Morgunblaðið - 24.02.2002, Side 2

Morgunblaðið - 24.02.2002, Side 2
UNNIÐ var að hreinsun vega í gær eftir hvassviðri og hríð víða um land undanfarið. Ágæt færð var í nágrenni Reykjavíkur en hálka og hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum. Fært var orðið í gærmorgun norð- urleiðina til Akureyrar og Húsavíkur og verið var að moka Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðar- heiði. Einnig var unnið að hreinsun vega í Ísafjarðardjúpi og um suður- ströndina austur á firði. Leiðindaveður var enn í Odds- skarði og hvasst undir Hafnarfjalli í gær. Unnið að hreinsun vega FRÉTTIR 2 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ LOÐNAN hellist nú inn í fiskimjöls- verksmiðjur víða um land en veiðar hafa gengið mjög vel að undan- förnu. Loðnukvóti fiskveiðiársins er nú ríflega hálfnaður og ljóst að ef fram heldur sem horfir og veð- urguðir verða hliðhollir sjómönn- um mun takast að veiða kvótann. Loðnuveiðarnar gengu nokkuð rysjótt fyrir sig framan af eftir ára- mótin, ótíð gerði skipum sem veiða í nót erfitt fyrir en betur gekk hjá þeim skipum sem veiddu í troll. Eft- ir að loðnan gekk upp á land- grunnið hefur hún veiðst í miklu magni suðaustur af landinu síðasta hálfan mánuðinn. Til þessa hefur langstærsti hluti aflans farið til bræðslu en hrognafylling loðnunn- ar er þó orðin nægilega mikil til að frysta hana fyrir Japansmarkað. Hinsvegar hefur verið mikil áta í loðnunni sem borist hefur á land allra síðustu daga og hún því að litlu leyti farið í frystingu. Loðnan veiðist nú nánast uppi í fjöru rétt austan við Ingólfshöfða og þokast hægt og sígandi vestur með landinu. Góð veiði var á loðnu- miðunum á föstudagsmorgun en síðdegis var brostin á bræla og leit- uðu flest skipin vars vestan við Ing- ólfshöfða. Nokkru fyrir miðnætti lygndi á ný og gerði þá mokveiði um 16 sjómílur vestan af höfðanum. Alls hafa íslensk skip nú borið um 400 þúsund tonn af loðnu á land frá áramótum og 547 þúsund tonn að sumar- og haustvertíðum með- töldum. Þá eru um 420 þúsund tonn eftir af heildarkvóta ársins, sam- kvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva. Samanlögð afkastageta íslensku fiskimjölsverksmiðjanna er rúm 16 þúsund tonn á sólarhring og því má ætla að það taki verksmiðjurnar um 26 daga að vinna það sem eftir er af kvótanum, að því gefnu að veiði haldist góð og veður skaplegt. Loðnuvertíðin stendur jafnan út marsmánuð. Morgunblaðið/Þorgeir Skipin fá fullfermi í fáum köstum og stundum meira til og þá njóta nærliggjandi skip góðs af. Skipverjar á Hörpu VE búa sig undir að dæla loðnu úr nót Sigurðar VE sem var þegar fullhlaðinn. Góð loðnuveiði hefur verið þegar gefið hefur. Helmingur kvótans kominn á land MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI telur nú tímabært að hefja mark- visst starf í því skyni að stytta nám til stúdentsprófs með áherslu á nýja skipan framhaldsskólanáms. Á næstunni verður skipuð verkefnis- stjórn sem mun næsta haust skila tillögum um framkvæmd styttingar framhaldsskólanáms um eitt ár. Þetta kom m.a. fram á málþingi sem menntamálaráðuneytið efndi til í byrjun febrúar um styttingu náms til stúdentsprófs. Til þingsins var boðið fulltrúum skólastiga, kennara og samtaka foreldra. Tilgangur þingsins var að kanna hug þessa fólks til málsins og leita svara við ýmsum spurningum. Á málþinginu kom meðal annars fram að um miðjan níunda áratug- inn voru þau sjónarmið ráðandi í umræðu um skipan íslenskra skóla- mála að ekki bæri að stytta nám til stúdentsprófs. Þessi viðhorf hafi breyst og snemma á tíunda ára- tugnum skilaði nefnd um mótun menntastefnu skýrslu þar sem mælt var með styttingu framhaldsskólans um eitt ár auk þess sem gert var ráð fyrir að hann starfaði í tíu mán- uði í stað níu ár hvert. Var frum- varp til framhaldsskólalaga samið á þessum forsendum en Alþingi sner- ist gegn lengra skólaári strax og frumvarpið var lagt fram. Það varð að lögum 1996 og sama ár var grunnskólinn fluttur frá ríki til sveitarfélaga. Í frétt frá ráðuneytinu segir að í samræmi við eindregin tilmæli á málþinginu undirbúi ráðuneytið nú faglega úttekt á innihaldi náms en gerður verður samanburður á námsþáttum sem kenndir eru á til- teknum bekkjarstigum svo og á námskröfum, bæði í grunnskólum sem og framhaldsskólum. Nám hér á landi verði borið saman við nám í tveimur hinna Norðurlandanna, einkum með tilliti til þess hvort hægt sé að nýta kennslutíma í grunn- og framhaldsskólum betur, fækka viðfangsefnum eða flytja námsþætti milli skólastiga. Menntamálaráðherra hefur ákveðið að skipa verkefnisstjórn innan ráðuneytisins til að vinna að þessu máli. Að sögn Karls Krist- jánssonar, deildarstjóra framhalds- skóla- og fullorðinsfræðsludeildar menntamálaráðuneytis, mun hópur- inn gera tillögur um hvernig standa beri að framkvæmd styttingar náms til stúdentsprófs og kanna áhrif styttingar náms á ýmsa þætti, s.s. byggingarmál og kjarasamninga kennara. „Á næstunni verður ráðinn verkefnisstjóri sem mun hafa um- sjón með verkefninu og vinna undir stjórn verkefnisstjórnarinnar sem verður skipuð starfsmönnum ráðu- neytisins.“ Karl segir ómögulegt á þessu stigi málsins að segja til um hvenær stytting framhaldsskólanáms komi til framkvæmdar en verkefnis- stjórnin á að skila tillögum sínum næsta haust. Tímabært að hefja markvisst starf að styttingu náms INFLÚENSA af A-stofni og RS-sýkingar sem leggjast þyngst á innan við ársgömul börn með háum hita og öndun- arfærasýkingum hafa geisað að undanförnu á höfuðborgar- svæðinu. Þórður Þórkelsson, barnalæknir á Landspítala við Hringbraut, segir að þessar pestir séu erfiðari og meiri en í fyrra og mikið álag hafi verið vegna þeirra á bráðamóttöku barna, hjá Barnalæknaþjónust- unni í Domus Medica og Læknavaktinni í Smáranum. Þórður Þórkelsson segir ein- kenni flensunnar vera háan hita og RS, sem hann segir vera kvefveiru er valdi einkum önd- unarfærasýkingum. RS valdi oft slæmum kvefsýkingum, börn eigi erfitt með andardrátt og vilji ekki drekka. Sýkingin geti þannig náð niður í lungu og valdið astmakvefi. Hann segir mikið hafa verið leitað til bráða- móttökunnar vegna þessara sjúkdóma. Leggja þurfi börn inn í sumum tilvikum, ekki síst ef gefa þarf þeim súrefni eða úða til að létta undir með öndun eða næringu í æð ef þau hafa ekki getað drukkið. Segir Þórð- ur ekki um lyfjameðferð að ræða í þessum tilvikum. Þá segir Þórður að helsta ráð- ið við þessum slæmu veikindum sé að gefa hitalækkandi lyf og halda vökva að börnunum. Segir hann rétt að fólk leiti síðan læknis ef hiti og önnur einkenni eru viðvarandi. Hann sagði álagið mikið um þessar mundir og ógerning að segja hvort þess- ar pestir hefðu náð hámarki. Erfiðari pestir og leggjast þyngra á börn KATRÍN Gunnarsdóttir sigraði í einstaklingskeppni Frístæl-dans- keppni Tónabæjar sem fram fór á föstudagskvöld. Katrín var einnig í hópi stúlkna frá Reykjavík sem sigraði í hópakeppninni og kall- aði sig Eldmóður. Á myndinni má sjá stúlkurnar í Eldmóði, frá vinstri: Emilía Otte- sen, Ólöf Helga Gunnarsdóttir, Hildur Jakobína Tryggvadóttir, Hugrún Árnadóttir, Katrín Gunn- arsdóttir, Eva Dögg Ingimars- dóttir og Heiða Björk Ingimars- dóttir. Líkt og undanfarin ár var mjög mikill áhugi fyrir keppninni í ár en rétt til þátttöku hafa ungling- ar á aldrinum 13–17 ára. Að þessu sinni tóku 150 keppendur alls staðar að af landinu þátt, en þetta er í 21. sinn sem keppnin er haldin. Það er að venju fé- lagsmiðstöðin Tónabær sem stendur að keppninni en hún fór fram í íþróttahúsi Fram. Morgunblaðið/Sverrir Eldmóður dansaði til sigurs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.