Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 38

Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 38
MINNINGAR 38 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284 ✝ Rannveig Torf-hildur Magnús- dóttir fæddist á Reyðarfirði 11.10. 1922. Hún lést á heimili sínu, Torfu- felli II í Eyjafirði, 12. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Magnús Guðmundsson bók- ari, f. 23.4. 1893, d. 28.3. 1972, og Rósa Jónína Sigurðardótt- ir húsmóðir, f. 6.11. 1898, d. 21.5. 1939. Systkini Torfhildar voru: 1) Aagot, f. 12.8. 1919, d. 28.3. 1983, eiginmaður hennar var Þorsteinn Ólafsson, látinn. 2) Emil Jóhann, f. 25.7. 1921, d. 8.2. 2001, ekkja hans er Ágústa Árnadóttir. 3) Aðalbjörg, f. 17. 12. 1923 gift Þorsteini Sigurðs- syni. 4) Stefanía, f. 17.11. 1924, eiginmaður hennar var Birgir Th. Björnsson, látinn. Tvíbura- systir Stefaníu lést í fæðingu. 5) Guðmundur, f. 9.1. 1926, kvænt- ur Önnu A. Frímannsdóttur. 6) Guðný, f. 16.5. 1927, gift Marvin Heyer í Denver, Colorado. 7) Sig- urður, f. 2.6. 1928, kvæntur Sig- rúnu Sigurðardóttur. Torfhildur giftist 1949 Hall- grími Hallgrímssyni, f. 4.7. 1909, d. 7.8. 1984. For- eldrar hans voru Hallgrímur Jónsson, f. 5.9. 1851, d. 23.11. 1936, og Þóra Óla- dóttir, f. 16.9. 1880, d. 23.7. 1945. Börn Torfhildar og Hall- gríms eru: 1) Rósa Þóra hjúkrunar- fræðingur, f. 4.5. 1951. Sonur hennar er Hallgrímur Sig- urðsson, f. 19.7. 1984. 2) Ingibjörg leikskólakennari, f. 12.5. 1953. 3) Hall- grímur skipstjóri, f. 15.4. 1955. Kona hans var Valgerður Val- geirsdóttir leikskólastjóri. Þau skildu. Dætur þeirra eru: a) Hild- ur Rós, f. 19.9. 1972, dóttir henn- ar er Birta, og Heba Björg, f. 15.11. 1975. Sambýliskona Hall- gríms er Irina Troskova, f. 31.7. 1956. 4) Jóhanna verkefnisstjóri hjá LSH, f. 8.7. 1958, gift Hall- dóri Jónassyni skipstjóra, f. 11.2. 1959. Dóttir þeirra er Sylvía Dögg, f. 8.4. 1980, sambýlismað- ur hennar er Jón Teitur Sig- marsson, f. 2.7. 1974. Útför Torfhildar fer fram frá Eskifjarðarkirkju á morgun, mánudaginn 25. febrúar og hefst athöfnin klukkan 14. Okkur langar að minnast ástkærr- ar ömmu okkar, ömmu Tollu. Yndislega amma okkar, núna ertu loksins laus frá líkamlegum þjáning- um. Eins erfitt og okkur finnst að sleppa þér, þá trúum við því að þú sért komin á stað þar sem þér líður betur. Þrátt fyrir stöðug veikindi, stóðstu ávallt eins og klettur og kvartaðir aldrei, aldrei yfir hlutskipti þínu. Þú kenndir okkur að vera stolt og heiðarleg en umfram allt kenndir þú okkur að elska og virða þá sem standa okkur næst. Við vitum að þú elskaðir okkur af öllu hjarta og hafðir velferð okkar ávallt að leiðarljósi. Þú gerðir svo mikið fyrir okkur og gafst svo mikið af þér. Þú ert hetjan okkar og við elskum þig af öllu hjarta. Ynd- islega minningu þína geymum við í hjarta okkar þangað til við hittumst aftur, elsku amma okkar. Þín Hildur, Heba, Sylvía og Hallgrímur (Halli). Elsku amma lögga Tolla. Ég sakna þín, þú varst yndisleg við alla sem hjá þér voru. Þú vildir gera allt fyrir mig þrátt fyrir háan aldur. Þú varst veik í líkamanum en ekki innan brjósts. Þegar ég kom heim til þín þá kúrði ég oft með þér í rúminu þínu, þú varst svo hlý. Ég las oft fyrir þig því þú varst farin að sjá svo illa. Ég vona að þér sé batnað hjá Guði. Eigðu góðar stundir með afa Halla á himninum. Þetta var erfið kveðjustund. Ég elska þig og mun aldrei gleyma góð- um minningum. Þín Birta. Nú er fölnuð fögur rós, fellur tár á kinn, nú er slokknað lífsins ljós sem lýsti veginn minn en minning ljúf sem merlar hlý og mildar alla sorg leiðir þig til lífs á ný í ljóssins fögru borg. (H.A.) Með þessu litla ljóði kveð ég elsku- lega móðursystur mína, Torfhildi Magnúsdóttur eða Tollu eins og hún TORFHILDUR MAGNÚSDÓTTIR Í dag, 24. febrúar, þegar liðið er ár frá því að pabbi var kallaður á brott frá okkur, langar mig til að minnast hans í nokkrum orðum. Árið sem var að líða var erfitt fyr- ir okkur öll, líka vegna þess að hann fór svo snöggt að það var ekki einu sinni hægt að kveðja og eftir situr SÓFUS GJÖVERAA ✝ Jón Friðrik Sóf-us Gjöveraa, sjó- maður og vélvirki, fæddist í Héðinsvík á Tjörnesi í S-Þingeyj- arsýslu 5. júlí 1931. Hann lést á heimili dóttur sinnar á Eg- ilsstöðum 24. febr- úar 2001 og fór útför hans fram frá Norð- fjarðarkirkju 5. mars. tómið eitt. Það voru mikil viðbrigði að koma austur, við útför hans, þó að það væri fullt hús af ættingjum og vinum. Það vantaði mikið þegar pabba vantaði. Það var erfitt að sætta sig við það að hann væri farinn frá okkur og kæmi aldrei aftur. En almættið ætl- aði honum ekki lengri lífdaga. Hans tími hjá okkur var liðinn. Ég þakka fyrir þann tíma sem við fengum með honum og mömmu í nóvember árið 2000, því að það var í síðasta skipti sem ég sá þau saman. Þegar líða tók á sumar og 5. júlí rann upp, þá var ekkert annað en kerti úti í garði hjá okkur sem minnti á sjö- tugsafmælið hans. Jólin voru okkur erfið án hans, því að þegar við Alla og börnin bjuggum fyrir austan, þá komu pabbi og mamma alltaf til okkar á aðfangadagskvöld í kaffi og við í mat til þeirra á jóladag. Nú er bara minningin ein eftir um það. Góð minning sem ég á eftir að varð- veita allt mitt líf. Það var eins og pabbi hefði vitað að hverju stefndi, þegar hann og mamma voru hér fyrir sunnan. Þá sótti hann það fast við mig að fara með sér í Fossvogskirkjugarð til að athuga með leiði foreldra hans. Það var eins og að hann vissi að hann ætti ekki eftir að koma þangað aft- ur, og eins líka það að þegar þau fóru austur aftur, þá sagði Alla við hann að næsta sumar, þegar hann yrði sjötugur, ætlaði hún að halda honum veglega afmælisveislu eins og hún gerði þegar mamma varð sextug. En hann sagði: „Við sjáum nú til með það, Alla mín,“ og það reyndust orð að sönnu því að þrem- ur mánuðum síðar var hann allur. Pabbi var alltaf mikill bókamaður og hafði mikið yndi af því að lesa góðar bækur, enda bar bókasafnið þess merki, sem fyllti næstum því eitt herbergi. Í bókasafninu var saman kominn mikill fróðleikur um alls konar málefni, og við systkinin nýttum okkur það vel þegar við bjuggum ennþá heima og vorum í skóla. Þá leitaði ég mikið til pabba og fékk góða tilsögn hjá honum um þetta og hitt. Ég man vel eftir því þegar hann var að fræða okkur bræðurna um himintunglin og gang þeirra um himingeiminn. Og í dag get ég þakkað honum fyrir að hafa frætt mig vel um þetta, því að það er eitt mitt besta áhugamál í dag. Og svo seinna þegar ég fór á sjóinn þá fór ég oft til hans til að fá bækur til að taka með mér út á sjó. Þetta og margt annað kemur upp í hug- ann þegar ég lít til baka. Pabbi var fróður um margt og miðlaði því til okkar systkinanna. Mér er sérstak- lega minnisstætt, þegar hann átti bátana Hergilsey og Ingvar, hvað hann hugsaði vel um þá, var alltaf að dytta að einhverju. Það skipti pabba miklu máli að þeir litu vel út, og allt sem var gert, var gert af mikilli samviskusemi og natni, og auðséð að þar var mikið snyrtimenni á ferð. Þannig var það líka í sjóhús- inu, allt í röð og reglu, og ef við bræður vorum að vinna eitthvað þar, þá áminnti hann okkur um að ganga vel um og ganga frá verkfær- um eftir okkur. En ef við gerðum það ekki, fengum við að heyra það hjá honum, og jafnvel sendir niður eftir til að ganga frá eftir okkur. Hann vildi hafa allt á vísum stað. Pabbi fluttist átta ára gamall með foreldrum sínum og systkinum til Norðfjarðar og ólst þar upp eins og önnur börn við sjávarsíðuna, sem markaði hans ævistarf upp frá því. Það er af mörgu að taka frá þessum tíma. Eitt af því fyrsta sem ég man var þegar við Smári bróðir fórum niður í Kastala til að ná í Sófus afa í mat á sunnudögum, því að hann bjó þar einn eftir að amma dó, eða þangað til að við fluttum úr Sólhól í húsið sem pabbi byggði upp í Víðimýri rétt fyrir jólin 1970. Fljótlega eftir það var afi alveg hjá okkur og bjó þar þangað til hann dó í september 1975. Ég á margar góðar minningar um afa minn, en hann var Fær- eyingur og var sjómaður alla sína ævi. Hann fór margar ferðir á trill-                           !   "     #$ !      % %& '            !"##                                     !      "# $%  &           !                                                          !"# $ # %      &      '(# $ # !)#)*# +  %   ,     % #             ! "#    $% &     " &   %   '(%) * &  " *%+#   )+ ,'" - *  *%+# *  %       *%+# * ,. /0%     *  '                                    !                         !     ""# $      %       &       ""# "  $%#      "  & ' ()* ! $+  *$"  $ #  ,! - *  "  ""#  #* !  # +*  . "    &  & " /                                   ! "  # !      !"##$ %& !' ($ !'  ) )!($ *(& +)#)(

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.