Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 44
KIRKJUSTARF
44 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKÁTAFÉLAGIÐ Hamar verður
með skátamessu sunnudaginn 24.
febrúar kl. 11:00 í Grafarvogs-
kirkju.
Á undanförnum árum hefur
Skátafélagið í Grafarvogi haldið
skátamessu í Grafarvogskirkju, sem
hefur verið vel sótt. Séra Vigfús Þór
Árnason sóknarprestur þjónar fyrir
altari. Guðmundur Kristinsson fyrr-
verandi félagsforingi prédikar.
Skátakórinn syngur ásamt Kór
Grafarvogskirkju. Organisti er
Hörður Bragason.
Í messunni verður Hulda Margrét
Pétursdóttir, Vallarhúsum 57,
fermd.
Grafarvogskirkja.
Hvað er kirkjan að
vilja upp á dekk?
ER kirkjan orðin þreytt stofnun þar
sem ekkert er nýtt undir sólinni? Er
hún menningarverðmæti sem ætti
að leggja á Þjóðminjasafnið eða er
hún lifandi samfélag fólks með sam-
eiginleg markmið og ólgandi líf?
Kirkjan, sem er biðjandi, boðandi
og þjónandi í samfélagi okkar, er að
störfum alla daga vikunnar. Sunnu-
dagarnir þegar söfnuðurinn kemur
saman í hinu helga húsi eru stund-
irnar sem annað starf miðar að.
Hlutverk presta og starfsfólks kirkj-
unnar er meðal annars að sá fræi
trúar til þeirra sem á hlýða. Trúar á
eilíft gildi lífsins og trúar á vilja
Guðs sem við lærum að þekkja í
gegnum opinberun hans í litlu barni
frá Nazaret.
Í gegnum árin hefur kirkjan svar-
að þörf fyrir aukið starf þar sem
hún teygir sig í enn meira mæli út til
safnaðarins. Helsti vaxtarbroddur
kirkjunnar í þessari útrás sinni er
barna- og æskulýðsstarf. Í flestum
kirkjum er öflugt starf fyrir börn
sem má segja að sé í eðli sínu al-
mennt forvarnarstarf. Má þar helst
nefna barnaguðsþjónustur á sunnu-
dögum, aldursskipt hópastarf á
virkum dögum fyrir 6–15 ára börn
og unglinga. Blessunarlega eru
kirkjur og skólar gjarnan í góðum
tengslum með sameiginleg mark-
mið uppeldis og siðgæðis.
Flestir unglingar láta ferma sig
en síðan vantar oft vettvang fyrir þá
innan kirkjunnar. Sumar kirkjur
hafa hin síðari ár boðið upp á ung-
lingastarf, en hversu langt á kirkjan
að teygja sig út í söfnuðinn? Með
hvaða hætti á kirkjan að sinna ung-
linga- og æskulýðsstarfi? Er hún á
réttri leið eða er þörf fyrir breyt-
ingar? Opinn fundur um æskulýðs-
mál og unglingastarf kirkjunnar
verður haldinn í Grensáskirkju,
mánudaginn 25. febrúar kl. 17:30.
Yfirskrift fundarins er spurningin
„Er æskulýðsstarf tímaskekkja?“
Allir sem vilja kynnast starfi kirkj-
unnar á þessum vettvangi eða vilja
leggja e-ð til málanna eru velkomn-
ir. Athyglisverð könnun var gerð
árið 2001 meðal starfsfólks í æsku-
lýðsstarfi. Þar kom ýmislegt fram
sem mikilvægt er að draga fram í
dagsljósið og skoða betur. Helstu
niðurstöður hennar voru birtar í
Kirkjuritinu 2001 og verða þær til
umræðu á fundinum í Grens-
áskirkju. Unglingar í æskulýðs-
félögum munu einnig kynna félögin
sín. Kirkjan er byggð úr lifandi
steinum þ.e. fólki, því án fólksins
væri engin kirkja. Kirkjan er lifandi
samfélag fólks sem vill framgang
trúar, kærleika og friðar í samfélag-
inu. Lengi er hægt að byggja miklar
kirkjur og stór hús en án fólks sem
leitar eftir kærleika Guðs og vill
upplifa hann í samfélaginu eru
kirkjurnar lítils virði. Því fleiri sjón-
armið á fundinum í Grensáskirkju
því meiri líkur á áhugaverðri um-
ræðu. Komdu og kynntu þér málin
og leggðu þitt af mörkum.
Þorvaldur Víðisson,
æskulýðsfulltrúi Dómkirkjunnar.
Brúðuleikhús
í Neskirkju
ÞAÐ koma góðir gestir í heimsókn í
sunnudagaskóla Neskirkju á sunnu-
daginn, félagar úr Brúðuleikhúsi
Helgu Steffensen. Þeir ætla að sýna
okkur leikrit og svo syngjum við
saman. Sunnudagaskólinn byrjar kl.
11 og er til 11:45. Krakkaklúbb-
urinn, en það er starf fyrir 8 til 9 ára
börn, er á sama tíma. Á eftir eigum
við gott samfélag, fáum djús og kex
og litum í Kirkjubókina okkar.
Kirkjubíll ekur um hverfið fyrir og
eftir sunnudagaskólann. Á sama
tíma er messa í kirkjunni þar sem
sr. Frank M. Halldórsson þjónar,
Reynir Jónasson leikur á orgelið og
Kór Neskirkju leiðir söng.
Skátamessa í
Grafarvogskirkju
Símar 893 3985 og 551 7270, Aðalsteinn - www.hibyliogskip.is
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteigna- og skipasali.
Hlíðargerði 23
Opið hús frá kl. 14-16 í dag
Fallegt einbýli í góðu umhverfi sem
er góð hæð, kjallari og ris 122 fm +
ris. Vel byggt hús á frábærum stað.
Hús með mikla möguleika.
Fallegur garður. Verð 18,9 m. kr
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali,
Suðurlandsbraut 54, 108 Rvík. Sími 568 2444, fax 568 2446.
Netfang asbyrgi@asbyrgi.is
Til leigu mjög gott verslunar-
eða þjónustuhúsnæði á jarð-
hæð. Heildarstærð húsnæðisins
er um 400 fm en getur leigst í
einingum frá um 100 fm. Mjög
góð staðsetning alveg við
Smárann og mikið auglýsinga-
gildi frá Reykjanesbraut. Laust
strax.
Hlíðasmári 19 - Leiga
Ingileifur Einarsson lögg.fasteignasali
Suðurlandsbraut 54, 108 Rvk. Sími 568 2444, fax 568 2446.
netfang asbyrgi@asbyrgi.is
Falleg 6 herb. vel skipulögð íbúð
á tveimur hæðum með frábæru
útsýni og góðum bílskúr. Íbúðin
er 158 fm og bílskúr 24,5 fm eða
séreign alls 182,5 fm. 4 svefn-
herb. góðar stofur, stórt sjón-
varpshol, eldhús með góðum
innréttingum og borðkróki. Sér-
þvottahús í íbúð. Flísalagt bað-
herb. með glugga, baðkari og
sturtu. Stórar suðursvalir. Vönd-
uð eign á góðum stað.
Jón og Hrafnhildur taka á móti ykkur í dag á milli kl. 14 og 17.
FROSTAFOLD 23 - 3. HÆÐ T.H.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG MILLI KL 14 OG 17
Háteigsvegur 32 - opið hús í dag
Stórglæsileg ca 140 fm hæð á jarðhæð í einu af reisulegri húsum borgarinnar. Íbúðin
skiptist í tvær góðar stofur og tvö herbergi. Glæsilegt eldhús, sérlega útbúið fyrir sæl-
kerann. Baðherbergi endurnýjað og flísalagt. Á herbergjum og stofum eru vönduð kók-
osteppi. Gengið er út á stóra sérverönd í suður. Sérbílastæði. Þetta er stórglæsileg íbúð
á góðum stað miðsvæðis í borginni. Verð 17,3 millj. Opið hús í dag frá kl. 15-17.
www.holtfasteign.is
Opið hús - Flúðasel 12
Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð
í fjölbýlishúsi ásamt aukaherbergi í kj.
og stæði í bílskýli. 3 svefnherbergi í
íbúð, rúmgóð stofa með yfirbyggðum
svölum. Aukaherbergi með aðgangi
að snyrtingu og sturtu, auðvelt að
leigja út. Hús nýlega klætt að utan.
Áhv. 8,1 m. V. 13,4 m.
Opið hús í dag milli kl. 13 og 15,
Guðbjörg og Jón taka vel á móti ykkur.
Opið hús - Nökkvavogur 18
Mjög góð 4ra herbergja íbúð í kjall-
ara (lítið niðurgrafin) í þríbýlishúsi
með sérinngangi á þessum rólega
stað. 2 svefnherbergi með skápum.
Rúmgóð stofa og borðstofa (hægt
að gera svefnherbergi úr borðstofu).
Eldhús með ágætri innréttingu. Sér-
eign í garði. Hús og sameign í
ágætu standi. Góðir nágrannar. Áhv. 3,4 m. byggingasj. V. 10,5 m.
Í dag, sunnudag, verður opið hús milli kl. 14 og 16,
Ólafur og Linda taka vel á móti ykkur.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk mánu-
dagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borgara í
Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis mánu-
dag kl. 13. TTT-klúbburinn kl. 17. Lifandi og
fjöbreytt starf fyrir börn úr 4.–6. bekk í um-
sjón Andra, Gunnfríðar, Guðrúnar Þóru og Jó-
hönnu. Öll börn velkomin og alltaf hægt að
bætast í hópinn.
Laugarneskirkja. 12 spora hópar koma
saman mánudag kl. 20 í safnaðarheimilinu.
Margrét Scheving sálgæsluþjónn er við
stjórnvölinn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll
börn í 1. bekk velkomin. TTT-starf (10–12
ára) mánudag kl. 16.30. Öll börn í 4. og 5.
bekk velkomin. Litli Kórinn, kór eldri borgara,
þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Nýir félagar velkomnir. Foreldramorg-
unn miðvikudaga kl. 10–12. Kaffi og spjall.
Umsjón Elínborg Lárusdóttir.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfélagið kl.
20.
Árbæjarkirkja. Sunnud.: Æskulýðsfundur kl.
20. Mánud.: TTT-klúbburinn frá kl. 17–18.
Fella- og Hólakirkja. Mánud.: Fjölskyldu-
morgnar (mömmumorgnar) mánud. í safnað-
arheimili kirkjunnar kl. 10–12. Heitt á könn-
unni og eitthvað hollt og gott fyrir börnin.
Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 17–18. Starf
fyrir 9–10 ára drengi kl. 17–18. Unglinga-
starf á mánudagskvöldum kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahópur
kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka
daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070. Mánu-
dagur: KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára kl.
17.30–18.30. KFUM yngri deild í Borga-
skóla kl. 17–18. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára
kl. 17.30–18.30. TTT (10–12 ára) kl.
18.30–19.30 í Korpuskóla.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðsfélag fyr-
ir unglinga 13–15 ára kl. 20. Þriðjudagur:
Prédikunarklúbbur presta í Reykjavíkurpró-
fastsdæmi eystra er í Hjallakirkju kl. 9.15–
10.30. Umsjón Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir
stelpur á aldrinum 9–12 ára kl. 17.15 í kirkj-
unni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelpur vel-
komnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir
9–12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánudögum
kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld kl.
20–22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánud.: Al-Anon fundur í
kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánudags-
kvöldum í Lágafellskirkju kl. 20. Kirkju-
krakkafundur í Varmárskóla kl. 13.15–
14.30. TTT-fundir í safnaðarh. kl. 16–17.
Fundir í æskulýðsfélaginu Sánd kl. 17–18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag kl.
19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára 5
kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Mánudagur:
Kl. 16.45 æskulýðsstarf fatlaðra, yngri hóp-
ur. Kl. 17.30 æskulýðsstarf fatlaðra, eldri
hópur. Aukafundur.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30. Lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðu-
maður Geir Jón Þórisson. Allir velkomnir.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnud.: Sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Björg R. Páls-
dóttir. Bænastund fyrir samkomu kl. 16. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir
börn frá eins árs aldri. Allir velkomnir. Þriðju-
dagur: Bænastund kl. 20.30. Miðvikudagur:
Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil
lofgjörð og orð guðs rætt. Allt ungt fólk hjart-
anlega velkomið.
Kristskirkja í Landakoti. Næsti fundur í bilíu-
lestri sr. Halldórs Gröndal er mánudag 25.
febrúar og hefst kl. 20 í safnaðarheimilinu í
Landakoti. Allir hjartanlega velkomnir.
Akureyrarkirkja. Fundur í Æskulýðsfélagi
kirkjunnar kl. 17. Mánudagur: Sjálfshjálpar-
hópur foreldra kl. 20.30.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Mánudagur: Kl.
15 heimilasamband. Kl. 17 Örkin fyrir 6–7
ára.
Safnaðarstarf