Morgunblaðið - 24.02.2002, Side 15

Morgunblaðið - 24.02.2002, Side 15
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 15 Hátíðin Ljós í myrki hefst á miðvikudag NÆSTA miðvikudag hefst vetrar- hátíð Reykjavíkurborgar, Ljós í myrkri, og stendur hún til 3. mars. Hátíðin er helguð ljósi og orku og er ætluð jafnt ungum sem öldnum til upplyftingar í lok skammdegis þeg- ar sól hækkar á lofti, segir í frétt frá skipuleggjendum hátíðarinnar. Fjölbreytt dagskrá er alla dagana og má nefna ýmsa listviðburði, gjörninga, ljósaleiki, Stjörnuhrap á Tjörninni, foss í Aðalstræti, jazztón- leika sem og klassíska tónleika, kór Íslensku óperunnar og viðamikla dagskrá í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum. Þá verður listdans og vín- arvalsakvöld haldið í Skautahöllinni, þjóðlegar kvöldvökur með rímna- kveðskap og draugasögum og fyr- irlestrar verða í Ráðhúsinu og á Reykjavíkurtorgi Borgarbókasafns- ins tengdir ljósi og myrkri. Hátíðin hefst með setningu á Lækjartorgi kl. 19:30 miðvikudag- inn 27. febrúar og mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri flytja ávarp, barnakór Seljakirkju og Fóstbræður syngja og ljósin verða tendruð á háspennumastrinu á Arnarhóli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.