Morgunblaðið - 24.02.2002, Page 14
14 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
óvíst væri hvort þær leiddu til nið-
urstöðu, en ef samningar um sölu
næðust væri hugsanlegt að Opin
kerfi kæmu inn í málið á síðari stig-
um.
Hafa verður í huga að á sama tíma
og Opin kerfi voru í þessum viðræð-
um við ýmsa aðila um kaup á Lands-
símanum var fyrirtækið að kaupa
sænskt upplýsingatæki fyrirtæki
fyrir 1.700 milljónir króna. Efasemd-
ir voru uppi meðal sumra þeirra sem
Frosti var í viðræðum við að Opin
kerfi hefðu fjárhagslegan styrk til að
kaupa stóran hlut í Landssímanum.
Lífeyrissjóðirnir
í viðræðum við TDC
Af hálfu einkavæðingarnefndar
hafði því verið lýst yfir að stefnan
væri sú að velja einn aðila og ganga
til viðræðna við hann um sölu á ráð-
andi hlut. Það kom fram í viðræðum
einkavæðingarnefndar og TDC að
TDC hugsaði sér að eiga samstarf
við íslenska lífeyrissjóði um kaupin.
Viðræðurnar komust aldrei á það
stig að upplýst væri nákvæmlega
hvernig fyrirtækið ætlaði sér að
standa að slíku samstarfi, fyrst og
fremst vegna ágreinings um verðið.
Það er ekki að ástæðulausu að TDC
lét það koma fram í viðræðunum við
einkavæðingarnefnd að íslenskir líf-
eyrissjóðir yrðu hugsanlega með í
kaupunum. Í nóvember á síðasta ári
átti fulltrúi TDC fund með fram-
kvæmdastjórum nokkurra af
stærstu lífeyrissjóðum landsins þar
sem rætt var um hugsanleg kaup á
Landssímanum. Fundurinn var
haldinn að frumkvæði TDC. Fund-
urinn var eins konar kynningarfund-
ur þar sem TDC lýsti þeim hug-
myndum sem fyrirtækið var með
varðandi kaup á Símanum, en einnig
var fjallað almennt um stöðu máls-
ins. TDC óskaði eftir að fá að vera
áfram í sambandi við lífeyrissjóðina
ef viðræður við einkavæðingarnefnd
kæmust á það stig að líklegt væri að
samningar um sölu tækjust.
TDC mun í viðræðunum við einka-
væðingarnefnd ekki hafa lýst sig
ósammála verðmatinu á Landssím-
anum. Hins vegar sögðu stjórnendur
TDC að þeir væru ekki tilbúnir að
kaupa hlutabréfin á genginu 5,75 og
nefndu gengi á bilinu 5–5,25 sem
eðlilegra kaupverð. Afstaða TDC
byggist á því að fyrirtækið vildi inn-
heimta strax nokkurn hagnað með
kaupunum með því að kaupa á verði
sem var nokkuð undir verðmæti
þess.
Einkavæðingarnefnd átti einnig í
viðræðum við bandaríska fjárfest-
ingasjóðinn Providence Equity
Partners Inc. Stjórnendur sjóðsins
voru tilbúnir til að greiða uppsett
verð fyrir Landssímann og sýndu því
meira að segja áhuga að kaupa enn
stærri hlut, en á móti settu þeir
margvíslega fyrirvara og skilyrði
fyrir kaupunum sem voru algerlega
óaðgengileg að mati einkavæðingar-
nefndar. Að mati nefndarinnar
þýddu skilyrðin í reynd að ríkið fengi
ekki nema 4–4,5 fyrir hlutabréfin.
Viðræðurnar við Providence leiddu
því ekki til samkomulags og hefur
þeim í raun verið slitið.
Hafa ber í huga að TDC og Prov-
idence eru mjög ólíkir aðilar. TDC er
stærsta fjarskiptafélag Danmerkur.
Kaupin á Landssímanum voru af
hálfu stjórnenda TDC hugsuð sem
langtímafjárfesting. Providence er
hins vegar fjárfestingasjóður og af
hálfu fyrirtækisins voru kaupin
miklu frekar hugsuð sem skamm-
tímafjárfesting. Að mati einkavæð-
ingarnefndar var líklegast að sjóð-
urinn ætlaði sér að eiga hlutabréfin í
Landssímanum í 5–7 ár og selja þau
síðan með hagnaði. Þannig starfi
fjárfestingasjóðir eins og Provid-
ence.
Þórarni sagt upp störfum
Innan einkavæðingarnefndar
gerðu menn sér grein fyrir því að
samtöl höfðu átt sér stað milli Frosta
Bergssonar og erlendu aðilanna. Í
nefndinni voru uppi grunsemdir um
að Þórarinn V. Þórarinsson væri
beint og óbeint þátttakandi í ráða-
bruggi þessara aðila um að yfirtaka
Landssímann.
Frosti og Þórarinn höfðu átt í við-
skiptum fyrir hönd Opinna kerfa og
Símans. Þeir stofnuðu saman fyrir-
tækið Grunn gagnalausnir eins og
áður er rakið. Þeir stóðu líka fyrir
fjárfestingum í fyrirtækinu IPBell.
Kunningsskapur var með Þórarni og
Henning Dyremose, forstjóra TDC.
Þórarinn bauð Dyremose m.a. í lax-
veiðar á Íslandi sumarið 2000 og
saman gengu þeir á fund einkavæð-
ingarnefndar þar sem sala Lands-
símans var rædd.
Grunsemdir um að Þórarinn væri
beint eða óbeint að vinna að sölu
Landssímans í félagi við Frosta
Bergsson áttu sinn þátt í að grafa
undan trausti lykilmanna í ríkis-
stjórninni í hans garð.
Um það hafði verið rætt að Þór-
arinn kæmi aftur til starfa þegar bú-
ið væri að ná samningum við kjöl-
festufjárfesti. Þórarinn taldi að ef
tækist að selja væru allgóðar líkur á
að hann settist aftur í forstjórastól-
inn. Af hálfu stjórnvalda var því
einnig haldið opnu að hann kæmi aft-
ur til starfa. Stjórn Landssímans
hafði með samþykki samgönguráð-
herra gert fimm ára ráðningarsamn-
ing við Þórarinn og menn gerðu sér
grein fyrir þeim pólitísku óþægind-
um sem það hefði í för með sér að
reka forstjórann og borga honum
laun út samningstímann, samtals um
37 milljónir. Traust stjórnvalda í
garð Þórarins var hins vegar ekki
lengur fyrir hendi og 13. desember
var tilkynnt opinberlega að hann
myndi láta af störfum.
Því hefur verið haldið fram að er-
lendu aðilarnir sem stóðu í viðræð-
um um kaup á Landssímanum hefðu
lýst yfir stuðningi við að Þórarinn
viki. Það er algeralega rangt hvað
varðar TDC sem hafði áhuga á að
hann yrði þarna áfram. Sumir nefnd-
armenn í einkavæðingarnefnd voru
heldur ekki of hrifnir af yfirlýsingum
samgönguráðherra og stjórnarfor-
manns Símans um að nefndin hefði
lagt blessun sína yfir brottrekstur-
inn.
„Bindandi tilboð“ í Landssímann
Nokkrir viðmælendur Morgun-
blaðsins hafa gagnrýnt þær fréttir
sem komu frá einkavæðingarnefnd
um gang viðræðna við kjölfestufjár-
festa. 26. nóvember sendir nefndin
frá sér yfirlýsingu um að sala hluta-
fjár í Landsímanum til kjölfestufjár-
festis miði vel áfram. Í lok tilkynn-
ingarinnar segir: „Ósk hefur nú
komið fram frá þátttakendum í þess-
um síðasta áfanga söluferilsins að
skilafrestur bindandi lokatilboða
verði framlengdur og hefur fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
ákveðið að veita frest til 7. desember
nk.“
8. desember sendir einkavæðing-
arnefnd frá sér nýja yfirlýsingu.
Fyrirsögn hennar er: „Bindandi til-
boð í Landssíma Íslands hf.“ Í til-
kynningunni sagði: „Frestur til að
skila inn lokatilboðum í svokallaðan
„kjölfestuhlut“ í Landssíma Íslands
hf. rann út kl. 18 í gær. Um er að
ræða 25% hlut og heimild til að
kaupa 10% til viðbótar á næsta ári.
Þrír aðilar voru valdir á grundvelli
óbindandi tilboða til að taka þátt í
þessum síðasta hluta söluferilsins.
Tvo tilboð bárust og mun fram-
kvæmdanefnd um einkavæðingu
fara yfir tilboðin á næstu dögum. Til-
boðin eru frá TeleDanmark í Dan-
mörku og bandaríska fjárfestingar-
sjóðnum Providence, sem m.a. er
stærsti hluthafi Eircom á Írlandi.
Tilboðin fela í sér þrjá efnisþætti,
þ.e.a.s. verð, lýsingu á áformum um
áherslur í rekstri og mögulega kosti
samlegðaráhrifa í samstarfi Símans
við önnur símafyrirtæki. Frekari
upplýsingar um innihald tilboðanna
verða ekki veittar fyrr en að loknum
viðræðum við bjóðendur.“
Athyglisvert er að í tilkynning-
unni sjálfri er talað um „óbindandi
tilboð“ en í fyrirsögn fréttarinnar er
talað um „bindandi tilboð“. Þessi til-
kynning mun hafa farið illa í for-
svarsmenn TDC sem óskað höfðu
eftir því að ekki yrði gefin út yfirlýs-
ing sem skilja mætti á þann veg að
fyrirtækið hefði sent inn bindandi
tilboð.
Hlutabréf í Landssímanum voru
skráð á Tilboðsmarkaði Verðbréfa-
þingsins í lok september en þá lýstu
stjórnvöld því jafnframt yfir að ríkið
væri tilbúið að selja á genginu 6,1, en
í útboðssölunni, sem skilaði ekki
þeim árangri sem menn höfðu vonast
eftir, var miðað við gegnið 5,75. Ekki
voru mikil viðskipti með hlutabréf í
félaginu til að byrja með. Þó fóru
fram viðskipti á genginu 6 og 6,05 í
byrjun desember. Tilkynning einka-
væðingarnefndar, sem var eins og
áður segir undir fyrirsögninni
„Bindandi tilboð í Landssíma Ís-
lands hf.“ var birt á Verðbréfa-
þinginu 10. desember og 12. desem-
ber eiga sér stað viðskipti í Símanum
á genginu 6,3.
TDC kom ekki með
bindandi tilboð í Símann
Augljóst er að markaðurinn taldi
sig fá upplýsingar sem bæri að meta
á þann hátt að góðar líkur væru á að
samningar um sölu tækjust. Þær
gengu hins vegar ekki eftir eins og
kunnugt er og síðustu viðskipti sem
átt hafa sér stað með hlutabréf í fyr-
irtækinu voru á genginu 5,15.
„Sannleikurinn er sá að TeleDan-
mark gerði aldrei neitt bindandi til-
boð í Símann. Miklu nær væri að lýsa
því sem kom frá fyrirtækinu sem
viljayfirlýsingu um frekari viðræð-
ur,“ sagði einn heimildarmanna
blaðsins.
Afstaða einkavæðingarnefndar er
sú að tilboðin hafi ekki verið bind-
andi eins og raunar komi fram í til-
kynningunni. Alltaf hafi legið fyrir
að áfram þyrfti að ræða við kjöl-
festufjárfesta um margvísleg skil-
yrði fyrir sölu, m.a. um áform rík-
isins um frekari sölu, þriðju kynslóð
farsíma o.s.frv. Engin leið hafi verið
að segja til um hvort samningar
tækjust þótt þessi tilboð hafi borist.
Athygli Fjármálaeftirlitsins hefur
verið vakin á þessari yfirlýsingu
einkavæðingarnefndar frá 8. desem-
ber. Engar upplýsingar fengust frá
Fjármálaeftirlitinu um hvort þetta
mál væri til sérstakrar skoðunar.
Áform ríkisstjórnarinnar um
stærstu einkavæðingu sem ráðist
hefur verið í hér á landi, þ.e. sölu
Landssímans, hafa ekki gengið eftir.
Fátt bendir til þess að það sé neitt að
draga úr þeim pólitíska hamagangi
sem staðið hefur fyrirtækið. Tillaga
formanns stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur um að kannað verði
hvort Orkuveitan geti keypt stóran
hlut í Símanum sýnir að Síminn mun
enn um sinn verða pólitískt bitbein.
Margir urðu til að tortryggja samstarf Þórarins V. Þórarinssonar, forstjóra Símans, og Frosta Bergssonar, stjórnarfor-
manns Opinna kerfa. Myndin er tekin þegar tilkynnt var um kaup Landssímans, FBA og Opinna kerfa hf. í alþjóðlegu fjar-
skiptafyrirtæki, @IPbell. Sú fjárfesting endaði með ósköpum því allt hlutaféð tapaðist á skömmum tíma. Frá vinstri:
Frosti Bergsson, Þórarinn V. Þórarinsson og Bjarni Ármannsson, þáverandi forstjóri Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
egol@mbl.is