Morgunblaðið - 17.03.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.03.2002, Qupperneq 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ vinnslan skemmtilega einföld og gróf í stíl við vinnuaðferðir listamannsins. Sigríður Salvarsdóttir sem er aðeins litlu yngri en aldursforseti sýning- arinnar, Guðmunda Andrésdóttir, sem á eitt verk á neðri hæð, á hér fyrrnefnd verk úr mannshárum en úr hárunum vefur hún ýmsar krúsi- dúllur sem vekja með manni hroll- kennda tilfinningu. Verkin eru nú- tímaleg enda bjóst ég alveg eins við því að Sigríður væri nýskriðin úr listaskóla! Í þessum sal er annars sterk áhersla á útsaums- og textílverk sem tengist greinilega áhuga Evu á handavinnu sem hún kemur inn á í ágætu viðtali við Aðalstein Ingólfs- son í sýningarskrá. Hér á meðal er óvenjulegt útsaumað verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson, barna- legur útsaumur Kristins G. Harðar- sonar og saumuð málverk Valgarðs Gunnarssonar, sem ég hef alltaf haft gaman af. Í síðasta hluta sýningarinnar eru svo glæný verk Önnu Líndal sem sæta hvað mestum tíðindum á sýn- ingunni. Þarna má sjá tilbrigði við vel þekktan fyrri vinnustíl Önnu þar sem marglitur tvinni er aðalefnivið- urinn, vafinn um bolla og hnífapör og aðra heimilishluti. Verkin eru stökk- breyting frá eldri stíl, expression- ískari og laus við þá yfirvegun, stillu og nákvæmni sem einkennir eldri verkin. Skammt frá stendur keikur geir- fugl Ólafar Nordal og þar næst hjá blikka nýleg verk Ilmar Stefánsdótt- ur og eldri gagnvirk hljóðverk Finn- boga Péturssonar. Þá eru þarna verk eftir Rögnu Sigurðardóttur, sjóðheit af sýningu hennar í Lista- safni ASÍ ef mér skjátlast ekki. Þá á ég aðeins eftir að minnast á textílverk Guðrúnar Marinósdóttur sem tóna vel við Hárfléttur Sigríðar Salvarsdóttur innan um grjótið hans Páls. Eins og áður sagði er sýningin fersk og gefur ágæta hugmynd um hvað íslenskir listamenn eru að fást við í dag, þó að auðvitað sé hér ekki um neina skipulega úttekt að ræða. Vert er að vekja sérstaka athygli á viðtali við Evu Maríu í sýningarskrá en þar kemur fram heilbrigð og nú- tímaleg sýn leikmanns á íslenska myndlist og hlutverk hennar í sam- tímanum. ÞETTA vil ég sjá, sýning sem Eva María Jónsdóttir sjónvarpskona hef- ur valið verk á, er ein yfirgripsmesta hópsýning á samtímalist sem haldin hefur verið hér á landi síðustu miss- erin. Ekki aðeins er hér mættur til leiks breiður hópur starfandi mynd- listarmanna af yngri kynslóð heldur má á sýningunni sjá mörg ný verk sem aldrei hafa komið fyrir sjónir al- mennings áður. Það má því segja að boðið sé upp á óvenju spennandi sýn- ingu í Gerðubergi þetta tímabilið. Það sem bindur sýninguna saman er smekkur Evu Maríu og verkavalið sem ætti að endurspegla hennar innri mann að einhverju leyti. Sýn- ing sem þessi segir einnig ýmislegt um þekkingu sýningarstjórans á því sem er að gerast á myndlistarvett- vangi en miðað við samsetninguna virðist Eva fylgjast vel með og betur en margur. Að öðru leyti er þema sýningarinnar ekkert eitt sérstakt en sýningin er þó kaflaskipt. Sé gengið inn í salinn að neðan- verðu mætir manni fyrst verk eig- inmanns sýningarstjórans, Óskars Jónassonar kvikmyndagerðar- manns, en hann var nemandi í ný- listadeild MHÍ á sínum tíma. Verkið er ósköp meinlaust og sniðugt og hangir í öndvegi við hliðina á nafni Evu Maríu. Neðri salurinn býður af sér góðan og stilltan þokka. Þarna er nútíma- leg sýn á íslenskt landslag ríkjandi með smá útúrdúrum sem eru fínleg „Post Human“ verk Úlfs Grönvold unnin úr naglalakki, skeggi og hár- um. Úlfur hefur í gegnum tíðina unn- ið með kven- og karlímyndina og eru verkin gott dæmi um hvernig hann nálgast viðfangsefni sín. Verkin tengja neðri hæðina óbeint við þann hluta sýningarinnar sem er á efri hæð, en þar eru m.a. merkileg verk ofin úr mannshárum. Af fleiri verkum á neðri hæð má nefna verk Daníels Magnússonar, Þágufallssýki, en leturgerðin og blöndun hennar við bakgrunninn minnir um margt á verk listamanns- ins Ed Ruscha. Þá má sjá þarna at- hygliverð verk eins og Landnám Óskar Vilhjálmsdóttur, þar sem Grafarholtið er numið, og glænýtt verk eftir Georg Guðna en málverk hans verða þokukenndari og óræðari með hverju árinu sem líður. Til að fullkomna hið stillta andrúmsloft öræfanna í salnum eru þarna nokkur verk eftir Húbert Nóa en eins og einn sýningargesturinn orðaði það þá eru þau „afar falleg“. Á leiðinni upp stigann í átt að næsta hluta sýningarinnar mætir li- tasinfónía Halldórs Ásgeirssonar okkur í verkinu Brennivín og lýsi alla daga. Allt annar blær er yfir sýningunni í salnum á efri hæð, sérstaklega fremst í honum. Af verkunum þar ber fyrst að telja þjóðsögulegt stein- högg Páls frá Húsafelli sem birtist þarna í ýmsum myndum. Sérstaka athygli vekur verk hans Hafmey en þar hefur hann skellt rauðgrýtis- höggmynd ofaní vatnsbað og er úr- Þetta vil ég sjá Nokkur verk sem Eva María Jónsdóttir valdi á sýninguna Þetta vil ég sjá. MYNDLIST Gerðuberg Opið alla virka daga frá kl. 11–19 og frá kl. 13–16 um helgar. Til 23. mars. ÝMSIR MIÐLAR ÝMSIR LISTAMENN Þóroddur Bjarnason DAÐI Guðbjörnsson sýnir um þess- ar mundir málverk í baksal Gallerís Foldar undir yfirskriftinni „Bátar, beib og bíbar“. Verkin á sýningunni eru tuttugu talsins og koma þar fyr- ir endurtekin mótíf, s.s. fiskar, fugl- ar, himinn og haf. Þegar Daði er spurður hvers vegna hann geri haf- ið hér að viðfangsefni segist hann í raun nýkominn á þurrt land eftir að hafa verið mjög upptekinn af hafinu um skeið. „Þetta er bara eitthvað sem bank- aði upp hjá mér og ég varð að mála. Sum viðfangsefnin eru minningar frá því að ég var barn, en önnur fela í sér einhvers konar vísun í listasög- una og eru það mótíf sem ég hef unnið með áður. En ég ólst upp við hafið og leyfi mér kannski að líta á þessa hluti dálítið öðrum augum en þegar ég var barn. Þá tengdust skip og fiskur ákveðnum praktískum veruleika, en núna mála ég þetta allt í svolítið ævintýralegum litum.“ – En hvernig er þetta nýstárlega nafn tilkomið? „Ég lýsi þarna hugðarefnunum á sýningunni, bátum, konum (beib) og fuglum (bíbar). Kannski vildi ég ná fram ákveðnum andvitsmunalegum áhrifum með þessari nafngift. Ég hef alltaf lagt fyrst og fremst áherslu á að mála, að vera málari og ekkert annað og lít á málverkið sem aðferð til að tjá hugsanir og til- finningar. Hins vegar eru ákveðnir hlutir engu að síður að flækjast dá- lítið fyrir manni, eins og spurningar um viðfangsefni, samtímann og ástand listheimsins. Ég held að það væri miklu betra að vera bara laus við „listheiminn“ og þær spurn- ingar sem honum fylgja. Ég tókst dálítið á við þessa togstreitu í sýn- ingu sem ég hélt árið 1993, en hér er ég í raun að ganga meira í þá átt að forðast vitsmunalegan fyrirvara. Undanfarin ár hefur verið ákveðin umræða í gangi um að færa þurfi listina nær fólki og gera því kleift að skilja hana nokkurn veginn milli- liðalaust. Þetta er nokkuð sem ég hef alla tíð verið mjög upptekinn af,“ segir Daði. – En hvað með skírskotunina í myndlistarhefðina. Er hún ekkert að flækjast fyrir þér? „Jú, þessi endurteknu mótíf tengjast vissulega sambandi mínu við myndlistarhefðina, eins og liggj- andi módelið og klassíska súlan. Auðvitað situr hefðin í manni, og getur maður sem málari aldrei losn- að við þann farangur. Ég er hins vegar farinn að hafa minni áhyggj- ur af þessum pakka og meiri áhyggjur af því að vera of meðvit- aður um einhverjar skilgreiningar. Nú hef ég mestar áhyggjur af því að mála hreinlega ekki nógu vel,“ seg- ir Daði og hlær. „Ég er því fyrst og fremst að reyna að búa til list sem er nógu sterk til að hún nái til fólks án þess að það þurfi að tala um hana eða út- skýra hana, en hún verður líka að geta lifað af kjaftæðið“ segir Daði að lokum, en sýning hans í Galleríi Fold stendur til 24. mars næstkom- andi. Morgunblaðið/Sverrir Daði Guðbjörnsson hefur sett upp „andvitsmunalega“ sýningu. „Ég er málari og ekkert annað“ FRANSKI leikstjórinn Jean- Francois Richet hefur getið sér gott orð fyrir verk sín á kvikmyndasvið- inu, þ.e. frumraunina „Etat des lieux“ (1995) sem tilnefnd var til fjölda verðlauna og „Crack 6T“ sem tilnefnd var til verðlauna sem frönsk kvikmynd á Cannes-hátíðinni árið 1997. Þriðja mynd Richet, Um ástina (De l’amour) sýnir að hér er sterkur leikstjóri á ferð, sem hefur margt nýtt og ferskt fram að færa í franska kvikmyndagerð. Kvikmyndin, sem Richet skrifar sjálfur handritið að, segir frá ungu kærustupari, Mariu og Karim, og vinum þeirra. Í raun er um sígilda ástarsögu að ræða, en hún er færð í samhengi við áleitnar spurningar í frönsku nútímasamfélagi. Karim er Frakki af arabískum uppruna, en Maria „alfrönsk“. Þannig koma inn í söguna spurningar um fordóma og mismunandi samfélagsaðstæður og í gegnum atburðanna rás magnast smám saman upp dramatískt ferli sem verður til þess að reyna af mikl- um þunga á ástarsamband aðalper- sónanna. Þetta er því áhrifarík saga, bæði á persónulega og félagslega sviðinu. Sögupersónur eru sterkar og forðast höfundur allar klisjur í viðbrögðum þeirra við þeim valkost- um sem þær standa frammi fyrir. Sterkur hópur ungra leikara kemur fram í myndinni, og er óhætt að hvetja fólk til að ná í skottið á frönsku kvikmyndahátíðinni sem lýkur á mánudag og sjá þessa mynd. Saga um ástinaKVIKMYNDIRRegnboginn, frönsk kvikmyndahátíð Leikstjórn og handrit: Jean-Francois Richet. Virginie Ledoyen, Yazid Ait, Mar Sodupe, Stomy Bugsy, Jean-Francois Stevenin, Bruno Putzulu og Karim Attia. Sýningartími: 105 mín. Frakkland, 2000. UM ÁSTINA (DE L’AMOUR)  Heiða Jóhannsdóttir LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir ærslaleikinn Blessað barnalán í Ís- lensku óperunni um páskana, en það eru um það bil 7 ár síðan Leikfélagið var síðast með sýningar í Reykjavík. Blessað barnalán er ærslafullur gamanleikur – eða farsi, og var verk- ið samið sérstaklega fyrir Leikfélag Reykjavíkur og sett upp af LR í Iðnó fyrir rúmum tuttugu árum. Ekkjan Þorgerður býr ásamt elstu dóttur sinni Ingu í húsi fjöl- skyldunnar í litlu ónefndu þorpi á Austfjörðum. Þær mæðgur Inga og Þorgerður fá þá hugmynd að smala öllum börnunum saman og halda einskonar ættarmót í húsi þeirra fyr- ir austan. Leikstjóri er Þráinn Karlsson. Leikarar eru Saga Jónsdóttir, Skúli Gautason, Hildigunnur Þráinsdóttir, Laufey Brá Jónsdóttir, María Páls- dóttir, Þorsteinn Bachmann, Sunna Borg, Hjördís Pálmadóttir, Sigurður Hallmarsson, Aðalsteinn Bergdal og Aino Freyja Järvelä. Sýningar verða miðvikudaginn 27. mars, fimmtudaginn 28. mars, laug- ardaginn 30. mars og annan í pásk- um. Sýningarnar hefjast kl. 20. Morgunblaðið/Gunnar Sverrisson Saga Jónsdóttir og Sunna Borg í hlutverkum sínum í Blessuðu barnaláni. Leikfélag Akur- eyrar sýnir í Ís- lensku óperunni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.