Morgunblaðið - 17.03.2002, Síða 22
Morgunblaðið/Sverrir
Slippfélagið 100 ára. Hluti starfsfólksins, Hilmir Hilmisson framkvæmdastjóri í forgrunni.
HILMIR sagði að Slipp-félagið í Reykjavík hf.væri í dag málningar-verksmiðja. Það hefði
gerst þannig að rekstur dráttar-
brautanna í vesturhöfninni í
Reykjavík var seldur 1988 til Stál-
smiðjunnar. Slippfélagið hélt eftir
málningarverksmiðjunni og hefur
til dagsins í dag lagt alla áherslu á
framleiðslu og sölu á málningu og
skyldum efnum. Einnig hefði félag-
ið rekið smásöluverslanir.
Hver verður þróunin
næstu misseri og árin?
„Félagið lagði fyrst aðaláherslu á
framleiðslu og sölu á skipamáln-
ingu og er í samstarfi við einn
helsta skipa- og iðnaðarmálningar-
framleiðanda í heiminum, Hempel,
sem er alþjóðlegt fyrirtæki með að-
alstöðvar í Kaupmannahöfn. Slipp-
félagið er langstærsti framleiðandi
á Íslandi á skipa- og iðnaðarmáln-
ingu og með ráðandi markaðsstöðu.
Einnig er fyrirtækið hátt skrifað í
húsamálningu og tengdum efnum,
t.d. sparsli o.þ.h. og er í samstarfi
við einn helsta málningarframleið-
anda á Norðurlöndum í þeim efn-
um, Alcro-Beckers í Svíþjóð. Félag-
ið hyggur á enn frekari framþróun
og hefur nú þegar haslað sér völl í
myndlistargeiranum, þ.e. býður
upp á mjög breiða línu á myndlist-
arvörum, liti, striga, ramma, trönur
og nánast allt sem listamaðurinn
þarf. Einnig er verið að leggja
meiri áherslu á verslunarrekstur,
bæði eigin og í samstarfi við aðra.“
Hvað verður gert til
hátíðarbrigða?
„Afmælisdaginn sjálfan, föstu-
daginn 15. mars, var boðið til veislu
á Grand Hótel. Það var 600 manna
veisla þar sem helstu frammá-
mönnum þjóðarinnar var boðið og
borgarstjórinn flutti hátíðarræðu.“
Hver er staða fyrirtækisins og
hverjar eru framtíðarhorfurnar?
„Staðan er góð og félagið og
starfsfólkið horfir björtum augum á
framtíðina.“
Hver er markaðsstaða
Slippfélagsins?
„Félagið er sterkt á íslenskum
málningarmarkaði og var til
skamms tíma stærsta verksmiðjan í
landinu. Miklar hræringar eru á
þessum markaði og nýlega samein-
uðust tvær verksmiðjur í eina og
eftir það eru starfandi þrjár verk-
smiðjur á markaðinum. Samkeppn-
in er mikil, ekki eingöngu við ís-
lenskar verksmiðjur heldur einnig
og ekki síður við erlendan innflutn-
ing. Slippfélagið framleiðir nánast
allt sem félagið selur og starfa tæp-
lega 40 manns hjá félaginu. Félagið
leggur í ríkari mæli áherslu á um-
hverfisvæna málningu og hefur
gefið út umhverfisstefnu.“
Framleiðum allt sem við seljum
Hilmir Hilmisson, fram-
kvæmdastjóri Slippfélags-
ins, hefur marga fjöruna
sopið á þeim bæ. Hann var
ráðinn aðstoðarmaður Þór-
arins Sveinssonar fram-
kvæmdastjóra 1985. Vegna
fráfalls Þórarins skömmu
síðar tókst Hilmir strax á
við það erfiða verkefni að
koma skipasmíðaþætti fyr-
irtækisins út úr erfiðu
rekstrarumhverfi. Guð-
mundur Guðjónsson ræddi
við Hilmi á dögunum.
22 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÝMSIR stjórnendur leiddufyrirtækið í gegn um marg-víslega umbrotatíma síð-ustu aldar og var ýmist
dauðinn lapinn úr skel, eða það var
uppgangur og góðæri. Árið 1930
höfðu verið mikil vandræði, en þeir
Benedikt Gröndal og Hjalti Jónsson
(Eldeyjar-Hjalti) koma þá inn sem
nýir hluthafar, með aukið hlutafé og
úr varð sameining við Vélsmiðjuna
Hamar sem efldi bæði fyrirtækin. Ár-
ið 1932 var mikilvægt ár í sögu fyr-
irtækisins, en þá tók við stjórnvelin-
um ungur verkfræðingur að nafni
Sigurður Jónsson. Hann sá til þess að
tvær dráttarbrautir upp á 600 og 800
tonn voru byggðar og þar með var
hægt að sinna öllum skráðum inn-
lendum fiskiskipum.
Sigurður sat í 37 ár og lét af störf-
um 1968.
Einn kafli í sögu fyrirtækisins er
þáttur verslunarinnar. Strax á fyrstu
árunum var rekin smásöluverslun
með vörur tengdar skipaviðgerðum.
Þegar árið 1906 var kominn alvöru
rekstur og jókst með tímanum.
Árið 1951 urðu síðan tímamót sem
mótuðu Slippfélagið til framtíðar.
Gerður var samstarfssamningur milli
Hempels Main Paint í Danmörku og
Slippfélagsins í Reykjavík um fram-
leiðslu Hempels-skipamálningar.
Fyrirtækið hafði frá fornu fari verið
til húsa við Mýrargötuna, en gat ekki
haldið þar til eftir að hefjast átti
handa við málningarframleiðslu. Lóð
við Dugguvog varð fyrir valinu og fyr-
irtækið kom sér þar upp nýjum bæki-
stöðvum.
Bygging málningarverksmiðjunn-
ar hófst 1968 og var henni lokið í
þremur áföngum. Fóru menn rólega í
sakirnar, en allt fór á besta veg og
hefur reksturinn lengst af verið góð-
ur. Framleiðsla hófst 1970 og á síð-
asta áratug síðustu aldar komst fram-
leiðslan í eina milljón lítra og var
verksmiðjan þá sú stærsta í landinu.
Upphaflega var eingöngu fram-
leidd botnmálning en fljótlega bættist
skipalakk og þakmálning við. Nú er á
ferðinni alhliða málningarverksmiðja
sem er í fararbroddi með notkun vist-
vænna efna.
Árið 1986 var tekin upp samvinna
við málningarframleiðandann Alcro,
síðar Alcro-Beckers, í Svíþjóð til þró-
unar á vatnsþynnanlegri akrílmáln-
ingu. Samstarfið við Svía og Dani hef-
ur verið mjög gott að sögn
Slippfélagsmanna, enda báðar þjóð-
irnar í fremstu röð umhverfissinna í
heiminum. Slippfélagið í Reykjavík
varð fyrst á Íslandi til að framleiða
t.d. eiturefnalausa botnmálningu fyr-
ir skip og vatnsþynnanlega þakmáln-
ingu og mætti nefna fleira.
Grundvallarbreyting
Hinn 1. janúar 1989 urðu grund-
vallarbreytingar á rekstri félagsins
þegar það seldi Stálsmiðjunni hf. í
Reykjavík eignir sínar við vestur-
höfnina. Þar á meðal allt sem til varð í
upphafi, brautir og byggingar. Slipp-
félagið hefur þó aldrei slitið tengslin
við uppruna sinn og á erfiðleikatímum
í skipasmíðaiðnaðinum tók fyrirtækið
þátt í endurreisn Stálsmiðjunnar og
er nú stærsti hluthafinn í Stáltaki,
sem varð til við samruna Stálsmiðj-
unnar og Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri. Eftir þessar breytingar felur
starfsemi Slippfélagsins í Reykjavík í
sér nær eingöngu framleiðslu á máln-
ingu og ýmsu því tengdu. Frá upphafi
tengdist málningarframleiðslan ein-
göngu útgerðarfyrirtækjum en með
breyttum tímum eru tengslin ekki
síður við málara og almenna neytend-
ur, þó útgerðin skipi ennþá stóran
sess meðal viðskiptavina. Slippfélagið
er með umboðsmenn um land allt og
heldur reglulega námskeið fyrir mál-
arameistara auk þess að sækja kaup-
stefnur og námskeið víða um Evrópu
til að vera ávallt í fararbroddi hvað
fagmennsku varðar, að því er þeir
Slippfélagsmenn segja.
Reykjavík á síðustu öld, nóg að gera í Slippnum.
Saga vel-
gengni og
erfiðleika
Slippfélag Reykjavíkur er 100 ára um þessar mundir. Þar á bæ segja menn að saga sjávarútvegs í landinu sé jafn gömul landnám-
inu. „Slipp-starfsemi“ var þó í byrjun engin og lengi vel harla frumstæð og það var ekki fyrr en 15. mars 1902 sem Slippfélagið við
Faxaflóa var stofnað fyrir atbeina Tryggva Gunnarssonar. 1903 var nafni fyrirtækisins síðan breytt í það sem það er í dag. Fyr-
irtækið á sér því langa sögu þó að í dag snúist starfsemin um allt annað en hún gerði á upphafsárunum.
Slippfélag Reykjavíkur. Slippurinn á 75 ára afmæli fyrirtækisins.