Morgunblaðið - 17.03.2002, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 17. MARS 2002
TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Morgunblaðið/Gunnar Hersveinn
Pýramídarnir í Egypta-
landi voru eins konar
skotpallur faraóanna til
heimkynna guðanna og
lendingarstaður end-
urkomunnar. Pýramíd-
anrnir eru óafmáanlegur
minnisvarði um viðhorf
til dauðans. Gunnar
Hersveinn gekk ofan í
pýramída Menkauresar í
Gíza og dvaldi þar um
stund undir þremur ás-
um; Níl, sól og jörð.
Menkaures þráði eilífan
æskuljóma. Pýramíd-
arnir voru rannsókna-
hús, m.a. um að stöðva
tímann og ná sambandi
við guðina./12
Tilraun
um
dauðann
ferðalögBændagistingbílarVel búinn CliobörnBesti vinur BrandsbíóDraugakastalinn
Sælkerar á sunnudegi
Vínhéruð Austurríkis
Ánægðir
á meðan
fólk nennir
að hlusta.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
17.mars 2002
BSamheldni á stóran
þátt í velgengninni
10
14
Risavaxinn samruni
Á hjara veraldar
16
múslíma. Einn múslími að minnsta
kosti var þá stunginn til bana.
Í gær féllu tveir þegar örygg-
ELDRI kona situr við gluggann á
heimili sínu í borginni Ahmedabad á
Indlandi í gær þar sem útgöngu-
bann hafði verið sett í kjölfar blóð-
ugra óeirða í borginni á föstudaginn
þegar hópar hindúa kveiktu í stræt-
isvagni og kofum í fátækrahverfum
issveitir hersins hófu skothríð á
múg manns sem lét ófriðlega í Guj-
arat-ríki. Fyrir tæpum mánuði féllu
þar 700 manns í átökum hindúa og
múslíma, er brutust út í kjölfar árás-
ar múslíma á járnbrautarlest sem
flutti hindúa frá bænum Ayodhya,
þar sem öfgasinnaðir hindúar
rústuðu mosku múslíma fyrir tíu ár-
um.
AP
Útgöngubann
STRANGAR öryggisráðstafan-
ir sem bandarísk flugmálayfir-
völd eru sögð krefjast við flug-
ferðir ef
rithöfundurinn
Salman Rushd-
ie er meðal far-
þega hafa leitt
til þess að kan-
adíska flug-
félagið Air
Canada neitar
að hleypa
Rushdie um
borð í vélar félagsins. Fulltrúi
Air Canada staðfesti að Rushdie
fengi ekki að fljúga með félaginu
vegna þess að það gæti tafið
brottför um allt að þrjár klukku-
stundir að gera þær öryggisráð-
stafanir sem krafist væri.
Íranski trúarbyltingarleið-
toginn Ayatollah Khomeini gaf
árið 1989 út tilskipun þess efnis
að Rushdie skyldi líflátinn hvar
sem til hans næðist vegna bókar
hans, Söngva Satans, sem marg-
ir múslímar töldu vera guðlast.
Þótt írönsk stjórnvöld hafi
seinna sagt að tilskipunin sé
ekki lengur gild hafa harðlínu-
sinnaðir hópar ítrekað kröfur
um að Rushdie skuli myrtur.
Að sögn fulltrúa Air Canada,
Laura Cooke, kveða reglugerðir
bandaríska loftferðaeftirlitsins
(FAA) á um, að sérstakar ör-
yggisráðstafanir skuli gerðar ef
Rushdie sé meðal farþega í flug-
vél sem komi til Bandaríkjanna.
Air Canada líti svo á, að sömu
ráðstafanir verði að gera vegna
flugferða innan Kanada. En í
stað þess kjósi félagið fremur að
meina Rushdie að ferðast með
vélum þess.
Talsmaður FAA, Laura
Brown, staðfesti að þessar sér-
stöku reglur um öryggisráðstaf-
anir væru fyrir hendi en vildi
ekki ræða þær nánar. „Við höf-
um öryggisreglur sem kveða á
um sérstakar ráðstafanir vegna
tiltekinna, vel þekktra einstak-
linga,“ sagði Brown, en vildi
hvorki játa því né neita að þess-
ar reglur giltu um Rushdie.
Í tölvuskeyti sem Air Canada
sendi til ferðaskrifstofa og
starfsfólks á flugvöllum fyrr í
mánuðinum sagði að neita bæri
Rushdie um aðgang að flugvél-
um félagsins: „Ef rithöfundur-
inn Salman Rushdie skyldi
reyna að bóka far eða koma á
flugvöllinn má ekki – endurtek,
ekki – veita honum far.“
Neita að
flytja
Rushdie
Ottawa. AP.
Rushdie
BANDARÍSKIR herstjórnendur
telja sig hafa þurrkað út helstu hern-
aðarstjóra al-Qaeda-samtakanna í
stórfelldri árás í austurhluta Afgan-
istans, að því er háttsettur banda-
rískur hernaðarfulltrúi greindi frá í
gær. Um eitt þúsund hermenn
bandamanna eru enn að leita í
hellum sem talibanahermenn og al-
Qaeda-liðar yfirgáfu í grennd við
Shahi Kot-dalinn, sagði fulltrúinn,
Bryan Hilferty.
Í hernaðaraðgerðinni, sem nefnd
var Anaconda, hefðu sumir helstu
foringjar og þjálfarar í samtökum
Osama bin Ladens verið felldir. „Við
tókumst á við þá með alls konar
vopnum af nýjustu gerð, og ég held
hreinlega að það hafi gert út af við
þá,“ sagði Hilferty. Hann kvaðst
ekki telja að margir talibanar eða al-
Qaeda-menn hefðu sloppið, þótt slíkt
væri mögulegt. En áreiðanlegt væri
að ekki hefðu stórir hópar komist
undan.
Mörg hundruð al-Qaeda-liðar
og talibanar felldir
Herstjórar bandamanna hafa lýst
árásinni á þetta síðasta þekkta vígi
fylgismanna bin Ladens sem
„kennslubókardæmi“ um vel heppn-
aðar aðgerðir og telja að mörg
hundruð al-Qaeda-liðar og talibanar
hafi verið felldir. Héraðsstjórinn í
Paktía-héraði í Austur-Afganistan
sagði í gær að innan við eitt hundrað
vopnaðir talibanar og al-Qaeda-
menn væru eftir í héraðinu. Ekki
væri lengur barist þar.
Hilferty greindi ennfremur frá
því, að bandamenn hefðu fundið her-
gögn, fatnað og skjöl sem talibanar
og al-Qaeda-menn hefðu skilið eftir.
Sum skjölin væru „viðkvæm“. Þau
væru á arabísku og frönsku. „Þetta
eru dagbækur, handbækur og bréf,“
sagði Hilferty.
Telja sig hafa fellt alla
helstu leiðtoga al-Qaeda
Bargram-herstöðinni í Afganistan. AFP.
Aðgerðin Anaconda sögð vera „kennslubókardæmi“
TVEIR fórust og þrír slösuðust þeg-
ar fólksflutningabifreið varð fyrir
snjóflóði sem bar hana út í sjó
skammt frá Bergen í Noregi í gær-
morgun. Slysið varð í Eiðfirði í
Hörðalandi. Fimm skíðamenn voru í
bílnum á leið frá Bergen til skíða-
staðarins Geilo.
Tveir hinna slösuðu, karl og kona,
voru alvarlega meiddir og voru flutt-
ir með þyrlu á sjúkrahús í Bergen, að
því er greint var frá í netútgáfu Aft-
enposten. Sá þriðji fékk læknishjálp
á slysstaðnum.
Slysið varð rétt fyrir klukkan tíu í
gærmorgun að staðartíma, eða rétt
fyrir níu að íslenskum tíma. Aften-
posten hefur eftir bílstjórum, að al-
gengt sé að snjóflóð falli á þennan
veg, en sjaldan á þeim stað þar sem
slysið varð. Til þess að ganga úr
skugga um að ekki hefðu fleiri lent í
flóðinu var farið með leitarhunda um
svæðið síðdegis í gær.
Tveir
fórust í
snjóflóði
í Noregi
Bergen. AFP.