Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 9

Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 9
Að gefnu tilefni þætti mér vænt um að fá að árétta að Filippo Berio ólífuolían, sem fagnar sterkri markaðs- hlutdeild um víða veröld, er framleidd eftir ströngustu gæðakröfum. Afdráttarlaus hreinleiki hennar er staðfestur af hundruðum rannsókna sem gerðar hafa verið af ólíkum aðilum um allan heim. Á meðal þeirra sem kynnt hafa sér þessar niðurstöður er Hollustuvernd ríkisins á Íslandi sem um langt árabil hefur fylgst grannt með gæðum þeirrar matvöru sem flutt er til landsins. Þegar fréttir bárust af því síðastliðið haust að ein tiltekin athugun sem gerð var af norsku rannsóknafyrirtæki, gæfi til kynna að gæði nokkurra tegunda af ólífuolíu væru ekki ótvíræð, kannaði Hollustuvernd ríkisins málið sérstaklega og gaf síðan út yfirlýsingu þann 3. október sl. um að engar athugasemdir væru gerðar við innflutning til landsins. Opinbert gæðaeftirlit með matvöru er víðast um heim afar öflugt – og ekki síst á Íslandi. Gæðakröfur og daglegar rannsóknir Salov SpA, framleiðanda Filippo Berio eru ekki síður afar strangar. Svo er einnig um rannsóknir á fjölda annarra vörutegunda sem njóta trausts og vinsælda á alþjóðlegum markaði. Enda þótt mismunandi mikil mengun sé því miður í andrúmslofti og um leið jarðvegi flestra gróðursælustu landbúnaðarhéraða veraldar fylgjast allir vandaðir bændur og aðrir matvælaframleiðendur, opinberar eftirlitsstofnanir og ýmsir hagsmunaaðilar með því að óæskileg efni séu innan strangra viðmiðunarmarka. Á því sviði leitast Salov SpA við að vera fremst meðal jafningja alla daga ársins! Að gefnu tilefni ... Afdráttarlaus gæði - staðfest af Hollustuvernd ríkisins Með kveðju og þökk fyrir mikil og ánægjuleg viðskipti við íslenska neytendur um langt árabil, Alberto Fontana framkvæmdastjóri Salov SpA, framleiðanda Filippo Berio

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.