Morgunblaðið - 24.02.2002, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 53
DAGBÓK
Opið alla daga frá kl. 10 til 19 – einnig um
helgar. Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Reykjavík: Perlan, sími 562 9701.
Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð,
símar 461 5050 og 861 1780.
Bókamarkaður
Félags íslenskra bókaútgefenda
24. febrúar
til 3. mars
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
1. mars og laugardaginn 2. mars
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Höfum hafið störf á Space,
Rauðarárstíg 41.
Tímapantanir í síma
551 3430.
Sigga, Selma og Sússa.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hreinskilinn og átt
stundum til að koma of bratt
að fólki þegar þú ræðir við
það umbúðalaust. Þú átt
gott ár í vændum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert ánægður með lífið.
Horfðu vel í kringum þig og
vertu viss um að allt sé eins
og það á að vera. Haltu vöku
þinni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vertu sérstaklega á varð-
bergi gegn ýmsum sögum
um menn og málefni, sem þér
eru sagðar. Gakktu sjálfur úr
skugga um sannleiksgildið.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu ekki velgengnina stíga
þér til höfuðs. Þótt meðbyr-
inn sé ljúfur er drambið falli
næst. Sýndu lítillæti og allir
munu virða þér það til tekna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Stundum verður bara að kýla
á hlutina en ekki bíða þess að
þeirra tími sé kominn. Ef þú
gerir þetta með kurteisi og
djörfung muntu hafa þitt
fram.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er um að gera að leita
eftir samstarfi við þá, sem
þér finnast geta aukið við
hugmyndir þínar. Mundu að
samstarf byggist á tillits-
semi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Lifðu þínu lífi og leyfðu öðr-
um að stjórna sínu. Reyndu
að sitja á tilhneigingu þinni
til þess að ráðskast með aðra.
Hún á engan rétt á sér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ekki rétt að breyta til
einungis breytinganna
vegna. Það þurfa að liggja
mjög veigamiklar ástæður að
baki svo vel megi fara.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þótt þú hljótir ekki verðlaun-
in mun það gefa þér margt í
aðra hönd að hafa átt hlut að
máli. Njóttu þeirra ávaxta
erfiðis þíns öfundarlaust.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt verkefnin hlaðist upp
máttu ekki vanrækja sjálfan
þig. Enda skaltu muna að þú
kemur meiru í verk sértu út-
hvíldur og ánægður.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er farsælast að leysa
hvert mál þegar það kemur
upp á borðið. Það hefnir sín
bara að ætla að fresta óhjá-
kvæmilegum hlutum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur fyllstu ástæðu til
þess að vera ánægður með
sjálfan þig en mundu að
dramb er falli næst. Leyfðu
öðrum að deila gleðinni með
þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er dagur athafna svo
vertu óhræddur við að ríða á
vaðið og fara þínar eigin leið-
ir. Þú hefur þá ekki við neinn
að sakast nema sjálfan þig.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
70ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 25.
febrúar, er sjötug Margrét
Árnadóttir, Austurbergi
32, Reykjavík. Hún, og fjöl-
skylda hennar, taka á móti
ættingjum og vinum í dag kl.
15–17 að Sléttuvegi 17,
Reykjavík.
60ÁRA afmæli. Á morg-un, mánudaginn 25.
febrúar, er sextugur Þor-
steinn Eggertsson, rithöf-
undur og söngvaskáld,
Skipholti 18, Reykjavík. Á
afmælisdaginn kl. 20–24
verður hann staddur á Veit-
ingastaðnum Amsterdam,
Tryggvagötu.
LJÓÐABROT
MORGUNBÆNIN
Nóttin hefur níðzt á mér,
nú eru augun þrútin,
snemma því á fætur fer
og flýti mér í kútinn.
Við það augun verða hörð,
við það batnar manni strax.
Það er betra en bænagjörð
brennivín að morgni dags.
Páll Ólafsson
ÞEGAR hendur NS eru skoð-
aðar í einangrun virðist nóg
að gert að spila fjögur hjörtu.
Og með allar hendur uppi
virðist það meira en nóg:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ ÁKG95
♥ G973
♦ K5
♣109
Vestur Austur
♠ D10873 ♠ 62
♥ 5 ♥ K1084
♦ 108 ♦ D973
♣G7643 ♣KD5
Suður
♠ 4
♥ ÁD62
♦ ÁG642
♣Á82
Spilið er frá tvímenningi
Bridshátíðar. Fjögur hjörtu
var hinn almenni samningur,
en auðvitað fóru nokkur pör í
slemmu, iðulega með slæmum
árangri. Ragnar Magnússon
og Valur Sigurðsson voru í
hópi slemmuparanna, en
Ragnar var svo heppinn að
austur doblaði og upplýsti þar
með hina slæmu legu í tromp-
inu. Sagnir gengu þannig:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Dobl Allir pass
Stökk Vals í fjögur lauf er
slemmutilboð og um leið fyr-
irstöðusögn. Það er reyndar
nokkuð djúpt á fyrirstöðunni,
en Valur vildi ekki fá út lauf.
En það kom nú samt lauf út
gegn slemmunni. Ragnar tók
drottningu austurs með ás,
fór inn í borð á spaðaás og
húrraði út hjartagosa. Austur
lagði kónginn á og Ragnar tók
með ás. Lét svo trompið eiga
sig í bili og fór í tígulinn – spil-
aði á kónginn, svínaði gosan-
um og henti laufi í ásinn. Vest-
ur gat ekki trompað tígul-
ásinn og henti laufi, svo nú lá
spilið nokkuð ljóst fyrir.
Ragnar stakk næst tígul og
tók á spaðakónginn. Tromp-
aði svo spaða (austur henti
laufi) og lauf aftur í borði.
Staðan var þá þessi:
Norður
♠ G9
♥ 9
♦ --
♣--
Vestur Austur
♠ D108 ♠ --
♥ -- ♥ 1084
♦ -- ♦ --
♣G ♣--
Suður
♠ --
♥ D6
♦ 6
♣--
Nú kom spaði úr blindum.
Austur trompaði með áttunni,
en Ragnar yfirtrompaði með
drottningu og stakk tígul í
borði með níunni. Austur fékk
aðeins einn slag á tromp og
Ragnar og Valur tóku 1210
fyrir spilið og hreinan topp.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1.e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Bc5 4. O-O d6 5. c3 Bd7 6. d4
exd4 7. cxd4 Bb6 8. Rc3 h6 9.
He1 Rge7 10. Be3 O-O 11.
Dd2 Kh7 12. Bd3 Dc8 13.
e5+ Bf5 14. Re4 dxe5 15.
dxe5 Bxe3 16. Dxe3 Rb4 17.
Bb1 Red5 18. Db3 Hd8 19.
Rh4 Kh8 20. a3 Rc6
21. Rd6 cxd6 22. Bxf5
Rd4 23. Dxd5 Rxf5 24. Rf3
Dd7 25. exd6 Rxd6 26. Had1
Dc7 27. Re5 Db6 28. b4 a5
29. Dc5 Ha6
Staðan kom upp á meist-
aramóti Taflfélagsins Hellis
sem stendur nú yfir. Björn
Þorsteinsson
(2310) hafði hvítt
gegn Aroni Inga
Óskarssyni (1340).
30. Hxd6! Hxd6 31.
Rxf7+ Kh7 32.
Rxd6 Dxd6 33.
Df5+ Dg6 34.
Dxg6+ Kxg6 35. g3
Í endataflinu sem
nú fer í hönd, ætti
svartur hafa góða
möguleika að halda
jafntefli. Ungur
nemur, gamall tem-
ur segir hið forn-
kveðna og án efa
hefur Björn kennt
unga andstæðingi sínum
sitthvað í endatöflum.
35...axb4 36. axb4 Hb6 37.
He4 Kf5 38. Hc4 Hc6 39.
Hf4+ Ke6 40. h4 h5 41. Kg2
b5 42. Kf3 Hc4 43. Hxc4
bxc4 44. Ke4 og svartur
gafst upp. Úrslitaeinvígi Ís-
landsmótsins í atskák hefst
kl. 14.00 í dag, 24. febrúar.
Sýnt verður frá einvíginu í
beinni útsendingu Ríkis-
sjónvarpsins.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FYRIR allmörgum árum
var ofangreint nafnorð til
umræðu í þessum pistlum.
Var þá bent á, að þetta
væri danskt tökuorð og í
raun þarflaust, enda þótt
allgömul dæmi væru um
það í máli okkar. Ekki alls
fyrir löngu brá orðinu fyrir
í fréttatíma RÚV. Gefur
það mér því tilefni til að
minna aftur á það, sem áð-
ur var sagt, enda finnst
mér heldur hafa slaknað á
tungutaki á þeim bæ, síðan
sérstakur málfarsráðu-
nautur hvarf frá stofnun-
inni. Menn segja stundum
sem svo: Hann hafði lifi-
brauð af þessu eða hinu.
Orðabók Blöndals og eins
OM (1983) setja ? framan
við þetta orð, enda táknar
það „vont mál eða merk-
ingu, sem forðast beri í ís-
lensku“, svo sem segir í
OM. Í OM fylgir þessi
skýring: „e-ð sem maður
lifir á, vinnur fyrir sér með,
atvinna.“ Í dönsku er talað
um levebröd og sagt
merkja starfsemi, stöðu,
sem menn lifa á: hans leve-
bröd er journalistik, þ.e.
hann lifir á eða aflar sér
viðurværis með blaða-
mennsku. Í Dönsku orða-
bók Freysteins Gunnars-
sonar (1926) er orðið sagt
merkja viðurværi; atvinna
(af embætti), brauð, staða.
Þótt undarlegt sé, er fyrstu
merkingunni viðurværi
sleppt í seinni útgáfu bók-
arinnar, en sú merking á
einna bezt við íslenzka
notkun orðsins. Elzta
dæmi, sem fundið verður í
seðlasafni OH, er frá 1809 í
bréfi frá Ingibjörgu, móður
Gríms Thomsens skálds,
en upp frá því eru mörg
dæmi í safninu allt fram á
okkar tíma. Vafalítið hefur
orðið borizt eitthvað fyrr
inn í mál okkar en við höf-
um heimildir um og trúlega
með dönskum embættis-
mönnum eða jafnvel ís-
lenzkum námsmönnum frá
Danmörku. Þrátt fyrir það
er ástæðulaust að veita
orðinu áfram brautargengi
í íslenzku máli, meðan við
höfum enn betri orð á tak-
teinum. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Lifibrauð
DILBERT mbl.is