Morgunblaðið - 24.02.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Ég hef ferðast víða og með ýmsum ferðaskrifstofum, bæði innlendum
og erlendum, en þessi fyrsta ferð mín með Heimsklúbbi Ingólfs
toppar allt það sem ég hef áður upplifað.
Ég gef henni 5 stjörnur.” Jón Kjartansson, Vestm.
„Ævintýraferðin til Bali með viðkomu í Singapore og Kuala Lumpur
verður öllum ógleymanleg vegna framúrskarandi
skipulags og gistingar alls staðar.“
Marinó Guðmundsson og frú.
„Við viljum koma á framfæri þakklæti fyrir sérstaklega vel skipulagða
og skemmtilega ferð. Hún hefur verið eitt ævintýri. Öll þjónusta
og viðmót til fyrirmyndar.” Ludý og Eygló, heimsflakkarar.
„Allir fara heim með sjóð fagurra minninga frá þessari frábæru ferð,
þar sem fólk hefur ferðast um undraheima Asíu að hætti stórmenna
fyrir verð skíðaferðar til Evrópulanda.” Kveðjur Sigmundur.
Kveðja frá Austurlöndum
Hamingjusamur hópur sendir sólskinskveðjur frá
töfraeyjunni Bali í lok stórkostlegrar ferðar
Heimsklúbbsins-Príma undir listagóðri fararstjórn
Sigmundar Andréssonar. Fyrir hönd hópsins
sendum við þakkir okkar fyrir ógleymanlega daga
og frábæra tilhögun og samninga Heimsklúbbsins,
sem við njótum á ótrúlega góðum kjörum.
NEMENDASKIPTI milli landa
Evrópu eru alltaf að verða tíðari.
Nemendur dvelja þá ýmist í stutt-
an tíma í öðru landi og fræðast
um land og þjóð eða í lengri tíma
og taka að fullu þátt í hversdags-
legu lífi nemenda í viðkomandi
landi.
Síðastliðinn mánudag komu til
landsins 20 franskir nemendur
ásamt 3 kennurum í tengslum við
skólaskiptaverkefni Mennta-
skólans við Sund. Frakkarnir
munu dvelja hér á landi í tvær
vikur og kynnast landi og þjóð.
Síðan munu 22 íslenskir nem-
endur og 2 frönskukennarar fara
til Frakklands 13. mars og vera í
tvær vikur. Nemendurnir þurfa
að leysa verkefni og fyrir það fá
þeir styrk. Heiti verkefnisins er
„Les plages volcaniques d’Islande
et du Débarquement en Normand-
ie“. Frönsku nemendurnir koma
úr fjölbrautaskólanum Dumont
d’Urville í Caen í Norður-Frakk-
landi og hafa valið að fjalla um
jarðfræði Íslands í sínu verkefni.
Íslensku nemendurnir ætla hins
vegar að fræðast og vinna verk-
efni um innrásina í Normandí og
munu í heimsókn sinni til Frakk-
lands nálgast viðfangsefnið frá
ýmsum hliðum í gegnum fyrir-
lestra og skoðunarferðir.
Skólaskiptaverkefnið er styrkt
af framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins og er það unnið und-
ir merkjum Sókrates/Comenius.
Efla samvinnu og auka
hreyfanleika nemenda
Sigurbjörg Eðvarðsdóttir,
frönskukennari í Menntaskól-
anum við Sund, kom að undirbún-
ingi verkefnisins fyrir hönd skól-
ans. Hún segir markmið Sókrates-
menntastefnunnar vera að efla
samvinnu og hreyfanleika nem-
enda og styrkja Evrópu á sviði
menntunar. „Stefnan nær til allra
skólastiga, allt frá leikskólum og
upp úr,“ segir hún.
Sigurbjörg segir að sótt sé um
styrk úr sjóðum Sókratesar og
þurfa nemendur að skila nið-
urstöðum verkefnis síns í ein-
hverju formi, svo sem með
skýrslu, gerð heimasíðu eða öðr-
um hætti.
Þrjúþúsundasti nemandinn í
skólaskiptum við Frakkland
Frönsku nemendurnir komu
hingað í síðustu viku og byrjuðu á
því að dvelja í Hlíðardalsskóla. Til
stóð að þeir myndu skoða Sól-
heimajökul og sandana á Suður-
landi en vegna veðurs varð að
hverfa frá því. Dagskrá þeirra á
meðan á dvölinni stendur er fjöl-
breytt. Auk skoðunarferða hafa
nemendurnir setið kennslustundir
í MS. „Allir Frakkarnir búa hjá ís-
lenskum fjölskyldum meðan þeir
dvelja hér,“ útskýrir Sigurbjörg.
Þetta er í annað sinn sem
franskir nemendur heimsækja
Menntaskólann við Sund og nem-
endur þaðan fara í staðinn til
Frakklands á vegum Sókrates-
menntastefnunnar. Sigurbjörg
segir að í hópi íslensku nemend-
anna sem fara til Frakklands í
mars sé þrjúþúsundasti nemand-
inn sem hefur tekið þátt í skóla-
skiptum við Frakkland.
Francois Scheefer hefur staðið
fyrir því að koma á skólaskiptum
milli Frakklands og Íslands mörg
undanfarin ár, en hann er fransk-
ur og hefur verið búsettur á Ís-
landi um árabil. „Síðan hann hóf
þetta starf hafa rúmlega 20 skól-
ar á Íslandi og í Frakklandi tekið
þátt í þessum skólaskiptum, bæði
grunnskólar og framhaldsskólar
um land allt,“ segir Sigurbjörg.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frönsku nemendurnir skoðuðu Ráðhúsið á föstudaginn.
Tuttugu nemendur frá Norður-Frakklandi í heimsókn á Íslandi
Jarðfræði
Íslands og
innrásin í
Normandí
AMNESTY International áætlar að
135 milljónir kvenna og stúlkna í
heiminum í dag hafi þolað umskurð
og að um 2 milljónir stúlkubarna á
aldrinum 4–12 ára séu umskornar á
ári hverju. Þetta kom fram í fyrir-
spurn Ástu R. Jóhannesdóttur þing-
manns um bann við umskurði
stúlkna á Alþingi fyrr í mánuðnum.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði að umskurður gæti ekki
talist til heilbrigðisþjónustu heldur
hlyti að falla undir líkamlegt ofbeldi.
Ásta sagði í fyrirspurn sinni að
umskurður væri eitt stærsta heil-
brigðisvandamál kvenna í heiminum
og að afleiðingar þess væru marg-
víslegar og alvarlegar, svo sem
bráðalost, sýkingar í þvagrás og leg-
göngum, stífkrampi, HIV-smit,
ófrjósemi og oft dauði, svo fátt eitt
væri nefnt.
„Þessi glæpur, eða skurðaðgerð
við afar frumstæðar aðstæður, við-
gengst í 28 Afríkulöndum og víða í
löndum múslíma,“ sagði Ásta. „Þó að
við höfum sem betur fer ekki reynslu
af þessum voðaverkum tel ég að okk-
ur beri að leggja okkar af mörkum í
baráttunni gegn þeim. Í fjölþjóðleg-
um samfélögum í okkar vestræna
heimi er þetta orðið nokkuð stórt
vandamál. Vitað er að umskurður á
stúlkubörnum hefur viðgengist svo
sem í Danmörku, Bretlandi, Svíþjóð,
Frakklandi, Ítalíu, Hollandi, Banda-
ríkjunum, Kanada og Ástralíu. Þar
eru þessar aðgerðir framkvæmdar í
trássi við lög viðkomandi landa.
Þettu eru alvarleg mannréttinda-
brot, brot á sáttmálum sem við erum
aðilar að.“
Ásta sagði að Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin hafi á undanförnum árum
hvatt aðildarríki sín til þess að taka
skýra afstöðu gegn umskurði
kvenna. „Þó að við þekkjum ekki um-
skurð kvenna hér á landi erum við að
verða fjölmenningarlegt samfélag og
e.t.v. tímaspursmál hvenær þetta
berst hingað í ljósi reynslu ná-
grannalanda okkar.“ Ásta spurði
heilbrigðisráðherra hvort hann teldi
tímabært að setja í lög bann við um-
skurði kvenna og viðurlög við slíkum
verknaði.
Í svörum Jóns Kristjánssonar heil-
brigðisráðherra kom fram að um-
skurður gæti ekki talist til heilbrigð-
isþjónustu heldur hlyti að falla undir
líkamlegt ofbeldi. „Réttur stúlkna
gegn þessu ofbeldi er varinn í stjórn-
arskrá, í lögum um réttindi sjúklinga,
barnarverndarlögum, mannréttinda-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna og víð-
ar,“ sagði heilbrigðisráðherra. Hann
sagði að læknum væri óheimilt að
framkvæma þessa aðgerð og ef ann-
ar aðili en læknir myndi framkvæma
hana hér á landi teldist það líkams-
meiðing í skilningi refsilöggjafarinn-
ar. Því teldi hann ljóst að umskurður
á stúlkum væri algjörlega óheimill
hér á landi. „Þar sem ekki er vitað
um slík tilvik hér á landi er spurning
hvort tímabært sé að setja bann við
umskurði í íslenska refsilöggjöf. Þó
mætti segja að það felist ákveðin yf-
irlýsing í slíku fortakslausu banni og
viðurlögum ef slíkt er gert.“
Heilbrigðisráðherra sagðist telja
að breyting á refsilöggjöfinni væri
nauðsynleg, þar sem kveðið væri sér-
staklega á um að þetta heyrði undir
dómsmálaráðherra. Sagðist hann
tilbúinn að eiga viðræður um það við
hlutaðeigandi aðila ef skýra þyrfti
lagaákvæði í þessu sambandi.
Bann við umskurði stúlkna rætt á þingi
Óheimill
hér á landiAÐEINS tæpur helmingur sjúk-
linga á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi reyndist merktur með
armbandi í könnun sem gæðadeild
sjúkrahússins gerði í þessum efn-
um í desembermánuði síðastliðn-
um.
Könnunin var gerð á 22 deildum
sjúkrahússins og lágu þá samtals
378 sjúklingar á viðkomandi deild-
um. 55% þeirra eða 208 sjúklingar
voru skoðaðir með tilliti til merk-
inga og leiddi könnunin í ljós að 91
sjúklingur var merktur eða 44%
þeirra sem skoðaðir voru, en 117
voru ómerktir eða 56%. Af þeim
sjúklingum sem voru merktir fengu
84 armbandið strax við komu eða
92%.
„Það sem þessi könnun leiðir í
ljós var svo sem kannski eitthvað
sem menn höfðu einhverja tilfinn-
ingu fyrir, að það þyrfti að skerpa
mjög á reglum eða í raun og veru að
skrifa reglur. Þetta hafa meira ver-
ið svona óskrifaðar reglur um það
hvernig merkingum eigi að hátta,“
sagði Lilja Stefánsdóttir, aðstoðar-
hjúkrunarforstjóri Landspítala –
háskólasjúkrahúss, í samtali við
Morgunblaðið.
Hún sagði að strax og gæðadeild-
in hefði kynnt þetta fyrir fram-
kvæmdastjórn spítalans hefði verið
ákveðið að lækninga- og hjúkrunar-
framkvæmdastjóri færu í það verk-
efni að móta reglur í þessum efn-
um. Þær reglur væru í vinnslu. Þá
væri einnig á vegum framkvæmda-
stjóra hjúkrunar verið að athuga
hvort hægt væri að taka í notkun
betri armbönd til merkinga.
Landspítali – háskólasjúkrahús
Rúmur helmingur
sjúklinga ómerktur
HAUKUR Ingibergsson, for-
stjóri Fasteignamats ríkisins,
segir að fasteignamat Áburðar-
verksmiðjunnar í Gufunesi hafi
hækkað um 64% haustið 2001
vegna endurmats á mannvirkj-
um verksmiðjunnar.
„Fasteignamat Áburðarverk-
smiðjunnar var 829,8 milljónir
kr. árið 2000. Þar af var lóðar-
matið 110 milljónir,“ segir
Haukur. „Við endurmat fast-
eignamats haustið 2001 var mat
á mannvirkjum Áburðarverk-
smiðjunnar endurmetið skv.
matsreglum fasteignamatsins.
Þá hækkaði fasteignamatið í
1.365,2 milljónir kr. Þar af er
lóðarmatið 110 milljónir kr., þ.e.
óbreytt, enda kom lóðin ekki til
endurmats þar sem hún fellur í
hóp óvenjulegra og sérstæðra
atvinnuhúsalóða sem endur-
metnar verða á síðari stigum.“
Hækkaði
um 64%
vegna end-
urmats
Morgunblaðið/Þorkell
Áburðarverksmiðjan
í Gufunesi.
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
frá því á föstudag lýst eftir Halldóri
Þór Svavarssyni. Halldór er 17 ára,
grannvaxinn, 167
cm á hæð, með
hvítt, aflitað,
stuttklippt hár.
Halldór var
klæddur í bláar
gallabuxur,
mosagrænan
anorakk og hvíta
strigaskó þegar
hann fór að
heiman á föstu-
dag fyrir rúmri viku. Síðast heyrð-
ist frá Halldóri sl. þriðjudag. Hann
er með tattú á vinstri hendi á milli
þumalfingurs og vísifingurs og með
hring í augabrún.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir Halldórs sl. daga er beðn-
ir um að koma upplýsingum til lög-
reglunnar í Reykjavík í síma
569 9012.
Lýst eftir 17
ára pilti
Halldór Þór
Svavarsson