Morgunblaðið - 17.03.2002, Qupperneq 46
MÚSÍKTILRAUNIR
46 SUNNUDAGUR 17. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17
Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050
www.hofdi.is
Einarsnes 33, Skerjafirði
Í dag býðst þér og þinni fjölskyldu
að skoða þetta fallega 117 fm
einbýli sem er á einni hæð. Óbyggt
svæði er við húsið. Húsið skiptist.
m.a. í 3 herbergi, tvær stofur,
eldhús og bað. Byggingarréttur er
við húsið. Húsið stendur á 746 fm
lóð. Verð 16,9 millj.
Rjúpufell 33, 2.h.
Guðný býður ykkur að skoða þessa
fallegu 109 fm 4ra herbergja íbúð
sem er á 2. hæð í þessu fallega og
nýklædda fjölbýli. Yfirbyggðar svalir
eru á íbúðinni. Glæsileg innrétting
er í eldhúsi. Sér þvottahús er í
íbúðinni. Verð 11,5 millj.
Á annarri hæð glæsileg 4ra
herb. íbúð á tveimur hæðum
alls 104,3 fm. Vandaðar inn-
réttingar og gott parket á
gólfum. Glæsilegt útsýni og
gott ytra umhverfi.
Verð 12,9 millj.
Traust í viðskiptum
Allar nánari upplýsingar í
síma 893 3985 og 551 7282.
Klukkuberg - Hafnarfirði
ÞRIÐJA undanúrslitakvöld Mús-
íktilrauna var haldið í Tónabæ sl.
föstudagskvöld og bættust þá tvær
hljómsveitir við þær fimm sem
komnar eru í úrslit næstkomandi
föstudag. Heldur hefur dregið úr
fjölbreytni síðustu ár og þannig voru
bara tvö atriði þar sem ekki var leik-
ið rokk þetta kvöld; tónlistartilraun-
um síðustu ára virðist lokið í bili og
flestir fastir í rokkinu. Ekki má þó
skilja þetta sem svo að rokkið hafi
verið eintóna; innan þess eru ótal
vistarverur og sveitir kvöldsins voru
býsna fjölbreyttar.
Citizen Joe
Citizen Joe byrjaði leikinn að
þessu sinni og það með látum. Sveit-
in leikur einfaldaðan harðkjarna og
gerði það ágætlega. Sérstaklega var
annað lag sveitarinnar gott og gít-
arleikari og trymbilll fá plús fyrir
frammistöðu sína. Þriðja lagið ein-
kenndi góð trommukeyrsla.
Mute
Mute-félagar voru ekki sannfær-
andi, sérstaklega bjátaði á í söngn-
um og textar voru arfaslakir. Stöku
laglínur voru þó þokkalegar. Þriðja
lag þeirra félaga kom þó á óvart, lag
með hægfara stígandi og tilfinninga-
ríkum sérstæðum söng. Þegar við
bættust mishljóma gítareinleikur,
einskonar and-gítarsóló, og óvæntar
kaflaskiptingar varð úr ágætis lag.
Pan
Pan flutti tónlist sína af mikilli
fagmennsku. Allur hljóðfæraleikur
var til fyrirmyndar og sveitarmenn
sem einn maður þegar best lét.
Söngur og gítarleikur leiðtoga sveit-
arinnar var góður, sérstaklega í öðru
laginu, en ekki gekk það þriðja upp,
sýndist ekki nógu vel mótað. Ákveð-
inn galli að þegar svo vel er staðið að
verki sætti menn sig við annað eins
niðursuðuástarbull á ensku og text-
arnir voru.
Tópaz
Tvímenningarnir sem skipa Tópaz
voru greinilega óstyrkir í upphafi en
rættist úr er á leið. Þeir voru komnir
vel í gang í öðru lagi sínu, en und-
irspil í því var vel heppnað. Þriðja
lagið var sniðug samsetning og þá
loks náðu þeir almennilega saman í
skemmtilegri pælingu.
Counter Strike
Einn maður skipar Counter Strike
og hugðist flytja drum & bass.
Margt var vel gert og góðir sprettir í
fyrsta laginu en þegar tók að líða á
það fór tölvan, eða réttara sagt stýri-
kerfið, að grípa inn í sem ágerðist
svo að seinni hluti annars lags hans
og allt þriðja lagið var meira og
minna ónýtt; öll stígandi hvarf út í
veður og vind og taktskipti misstu
marks. Skrifast á William Gates III.
Waste
Tríóið Waste var það síðasta fyrir
hlé og stóð sig með miklum ágætum.
Þeir félagar eru allir efnilegir í
meira lagi, sérstaklega gítarleikari
sveitarinnar og prýðilegur söngvari,
og lögin voru flest vel samin. Sér-
staklega var annað lag þeirra félaga
gott gítarpopp með fagmannlegri
röddun.
Einangrun
Efti hlé var meira rokk á boðstól-
um, að þessu sinni frá Einangrun. Sú
sveit byrjaði aftur á móti ekki vel,
fyrsta lag hennar var þunglamalegt
og ekki vel samið. Annað lagið var
hins vegar betra og skipti miklu að
það var ágætlega sungið.
Svört verða sólskin
Það virtist ágæt hugmynd á papp-
írnum að bræða saman tölvutónlist
og grimma gítarhljóma, en gekk
ekki upp hjá þeim félögum í Svört
verða sólskin. Áður hafa menn gert
vel á þessu sviði en þá sett saman
mjög harkalegan tölvutakt, nánast
verksmiðjuhávaða, og samkeyrt
bjöguðum loðnum gíturum. Taktur-
inn sem Svört verða sólskin studdust
við var aftur á móti of dauflegur, og
meinlaus, til að dæmið gengi upp, en
einhverju hefur skipt að tækjavand-
ræði hrjáðu þá félaga eitthvað.
Reaper
Hafi menn verið farnir að dotta
kom Reaper eins og hressandi vatns-
gusa eða kannski sýrubað. Keyrslan
var geysileg og söngvari sveitarinn-
ar stóð sig frábærlega. Gítarleikar-
inn sýndi að ekki þarf að vera með
fingurna á fullu til að gera vel og
trymbillinn fór á kostum. Frábær-
lega skemmtileg sveit.
Spoiled
Lokaorð þessa músíktilrauna-
kvölds átti hljómsveitin Spoiled sem
lék popppönk með tilbrigðum.
Trommukeyrsla var góð og gítarar
hljómuðu vel. Söngur var aftur á
móti of eintóna og spillti fyrir frekar
en að lyfta, til að mynda í þriðja lagi
þeirra félaga, sem hefði eflaust
hljómað betur ósungið.
Pan var nokkuð öruggur sigurveg-
ari úr sal, en dómnefnd kaus síðan
Waste áfram. Síðasta undanúrslita-
kvöld Músíktilrauna verður næst-
komandi fimmtudag og úrslit á
föstudag.
Hressandi
sýrubað
TÓNLIST
Músíktilraunir
Þriðja undanúrslitakvöld Músíktilrauna,
hljómsveitakeppni Tónabæjar. Þátt tóku
Mute, Pan, Counter Strike, Einangrun,
Waste, Svört verða sólskin, Spoiled,
Reaper, Citizen Joe og Tópaz. Haldið í
Tónabæ föstudaginn 15. mars. Áheyr-
endur um 300.
TÓNABÆR
Topaz Reaper
Einangrun Spoiled
Citizen Joe Counter Strike
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Svört verða sólskin
Mute
Árni Matthíasson
Þumalína
Pósthússtræti/Skólavörðustíg
Allt fyrir mömmu og litla krílið
Póstsendum – sími 551 2136
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Silhouette