ekki örugglega búnir að tryggja okkur aðalhlutverkin í „skaupi 2002“, Markús minn? Landssöfnun Geðhjálpar Betri meðferð – ný störf Á NÆSTU dögummun Geðhjálp faraaf stað með lands- söfnun. Geðhjálp er sjálf- stæð hagsmunasamtök þeirra sem hafa þurft eða þurfa aðstoð vegna geð- rænna vandamála, að- standenda þeirra og ann- arra er láta sig geðheil- brigðismál varða um land allt. Formaður Geðhjálpar er Sveinn Magnússon og hann sat fyrir svörum Morgunblaðsins á dögun- um. Hvernig fer landssöfn- unin fram? „Landssöfnun Geð- hjálpar mun ná hámarki 2. mars nk. en þá mun verða gengið í hús um land allt með söfnunarbauka og leitað eftir fjárframlögum lands- manna. Í þessu sambandi hefur verið leitað eftir aðstoð Kiwanis- hreyfingarinnar og aðildarfélaga Íþróttasambands Íslands. Upp- lýsingum verður samhliða dreift þar sem gerð er grein fyrir til- gangi og markmiðum landssöfn- unarinnar sem og haldgóðar upp- lýsingar um leiðir til að inna af hendi framlög og minnt á hápunkt landssöfnunarinnar sem verður um kvöldið klukkan 20 til 22 í sjónvarpsþættinum „Milli himins og jarðar“ á RÚV. Reynslusögur, afþreyingarefni, áheit tengd víta- keppni í handbolta ásamt viðtöl- um og almenn geðumfjöllun verð- ur meginuppistaða viðkomandi þáttar. Hjá SPRON verður sér- stakur reikningur vegna lands- söfnunarinnar á nafni Geðhjálpar opnaður og er hann númer 65000. Frjáls framlög er hægt að hringja inn í símanúmerið 590 7000. Nú, ef hringt er í númerið 907 2070 er framlag að upphæð kr. 1000, sjálf- virkt skuldfært á símreikning við- komandi. Þessa vikuna verður margvísleg umfjöllun í fjölmiðlum almennt um geðmálefni og kynn- ing á landssöfnun Geðhjálpar.“ Hafið þið sett ykkur einhver markmið með söfnuninni? „Slagorð söfnunar Geðhjálpar er: Ný meðferð – Ný störf fyrir geðsjúka. Í samstarfi við þá aðila sem nú þegar sinna málefnum fólks með geðraskanir ætlar Geð- hjálp að taka þátt í að efla og móta ný og breytt meðferðarúr- ræði. Með aðkomu fagfólks og fólks með persónulega reynslu af geðröskunum, sem náð hefur bata, verður horft til valmögu- leika fólks á nýjum úrræðum frá ríkjandi þáttum sem viðhafðir eru í samfélaginu í dag. Í þessu sam- bandi má m.a. nefna endurhæf- ingu, stuðning og eftirfylgni, for- varnir, fjölskyldumeðferð og sjálfshjálp. Hér er um hvort tveggja að ræða einstaklings- og hópmeðferðarúrræði. Samhliða þessu er horft til þeirrar brýnu þarfar að skapa arðbær störf sem með góðu móti er hægt að laga að þörfum og getu fólks með geð- sjúkdóma þar sem samfélagsleg nauðsyn á virkni og hlutverki einstaklingsins er höfð að leiðarljósi.“ Hvernig verður pen- ingunum sem safnast varið? „Þetta grundvallast að sjálf- sögðu á því hvað samfélagið legg- ur okkur til miðað við tilgreind markmið. En stefnt er að því að byggja upp fyrrgreind meðferð- arúrræði hér á landi sem hafa sannað sig í nágrannaþjóðfélög- um okkar og víðar um heim. Því má segja, að því meir sem við öfl- um verður mögulegt að koma fleirum og ekki síður fyrr í með- ferð þar sem biðlistar í dag skipta hundruðum. Varðandi ný störf er m.a. stefnt að ráðstöfun fjár til að- stöðu og kaupum á vélbúnaði til framleiðslu á tilbúnum eldiviðar- kubbum, en þeir yrðu unnir úr hliðarafurðum úr iðnaði, vaxi og sagi. Þó ekki væri nema brot lagt til hliðar af þeim samfélagslega kostnaði sem geðraskanir valda, þ.e. fjárfest í geðheilbrigði, má leggja líkur að því að efnahags- legar forsendur breyttust til batnaðar á ýmsum sviðum. Geð- sjúkdómar valda meira vinnutapi og kostnaði en flestir aðrir sjúk- dómar. Áætlað er að þetta kosti íslenskt þjóðarbú um 3–4% af vergri þjóðarframleiðslu á ári hverju, eða hátt í á þriðja tug milljarða.“ Hvert er aðalhlutverk Geð- hjálpar? „Geðhjálp er sjálfstæð hags- munasamtök stofnuð 1979 fyrir þá sem hafa þurft eða þurfa að- stoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra er láta sig geðheilbrigðismál varða um land allt.“ Hversu margir leita eftir að- stoð Geðhjálpar? „Nú leita milli 60 og 70 einstak- lingar að jafnaði til Geðhjálpar á degi hverjum eftir aðstoð af ýms- um toga og með ýmsu móti, koma í eigin persónu, hringja, bréfleiðis og/eða hafa samband með tölvu- pósti. Það má í senn segja að það sé ánægjuleg og sorgleg sú aukning fólks sem við höfum orðið vör við á undanförnum misser- um, sem til okkar leitar. Þar á ég við að fólk leitar sér aðstoðar, sjálft eða aðstandendur fyrr en ella sem er nauðsynlegt og ánægjulegt en að sama skapi sorglegt hversu margir eiga við þessi vandamál að etja. Talið er að fjórði hver einstaklingur standi frammi fyrir alvarlegri geðröskun einhvern tíma á lífs- leiðinni.“ Sveinn Magnússon  Sveinn Magnússon er fæddur á Selfossi 4. september 1957. Ólst upp í Reykjavík, en Hafnfirð- ingur frá 1979. Stúdent frá hag- fræðideild VÍ 1977. Innkaupa- stjóri hjá Stálvík hf. í Garðabæ og síðar Íslenska stálfélaginu hf. og því næst rekstrarstjóri brota- járnsvinnslu 1990–2000. Fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar frá 1. september 2000. Sveinn er giftur Sólveigu A. Skúladóttur leik- skólakennara, starfandi hjá Líf- eyrissjóði verslunarmanna, og eiga þau tvo syni, Magnús Leif og Þorstein Skúla. …sem er sorglegt og ánægjulegt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.