Morgunblaðið - 24.02.2002, Síða 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is. i .i5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 13
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán 4, 6, 8 og 10. B. i. 14.
Spennutryllir
ársins
Dóttur hans er rænt! Hvað er til ráða?
Spennutryllir ársins með Michael Douglas.DV
Mbl
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
l
i i .
Ath! síðustu sýningar á Lord of the Rings í Lúxussal.
tilnefningar til
Óskarsverðlauna13 il i ill
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i.16 ára.
Eina vopn hans er viljinn til að lifa.
Stanslaus spenna frá upphafi til enda.
Með stórleikaranum Gene Hackman
og hinum frábæra Owen Wilson.
Frumsýning
Glæný leysigeislasýning í sal-1 á undan myndinni
Fílaðir þú „Scary Movie“...Hverjum er ekki skítsama!
Fyndnasta mynd ársins og rúmlega það!
SV Mbl
DV
Sýnd kl. 3 og 5.40. Mán 5.40
Gwyneth Paltrow Jack Black
Sýnd sunnudag kl. 2.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd í LÚXUS kl. 10.30.
Mánudagur kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd í LÚXUS kl. 10.30.
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12. Sýnd í LÚXUS kl. 2 og 6.
Mánudagur kl. 4 og 8. B.i. 12. Mán í LÚXUS kl. 6.
Laugavegi 54
Sími 552 5201
Ferming í Flash
Mikið úrval af fallegum
fermingarfötum
• kjólar
• skyrtur
• pils
• toppar
• buxur
Opið í dag
frá kl. 13-17
ÞAÐ Á ekki af John Constantine,
aðalsöguhetju Hellblazer að ganga.
Allt síðan myndasögujöfurinn Alan
Moore vakti hann til lífsins á síðum
Swamp Thing hefur hann þurft að
ganga í gegn um allra handa eld-
raunir og orðið vitni að slíkum hryll-
ingi að flestum hefði verið nóg boð-
ið. Í gegn um tíðina hafa samlandar
hans, Garth Ennis (þekktastur fyrir
Preacher) og Warren Ellis (Trans-
metropolitan, Planetary) farið hrjúf-
um höndum um þennan sjarmerandi
breska galdrakarl og drullusokk.
Nú er mælirinn hins vegar orðinn
fullur og til að túlka stefnubreyt-
inguna sem því fylgir er fenginn
bandarískur höfundur til að sjá um
uppgjörið og fer það fram í Banda-
ríkjunum.
Í síðustu bók, Hard Time, fer
Constantine í fangelsi fyrir að hafa
ekki komið í veg fyrir sjálfsmorð
kunningja síns. Allt fór í bál og
brand eins og við var að búast og
Constantine virtist missa glóruna í
fangauppreysn sem fylgdi í kjölfar-
ið. Honum var sleppt til þess að
koma í veg fyrir frekari blóðsúthell-
ingar og þá lá leiðin til suðurríkj-
anna, nánar tiltekið til útnárabæjar
með því sjarmerandi nafni Doglick.
Þar erum við stödd í upphafi þess-
arar nýju bókar, Good Intentions.
Ætlunin var að ganga frá málum
sem tengdust fyrrnefndu sjálfs-
morði við ættingja fórnarlambsins
sem þar búa og hefur það alvarlegar
afleiðingar í för með sér.
Azzarello, sem einnig skrifar eina
bestu myndasöguna sem gefin er út
þessa dagana, 100 Bullets, hefur
greinilega fengið nokkuð frjálsar
hendur með túlkun sína á söguhetj-
unni. John Constantine virðist nán-
ast orðin illur eftir allt það sem á
undan er gengið og sýnir litla við-
leitni til góðverka. Í staðinn lætur
hann sig berast með straumnum og
sjálfseyðingarhvötin hefur náð há-
marki og var þó mikil fyrir. Það fer
líka svo að lesandinn á í mestu erf-
iðleikum með að skilja það sem fram
fer í bókinni. Azzarello virðist telja
að það sem þarf til þess að halda les-
andanum við efnið sé að sýna bara
nógu mikinn óhugnað. Hann fer því
út í öfgar til þess að takast það ætl-
unarverk sitt en missir dampinn í
leiðinni. Bókin hefst vel og byggir
upp heljarinnar spennu sem leysist
síðan upp í óþarfa subbulegar lýs-
ingar. Það kemur ávallt illa við mig
þegar höfundar reyna að fela rýra
sögu með augljóslega úthugsuðum
leiðum til að koma við kaunin á les-
endum og ég held að Azzarello hafi
náð þar nokkru hámarki að þessu
sinni.
Það kemur ekki beinlínis á óvart
að Azzarello skuli velja suðurríkin
sem vettvang fyrir þessa sögu. Það
fer illt orðspor af þessu víðfeðma
landsvæði eftir þá meðferð sem suð-
urríkin hafa fengið í gegn um árin í
myndasögum eins og Preacher, bók-
um eins og To kill a Mockingbird og
kvikmyndum á borð við Deliver-
ance. Sú mynd sem höfundar bregða
upp sýnir að þröngsýni, sveitalubba-
háttur, kynþáttafordómar og úr-
kynjun ráði þar ríkjum. Ég hef þó
miklar efasemdir um að sú sé raunin
ef nánar er að gáð. Þessi notkun á
suðurríkjunum sem uppsprettu hins
illa í svo mörgum tilfellum ber að
mínu viti vott um skammsýni og for-
dóma og mér finnst þetta frekar
ódýr og ofnotuð leið til þess að setja
upp leiktjöld fyrir hryllingssögu.
Ég vil að John Constantine fari að
komast aftur til London þar sem
hann á heima og höfundar hafa
meiri skilning á því hvað hann tákn-
ar. Hefjum söfnun fyrir flugmiðan-
um strax í dag.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Subbugangur í
suðurríkjunum
Myndasaga vikunnar er Hellblazer: Good
Intentions eftir Brian Azzarello (texti) og
Marcelo Frusin (teikningar). Gefin út af
Vertigo, 2002 og fæst í myndasöguversl-
uninni Nexus.
Heimir Snorrason
heimirs@mbl.is
Trúleysingi efast.
ÞESSA dagana er Íslenski dans-
flokkurinn með sýningu í Borgar-
leikhúsinu, þar sem flutt eru tvö
dansverk sem samin eru við tónlist
Tom Waits annars vegar og írsku
þjóðlagarokkaranna The Pogues
hins vegar. Sýningin þykir fjörug og
skemmtileg og nýtur mikilla vin-
sælda. Lára Stefánsdóttir dansari
tekur þátt í sýningunni, og fer með-
al annars með hlutverk gleðikonu
sem verður ólétt og fær gullfisk í
magann, einsog sjá má á meðfylgj-
andi mynd.
Hvernig hefurðu það í dag?
Svo framarlega sem mér tekst að
horfa fram hjá vaxandi siðleysi í
þjóðfélaginu og heiminum öllum þá
líður mér ákaflega vel og minni mig
stöðugt á að vera friðsæl sál!!!!
Það er svo gott að fara inn á við í
staðinn fyrir út á við!!
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
Góða vetrarhanska, Zovir-frunsu-
áburð, varasalva og alla hugsan-
lega lykla sem ég þarf á að
halda.
Ef þú værir ekki dansari hvað
myndirðu vilja vera?
Ef ég væri ekki dansari,
myndi ég vilja vera óperu-
sönkona.
Hverjir voru fyrstu tón-
leikarnir sem þú fórst á?
Ég hreinlega man það
ekki.
Hvaða hlut myndir þú
fyrst bjarga úr eldsvoða?
Gullfallegri bænamynd
sem Guðfinna Inga Sverris-
dóttir miðill málaði og gaf mér.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ætli það sé ekki óþolinmæði,
hmmm.
Hefurðu tárast í bíó?
Jáhá, oft og mörgum sinnum, og
líka grátið.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Hérna koma fimm orð beint úr
stjörnukortinu mínu, 1. tilfinninga-
lega kappsöm, 2. rökföst, 3. skipu-
lögð, 4. með fullkomnunarþörf 5.
einlæg. Ég held að ég sé bara sam-
mála Gulla stjörnuspekingi.
Hvaða lag kveikir blossann?
Intermesso úr Cavalliera Rustic-
ana eftir Mascagni. Þetta er svona
það fyrsta sem mér datt í hug, ég
nefnilega flutti dans við það í mjög
skemmtilegu kvenna-kampavíns-
boði sem var haldið í húsi nokkru
hér í Reykjavík ekki alls fyrir löngu.
Allavega kveikti það lag stóran
dans-blossa.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik?
Sorrí, ég er ein af þeim sem hef
ekki gert nein prakkarastrik.
Boring!!!!!!
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Krókódílakjöt sem ég bragðaði í Jó-
hannesarborg í S-Afríku.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
The Original Great Tenors; Gigli,
Caruso, Björling. Ég keypti
hana í Kolaportinu fyrir algjört
slikk.
Hvaða leikari/leikkona fer
mest í taugarnar á þér?
Julia Roberts, varirnir á
henni taka allt of mikinn
fókus í leiknum.
Hverju sérðu mest eftir í líf-
inu?
Að hafa ekki stöðugt nært sálina
af meiri staðfestu.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já, ég er sannfærð um að það er
líf eftir dauðann.
Gott að fara inn á við
SOS
SPURT & SVARAÐ
Lára Stefánsdóttir,
dansari í Íslenska
dansflokknum