Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 45
BORGIR
VANTAR - VANTAR - VANTAR
EINBÝLISHÚS ÓSKAST
F A S T E I G N A S A L A
Höfum kaupanda að einbýlishúsi á Reykjavíkursvæðinu.
Nauðsynlegt er að í húsinu séu a.m.k. 4 góð svefnherbergi og
að húsið sé í góðu ásigkomulagi, bæði að innan sem utan.
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033Hjónin í Saurbæ
FASTAN gengin í garð og Passíu-
sálmalestur í útvarpi. Þessu til und-
irstrikunar stendur Leikmannaskóli
kirkjunnar fyrir námskeiði um
Hjónin í Saurbæ, Guðríði Símonar-
dóttur og passíusálmaskáldið Hall-
grím Pétursson.
Kennari á námskeiðinu er Stein-
unn Jóhannesdóttir rithöfundur.
Steinunn er kunn fyrir leikrit sitt
Heimur Guðríðar og nú fyrir jólin
kom út heimildaskáldsagan Reisu-
bók Guðríðar Símonardóttur.
Á námskeiðinu mun Steinunn
fjalla um heimildaleit sína og aðföng
Reisubókar en hún ferðaðist m.a. á
allar söguslóðir Tyrkjaránsins í
Norður-Afríku, Evrópu og á Íslandi.
Einnig mun Steinunn fjalla um sam-
búð Guðríðar og Hallgríms sem stóð
í 38 ár og ævilok þeirra beggja.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn
26. febrúar og verður kennt milli kl.
18 og 20 í fjögur skipti í Aðalbygg-
ingu HÍ. Skráning fer fram í síma
535 1500 eða á vef Leikmannaskól-
ans, www.kirkjan.is/leikmanna-
skoli <http://www. kirkjan.is/leik
mannaskoli>
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fimmtu
messunnar á þessum vetri í Breið-
holtskirkju í Mjódd í kvöld, sunnu-
daginn 24. febrúar, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fast-
an sess í kirkjulífi borgarinnar, en
slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu fjögur árin.
Framkvæmdaaðilar að þessu messu-
haldi eru Breiðholtskirkja, Kristi-
lega skólahreyfingin, Félag guð-
fræðinema og hópur presta og
djákna.
Heiti messunnar er dregið af
postulanum Tómasi, sem ekki vildi
trúa upprisu Drottins nema hann
fengi sjálfur að sjá hann upprisinn
og þreifa á sárum hans. Messan ein-
kennist af fjölbreytilegum söng og
tónlist og sömuleiðis af virkri þátt-
töku leikmanna.
Kópamessa
KÓPAMESSA verður í Kópavogs-
kirkju í dag sunnudag kl. 20.30. Í
henni er lögð áhersla á léttari tón-
list en í hefðbundnum messum og al-
menna þátttöku kirkjugesta, bæði í
söng og öðrum þáttum helgihalds-
ins. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra og leiða bænir og Dóra
Steinunn Ármannsdóttir, nemandi
við Söngskólann í Reykjavík, syng-
ur einsöng. Félagar úr kór Kópa-
vogskirkju leiða safnaðarsöng og
Sigríður Stefánsdóttir aðstoðar við
útdeilingu. Undirleik annast Krist-
mundur Guðmundsson sem spilar á
trommur og Julian Hewlett sem
leikur á píanó.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 45
TIL LEIGU SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Í HJARTA BORGARINNAR - BÍLASTÆÐI Í BÍLAHÚSI FYLGJA
Til leigu er skrifstofuhúsnæði (turn), þrjár hæðir, þ.e. 2., 3. og 4. hæðin (efsta). Önnur og þriðja hæðin eru að
grunnfleti 438 fm, en efsta hæðin, sem er inndregin, er 300 fm. Húsið er í góðu ástandi að utan og innan. Lyfta
og tvö sérlega góð stigahús. Hæðirnar leigjast saman eða hver fyrir sig. Þriðja og fjórða hæðin eru samtengdar
og því æskilegt að þær leigðust saman. Hæðirnar skiptast niður í allmargar lokaðar skrifstofur, snyrtingar, kaffi-
stofur og fundasali. Möguleiki að fá leigðar góðar geymslur í kjallara. Húsnæðinu fylgja mörg stæði í lokuðu bíl-
ahúsi. Afhending í ágúst nk. SANNGJÖRN LEIGA. HÚSVÖRÐUR. ENGINN SAMEIGINLEGUR KOSTNAÐUR.
UPPLÝSINGAR VEITTAR HJÁ
jöreign ehf
DAN,
GSM 896 4013
INGILEIFUR,
GSM 894 1448
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
OPIN HÚS Í DAG
LJÓSHEIMAR 12 - LAUS! Í
sölu ca 100 fm íbúð á 2. hæð í
góðu lyftuhúsi. Sérinngangur er af
svölum. Þvottahús í íbúð. Suð-
vestursvalir. Húsvörður sér um
sameign. Verð 11,9 millj. Áhv. 2,7
millj. Þau Arthur og Helga bjóða
ykkur velkomin til sín í dag á
milli kl. 15.00-17.00.
FLÉTTURIMI 14 - M/BÍL-
SKÝLI Falleg 89 fm íbúð á 2. hæð
með útsýni. Vandaðar innréttingar.
Flísar og parket á gólfi. Stutt í alla
þjónustu og skóla. Verð 11,8 millj.
Áhv. 7,5 millj. ATH.: Möguleg
skipti á einbýlis-, rað- eða par-
húsi á Selfossi! Þau Þórarin og
Hildur bjóða ykkur velkomin til
sín í dag á frá kl. 14.00-16.00.
GRETTISGATA 27 - MIÐ-
BÆR - MÖGULEIKI AÐ ÚT-
BÚA AUKAÍBÚÐ! Í sölu mikið
endurnýjað 153,2 fm einbýlishús
með stórum garði. Nýtt járn og nýtt
rafmagn. Sex svefnherbergi. Verð
17,9 millj. Áhv. 8,3 millj. LAUST
FLJÓTLEGA! Þau Frank og Mar-
grét bjóða ykkur velkomin til sín
í dag á milli kl. 15.00-17.00.
TÓMASARHAGI 18 – OPIÐ HÚS
Glæsileg 5 herbergja, 131,4 fm sérhæð, á 1. hæð í nýju þríbýlishúsi (byggt
1998) á þessum eftirsótta stað. Íbúðin skiptist í rúmg. flísalagða forstofu,
stórar samliggjandi stofur, 3 rúmgóð svefnherbergi, stórt eldhús, hol, vand-
að flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa og sérþvottahús,. Vand-
aðar sérsmíðaðar innréttingar úr kirsuberjaviði frá Brúnási. Beykiparket á
gólfum. Afgirtur garður með lýsingu. Sérbílastæði á lóð fyrir tvo bíla. Engir
stigar. Tilvalið fyrir barnafólk eða eldri borgara. Íbúðin getur losnað fljótlega.
Stutt í skóla og alla þjónustu. VERÐ 19,9 MILLJ. ÁHV. HÚSBRÉF KR. 5,1
MILLJ.
Helga og Pétur bjóða gestum og gangandi að líta inn í dag,
sunnudag, á milli kl. 16.00 og 19.00.
Ísafjörður - Glæsilegt atvinnutækifæri
Söluskáli með bílalúgum í góðu
eigin húsnæði. Jöfn og góð velta.
Gott fyrir heimamenn eða fólk sem
vill flytja á staðinn því gott einbýl-
ishús fylgir með. Bein sala eða
skipti á eign á höfuðborgarsvæð-
inu og nágrenni.
Upplýsingar í síma 551 7282 og 893 3985
Þuríður Halldórsdóttir hdl.,
lögg. fasteigna- og skipasali.
EIGNIR ÓSKAST
Einbýlishús á Seltjarnarnesi
eða í vesturbæ óskast
Traustur viðskiptavinur, sem býr erlendis
og flytur til landsins í haust, hefur beðið
okkur um að útvega sér gott einbýlishús
á Seltjarnarnesi eða í vesturbæ. Fleiri
svæði koma til greina. Upplýsingar veitir
Þorleifur.
PARHÚS
Vættaborgir - m. tveimur
íbúðum
Vorum að fá í sölu u.þ.b. 215 fm (177 fm
skv. FMR) parhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr. Húsið er þannig
skipulagt að á efri hæð er 3ja herbergja
íbúð og bílskúr. Á neðri hæð er 3ja her-
bergja íbúð með sérinngangi sem þarfn-
ast frágangs. Húsið þarfnast frágangs að
innan að einhverju leyti, m.a. eldhús o.fl.
Laust strax. Lyklar á skrifstofu. 1846
HÆÐIR
Gerðhamrar
Glæsileg 4ra herbergja 143 fm neðri sér-
hæð í tvíbýlishúsi með sérgarði, verönd
og heitum potti. Eignin skiptist m.a. í eld-
hús, tvö herbergi, stofu, borðstofu og
sjónvarpshol. Mjög fallegar innréttingar
og vönduð gólfefni. Hornbaðkar og stór
sturta í baðherbergi sem er flísalagt í hólf
og gólf. Fjögur sérbílastæði á lóð. Ein-
stök eign á frábærum stað. V. 15,9 m.
2168
4RA-6 HERB.
Kaplaskjólsvegur -
KR-blokkin
Vorum að fá í einkasölu rúmgóða og
bjarta 147 fm íbúð á 2. hæð í þessu eft-
irsótta lyftuhúsi. Íbúðin skiptist m.a. í
tvær stofur, fjögur herbergi, gestasnyrt-
ingu, baðherbergi, eldhús o.fl. Parket og
náttúrusteinn á gólfum. Marmari á baði.
Tvennar svalir. Sam. þvottahús á hæð.
V. 18,3 m. 2164
Vesturgata - falleg
3ja-4ra herb. 114,5 fm íbúð á 1. hæð í
nýlegu fjölbýlishúsi. Íbúðin er mjög opin
og björt með stórum stofum, opnu eld-
húsi o.fl. Tvennar svalir. Parket og flísar
á gólfum. Fataherb. innaf hjónah. Baðh.
er allt flísalagt í hólf og gólf og bæði
með baðkari og sturtuklefa. Laus fljót-
lega. V. 13,5 m. 2174
Eskihlíð
Mjög falleg og rúmgóð 5-6 herbergja
íbúð á 3. hæð í blokk sem lítur vel út.
Íbúðin er u.þ.b. 130 fm og skiptist m.a. í
kæli, borðstofu, stofu, fjögur herbergi og
baðherbergi. Góð íbúð. V. 14,8 m. 2137
3JA HERB.
Kleifarsel - rúmgóð
3ja herbergja björt og góð íbúð á 1.
hæð. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, sér-
þvottaherbergi, tvö herbergi, baðher-
bergi og rúmgóða stofu. Stórar suður-
svalir eru út af stofu og hjónaherbergi. V.
10,9 m. 2170
Reynimelur - glæsileg
3ja herb. glæsileg íbúð á 4. hæð í eftir-
sóttri blokk. Íbúðin hefur nær öll verið
standsett, s.s. gólfefni, eldhús, bað o.fl.
Fallegt útsýni. Ákv sala. V. 11,0 m. 2169
OPIÐ HÚS
Kópavogsbraut - einstök eign
Vorum að fá í einkasölu einbýli í sér-
flokki við Kópavogsbraut. Eignin,
sem er alls um 300 fm, skiptist m.a.
í fjögur herbergi, tvær stofur, snyrt-
ingu, baðherbergi og eldhús. 40 fm
sólstofa með sjávarútsýni. Lóðin er
u.þ.b. 1.500 fm og er hún afgirt,
með afdæmum gróðursæll og stór
og falleg tré. V. 38,0 m. 2172